Skessuhorn


Skessuhorn - 01.09.2004, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 01.09.2004, Blaðsíða 8
8 ^ntddUtiu^ MIÐVIKUDAGUR L SEPTEMBER 2004 Agúst Sigurðsson skipaður rektor Landbúnaðarháskóla Islands Landbúnaðarráðherra skip- aði í síðustu viku Agúst Sigurðs- son í stöðu rektors Landbúnað- arháskóla Islands til næstu fimm ára. Hlutverk Agústar verður stórt og felst m.a. í því að stýra sameiningu og rekstri nýrrar stofnunar sem mynduð verður úr Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, RALA og Garð- yrkjuskólanum en hin nýja stofntm tekur formlega til starfa 1. janúar nk. „Starfið leggst sérlega vel í mig“ Agúst lauk doktors- prófi í búfjárerfðafræði við sænska landbúnaðar- háskólann árið 1996 og hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í doktorsnámi frá konung- legu sænsku akademí- unni. Hann hefur ffá ár- inu 1996 starfað sem ráðunautur í erfða- og kynbótafræði hjá Bænda- samtökum Islands og sem landsráðunautur í hrossa- rækt hjá sömu stofnun síðan í ársbyrjun 1999. Sem slíkur hefur hann verið leiðandi á sviði hrossaræktar og hesta- mennsku hér á landi og starfað sem kynbótadóm- ari og fyrirlesari í aðildar- löndum Alþjóðasamtaka eigenda íslenskra hesta. Þá hef- ur hann stýrt ýmsum umfangs- miklum rannsóknarverkefnum, m.a. varðandi ræktun íslensku kýrinnar. Hann er hnútum vel kunnugur á Hvanneyri en þar hefur hann stundað nám, fyrst í búfræði og síðar í framhalds- deild Bændaskólans. Flyst á Hvanneyri I samtali við Skessuhorn kvaðst Agúst vera spenntur fyrir að takast á við þetta nýja verkefni. „Eg verð spenntari með hverjum deginum sem líður og starfið leggst sérlega vel í mig. Verkefni mitt næstu vikurnar er að kynnast af eigin raun starfsemi allra þeirra stofnana sem mynda hinn nýja Landbúnaðarhá- skóla Islands. Lögin um hann gefa á- kveðinn ramma en skipulagning starf- seminnar er í raun eftir frá grunni. Eg hef fjóra mánuði til að undirbúa stofnun nýs rannsókna- og fræðaseturs sem mun hafa lögheimili á Hvanneyri en eðli málsins sam- kvæmt verður flókið og marg- brotið verkefhi að samþætta alla þessa starfsemi undir einn hatt,“ sagði Ágúst. Aðspurður segist hann stefna á að flytja að Hvanneyri ásamt eiginkonu sinni; Unni Oskarsdóttur og bömum þeirra, en þó ekki í haust þar sem börnin em byrjuð í skóla og muni Ijúka skólavetr- inum þar. A grunnskólaaldri eiga þau hjón þrjú börn á aldr- inum 5, 8 og 13 ára auk þess sem Agúst á eldri son uppkom- inn. „Fjölskyldan stefnir á að setjast að á Hvanneyri á næsta ári, enda er það rökrétt m.t.t. aðseturs hinnar nýju stofhun- ar,“ sagði hann. Agúst er jafn- framt þekktur hrossaræktandi og bóndi á Kirkjubæ á Rangár- völlum en aðspurður segist hann finna leiðir til að sam- ræma áhugamálið búsetu sinni á Hvanneyri. „Eg hef starfsfólk í Kirkjubæ sem sér um uppeldi og þjálfun hrossanna og á því verður ekki breyting, enda hef ég ekki haft fasta búsetu fyrir austan undanfarin ár,“ sagði A- gúst Sigurðsson að lokum. MM Eldri bílar og uppábúið fólk Síðastliðinn laugardag kom hópur félaga úr Fornbílaklúbbi Islands í heimsókn á Akranes og kom hópurinn fyrst saman við bifreiðaverkstæði Daníels en þaðan var síðan ekið í hala- rófu að Akratorgi þar sem bíl- arnir vom almenningi til sýnis. Klúbbfélagar hafa nokkrum sinnum áður heimsótt Akranes en að þessu sinni var sýning þeirra óvenjulega að því leyti að ökumenn og makar þeirra voru uppábúnir í takt við aldur bíl- anna og tískuna á þeim tíma sem bílarnir vom í almennri í notkun. Þannig hafði sýningin á sér skemmtilega umgjörð gestum og þátttakendum til ánægju. MM Ljósmyndir: Hilmar Sigv.s. Fyrstu réttir um næstu helgi Fyrstu réttir á Vesturlandi verða um næstu helgi, en þá verð- ur réttað í Nesmelsrétt í Hvítársíðu og Ljárskógarétt í Dala- sýslu. Síðan taka þær við hver á fætur annarri næstu þrjár vik- urnar eða svo. MM Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. sunnudag 19. sept. Dalsrétt í Mosfellsdal, Kjós. sunnudag 19. sept. Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal. laugardag 18. sept. Fljótstungure'tt í Hvítársíðu, Mýr. laugardag 11. sept. Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. sunnudag 19. sept. Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. þriðjudag 21. sept. Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. mánudag 20. sept. Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós. sunnudag 19. sept. Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. sunnudag 19. sept. Ljárskógarétt í Laxárdal, Dal. laugardag 4. sept. Nesmelsrétt í Hvítársíðu, Borg. laugardag 4. sept. Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. miðvikudag 15. sept. Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. sunnudag 19. sept. Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal. laugardag 18. sept. Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. mánudag 20. sept. Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. mánudag 20. sept. Stóðréttir haustið 2004 Engar eiginlegar stóðréttir eru á Vesturlandi enda bændur og búalið löngu hætt að reka hross á fjali. Enn er þessi siður þó við- hafður á Norðurlandi og er vinsælt af landanum að fara í stóð- réttir enda er talsvert fleira fólk en hross í þeim flestum. Við birtum hér upplýsingar um þessar réttir lesendum til fróðleiks. Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugard. 18. sept. um hádegi Reynistaðarrétt í Skagafirði, Skag. laugard. 18. sept. um kl. 16:00 Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. sunnud. 19. sept. um kl. 16:00 Hlíðarrétt viðBólstaðarhlíð, A.-Hiín. sunnud. 19. sept. upp úrhádegi Skrapatungurétt í A.-Hún. sunnud. 19. sept. kl. 10:00 Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugard. 25. sept. kl. 13:00 Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugard. 25. sept. um kl. 13:00 Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugard. 2. okt. kl. 10:00 Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit, Eyjaf. laugard. 2. okt. kl. 11:00 Þverárrétt í Eyjajjarðarsveit, Eyjaf. sunnud. 3. okt. kl. 10:00 Góð verk- efiiastaða „Verkefni Loftorku Borgar- nesi ehf. hafa aldrei verið svo viðamikil og fjölbreytt sem nú og á það jafht við um húsaein- inga- og röraff amleiðslu fyrir- tækisins," segir Andrés Kon- ráðsson framkvæmdastjóri í samtali við Skessuhom. Velta og starfsmannafjöldi hefur aukist umtalsvert á liðnum misserum og ekki er údit fyrir annað en að verkefnum fjölgi enn, segir hann og bætir við að velta hafi aukist svo mjög að í nýhðnum mánuði hafi hún náð veltu alls sl. árs. Meðal nýlegra verkefna hjá fyrirtækinu má nefna að verið er að ljúka við reisingu við- byggingar við svínasláturhús- ið í Saltvík á Kjalamesi, ffam- leiðslu húseininga í 80 íbúða blokk á Landssímalóðinni í Grafarvogi er að ljúka, ein- ingar við hraunklædda við- byggingu í Straumsvík em að rísa og verið er að hefja ffam- kvæmdir við rannsóknahús og 51 íbúð á Bifröst. Síðastliðinn mánudag voru áfangaskil í stóra verki í Grundarfirði þegar Fjölbrautaskóli Snæ- fellinga var settur í fyrsta skipti í hluta nýja skólahússins sem byggt er úr einingum frá Loftorku ehf. Fyrirtækið er nú búið að gera samninga um sölu 400- 500 eininga í undirstöður undir möstur og staghellur í Sultartangalínu. Verkið er nokkuð viðamikið en þessar einingar verða afhentar til flutnings á hálendið í Hval- fjarðarbomi og að hluta til í Grafningi. ,Alikil ffamleiðsla og sala hefúr verið í holræsaröram og ýmsum tengimannvirkjum í sumar og er unnið á vöktum við steypuvinnu til að hafa við pöntunum. Auk þessara verk- efna er verið að vinna við gerð nokkurra stærri verksamninga sem geri það að verkum að í fyrirsjáanlegri framtíð verði næg verkefni hjá fyrirtækinu,“ sagði Andrés að lokum. Nú era 107 starfrnenn hjá fyrir- tækinu. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.