Skessuhorn - 15.09.2004, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004
9
oivt33Ltlu»..
Menningarhópur fyrir ungt fólk:
Ten Sing í Hvíta húsinu á Akranesi
i M 1 I
■ 1 - L 1
Hluti hópsins sem taka mun þátt í Ten Sing verkefninu á Akranesi.
Starfsemi Hvíta hússins,
menningarhúss ungs fólks á
Akranesi, er nú komin á fulla
ferð eftir sumarfrí. Eitt af stóru
verkefnunum framundan er Ten
Sing á Akranesi, menningar-
hópur fyrir ungt fólk á aldrinum
15-22 ára. Markmið verkefnis-
ins er meðal annars að dýpka
menningarvitund ungs fólk og
virkja þau í söng og leik, hvetja
unglinga til að vera skapandi og
taka þátt í að móta unglinga-
menninguna á Akranesi og brúa
bilið milli gnmnskóla og fram-
haldsskóla með því að hleypa
grunnskólanemum í hópinn og
veita þeim um leið aðgang að
Hvíta húsinu við sérstök tilefni.
Þannig er verkefnið samþætting
ólíkra aldurshópa, er þroskandi
og ekki síst mótandi fyrir ungt
fólk á tímamótum.
Tilraunaverkeftii til
16 mánaða
Ten Sing er tilraunaverkefni
til 16 mánaða, unnið í samvinnu
tómstunda- og forvarnasviðs
Akraneskaupstaðar, Hvíta húss-
ins, Skagaleikflokksins, Fjöl-
brautaskóla Vesturlands,
Brekkubæjarskóla, Grunda-
skóla, Arnardals og Bíóhallar-
innar. Ellý Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri Hvíta húss-
ins, er verkefnisstjóri og segir
hún fyrirmynd verkefnisins
sótta til Evrópu þar sem Ten
Sing hópar hafa verið við líði
um langt skeið. Starfandi eru al-
þjóðleg regnhlífarsamtök, Ten
Sing World og Ten Sing E-
urope, sem auðveldar aðgengi
að efni og reynslu sem nýtist vel
við stofnun hópsins á Akranesi.
I byrjun október verður farið á
Semi 1, námskeið sem haldið er
í Sviss í samvinnu við þarlendan
Ten Sing hóp og segir Ellý
markmiðið með þessu nám-
skeiði að þjálfa upp hópstjóra
sem geta svo haldið utan um
starfið hér heima. A námskeiðið
mætir fólk víðsvegar að úr Evr-
ópu til að miðla reynslu sinni.
Ekki allir sem finna
sig í íþróttum
Aðdragandann að stofnun
hópsins á Akranesi má rekja til
þess að Aðalsteinn Hjartarson,
sviðsstjóri tómstunda- og for-
varnarsviðs, bjó í Sviss og var
verkefnisstjóri Ten Sing hóps
þar í tæp þrjú ár. Þegar Aðal-
steinn bryddaði upp á þeirri
hugmynd að hleypa slíku verk-
efni af stokkunum á Akranesi
var ákveðið að slá til. „I raun-
inni er þetta einmitt það sem
vantaði hér,“ segir Ellý. „A
Akranesi er rík hefð fyrir í-
þróttaiðkun og mikið í boði fyr-
ir þá sem finna sig þar. Þetta er
gott með íþróttunum og það
sem hefur vantað fyrir þá sem
hafa meiri áhuga á menningu,
listum, sköpun og öðru því
tengdu."
Skipulagið
Grunneining Ten Sing er kór
sem allir eru meðlimir í en sam-
hliða honum starfa sjö hópar;
Teymið, sem er stjórn kórsins
og samanstendur af stjórnend-
um allra hópanna.
Leiklistarhópur sem reglulega
heldur námskeið í leiklist, fram-
sögn og leikstjórnun í samvinnu
við Skagaleikflokkin. Tónlist-
arhópur hefur það hlutverk að
útsetja og æfa lög með kórnum
og kórstjórnanda. Hljómsveit-
in æfir lögin og spilar með
kórnum á sýningum. Tækni-
hópurinn heldur úti námskeið-
um um tæknileg málefni, svo
sem nýjungar í ljósa- og hljóð-
tækni. Hópurinn heldur auk
þess utan um tæknihliðina á
sýningum. Hönnunarhópur
heldur reglulega námskeið þar
sem myndlistarmenn eða aðrir
hönnuðir koma í heimsókn.
Farið verður í vefsíðu- og aug-
lýsingagerð. Utvarpshópur
heldur úti útvarpi og sendir
reglulega út þætti á FM 95,0 í
samvinnu við Bíóhöllina á
Akranesi.
Markmiðið að gera
hópinn sjálfiim sér
nógan
Sem fyrr segir er það Ellý
Halldórsdóttir sem heldur utan
um starfið en ráðinn hefur ver-
ið kórstjóri til sex mánaða, Sig-
ríður Elliðadóttir söngkennari í
Tónlistarskóla Akraness. Verk-
efni Sigríðar felst ekki síst í því
Eilý Halldórsdóttir veitir Hvíta húsinu á Akranesi forstöðu. Það verður
í nógu að snúast hjá henni á næstunni.
að gera kórinn sjálfbjarga og
þegar ffam líða stundir kemur
hópurinn til með að stjórna sér
að mestu sjálfur. „Við leggjum
áherslu á að fá krakkana til að
taka ábyrgð og stjórn í eigin
hendur. Við ætlum ekki að mat-
reiða ofan í þau heldur verður
þetta þeirra veisla.“ Þegar hafa
37 ungmenni skráð sig til leiks,
en hópurinn hittist í fyrsta sinn
þarm 6. september. Ellý leggur
þó áherslu á að ný andlit eru
alltaf velkomin því hóparnir eru
ekki lokaðir og vonast hún til að
sjá sem flesta. „Verkefhið hefur
reynst vel þar sem það hefur
verið keyrt og ef allir leggjast á
eitt verður það sama uppi á ten-
ingnum hjá okkur,“ segir Ellý
og er rokin til að vinna í því að
koma útvarpinu í gagnið á efri
hæð Hvíta hússins.
ALS
£tun*ra»tofa
Minningarfyrirlestur um
Snorra Sturluson
Munnur skáldsins:
Um vanda þess að vera listrænn og framagjarn
Islendingur í útlöndum
Priðjudagskvöldið 21. september kl. 20:30flytur Armann
I Jdkobsson norrœnufrœðingur fyrirlestur i tilefni af
1 fceðingardegi Snorra Sturlusonar í bókhlöðu Snorrastofu.
Aðgangseyrir 500 kr.
Allir velkomnir!
í tilefni 50 ára afrnödis AA samtakanna
á Islandi, sem \>ar í \)or, \>erður haldinn
sérstakur afmcelisfundur.
Funclurinn er öllum opinn og Oeröur hann
haldinn föstudagsköölclið 17. september
kl. 20:00 í Jónsbúð, Akursbraut 13,
Akranesi. Fundurinn stendur í eina
klukkustund. Húsið opnar klukkan 19:30.
Að funcli loknum óerður boðið upp á
kaffióeitingar.
Allir AA félagar, aðstanclenclur og
Oelunnarar eru höattir til að meeta og eiga
saman góða stund.
Fjárhagsáætlun 2005
Undirbúningur er hafinn.
Styrkumsóknir þurfa aö berast
fyrir 5. október nk.
Umsóknum skal skila á skrifstofu
Borgarfjarðarsveitar,
Litla-Hvammi, pósthólf 60, 320 Reykholt
eba í tölvupósti á netfang:
sveitarstjori@borgarfjordur.is
Sveitarstjóri