Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2005, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 06.04.2005, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2005 Stúdíó í Stúkuhúsið? Eins og margir vita bættist nýtt hús í þá þyrpingu gamalla húsa sem er að finna á Safnasvæðinu að Görðum á síðasta ári þegar Stúku- húsið svokallaða var flutt þangað af Háteignum á Akranesi. Jón Allans- son, forstöðumaður Byggðasafns Akraness og nærsveita, segir að endurbætur á húsinu séu hafnar og telur hann líklegt að það verði tek- ið í notkun á næsta eða þarnæsta ári, það fari þó allt eftir því fjár- magni sem varið verði til fram- kvæmdanna. Ekki hefur verið tek- in endaleg ákvörðun um hvaða starfsemi verður í húsinu en verið er að skoða ýmsa möguleika. Síð- ustu dagana á Háteignum þjónaði húsið sem stúdíó þar sem Orri Harðarson stjórnaði m.a. upptök- um á plötu Skagatrúbadorsins Geirs Harðarsonar, enda þykir húsið henta einstaklega vel til slíkrar starfsemi. Orri segir mikla ásókn hafa verið í upptökuverið og færri komist að en vildu, til að mynda varð að neita þeim Magn- úsi Eiríkssyni og KK um að taka þar upp nýja plötu. Draumur Orra Harðarsonar var að halda áfram upptökum í húsinu og sendi hann inn formlegt erindi þess efnis til bæjarstjórnar sem hann segir hafa hlotið jákvæðar viðtökur, þó ekki hafi verið tekin endanleg ákvörðun enn. A meðan Orri bíður eftir því að húsið kom- ist í stand og erindi hans verði svarað, flytur hann norður til Ak- ureyrar og gengur til liðs við Kristján Edelstein sem á og rekur hljóðverið Hljóðhamar. Verkefnin eru næg en Orri vill þó ekki úti- loka þann möguleika að hljóðverið í Stúkuhúsinu komist í gagnið. „- Þetta hús er kjörið undir þessa starfsemi og ég útiloka ekki neitt í þessum efhum,“ segir Orri og bæt- ir við: „Ef ákvörðun verður tekin um að slá til mun ekki standa á mér að taka þátt í að skapa þarna fyrir- taks upptökuver." ALS Sementsverksmiðjan á Akranesi: Tilraunir með umhverfisvænni rekstur Sementsverksmiðjustrompurinn, veðurviti Skagamanna. Tæknideild Sementsverksmiðj- unnar hf. og fyrirtældð Iðntækni ehf. vinna um þessar mundir að þróunar- verkefrú sem felst í því að finna leið- ir til þess að endumýta efnamassa sem til fellur við ffamleiðslu á sem- entsgjalli í Sementsverksmiðjunni. Gjallffamleiðslan fer ffam í 100 metra gjallbrennsluofni og við brennslu hráefha verður til töluvert af ryki sem leitt er ffá ofhinum með afgasi. Gunnar H. Sigurðsson, for- stöðumaður tæknisviðs segir að á fýrstu rekstrarárum verksmiðjunnar hafi hluti af þessu ryki verið endur- nýtt með sérstökum búnaði en því var hætt þar sem endurnýtingin hafði í för með sér ákveðið óhagræði auk þess sem alkalíinnihald gjallsins hækkaði. Þá var flutningsbúnaður flókinn og erfiður í viðhaldi. „Þegar endumýtingu var hætt var rykið blandað miklu magni af vatni og dælt til sjávar. Rykið er eingöngu samansett úr náttúrlegum efhurn og því hafði þessi leið til förgunar enga umhverfismengun í för með sér,“ segir Gunnar. „Ibúum á Akranesi þótti þó sjón- mengun af þessu þar sem rykið litar sjóinn brúnan og það þótti ekki sam- ræmast áformum um uppbyggingu Langasands sem útivistarsvæðis. Þessari rykdælingu var því hætt á 9. áratugnum og ný lausn fundin með því að útbúa setþrær úti á skelja- sandsþró verksmiðjunnar. Vams- blandað ryk var leitt í þessar þrær og þar settust allar efnisagnir til botns en tært vam með uppleystum söltum rann til sjávar. Þræmar em tæmdar reglulega og hefur hluti þess efiiis sem fallið hefur til með þessum hætti verið nýttur til uppfýllingar og að hluta til hefur