Skessuhorn - 01.09.2004, Blaðsíða 16
allur pakkinn
POSTURINN
HÁHRAÐA INTERNET TIL SJÁVAR 06 SVEITA
Þráðlausar netlausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Sími 544 4454
QL^USQNDtNN
SÍMi 894 4980
$$ www.spm ,is
Osammála kærunefiidirmi
í síðasta tölublaði Skessu-
horns var sagt að Byggðasam-
lagi Varmalandsskóla hefði ver-
ið gert að greiða Sindra Sigur-
geirssyni skaðabætur vegna út-
boðs á skólaakstri. Þar voru
niðurstöður kærunefndar út-
boðsmála ekki túlkaðar rétt þar
sem nefhdin tók ekki afstöðu til
skaðabóta. Byggðasamlaginu
var hinsvegar gert að greiða
sinda 200 þúsund krónur vegna
kostnaðar við að hafa kæruna
uppi.
Helga Halldórsdóttir for-
maður skóla- og rekstrarnefnd-
ar Varmalandsskóla sagðist al-
gerlega ósammála þeirri niður-
stöðu kærunefndar útboðsmála
að Sindri hafi verið með gilt til-
boð við opnun tilboða. Það
væri margt í úrskurðinum sem
kæmi verulega á óvart.
Mat þeirra þriggja aðila sent
Byggðasamlagið leitaði ráða hjá
þ.e.a.s. lögmanns Borgar-
byggðar, lögfræðings hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga og
verkefnisstjóra hjá Ríkiskaup-
um var einróma um það að sú
leið sem við fórum væri eðlileg.
Það vantaði gögn hjá öllum að-
ilum og því eðlilegt að kalla eft-
ir því sem á vantaði.
„Það er hinsvegar áhyggju-
efni þegar skoðuð eru öll þau
tilboð sem bárust í skólaakstur
á Varmalandi og í Borgarnesi
að í öll tilboðin vantar gögn.
Mikil vinna var lögð í það af
hálfu starfsmanna Borgar-
byggðar og Byggðasamlags
Varmalandsskóla að gera út-
boðsgögn vel úr garði enda
komu engar athugasemdir á
auglýsingatímanum eða við
opnun tilboða um útboðsgögn-
in sjálf. Það eru hinsvegar til-
boðin sjálf sem uppfylltu ekki
þær kröfur sem gerðar voru.
Það er mikilvægt fyrir þá sem
gera tilboð að vandað sé til allra
verka og öll gögn fylgi. Með
því má forða miklum tíma og
kostnaði eins og fram er að
koma,“ segir Helga.
GE
Hátt í 200 þúsund plöntur í reitnum
Vegfarendur uin Skil-
mannahrepp hafa margir
tekið eftir hversu
gróskumikið skógrækt-
arsvæðið við Fannahlíð
er orðið og áberandi í
landslaginu. Þar hefur
áratuga samstillt átak
sveitunganna skilað
ríkulegum árangri sem
glöggt má sjá þegar ekið
er um þjóðveginn.
Ræktunin er í eigu
Skógræktarfélags Skil-
mannahrepps sem stofn-
að var árið 1939 og hef-
ur verið starfandi æ síð-
an. Landið er hinsvegar
í eigu Skilmannahrepps
sem stutt hefur dyggilega við
starfsemi félagsins alla tíð.
Oddur Sigurðsson bóndi á
Litlu Fellsöxl hefur verið for-
maður Skógræktarfélagins um
árabil og tvímælalaust ein helsta
driffjöðrin í starfseminni. Sjálf-
ur gekk Oddur í félagið árið
1947 og hefur setið í stjórn þess
lengi, eða „lengur en ég þori að
hugsa um,“ eins og hann komst
sjálfur að orði. Handan við
Akranesafleggjarann ræktar
Oddur sjálfur sinn eigin skóg á
25 ha svæði í landi Litlu Fell-
Félag skógarbænda á Vesturlandi auk starfsmanna Vesturlandsskóga heim-
sóttu skógræktina hjá Oddi á Litlu Fellsöxl fyrr í sumar. Oddur er sjálfur hægra
megin við miðja mynd með húfu.
saxlar. En hann er einn af þeim
sem náð hefur hvað bestum ár-
angri bænda sem rækta skóg á
vettvangi Vesturlandsskóga.
I samtali við Skessuhorn
sagði Oddur að byrjað hafi ver-
ið að planta í svæðið við Fanna-
hlíð árið 1941, eða nokkru áður
en félagsheimilið var byggt, en
skógræktargirðingin hafi verið
stækkuð nokkrum sinnum frá
þeim tíma. „Nú er svæðið í
heild um 80 ha að flatarmáli og
við áætlum að búið sé að planta
hátt á annað hundrað þúsund
skógarplöntum í það“. Fyrst og
fremst eru það sjálfboðaliðar úr
félaginu og sveitinni sem komið
hafa að verkinu, plöntun og
umhirðu en einnig segir Oddur
að félagið njóti aðstoðar frá
vinnuskólanum sem rekinn er á
vegum sveitarfélaganna fjög-
urra sunnan Skarðsheiðar. Síð-
astliðinn laugardag var skógar-
dagur við Fannahlíð þar sem á-
hugasömum gestum gafst kost-
ur á að ganga um svæðið og
þiggja veitingar.
MM