Skessuhorn - 15.09.2004, Qupperneq 3
jntðaiinu.-
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004
3
Bíræfið og
alvarlegt brot
Kveikt í bílskur og
skemmdarverk unnin á bíl
Grunur er um íkveikju og
skemmdarverk við íbúðarhúsið
á bænum Brekku II í Hvalfirði
sl. mánudagsmorgun. Húsið er
lítið timburhús, byggt árið
1972 og stendur á steyptum
sökkli og er bílskúr undir því.
Einn maður var í húsinu þegar
eldurinn kom upp og hringdi
hann í Neyðarlínuna og leitaði
jafnframt aðstoðar nágranna
sinna á Bjarteyjarsandi við að
hefta útbreyðslu eldsins. Lög-
reglan í Borgarnesi og
Slökkvilið Akraness fóru á
vettvang ásamt sjúkraflutn-
ingamönnum frá Akranesi.
Maðurinn slapp ómeiddur, en
skemmdir á húsinu urðu tölu-
verðar bæði af völdum hita,
reyks og vatns og sviðnaði t.d.
framhlið þess mikið svo ein-
ungis var tímaspursmál að eld-
urinn læsti sig í húsið áður en
slökkvistarf hófst.
Eldurinn kom upp í bílskúr á
neðri hæð hússins og barst í
pallbifreið sem brann til kaldra
kola. „Við skúrinn stóð einnig
fólksbifreið sem brann ekki, en
á henni höfðu verið unnin
töluverð skemmdarverk. Við
rannsókn málsins urðum við
einnig fljótt varir við að kveikt
hafði verið í bílskúrnum,"
sagði Theodór Þórðarson, yf-
irlögregluþjónn í Borgarnesi,
en embætti hans fer með rann-
sókn málsins. Theodór segir
að enginn hafi enn verið hand-
tekinn vegna brunans og
skemmdarverkanna. „Hér er
um mjög bíræfið og alvarlegt
brot að ræða einkanlega þar
sem maður var staddur í hús-
inu þegar skemmdarverkin
voru framin og kveikt var í
húsinu," sagði Theodór í sam-
tali við Skessuhorn.
MM
Skipulagsnemar kanna aðgengi að eigin raun:
Ferðast um húsa-
kynni í hjólastólum
A morgun, 16. september,
setjast nemendur á umhverfis-
skipulagsbraut við Landbúnað-
arháskólann á Hvanneyri í
hjólastól til að kanna aðgengi
fatlaðra að húsakynnum skól-
ans. Frumkvæði að þessu verk-
efni á Þórunn Edda Bjarnadótt-
ir, einn þessara nemenda og er
verkefnið unnið í samstarfi við
skólann. Eins og geta má er það
mikilvægur eiginleiki góðs
hönnuðar þ.m.t. landslagsarki-
tekts að geta sett sig í spor við-
skiptavina sinna. Meðal annars
þarf að huga að þörfum þeirra
sem eru í hjólastól því ekki eiga
allir jafn auðvelt um gang.
Markmiðið með þessu óvenju-
lega verkefni er að nemendur
sem koma til með að hanna úti-
vistarsvæði og umhverfi bygg-
inga geri sér betur grein fyrir
hvað þarf til að gera svæði að-
gengileg.
Dagskráin þann 16. septem-
ber byrjar með fyrirlestri ffá
Guðmundi Magnússyni leikara,
sem unnið hefur m.a. að úttekt
á aðgengi á ýmsum stöðum í
samstarfi við Sjálfsbjörg. Eftir
fyrirlesturinn fara nemendur í
starfshópum um Hvanneyri og
taka út aðgengi fyrir fatlaða að
skólabyggingum og öðrum
stöðum sem nemendur þurfa að
umgangast. Hver hópur fær
hjólastól til umráða og skiptast
nemendur á um að sitja í stóln-
um. Þannig fá allir skýra til-
finningu fyrir þörfum hins fatl-
aða. Að lokum eru niðurstöður
teknar saman og opin kynning
haldin á þeim í mötuneyti skól-
ans kl. 14.30 þann 20. septem-
ber.
