Skessuhorn


Skessuhorn - 16.03.2005, Side 14

Skessuhorn - 16.03.2005, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2005 Fermingarböm í Gmndarfirði læra um lífið framundan í fermingarfræðslunni Frábært að fá bömin á þessum tímapunkti segir Elínborg Sturludóttir sóknarprestur í Grundarfirði Fermingarfræðsla snýst ekld bara um að læra faðirvorið og fáein sálmavers. Kannski hefar það ein- hvemtíma verið þannig og kannski er það þannig í einhverjum tilfellmn en allavega ekki hjá Elínborgu Sturludóttur sóknarpresti í Grund- arfirði, eins og blaðamaður Skessu- homs komst að þegar hann ræddi við hana um uppffæðslu þeirra tutt- ugu og tveggja fermingarbama sem komast í fullorðinna manna tölu í Grundarfjarðarkirkju síðasta sunnu- dag í apríl og á hvítasunnudag. „Það er auðvitað ákveðin þekking sem fermingarbörnin þurfa að tileinka sér en þetta er ekki kveralærdómur eingöngu, alls ekki,“ segir Elínborg. „Eg ht á þetta sem ffábært tæláfæri fyrir kirkjima til að nálgast bömin þegar þau em að fara út í umbrota- skeið unglingsáranna og minna þau á hvers virði þau era, hvað þau skipta miklu máfi og hvaða ábyrgð þau bera í samfélaginu. Það er mikið álag á unglingunum á þessu æviskeiði, sjálfsmyndin er að mótast og þau era að skilgreina sig upp á nýtt. A þeim tímapunkti er mikilvægt að þau viti að Guð elskar þau eins og þau em. Meginþemað er það að „allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra“ og ef þau læra þetta stef þá hafa þau gott vega- nesd fýrir lífið.“ Einmitt vegna þess að bömin læra ýmislegt um lífið og tilverana í fermingarffæðslunni þá hefur Elín- borg kosið að hafa kynjaskiptingu í fermingarffæðslunni. ,Já við tökum þetta ekki eftir hefðbundinni stund- arskrá. Við tökum tamir í ferming- arffæðslunni og þá koma þau til mín daglega, strákamir sér og stelpurnar sér. Astæðan fyrir því er að krakkar era misþroskuð á þessum aldri og kynin era að glíma við ólíka hluti. Það hefur komið mjög vel út að mínu mati að skipta þessu svona.“ Ograndi verkefiii Elínborg segir að þvert á það sem margir haldi þá taki flestir ungling- amir fermingarffæðsluna alvarlega. „Auðvitað eru þessir krakkar mis- móttækilegir eins og krakkar hafa alltaf verið en það er samt vanmetið hvað mörg þeirra eru að taka þetta alvarlega og pæla í Kfinu og tilver- urrni. Þessvegna er frábært að fá þau til kirkjunnar á þessum tímapunkti. Mörg þeirra eru að endurskoða sína barnatrú en partur af trúnni er einmitt að glíma við efann. Það fleytir þeim áfram í að takast á við trúna svo hún verði djúp og sönn og raunverulegt afl. Sum þeirra taka þetta vissulega ekki alvarlega og það er mjög ögrandi verkefni að mæta því og leiða þau í gegnum þetta ferli. Mildð breyst EKnborg fermdist sjálf árið 1982 og segir margt hafa breyst síðan þá. „Þjóðfélagið hefur breyst og ég held að það sé erfiðara að vera ungur í dag. Við höfðum tækifæri til að vinna fyrir okkur á þessum árum og gerðum okkur grein fyrir því að það þyrffi að vinna hörðum höndtun til að eignast hluti. I dag er hinsvegar látið í veðri vaka við bömin að þau geti eignast allt strax og það skipti engu máh að steypa sér í skuldir. Það er því mikilvægt að hjálpa þeim að skilja að þau eigi valkost á öðru en að kaupa sér hamingju en það eru auð- vitað ævafom sannindi.“ Stórleikur í kristílegu knattspymunni Indriði og Þómý í vöminni. Takið eftir hattinmn hjá Indriða, sennilega settur upp til að hafa truflandi áhrif á andstœðingana. Séra Eðvarð í kröppum dansi. Á mánudaginn var fór ffam stór- leikur í kristilegu knattspymunni þegar lið Séra Eðvarðs Ingólfsson- ar, sóknarprests á Akranesi og fermingarbörn öttu kappi á Merk- urtúni. Allir mættu einbeittir til leiks en það var fyrst og ffemst spil- agleði og kærleikur sem einkenndu leikinn og þess vegna skiptir ekki öllu máli hver sigraði og hver tap- aði. Enda er það svo þegar upp er staðið að allir spila fótboltagarp- arnir í sama liðinu og hlíta leiðsögn eins og sama leikstjómandans. Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér var öllum í mun að standa sig í leiknum og skila sínu svo sómi væri að. Als Elínborg með fermingarbömum í Gnmdarfjarðarkirkju sl. ár. Ljósm: Sverrir. Synt á móti straumnum Það er vinsælt umræðuefni að fermingar snúist í dag eingöngu tun gjafimar. Elínborg segir það alls ekki vera. „Þegar maður er 13 eða 14 ára þá skipta gjafimar auðvitað máli. Þama kemur tækifæri til að eignast hluti sem mann hefur dreymt um en þama er líka tímaskeið þar sem tímabært er að unglingamir eignist sjálf ákveðna hluti þegar þau em t.d. orðin það stór að þau geta ekki leng- ur sofið á gamla beddanum og þurfa því nýtt rúm. Foreldrar nota þá off tækifærið til að kaupa hluti sem mik- ilvægt er að krakkarnir eignist. Hinsvegar getur þetta keyrt úr hófi en fólk verður að meta það sjálff hvað það vill gera. Samfélagið er allt undirlagt undir neysluhyggju og það er mjög auðvelt að fara ffam úr sér í þeim efhum. Þessvegna er það mik- ilvægur hluti í fermingarffæðslunni að gera bömunum grein fyrir að það þurfi ekki alKr að vera eins. Að það sé allt í lagi að keyra tun á gömlu dmslunni í staðinn fyrir að steypa sér í skuldafen fyrir nýjan jeppa. Það þarf mjög sterk bein til að synda á móti straumnum en trúin getur okk- ur styrk í því eins og öðm,“ segir El- ínborg Sturludóttir sóknarprestur í Grundarfirði. GE Hver er hvað? Á Hárhúsi Kötlu á Akranesi starfa fimm konur sem vita betur en flestir að tímarnir breytast og hártískan með. Hér fyrir neðan eru myndir af þessum konum eins og þær líta út í dag og fermingarmyndir sem teknar voru þegar þær náðu þeim áfanga í lífinu að verða teknar í fullorðinna manna tölu. En hver er hvað? Lesendur Skessuhorns geta spreytt sig á því að tengja saman myndir af hverri og einni þeirra þá og nú.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.