Skessuhorn


Skessuhorn - 16.03.2005, Page 27

Skessuhorn - 16.03.2005, Page 27
27 ^a£SSÚlhí@£Kf MIÐVTKUDAGUR 16. MARS 2005 Stórtónleikar í Reykholtskirkju Þriðjudaginn 22. mars nk. heldur Sinfóníuhljómsveit unga fólksins tónleika í Reykholtskirkju ásamt sameinuðum kórum Borgfirðinga. Einleikari á tónleikunum er Matth- ías Nardeau óbóleikari, en hann er einn efnilegasti tónlistarmaður okkar Islendinga af yngri kynslóð- inni. A tónleikunum verður flutt tón- list eftir kunnustu tónskáld Frakka. Þeir hefjast á frægu verki eftir Arth- ur Honegger, Pacific 231, en þar er líkt eftir ferð járnbrautarlestar milli austur- og vesturstrandar Banda- ríkjanna. Þá leikur Matthías Nardeau ó- bókonsert eftir Bohuslav Martinu. Martinu fæddist í Tékklandi en ól allan sinn aldur í Frakklandi. Þá syngja sameinaðir borgfirskir kórar tvö lög með hljómsveitinni. Annað er „Heill þér himneska orð“ eftir Gabriel Fauré í þýðingu Böðvars Guðmundssonar og „Panis Ang- elicus" efrir César Franck. Tónleik- untun lýkur með sinfóníu í d-moll, einnig eftir César Franck, en hún er eitt fegursta og glæsilegasta verk þessa einstaka tónskálds. Stjórnandi á tónleikunum er Gunnsteinn O- lafsson, en hann var sumarmaður á Skeljabrekku í Andakíl áður en hann hélt til framhaldsnáms í tón- list í Ungverjalandi og Þýskalandi. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofriuð haustið 2004. Hana skipar úrval tónlistarnema úr Lista- Matthías Nardeau, óbóleikari. háskóla íslands og tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu. Hljóm- sveitin hélt sína fýrstu tónleika í desember sl. og hlaut mjög lofsam- lega dóma hjá Ríkarði Erni Páls- syni, tónlistargagnrýnanda Morg- unblaðsins. Að þessu sinni er hljómsveitin skipuð 60 hljóðfæra- leikurum. Alls koma því ffam á tón- leikunum um 120 manns. ('fréttatilkynning) Verðlaunahafar ogfulltrúar þeirra. Úrslit í stærðfræðikeppni grunnskólanna Á laugardaginn var fór fram af- hending verðlauna og viðurkenn- inga fyrir góðan árangur í Stærð- fræðikeppni Flensborgarskóla sem haldin er fyrir grtmnskólanemend- ur. Keppnin fór fram í Fjölbrauta- skóla Vesturlands miðvikudaginn 23. febrúar og tóku 224 nemendur í grunnskólum á Vesturlandi og á Hólmavík þátt í henni. Hlutu tíu efstu keppendurnir í hverjum ár- gangi viðurkenningu. Peninga- verðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu sætin í hverjum árgangi. Þriðju verðlaun að upphæð 5.000 krónur hlutu Daisy Heimis- dóttir, Grundaskóla og Elín Sig- urðardóttir, Grunnskóla Grundar- fjarðar sem voru jafnar í 3. - 4. sæti í 8. bekk, Þorbjörg Matthíasdóttir, Grunnskólanum á Hólmavík í 9. bekk og Helgi Elí Hálfdánarson, Grunnskólanum í Borgarnesi í 10. bekk. Fyrir annað sæti var verðlauna- upphæðin 10.000 krónur og komu þau verðlaun í hlut Arons Öfjörð Jóhannessonar í 9. bekk Brekku- bæjarskóla, Indriða Einarssonar 9. bekk Grunnskólans á Hólmavík og Leifs Finnbogasonar sem stundar nám í 10. bekk í Grunn- skólanum í Borgamesi. Fyrstu verðlaun, að upphæð 15.000 krónur, fengu Kristinn Hlíðar Grétarsson í 8. bekk Grundaskóla, Hörður Kári Harð- arson í 9. bekk Brekkubæjarskóla og Ingólfur Eðvarðsson, nemandi í 10. bekk Brekkubæjarskóla. Að venju vora prófverkeftii sam- in í Flensborgarskóla og voru þau lögð fyrir í keppnum víðsvegar um landið á sama tíma. Mest var þátt- takan á Vesturlandi, 224 keppend- ur eins og komið hefur fram, og aðeins á síðasta ári hafa fleiri mætt til leiks, en þá spreyttu 225 Vest- lendingar sig á stærðfræðiþrautun- um. Það voru stærðfræðikennarar í FVA sem áttu veg og vanda að skipulagningu keppninnar. Við verðlaunaafhendinguna flutti Hörður Helgason skólameistari á- varp þar sem fram kom að stærð- fræðikeppninni væri ætlað að vekja athygli og áhuga á stærðfræði og skyldum greinum og hvetja nem- endur til dáða. „Haldið áfram að keppa í námi,“ sagði Hörður í á- varpi sínu til keppenda. „Hugsið um námið sem keppni, það er skemmtilegt að vinna þannig og það skilar ykkur góðum árangri og betri framtíð.“ Skessuhorn óskar verðlaunahöf- unum til hamingju með árangur- inn. Nokkur fyrirtæki styrktu keppn- ina, en þau eru: Límtré - Vírnet Borgarnesi,^ Landsbanki íslands hf. Akranesi, íslandsbanki hf. Akra- nesi, Olíufélagið ESSO Akranesi, Landbúnaðarháskóli íslands, Verkalýðsfélag Akraness, Akranes- kaupstaður, Norðurál á Grundar- tanga, Smell-inn Akranesi, Prent- verk Akraness hf., Sementsverk- smiðjan hf., OLÍS Akranesi og Verkalýðsfélag Borgarness. ALS r 3JAÁRA. fOLYMPUSJ ÁBYRGÐ l HJÁ 0RMSS0N J kr. 27.900 OLYMPUS æði!!! 4.0 mílljón ptxiar OLYMPUS MJU-MINI STAFRÆN MYNDAVÉL MOD£i STiLLHOLT 16-18 SÍMI 431 3333 Gefðu hnakk í fermingarqjöf, einn meo öflu Undirdýna og hlífðartöskur undir fermingar- tilboðshnakkana fylgja með. www.borgarbyggd.is HUÓMAR frá Keflavík Karlakórinn HEIMIR Sameiginlegir TÓNLEIKAR Hljómalög og fleira í léttum dúr I íþróttahúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 26. mars kl. 20:30 Kynnir: Óskar Pétursson Dansleikur með HUÓMUM að loknum tónleikum til kl. 02:00. Forsala aðgöngumida er í ÁBÆ - Sími 455 7070 Með Mgihlutum, imdirdýnu og íósku unár nfiakkinn. n~n . Famíngartilboðsverð: 42.890 kf. FuHtverð. 50.700 kr. Hestavöruverslun Borgarbraut 59,310 Borgarnes Sími: 437 0001, Fax:437 0010 Netfang:knapinn@emax.is ALLT FYRIR HESTAMENNSKUNA OC MEIRA TIL ferniingartiSioðsveid: 88,990 kf. Fulitverð: 99.405 kr. Máni Með NyNutun, untfirdýnu og tösku FetmingaHiixrðsverð: 54.890 kl. Fulilverð: 63.399 kr.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.