Skessuhorn - 11.02.2004, Qupperneq 16
PÓSTURINN
., ’ i www.postur.is
Þu pantar.
Pósturinn afhendir. Heimsending um allt land
LÁTTU
OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
Efnalaugin Múlakot ehf.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 4371930
&www.$pm,is *l
Ferjað yfir
Holtavörðuheiði
Oveður geysaði víða um
land á föstudag þótt Veslend-
ingar hafi sloppið nokkuð vel í
þetta skipti. Þó var Bratta-
brekka ófær og Holtavörðu-
heiðin einnig. Björgunarsveit-
irnar Heiðar og Brák voru
kallaðar út um miðjan dag á
föstudag til að aðstoða fólk
sem lenti í vandræðum á
Holtavörðuheiðinni. Að sögn
lögreglunnar í Borgarnesi var
veðurofsinn það mikill að
snjómoksturstæki þurftu frá að
hverfa en það var ekki fyrr en
upp úr miðnætti sem tókst að
koma síðasta hópnuin niður af
heiðinni. Sjö bílar voru skildir
eftir en tveir þeirra voru mikið
skemmdir eftir árekstur. Strax
á laugardagsmorgun hafði rof-
að til og þá var heiðin rudd og
bifreiðarnar losaðar af strand-
stað.
Að sögn lögreglu olli það
fyrst og fremst vandræðum að
fólk var að leggja á heiðina á
illa búnum bílum. Margir voru
kaldir og hraktir þegar þeir
komu af heiðinni en ekki er
vitað til að neinum hafi orðið
meint af volkinu. GE
Iþróttamaður
Borgaríjarðar 2003
STOFNAÐ 1
Frjálsíþróttamaðurinn Sigur-
karl Gústavsson var kjörinn
Iþróttamaður ársins fyrir árið
2003. Kjörinu var lýst á
Íþróttahátíð UMSB sem ffam
fór laugardaginn 7. febrúar
2004. Þrátt fyrir ungan aldur
hefur Sigurkarl skipað sér með-
al bestu spretthlaupara lands-
ins. Hann setti Islandsmet í
drengjaflokki í 400 m hlaupi á
49,34 sek og 60 m hlaupi inn-
anhúss 7,10 sek auk þess varð
hann Islandsmeistari í 100 m -
200 m - 400 m hlaupum og
langstökki í drengjaflokki á
Meistaramóti Islands 15 - 22
ára. Sigurkarl varð einnig Is-
landsmeistari í 400 m hlaupi í
karlaflokki. Hann var valinn í
Islenska landsliðið til að keppa í
Evrópubikarkeppni, einnig
keppti hann á Norðurlanda-
móti unglinga en bæði mótin
voru haldin í Danmörku síðasta
sumar.
Efstu tíu í kjöri Iþróttamans
ársins voru.
1. sæti Sigurkarl Gústavsson
firj álsíþróttamaður.
2. sæti Gauti Jóhannesson
frjálsíþróttamaður.
3. sæti Berta Sveinbjörnsdóttir
sundmaður.
4. sæti Hallbera Eiríksdóttir
frjálsíþróttamaður.
5. sæti Benedikt Líndal hesta-
maður.
6. sæti Pálmi Sævarsson
körfuboltamaður.
7. sæti Ingimundur Ingimund-
arson sundmaður.
8. sæti Finnur Jónsson golf-
maður.
9. sæti Guðmundur Daníels-
son golfmaður.
10. sæti Helgi Sveinsson
íþróttafélagi fatlaðra.
Gulli hlaðnir línudansarar
afSkaganum
Bikarmeistaramót línudans-
ara var haldið á vegum Dans-
sambands Islands í Laugar-
dalshöllinni sunnudaginn 8.
febrúar. Af 12 hópum sem
kepptu á mótinu voru þrír
hópar frá Akranesi og lentu
allir í verðlaunasætum. Línu-
danshópurinn Utlagarnir
hampaði gullverðlaunum í
flokki fullorðinna en Silfur-
perlan í flokki unglinga. Þá
hlutu Silfurskotturnar brons-
verðlaun í flokki fullorðinna.
Gríðarlegur áhugi er á Akra-
nesi fyrir línudansi og um
hundrað manns setja reglulega
upp kúrekahattana og æfa
þessa tegund danslistar sem
upprunnin er í Bandaríkja-
hreppi. GE
Alþjóðleg bókaveisla
Nýjar og nýlegar íslenskar bækur meb
® afslætti.
cu
Erlendar kiljur eftir topphöfunda á 395 kr.
Fyrir Öskuctaginn
* Búningar
Andlitsmálning
Hársprey
Kirkjubraut 54 - Akranesi - simi 431 1855