því verið komið fýrir í gamalli líparímámu sem verið er að loka og ganga frá,“ segir Gunnar. Hann segir að nýlega hafi farið ff am ítarlegar rannsóknir sem leiddu í ljós að mikill munur er á efhainni- haldi ryksins háð því hvar í efnaferl- inu pmfur em teknar. „Þannig hefur komið í Ijós að setefhið í þrónum er að mörgu leyti með sambærilega efnisuppbyggingu og hráefnisleðjan sem dælt er inn í ofhinn. Oheppileg alkah'sölt sem þó hafa engin skaðleg áhrif í náttúrunni hafa skolast burt þannig að eftir stendur efhismassi sem heppilegur er til gjallframleiðslu. Sá hængur er þó á að harm er ákaflega erfiður í flutningi, en takist að leysa það vandamál er líklegt að endurnýta megi allt efhið sem til fellur.“ Þróunarverkefnið sem nú er í vinnslu felst í því að finna lausn á hvemig hægt sé að flytja efhismassann undir stýrðum aðstæðum aft- ur inn í ofhinn. „Til að byrja með er stefht að því að setja upp bráða- birgðabúnað sem not- aður yrði við tilrauna- keyrslu. Endanlegur búnaður yrði síðan hannaður og smíðaður ef allt gengur að óskum.“ Takist það segir Gunnar ljóst að slá megi tvær flugur í einu höggi þar sem bæði skapist af þessu verulegur fjárhagslegur ávinningur auk þess sem endumýtingin yrði stórt skref í þá átt að gera starfsemi verksmiðj- unnar umhverfisvænni en hún er í dag. ALS Ferðasaga körfiiboltafólks til Danmerkur Mánudaginn 21. mars hélt hópur unglinga af Akranesi í körfubolta- ferð til Arhus í Danmörku. Var þetta unglingaflokkur kvenna ásamt II. flokki karla og þjálfurunum þeim Birma og Jóni Þór. Hér á eft- ir er stutt ferðasaga hópsins rituð af þeim Astu og Valdísi. Við lögðum af stað klukkan 4 suður á Keflavíkurflugvöll. Klukk- an 8 fórum við í loftið og leiðin lá til Danaveldis. Þegar til Kaup- mannahafhar var komið áttum við í ansi miklum erfiðleikum með að finna gististaðinn en á endanum fundum við hann eftir mikla og erf- iða leit. Eitt gott orð yfir gististað- inn er: „sérstakt!“ Þegar allir vom búnir að koma sér fyrir ákváðum við að eyða restinni af deginum á Strikinu eða „pá Stroget" á góðri dönsku. A Strikinu nutu stelpumar sín alveg út í ystu æsar og eflaust strákarnir líka. Svo komum við öll saman og fengum okkur pizzur að borða á ágætum stað á Strikinu. Lukum svo kvöldinu á gististaðnum okkar. A þriðjudeginum fengum við að sofa aðeins út. Síðan skelltu allir sér í sund, þar sem allir skemmtu sér konunglega á öllum stökkpöllunum sem í boði vora. Restinni af degin- um var svo eytt á Strikinu. Þegar allir höfðu grandskoðað búðimar var ákveðið að hittast á einu torginu þar sem Binni og Jón Þór ákváðu að sýna listdr sínar og byrjaði Jón Þór að „jöggla“ og Binni að sýna ýmsar Hstir eins og að „breika" og fleira. En eftir frekar misheppnað „show“ fórum við öll saman á Hard Rock og borðuðum þar. Svo var lagt af stað á gististaðinn og var kvöldinu varið þar. A miðvikudeginum var svo vakn- að snemma því að við þurftum að koma okkur upp á Kastrap til að taka rútuna til Árhus. Rútuferðin tók 3 tíma og svo voram við í 1 tíma í ferju. Þegar til Árhus var komið tók það sama við og í Kaupmanna- höfh, að finna staðinn þar sem gista átti. Það gekk erfiðlega en eftir mikið labb og strætóferðir fundum við loksins þetta RISASTÓRA í- þróttahús þar sem mótið fór fram. Við tókum stutta æfingu á aðalvell- inum þegar við höfðum komið okk- ur fyrir og síðan farið út að borða. Um kvöldið var skemmt sér mikið. Nokkrir strákar fóra í „rapp- keppni“ og vora þeir nokkuð góðir. Og kom ein góð setning sem hljóð- aði svo: „Þú heldur að þú sért rapp- ari en ert bara stappari." Þegar leið á kvöldið vora