Skessuhorn


Skessuhorn - 23.06.2004, Page 15

Skessuhorn - 23.06.2004, Page 15
 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 15 Tæplega 30 hross af Vesturlandi á Landsmót Hestaræktendur og -sýnend- ur á Vesturlandi hafa haft í mörg horn að líta undanfarið, enda Landsmót framundan, en það fer fram á Hellu um næstu mánaðamót. Mörg hross sem fædd eru á Vesturlandi voru sýnd í kynbótadómum í vor og sumar og er árangur dómanna ágætur. Aldrei áður hafa jafn- mörg hross náð lágmörkum til þátttöku á Landsmóti hesta- manna. Alls munu þau verða 29, þar af 7 stóðhestar. A þessum lista hefur Mýra- og Borgar- fjarðarsýsla vinninginn hvað varðar íjölda en þaðan koma alls 22 hross. Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla kemur næst með 5 og 2 eru úr Dalasýslu. Nær öll þessara hrossa eru undan 1. verðlauna stóðhestum og langflest undan 1. verðlauna hryssum. Ekki er að efa að þarna er m.a. að skila árangri markvisst kynbótastarf sem Hrossaræktarsamböndin á Vesturlandi hafa staðið að síð- astliðinn aldarþórðung eða svo. Þau hross sem náð hafa lág- mörkum á Landsmót (Birt með fyrirvara um að listinn sé tæm- andi, enda eru hross leidd fyrir dómara víða um land): Fjögurra vetra: Sólonfrá Skáney Metingur frá V-Leirárgörðum Harpafrá Borgamesi Vakafrá Hellubœ Blikafrá Nýjabæ Ork frá Akranesi Deilirfrá Hrappsstöðam Aldafrá Brautarholti Tildrafrá Sigmundarstöðum Fimm vetra: Aðallfrá Nýjabæ Gulltoppur frá Húsanesi Elkafrá Efri-Hrepp Björkfrá Akranesi Flauta frá Stóra-Asi Valey frá Sigmundarstöðum Röstfrá Hvanneyri Sex vetra: Blærfrá Hesti Akkurfrá Brautarholti Listfrá Skáney Lyftingfrá Hofsstöðum Sjöfnfrá Akranesi Kyljafrá Stangarholti Hestar og menn í Reykholtsdal. Sjö vetra og eldri: Glettafra Neðri-Hrepp Nóttfrá Oddsstóðum Sunnafrá Grundatfirði Slemmafrá Eskiholti II Ekra frá Gullberastöðum Golafrá Grundarfrrði Snótfrá Tungu Fjórðungsmót næsta ár Það er ljóst að í mörg horn verður að líta hjá hestamönnum næstu vikurnar og árið því á- kveðið hefur verið að Fjórð- ungsmót Vesturlands verði hald- ið á Kaldármelum 29. júní til 3. júlí á næsta ári. Vonandi halda þannig tamningar áfram með miklum krafti fyrir næsta ár en það er ljóst að hross eru í góðum uppvexti á Vesturlandi um þess- ar mundir, undan mörgum af bestu stóðhestum landsins og verðlaunahryssum. MM Páll Hafþór Pálsson félagi í stuðningsmannafélaginu Gul- um og glöðum, færði í liðinni viku unglingadeild knatt- spyrnufélags IA 100 þúsund króna styrk sem ætlaður er fyr- ir knattspyrnuskóla UKÍA. Það var Magnús Oskarsson formað- ur félagsins sem veitti styrknum viðtöku. Með á myndinni er Þór Hinriksson yfirþjálfari unglinganefhdarinnar. Magnús Oskarsson vildi koma á fram- færi sérstöku þakklæti til Gulra og glaðra fyrir rausnarlegan styrk. MM Borgfirskar husmæaur i orlof Um síðustu helgi brugðu húsmæður í Borgamesi og Borgarfirði sér í langþráð húsmæðraorlof. Farin varferð á Suðurland og haldið til á Hótel Selfossi. Þaðan var síðan farið í skoðunarferðir og ýmislegt flcira sér til gamans gert í karllausri ferð. Þessi hluti hópsins fór ekki í skoðunarferð sem skipulögð var á sama thna og kvennahlaupið fór fram á Selfossi, enda voru þær staðráðnar í að taka þátt í því. Vilja þær koma á framfæri þakklæti til sunnlenskra samhlaupara