Skessuhorn


Skessuhorn - 01.09.2004, Side 1

Skessuhorn - 01.09.2004, Side 1
OPIÐ: Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud.12-18 nettö alltaf gott - alltaf ódýrt VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - 34. tbl. 7. árg. 1. september 2004 Kr. 300 í lausasölu Víkingar upp? Víkingur í Olafsvík hefur komið séð og sigrað á sínu fyrsca tímabili í 2. deildinni í knattspyrnu. Liðið er sem stendur í 3. sætí og hefur haldið sig þar að miklu leyti í sumar. Tvö lið fara upp í 1. deild og sem stendur eru það Leiknir og KS sem standa sterkast að vígi. Með sigri í síðasta leiknum, gegn Leikni í Reykjavík, næstkomandi sunnudag geta Víkingar hins- vegar komist upp um deild. Sjdfótbolta vikunnará bls. 15. Guðmundur 100 ára 1 dag hefði borgfirska skáldið Guðmundur Böðv- arsson frá Kirkjubóli orðið 100 ára. Þessara tímamóta er minnst á ýmsan hátt í hans heimahéraði. Sjá bls. 11 s Agust rektor Ágúst Sigurðsson lands- ráðunautur í hrossarækt hef- ur verið skipaður rektor hins nýja Landbúnaðarháskóla Is- lands, með aðsetur á Hvann- cyri frá og með 1. ágúst s.l. Á- gúst var valinn úr hópi 14 umsækjenda. Sjá viðtal við nýjan rcktor á bls. S Nýjasti framhaldsskóli landsins settur í fyrsta sinn Utgerðarmenn gáfu skólanum flygil Samstarf um rekstur skóla? Hreppsnefnd Skilmanna- hrepps sendi bæjarstjórn Akra- neskaupstaðar nýverið bréf þar sem óskað er eftir viðræðum um hugsanlega sameiningu eða sam- starf um rekstur grunnskóla fyrir sveitarfélögin Skilmannahrepp og Akraneskaupstað. Á fundi bæjarráðs Akraness sl. fimmtudag var samþykkt að taka upp viðræð- ur við bréfritara um málið. Að sögn Sigurðar Sverris Jónssonar oddvita Skilmannahrepps er mál- ið á algjöru frumstígi og því lítíð urn það að segja að svo stöddu. „Við óskuðum eftir því við stjórnendur Akraneskaupstaðar að kannað yrði hvort flötur væri á mögulegu samstarfi þessara sveit- arfélaga um rekstur grunnskóla. Sigurður Sverrir sagðist vita tíl að sambærilegur áhugi væri meðal íbúa í Innri Akraneshreppi tíl að skoða slíkt einnig, þó erindi um það hafi ekki verið sent bæjaryfir- völdum á Akranesi enn sem kom- ið er. Undanfarna áratugi hafa Skil- mannahreppur og Innri Akranes- hreppur auk Hvalljarðarstrand- arhrepps og Leirár- og Mela- hrepps staðið saman að rekstri Heiðarskóla. Undanfarin misseri hefur verið unnið að undirbún- ingi sameiningar þessara fjögurra sveitarfélaga en stærstí rekstrar- liður sameinaðs sveitarfélags er einmitt rekstur Heiðarskóli. Hallfreður Vilhjálmsson er odd- viti Hvalfjarðarstrandarhrepps. Aðspurður um viðbrögð hans við yfirlýstum vilja Skilmannahrepps um að ganga tíl viðræðna við Akraneskaupstað um rekstur grunnskóla hafði hann þetta að segja: „Við sveitarstjórnarmenn höfum rætt þennan möguleika varðandi skólamálin en höfðum ákveðið að fresta því að skoða málið nánar þangað tíl eftir að niðurstaða fæst í hugsanlegri sameiningu þessara fjögurra hreppa. Þess er að vænta í haust að tekin verði ákvörðun um kosningar um sameiningu þess- ara fjögurra sveitarfélaga skv. 90. grein sveitarstjórnarlaga. Eg tel það hlutverk væntanlegrar sveit- arstjórnar að taka ákvörðun um rekstur grunnskólans og þar verða menn að líta á málið út frá fleiri þáttum en einungis fjár- hagslegu hliðinni, t.d. byggða- og atvinnusjónarmiðum dreifbýlis- ins. Því tel ég afar óheppilegt á þessum tímapunkti að sveitar- stjórn Skilmannahrepps sé í tví- hliða viðræðum um rekstur grunnskóla og ég vona að ná- grannar okkar sjái að sér varðandi þetta mál og ljúki þeirri vinnu sem við erum með í gangi varð- andi hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna áður en lengra er haldið.“ Síðastliðinn mánudag var Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði settur í fyrsta sinn að viðstöddum mennta- málaráðherra og fleiri gest- um. Athöfnin fór fram í hinu nýja húsnæði skólans en helmingur þess er núna tilbú- inn en verktakinn, Loftorka í Borgarnesi, mun skila því fullbúnu um áramót eins og um var samið. I máli skólastjórnenda og menntamálamálaráðherrra kom fram mikil bjartsýni um skólastarf í hinum nýja og ný- stárlega skóla. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra sagði m.a. í samtali við Skessuhorn að samstarfið við heimamenn um undirbúning skólans hefði verið sérstaklega á- nægjulegt og að horft yrði tíl þess hvernig skólastarfið þró- aðist enda yrði það eflaust mörgum fyrirmynd. Við skólasetninguna á mánudag kvaddi Hjálmar Kristjánsson, útgerðarmaður í Rifi sér hljóðs fyrir hönd fjögurra útgerðarfyrirtækja á Snæfellsnesi og færði skólan- um að gjöf nýjan ffygil að verðmæti á þriðju milljón. Fyrirtækin sem standa að gjöfinni eru KG fiskverkun í Rifi, Hraðfrystihús Hell- issand, Zophanias Cecilsson og Guðmundur Runólfsson í Grundarfirði. Var þessari rausnarlegu gjöf vel fagnað af viðstöddum en húsfyllir var við þessa fyrstu skólasetn- ingu.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.