Skessuhorn - 06.04.2005, Qupperneq 1
Virka daga 10-19
Laugard. 10-18
Sunnud. 12-18
nettð
alltaf gott - alltaf ódýrt
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
13. tbl. 8. árg. 6. aprfl 2005 - Kr. 300 í lausasölu
Nýtt500
þorp á teikniborðinu
Samkvæmt deiliskipulagsdrögum að nýrri
íbúðabyggð í landi Kross í Innri Akraneshreppi
gæti svo farið að þar yrði byggt nýtt 500 tnanna
þorp þétt við bæjarmörk Akraness á allra næstu
árum. Hreppsneíhd Innri Akraneshreþps hefur
fengið skipulagsdrögin til umfjöllunar en það er
fyrirtækið Stafha á milli ehf. sem á landið og læt-
ur vinna sldpulagið.
Sjá bls 6.
Bíll nágrannans var ónýtttr efiir drás folksins og svarar
ekki kostnaði að láta gera við hann.
Misheppnuð
hefndaraðgerð
Síðastliðið fimmtudagskvöld gekk ungt par
berserksgang á Akranesi en parið er talið hafa
verið í annarlegu ástandi, m.a. undir áhrifum
vímuefha. Þar við bættist að það hafðí hund með
sér sem það notaði dl að siga á fólk sem það taldi
sig eiga sökótt við. Forsaga málsins er sé að
paríð leitaði uppi mann sem busettur er við
óneftida götu í bænum og töldu þau sig eiga
óleyst mál við hann. Fyrst voru unnin skemmd-
arverk á bíl sem stóð í húsasundi á næstu lóð, en
þau töldu bílinn vera í eign þess sem hefndin
skyldi gerð upp við. Bíllinn var eyðilagður;
brotnar rúður, innréttingar og hann beyglaður
þannig að ekki svarar kostnaði að láta gera við
hann. Nágranni mannsins var hinsvegar eigandi
bílsins og verður hann fyrir tjóni og fæst það
ekki bætt þar sem parið er með öllu eignalaust.
Eftir að hafa eyðilagt bílinn réðist fólkið inn í
hús í næsta nágrenni vopnað rörbútum og
reyndust þau þá enn vera að fara eignavillt þar
sem maðurinn sem þau leituðu bjó alls ekki í því
húsi. Skyldu þau eftir mikið blóð á gólfi og
veggjum en þau höfðu skorist í átökunum við
bílmn skömmu áður. I þriðju tilraun fundu þau
þó manninn sem þau leituðu og slógust við hann
þar til lögregla skarst í leikinn. Það skal tekið
fram að maðurinn sem parið leitaði uppi hafði
það eitt gert þeim að hafa varið réttindi eldri
manns í bænum sem parið hafði rænt skömmu
áður. Parinu var vísað úr bænum, enda ekki bú-
sett á Akranesi.
MM
Eftir ríflega tuttugu ára bið ýá Gnmdfirðingar núfram á að hitaveita verði að venileika en rtflega 20 sekúndulítrar af75 gráðu heitu vatni streyma nú uppúr
vinnsluholu sem bormenn frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða eru að bora á Berserkseyri. Verið er að btrra með skábonm vinnsluholu sem á að hitta á tvœr vatnsæð-
ar. Onnur þeirra er í höfh en borinn kom niður á hana síðastliðinn sunnudag á um 360 metra dýpi en vonast er til að hitta á hina á um 800 metra dýpi en talið er að
það verk muni taka um 3-4 vikur til viðbótar. Bj'órg Agústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðar segir að íbúar séu kátir þessa dagana og margir eflaust komnir ofan í
heita pottinn í huganum þótt enn sé langt í land með að vatniðfari að streyma inn í hús bcýarins. „Það hillir vonandi undir að langþráður draumur verði að veru-
leika. Menn hafa vitað afþessu vatni héma í um tuttugu ár m þegar rannsóknir sýndu fyrst fram á aðþað væri hér aðfinna þá var ekki bægt að komast að því. Núna
er komin ný tækni sem gerir mönnum kleift að bora á ská og íþessu tilfelli undir sjávarbotnmn. “ Aðspurð mn hvmær heita vatnið verðifarið aðylja Grundfirðingum
segir Bj'örg að það sé of snemmt að segja til um á þessari stundu. „Fyrst ætlum við að sjá að áform um að ná þessu vatni upp úrjörðinni gangi eftir og síðan er hægt að
fara að hugsa um að leiða vatnið inn í hús og ofan í heitu pottana, “ segir sveitarstjórinn. GE
Meira en þriojungs lækkun
veggjaldsins í Hvalfj arðargöngin
Veggjald í Hvalfjarðargöng
lækkaði um allt að 38% síðast-
liðinn föstudag. Lækkunin var
tilkynnt á blaðamannafundi á
Safhasvæðinu á Görðum en þar
var einnig undirritaður samn-
ingur um endurfjármögnun 5
milljarða króna lána milli Spal-
ar og íslandsbanka. Samning-
urinn var undirritaður ofan á
líkani af göngunum sem er að
fmna í Hvalfjarðargangasafn-
inu á Görðum.
Islandsbanki lánar Speli tvo
milljarða króna en hefur einnig
selt 13 fagfjárfestum skuldabréf
fyrir 3 milljarða króna. Spölur
notar fjármunina annars vegar
til að greiða upp 3ja milljarða
króna skuld við bandaríska líf-
tryggingafélagið John Hancock
og hins vegar 2ja milljarða
króna skuld við íslenska ríkið.
Þessi skuldbreyting gefur svig-
rúm til að lækka veggjald í
Hvalfjarðargöng um allt að
38% fyrir áskrifendur. Verð á
stökum ferðum lækkar þó ekk-
ert, verður áff am þúsund krón-
ur, en verð fyrir 100 ferðir fyrir
fjölskyldubíla lækkar hins vegar
mest og verður 270 krónur á
ferð í stað 440 króna áður. Fyr-
ir 40 ferðir þarf nú að greiða
390 krónur á ferð í stað 550
króna áður. Fyrir 10 ferða á-
skriftakort verður greitt 600
krónur í stað 700 króna ffarn til
þessa. Lækkunin er mest fyrir
fjölskyldubíla eða fyrir venju-
legt fólk, eins og Gísli Gísla-
son, stjórnarformaður Spalar
komst að orði. Gísli segir að
með lækkuninni sé Spölur að
teygja sig eins langt og mögu-
legt er og segir hann að til að
frekari lækkun geti orðið að
veruleika þurfi að koma til af-
skipti ríkisins eða aukin umferð
um göngin. Endurfjármögnun
lánanna hefur í för með sér að
uppgreiðslutíminn lengist um 3
ár miðað við fyrri forsendur og
að óbreyttu verða göngin að
fullu greidd árið 2018 og þá
heyrir gangagjaldið sögunni til.
GE
Verð áður 1579 kr/kg
Gourmet Grísakótilettur
léttreyktar
Grillsagaður
lambaframpartur
BAUTABURIÐ
Tilboo 7. - 1 O. apríl
Samkaup Iutn/al
Grindavík • Hafnarfjörður • Njarðvík • Isafjöröur • Akureyri • Dalvik • Siglufjörður • Olafsfjörður • Húsavík • Egilsstaðir • Selfoss • Borgarnes • Blönduós