Fyrir utan tilstilli hugmynda-
smiðarins og skólans sjálfs
koma eftirtaldir aðilar að fjár-
mögnun og ýmsum stuðningi
við þetta verkefhi: Sparisjóður
Mýrasýslu, PJ byggingar,
Sjálfsbjörg og Búvélasafhið á
Hvanneyri.
MM
f \
Auglýsing um starfsleyfi
Samkvæmt ákvæðum 9. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur
sem getur haft í för með sér mengun, er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu
að starfsleyfi fyrir alifuglasláturhús Mosa ehf. að Stiklum, Hvalfjarðarstrandarhreppi.
Starfsleyfistillagan liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarstrandarhrepps að Hlöðum
og hjá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands að Stillholti 16-18 Akranesi og Borgarbraut 13
, Borgarnesi, á tímabilinu 17. september til 15. október 2004.
I Skriflegum athugasemdum skal skila á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands
1 að Borgarbraut 13, 310 Borgarnesi, fyrir 18. október 20004.
Heilbrigðisnefnd Vesturlands
Akraneskaupstaður
Auglýsing um deiliskipulag á Akranesi
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Smiðjuvalla - Esjubraut 47
Með vísan til 1. málsgr., 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst eftir athugasemdum við tillögu að deiIiskipuíagi Smiðjuvalla - lóðinni
Esjubraut 47.
Um er að ræða breytingu á deiIiskipulagi lóðarinnar nr. 47 við Esjubraut sem felst í
stækkun byggingarreits á umræddri lóð.
Tillagan, ásamt frekari upplýsingum, liggur frammi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs
að Dalbraut 8, Akranesi, frá 22. sept. 2004 til og með 20. okt. 2004.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemair. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. nóv. 2004 og skulu þær
berast á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir
henni.
Akranesi 14. sept. 2004,
Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður
Auglýsing um deiliskipulag á Akranesi
Tillaga að deiliskipulagi Vallarselsreitar
Með vísan til 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiIiskipulagi fyrir raðhúsalóðir við Vallarbraut.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir íbúoalóðir og lóð fyrir leikskóla. Svæðið
afmarkast af Skarðsbraut, Vallarbraut og göngustíg norðan Garðabrautar. Innan
deiliskipulagssvæðisins eru lóðirnar Skarðsbraut 6 (lóð leikskólans Vallarsels) og
raðhúsalóðirnar Vallarbraut 2, 4, 6, 8, 10, 12 og 14.
Tillagan, ásamt frekari upplýsingum, liggur frammi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs
að Dalbraut 8, Akranesi, frá 22. sept. 2004 til og með 20. okt. 2004.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemair. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. nóv. 2004 og skulu þær
berast á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaoar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir
henni.
Akranesi 14. sept. 2004,
Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
iiMtrtiBit Akraneskaupstaður
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Akraness 1992-2012
Með vísan til 21. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með óskað
eftir athugasemdum við tillögu að breytingu a aðaTskipulagi Akraness 1992-2012.
Svæðið sem breytingin nær til markast af Þjóðbraut, Akranesvegi (þjóðvegur),
skógræktarsvæðinu Garðalundi, Safnasvæði, Garðagrund og Innnesvegi.
Breytingin felst annars vegar í javí að breyta landnotkun fyrir þjónustu, verslun og
athafnasvæði í íbúðarsvæði að þvi undanskilau að lóð á horni Innnesvegar og Þjóðbrautar
verður alfarið fyrir verslun og þjónustu og hins vegar að fella niður safnbraut sem liggja
átti milli Garoagrundar og Akranesvegar (þjóðvegar).
j Tillagan ásamt frekari upplýsingum, liggur frammi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs
að Dalbraut 8, Akranesi frá og með 22. sept. 2004 til og með 20. okt. 2004.
; Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
i athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn atnugasemdum er til 3. nóv. 2004
j ogskulu þær berast á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16- 18, 3. hæð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
Akranesi 14. sept. 2004
Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar