Skessuhorn - 01.09.2004, Side 9
jat33Utlu>.
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2004
9
í\li TJetðifiotníð
iff Flóka gæti farið í 500 laxa
Umsjón: Magmís Magmísson
Nú líður að lokum veiði-
tímans í flestum laxveiðiám
landsins. Langvarandi þurrk-
ar hafa undanfarið haft veru-
leg áhrif á veiðina í nokkrum
ám hér á Vesturlandi og má
þar t.d. nefna að úr Laxá í
Dölum voru í síðustu viku
eingöngu komnir á land um
600 laxar en á síðasta ári gaf
hún tæpa 1400 laxa. Langáin
var komin yfir 1600 laxa en
þar veiddust 2263 laxar á síð-
asta ári enda stóð áin hæst
allra veiðiáa það árið. Ur
Norðurá voru komnir 1282
laxar um miðja síðustu viku
en árið 2003 veiddust úr
henni 1444 laxar. Þveráin
hafði skilað 1279 löxum sl.
miðvikudag en vikuna áður
höfðu einungis 56 laxar skilað
sér á land og hefur þurrkatíð
vafalítið haft mikið að segja. I
fyrra gaf Þverá 1872 laxa yfir
Allt í veiðiferðina
árið. Haffjarðaráin hafði skil-
að álíka mörgum löxum og
allt síðasta ár og úr Grímsá
voru komnir 800 laxar um
miðja síðustu viku, en Grímsá
og Tunguá gáfú alls 1156 laxa
sl. sumar.
Einstaka vestlenskar veiðiár
hafa gefið fleiri laxa nú þegar
en allt síðasta ár og má nefna
að úr Flókadalsá höfðu í síð-
ustu viku komið 390 laxar og
þar af 60 á einni viku, en árið
2003 gaf Flóka 334 laxa sam-
tals.
Veiðhornið sló á þráðinn til
Ingvars Ingvarssonar bónda á
Múlastöðum en hann er sér-
fræðingur um veiðar í Flóku.
Ain er með skárra móti þetta
sumarið og stefnir jafnvel í
metveiði ef vel viðrað það
sem eftir lifir veiðitímabils-
ins. Ingvar kvaðst einmitt
hafa verið við veiðar í síðustu
viku ásamt Guðrúnu konu
sinni og Helga Sigurðssyni
tvíburabróður hennar en það
er árvisst að þau halda upp á
afmæli systkinanna með því
að veiða dagana 23. til 25. á-
gúst í ánni. „Það gekk ágæt-
lega hjá okkur og veiðin var
góð. Þeir voru einnig við
veiðar sömu dagana bræðurn-
ir á Brennistöðum og samtals
höfðum við 32 laxa á þrjár
stangir í þessa tvo daga.
Flesta fengurn við á maðk en
sennilega hafa um 10 þeirra
tekið flugu,“ sagði Ingvar.
Hann var nýkominn úr veiði-
húsinu, þegar slegið var á
þráðinn til hans í gærdag og
sagði Ingvar að veiðimenn
sem voru að ljúka veiði hafi
fengið vel af fiski og inn á
milli hafi verið nokkrir 10
punda laxar. Veiðin úr Flóku
er nú komin yfir 400 laxa en
Hyman, bensínstöð sími 430-5565
Pizxahlaðborð ^
allafimmtuðaga^
18:00
Það er ekki endilega að iaxarnir komu alltaf upp úr dýrum og
góðum laxveiðiám. Þessi lax kom nýiega í trollið hjá togaran-
um Hringi SH 535 frá Grundarfirði þegar skipið var við veiðar
út af Vestfjörðum. Einstaka sinnum gerist það að lax slæðist
með í trollið en það er fremur sjaldgæft þó. Það er Sergei Ger-
aimou háseti á Hringi sem heldur á fiskinum. Ljósm.: Gulli Alla.
leyfilegt að ánni en það var þriðja besta ár
(jisti- og veitmgastuður
Sími 437 2345
www.motelvenus.net
Alltaf með bestu pizzatilboðin..!
par er
veiða fram til 1. októ-
ber. Ingvar vildi engu
spá um hversu hátt
áin gæti farið og kvað
veðrið í september
hafa mest um það að
segja. Árið 2002
komu 474 laxar úr
frá því Ingvar fluttist að
Múlastöðum. Veiðin í sumar
gæti því hæglega farið yfir
það og jafnvel í 500 laxa sem
yrði að teljast mjög gott.
Skessuhorn/MM
Námskeiö á nœstunni! dÍMENNTUNARMIÐSTÖÐIN
Vesturland VÍX A veSTURUtNDI
Enska í dreifkennslu fyrir byrjendur - Áhersla á að hver vinni á sínum eigin hraba í samræmi við
þann grunn sem hann hefur. 2. okt.
Sorg og sorgarvibbrögö - Fyrir stéttir í heilbrigöis- og félagsþjónustu. - 29. sept.
Búöardalur Borqarnes oq Borqarfj. Akranes
Tölvuleikni 20. sept. Thai Chi - leikfimi 25. sept. Línudans 16. okt. jóga, Borgarnes og Varmaland 20. sept. Tölvuleikni, Varmaland 20. sept. jóga, Hvanneyri 21.sept. Dekurnámskeiö fyrir konur 21. sept. Sjókajak fyrir byrjendur 22. sept. Parajóga 23. sept. Málun 23. sept. Jógasamvera, Hvanneyri 24. sept. Jóga fyrir börn 24. sept. Umhverfismál í heimilishaldi 28. sept. Námskeiö í Egilssögu 4. okt. Föröun 12. okt. Bókhaldsgrunnur 21. okt. Klipping myndbanda í tölvu Hvanneyri 11. okt. Línudans 26. okt. Thai Chi 20. sept. Dans fyrir börn 21. sept. Byrjendanámskeiö í tölvunotkun 20. sept. Cítar 20. sept. Jóga 20. og 21. sept. Grunnteikning CRTI03 22. sept. íslenska fyrir útlendinga 27. sept. Leöurvinna 5. okt. Skrautskrift 11. okt. Klipping myndbanda 20. okt. Breytingaskeiöiö góöur tími! 21. okt. Tœlensk matargerö 23. okt.
Snæfellsbær
Línudans 30. okt. jólakortagerö 28. okt.
Grundarfjörður
Tölvuleikni 20. sept. Haustkransagerö 23. sept. Tœlensk matargerö 16. okt.
Námsvísinum meö nánari upplýsingum
Stykkishólmur og fleiri námskeiöum veröur dreift í öll hás á Vesturlandi á nœstunni!
Tölvuleikni fyrir eldri borgara 20. sept. Haustkransagerö 21.sept. Jólakortagerö 21.okt. 1 Haustönnin er oö byrja! Upplýsingar og skráning í síma 4372390 og á www.simenntun. is