Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2004, Qupperneq 15

Skessuhorn - 15.09.2004, Qupperneq 15
^iassunuiK. MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 15 Helgi Pétur skaut Skagamönnum í þriðja sætið með sinni fyrstu þrennu Skagamenn voru í hlutverki kattarins en Víkingar léku músina þegar liðin mættust á heimavelli hinna síðarnefndu í Víkinni á sunnudag. Fyrir leik- inn voru Skagamenn í fjórða sæti og höfðu enn raunhæfa möguleika á Evrópusæti en til þess þurftu þeir að sigra Vík- ingana. Skagamenn mættu grimmir til leiks og sóttu stíft frá fyrstu mínútu. Til að byrja með virtist sem sama gamla vandamálið væri til staðar, lánleysi upp við mark and- stæðinganna, enda vantaði svolítið broddinn í sóknirnar. Það átti þó eftir að lagast um leið og þeir gulu voru búnir að finna taktinn almennilega. Þrjár breytingar voru gerðar á liðinu frá því í leiknum gegn Keflavík í 16. umferðinni, eða öllu heldur fjórar því Ólafur Þórðarson þjálfari sat upp í stúku þar sem hann var í leik- banni en Alexander Högnason stjórnaði liðinu í hans stað. Þá voru þeir Haraldur Ingólfsson, Andri Karvelsson og Julian Johnson ekki í byrjunarliðinu að þessu sinni. í þeirra stað komu Stefán Þórðarson, Hjálmur Dór Hjálmsson og Unnar Valgeirsson en hann þakkaði fyrir tækifærið með því að koma Skagamönnum yfir eftir 26 mínútna leik. Fjór- um mínútum síðar bætti Helgi Pétur Magnússon öðru marki við fyrir ÍA og hann var bara rétt að byrja. Fram að því höfðu Skagamenn ráðið lcg- um og lofum á vellinum og Víkingar ekki átt skot á mark- ið. Síðustu mínútur hálfleiks- ins voru hinsvegar eign Vík- inga sem náðu aðeins að bíta frá sér fyrir leikhlé. Þeir áttu tvær hættulegar sóknir og upp úr þeirri fyrri bjargaði Þórður Þórðarson með glæsilegri markvörslu og skömmu síðar björguðu varnarmenn ÍA á marklínu. Skagamenn byrjuðu síðari hálfleikinn af sama krafti og þann fyrri og sóttu stíft. Eftir sjö mínútna leik uppskáru þeir á ný og þar var Helgi Pétur aftur á ferðinni með eitt glæsi- legasta mark sumarsins. Gunnlaugur Jónsson átti skalla á mark Víkinga en Marko Trancík sló boltann frá en þá kom Helgi Pétur á mik- illi siglingu, fleygði sérfram og hreinlega stangaði boltann í markið, 3-0 fyrir ÍA. Eftir þriðja mark ÍA jafnaðist leikurinn nokkuð, Skagamenn gátu andað léttar og slakað á. Víkingar nýttu sér það og Grétar Sigfinnur Sigurðsson náði að minnka muninn með frekar lausum skalla sem Þórður hefði átt að verja. Óvenjuleg mistök hjá þessum snjalla markverði. Undir lok leiksins var það síðan Helgi Pétur sem gulltryggði sigur Skagamanna og nældi sér um leið í sína fyrstu þrennu þegar hann skoraði af stuttu færi eft- ir góðan undirbúning Guðjóns Sveinssonar. Skagamenn áttu virkilega góðan leik og að öðrum ólöst- uðum var Helgi Pétur maður leiksins. Reynir Leósson og Gunnlaugur Jónsson voru að vanda traustir í vörninni og Kári Steinn var vel ógnandi í fremstu víglínu. GE Fimm marka Markahæstur eftir tvo leiki sigur nauðsyn Skagastúlkur með annan fótinn í úrvalsdeild Stórsigur á Þór/KA/KS fyrir norðan í fyrri leiknum í umspili um Úrvalsdeildarsæti Til að Skagamenn nái 2. sætinu í úrvalsdeild í ár og þar með sæti í Evrópukeppni að ári þurfa þeir að sigra ÍBV á Akranesvelli með minnstfimm marka mun næstkomandi sunnudag. Það er ekki auð- velt verkefni og því má telja næsta víst að Skagamenn endi í því þriðja að þessu sinni sem vissulega er ekki slæmur árangur en samt lakari en margir höfðu vænst. GE Helgi Pétur Magnússon Skagastúlkur unnu glæstan sigur á Úrvalsdeildarliði Þór/KA/KS á Akureyrarvelli á laugardag í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í