Skessuhorn - 15.09.2004, Page 14
14
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004
^ntssunu^
Vesturlandsmót
kvenna í golfi 2004
Fríður flokkur þátttökukvenna.
Fyrstu helgina í september
hefur það tíðkast að golfkonur
á Vesturlandi hittast, spila golf
og eiga saman ánægjulegan
dag. Laugardaginn 4. septem-
ber var komið að félagskonum
í golfklúbbnum Vestarr í
Grundarfirði að halda mótið.
Var það jafnframt 10. árið sem
Vesturlandsmót kvenna í golfi
fer fram. Rík hefð hefur mynd-
ast í kringum þetta mót og í ár
mættu 43 konur til leiks í blíð-
skaparveðri. Morguninn hófst
á því að Vestarrkonur buðu til
morgunverðar í samkomuhús-
inu, þar safnaðist hópurinn
saman. Að morgunverði lokn-
um var haldið á völliinn þar
sem þeir Palli,
Guðni, Þórður
og Stefán tóku
við stjórninni.
Ræst var út af
öllum teigum
og spilaðar
voru 18 holur.
Eftir mótið var
þátttakendum
boðið í sund og slökun í heitu
pottunum áður en haldið var á
Kaffi 59 þar sem snæddur var
kvöldverður. Eftir borðhald
voru verðlaun afhent og að
lokum var stiginn dans við
undirleik Tríósins Feyk.
Flelstu úrslit á mótinu urðu
þau að Vestarrkonur unnu
sveitakeppnina í fyrsta sinn
með 137 punktum. Sveitin var
skipuð þeim Pauline J. Haftka,
Hugrúnu Elísdóttur, Katrínu El-
ísdóttir og Dóru Hendriksdótt-
ur. í öðru sæti var Golfklúbbur-
inn Leynir, Akranesi með 132
punkta og í þriðja sæti var
Golfklúbbur Borganess með
128 punkta. MM/KE
Önnur úrslit urður þannig:
I punktum:
1. sæti Pauline J. Haftka, GVG með 42 punkta
2. sæti Sara Jóhannsdóttir, GMS með 37 punkta
3. sæti Karín Herta Hafsteinsdóttir, GMS með 36 punkta
4. sæti Júlíana Jónsdóttir, GB með 35 punkta
5. sæti Guðrún R. Kristjánsdóttir, GB með 35 punkta
í höggleik:
1. sætiArna Magnúsdóttir, GL með 83 högg
2. sæti Karín Herta Hafsteinsdóttir, GMS með 84 högg
Sigursveitin úr golfklúbbnum Vestarr.
Annað stærsta íþrótta-
mót landsins
Síðastliðinn fimmtudag fór
fram í Borgarnesi sund- og
frjálsíþróttamót á vegum svo-
kallaðra samstarfsskóla á
Vesturlandi en þeir eru auk
Grunnskólans í Borgarnesi;
Andakílsskóli, Kleppjárns-
reykjaskóli, Heiðarskóli,
Varmalandsskóli, Laugagerð-
isskóli, Lýsuhólsskóli, Búðar-
dalsskóli, Grunnskólinn í
Tjarnarlundi og Reykhóla-
skóli. Mótið tókst í alla staði
vel og þáttakendur voru sæl-
ir og áhugasamir þrátt fyrir
eilitla rigningu endrum og
sinnum. Mótið mun
á landsvísu vera
annað stærsta í-
þróttamót sem hald-
ið hefur verið á
þessu ári. Þáttak-
endur voru tæplega
400 og eingöngu
Landsmót ung-
mennafélaganna á
Sauðárkróki getur
státað af fleiri þátt-
takendum það sem
af er þessu ári.
MM/Ljósm: GE
og Guðjón Torfi
LANDSBANKA
DEILDIN
AKRANES VÖLLUR
IA - IBV
c,?VR^,
m
sunnudaginn 19. sept. kl. 16:00
ALLIR Á 1/ÖLLIIMIU
u
VISA
——
HB
IDI
Œ
■ Knattspyrnufálag IA ■
w fær 5 kr. af hverjum w
seldum lítra af C0KE á Akranesi
KB BANKI
Kaupir þú bíl frá B&L
hjá Bílás - nýjan eða notaðan ■
styrkir þú Knattspyrnufélag ÍA
Norrænt
unglinga
mót
Þessa dagana stendur yfir á
Akranesi norrænt unglingamót
þar sem 16 unglingar frá vina-
bæjum Akraness á Norður-
löndunum dveljast hjá jafn-
öldrum sínum og sækja með
þeim skóla. Krakkarnir dreifast
á milli skólanna þriggja, þ.e.
Brekkuþæjarskóla, Grunda-
skóla og Fjölbrautaskólans.
MM