sinna. Besti leikur sumarsins hjá ÍA -en uppskeran þó aðeins eitt stig! wm,Á i I Það er óhætt að full- yrða að leikurinn gegn FH á miðvikudag hafi verið besti leikur Skaga- manna í Úrvalsdeildinni í sumar ef ekki besti leik- ur deildarinnar það sem af er. Það var mikið í húfi fyrir bæði lið enda hefur hvorugt þeirra byrjað í samræmi við væntingar og því var nú að duga eða drepast. Leikurinn bar enda keim af því frá upphafi, hörð barátta hjá báðum liðum, góður sóknarbolti og leikmenn á hlaupum sem er því miður meira en hægt hefur verið að segja um suma leiki deildarinn- ar það sem af er sumri. Fyrsta marktækifæri Skaga- manna kom á 2. mínútu þegar Julian Johnson átti ágætan skalla að marki eftir sendingu frá Haraldi Ingólfssyni. Skaga- menn héldu áfram að sækja næstu mínúturnar en á þeirri sjöundu fengu FH ingar dauða- færi þegar Ármann Smári Björnsson fékk stungusend- ingu inn fyrir vörn Skaga- mannna en Þórður Þórðarson í marki ÍA kom vel út á móti hon- um og varði meistaralega. Ár- mann Smári var aftur á ferðinni á 13. mínútu í samskonar að- stöðu og þá gerði hann engin mistök og kom FH ingum yfir. Þetta mark dugði ekki til að slá Skagamenn útaf laginu því aðeins fjórum mínútum síðar átti Kári Steinn Reynisson góða sendingu fyrir mark FH inga. Stefán Þórðarson stökk þar manna hæst og skallaði út til hægri á Harald Ingólfsson sem tók boltann viðstöðulaust og skoraði með þrumuskoti. Skagamann voru heldur frískari en gestirnir það sem eftir lifði hálfleiksins en náðu ekki að skora. Kári Steinn átti meðal annars góðan skalla að marki FH inga en inn vildi boltinn ekki. Síðari hálfleikur byrjaði með sömu látunum og fyrr og hvor- ugt liðið á því að gefa neitt eftir. Skagamenn sóttu stíft og áttu meðal annars fjórar hornspyrn- ur í sömu sókninni snemma í hálfleiknum. FH-ingar léku hinsvegar sama leikinn og í upphafi leiks og á 13. mínútu síðari hálfleiks fengu þeir auka- spyru á vinstri kantinum sem Jón Þorgrímur Stefánsson tók en Tommy Nilsen kom á sigl- ingu og kom boltanum í netið, með hendinni vildu Skagamenn meina, en Kristinn Jakobsson dómari dæmdi markið gilt. Skagamenn efldust heldur við mótlætið og uppskáru eftir því en á 68. mínútu náðu þeir að jafna í annað sinn þegar Pálmi Haraldsson tók auka- spyrnu á miðjum vellinum og sendi inn í teig þar sem Julian skallaði fyrir og Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði, gerði sér lítið fyrir og skoraði með hjólhesta- spyrnu. Bæði lið áttu nokkur hættuleg færi eftir þetta en fleiri urðu mörkin ekki og enn eitt jafnteflið niðurstaðan hjá Skagamönnum. Súrt með dómaramistökin Ólafur Þórðarson þjálfari ÍA sagðist í samtali við Skessu- horn eftir leikinn ekki vera sátt- ur við úrslitin en hafði lítið út á leik sinna manna að setja. „- Þetta var án efa besti leikur tímabilsins hingað til og við vor- um að leika mjög vel en hefðum átt að setja hann oftar. Síðan liggur það Ijóst fyrir að Tommy Nilsen skorar seinna mark FH inga með hendinni og það er að sjálfsögðu súrt að tapa á dóm- aramistökum." ÍA liðið var sem fyrr segir að leika Ijómandi vel en að öðrum ólöstuðum þá voru þeir Harald- ur Ingólfsson, Hjálmur Dór Hjálmsson og Kári Steinn Reynisson bestu menn vallar- ins.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.