Úrvalsdeild að ári. Norðanstúlkur urðu í næst-neðsta sæti deildarinnar en ÍA stúlkur í öðru sæti fyrstu deildar og því er það þessara liða að kljást um síðasta lausa sætið í deildinni en Keflavík komst sem kunnugt er beint upp úr þeirri fyrstu. Úrslitin leiksins á Akureyri urðu 6 - 1 Skagastúlkum í vil og standa þær því býsna vel að vígi fyrir síðari leikinn sem fram fer á Akranesvelli í kvöld. Það voru að vísu Norðan- stúlkur sem byrjuðu betur en reyndar voru það Skagastelp- urnar sem skoruðu fyrsta markið en því miður í eigið mark, strax á 9. mínútu leiks- ins. Norðanstúlkur voru hins- vegar varla búnar að fagna marki þegar Hallbera Guðný Gísladóttir jafnaði fyrir (A og hún átti eftir að koma mikið við sögu í leiknum. Magnea Guð- laugsdóttir bætti öðru marki Skagakvenna við á 24. mínútu og undir lok fyrri hálfleiksins var aftur komið að þætti Hall- beru. Hún skoraði þá tvö mörk með tveggja mínútna millibili og lagði þar með grunninn að glæstum sigri ÍA. Það varsíðan Áslaug Ragna Ákadóttir sem gulltryggði sigurinn með tveimur mörkum í síðari háfl- leik og Skagastúlkur eru nú þegar komnar með annan fót- inn í Úrvalsdeildina þar sem þær léku óslitið þar til þær drógu meistaraflokkinn úr keppni fyrir þremur árum. Allt getur hinsvegar gerst og því er nauðsynlegt að stuðnings- menn ÍA fjölmenni á völlinn í kvöld og hvetji þær gulu til dáða enda er mikið í húfi. Leik- urinn hefst á Akranesvelli kl. 17.30. GE Helgi Pétur Magnússon hefur aðeins fengið tvö tæki- færi í byrjunarliði Skaga- manna í sumar og er óhætt að segja að hann hafi nýtt þau vel. Hann lék á miðjunni gegn Keflvíkingum í síðustu umferð og skoraði þá sigurmarkið. í leiknum gegn Víkingum bætti hann um betur og skoraði þrjú mörk og virðist algjörlega ó- stöðvandi um þessar mundir. „Þetta var kærkomið tækifæri og ég var staðráðinn í að nýta það vel. Þetta var virkilega sætt gaman þegar allt gengur upp með þessum hætti,“ seg- ir hinn tvítugi Borgnesingur sem virðist vera að blómstra með Skagaliðinu um þessar mundir. Þess má geta að Helgi er núna markahæstur í ÍA, ásamt Haraldi Ingólfssyni, hvor þeirra hefur gert fjögur mörk í sumar. GE Óli áfram? Ólafur Þórðarson þjálfari ÍA. Samningur Ólafs Þórðarsonar þjálfara við Knattspyrnufélag ÍA rennur út nú í haust og eru menn því þegar farnir að velta fyrir sér hvað tekur við eftir tímabil- ið þótt mótið sé ekki búið. Ýmsar getgátur hafa verið uppi og meðal annars sú að Sigurður Jónsson þjálfari Víkings og fyrrum leikmaður ÍA muni taka við. Sig- urður sagði eftir leik Vfkings og ÍA á sunnudag að ekkert slíkt hefði verið rætt og hafnaði því alfar- ið að hann væri á leiðinni upp á Skaga, a.m.k. eins og stað- an væri í dag. Einnig hefur nafn Alexanders Víglundsson- ar verið nefnt í þessu sam- bandi en hann gerði sem kunnugt er ÍA að íslandsmeist- urum 2. flokks fyrir skemmstu. Þá hefur hann verið hægri hönd Ólafs og stýrði ÍA til sig- urs gegn Víkingi þar sem Ólaf- ur var í leikbanni. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns hefur Ólafur hug á því sjálfur að halda áfram með liðið en stjórn rekstrarfélags Meistara- flokks og 2. flokks ÍA hefur ekkert gefið út um hvort samið verði við Ólaf áfram eða leitað að nýjum þjálfara. Búast má við að þau mál skýrist fljótlega eftir að mótinu lýkur um næstu helgi. Samkvæmt upplýsing- um Skessuhorns eru flestir á því að Ólafur verði áfram með liðið en árangur hans hefur verið afbragðs góður, tveir bik- armeistaratitlar, einn íslands- meistaratitill og einu sinni hafa Skagamenn unnið deildarbik- arinn undir hans stjórn. GE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.