allir orðnir mjög þreyttir eftir erfiðan dag og sofh- uðu fljótt. Á fimmtudeginum byrjaði mótið. Stelpurnar áttu tvo leiki þennan dag og líka strákamir sem unnu báða sína leiki þennan daginn. Stelpurnar stóðu sig mjög vel í því að styðja strákana á meðan þeir kepptu en strákamir vora hinsvegar ekki eins duglegir að gera hið sama á móti. Um kvöldið var frjálst. Sumir léku sér í körfubolta en aðr- ið blönduðu geði við hina krakkana. Á föstudeginum kepptu strákarnir tvo leiki og stelpurnar einn leik en seinna um daginn kom svo í ljós að þær vora komnar í undanúrslit og áttu þá að keppa einn leik til við- bóta þann daginn og það á aðalvell- inum. En það vildi svo óheppilega til að þær töpuðu honum. Strákarn- ir unnu einn leik og töpuðu öðrum. Um kvöldið var svo diskótek. Það stóð nú samt ekki lengur til en svona 11 um kvöldið en þá fór IA- hðið bara sjálft að skemmta sér og tókum við uppá því að fara í smá Idol-keppni. Binni ogjón Þór riðu á vaðið og tilþrifin vora ekki af verri endanum. Svo á eftir þeim tók einn strákanna lagið „Eye of the ti- ger.“ En hann komst nú ekki lengra en hálft lagið því að þá kom þjálfar- inn úr liðinu sem var í herberginu við hliðin og sagði okkur að lækka niðrí okkur. Við gerðum það og fóram að sofa. Laugardagurinn var síðasti dagur mótsins og kepptu strákarnir þá á aðalvellinum við besta liðið í sínum flokki og unnu þá auðveldlega. Stelpurnar áttu líka sirm síðasta leik á þessu móti og var þá keppt um 3.- 4. sætið og lentum þær í því 4. Síð- asti leikur strákanna var hins vegar við sama lið og þeir kepptu við um morguninn og ekki fór eins vel þá, þeir töpuðu leiknum en lentu samt sem áður í 2. sæti sem er mjög góð- ur árangur. Strákarnir tóku við við- urkenningu seinna um daginn og vora mjög svo stoltir. Um kvöldið var svo haldið í miðbæ Árhus og fengið sér pizzu. Síðan fengum við tækifæri til að ganga aðeins þar um og fórum svo bara heim að sofa því að langt ferðalag var fýrir höndum daginn eftir. Sunnudagurinn var svo síðasti dagur þessarar skemmti- legu ferðar. Við lögðum af stað snemma upp á rútustöð þar sem við tókum rútuna á Kastrap þar sem við þurftum að bíða í 5 tíma þang- að til að vélin færi til íslands. Þessi ferð var ólýsanlega skemmtileg og eflaust langar öllum að fara aftur að ári. Valdís og Asta Úr glasi eða rídd Þessi gullvæga setning heyrðist við kvöldmatarborð ffá einni stúlku á leikskólaaldri nýverið. Þar spurði dóttirin: „Var ég búin til í glasi, ættleidd eða rídd?“ Þessar hugleiðingar urðu til- efiii þess að ort var í hennar orðastað: Ur bvaða efni er e'g smídd, af íslensku holdi eða þýdd? Eg vita það vil því víst er ég til. Er ég attleidd, úr glasi eða rídd? Spurningu barnsins svarar pabbinn á þessa leið: Ur ágœtis efn ’ ertu snídd og kostunum bestu ertu prýdd. En eitt máttu vita ég vann mér til hita, því á gamaldags hátt varstu rídd S Oskimar tvær Þegar Guð hafði skapað Adam og Evu sagði hann: „Nú á ég tvær gjafir eftir handa ykkur, kúnstina að pissa standandi og..“ „Hana vil ég fá,“ hrópaði Adam. Eva kinkaði kolli játandi og Adam fékk gjöfina. Adam skríkti af kæti, hljóp um allan lysti- garðinn, pissaði á trén upp og niður, þaut niður á strönd og pissaði allskyns munstur í sandinn. Guð og Eva fýlgdust kímin með hamingju Adams og Eva spurði: „Hver er hin gjöfin?“ Guð svaraði: „Heil- inn, Eva, heilinn!“ Ojabjakk Italskur ferðamaður, sem var staddur í Madrid á Spáni, fékk skyndilega þá hugdettu að skella sé á nautaat sem átti að vera í nágrenninu síðar um daginn. Hann skemmtd sér konunglega og dáðist að því við vin sinn hvað nautabaninn fór létt með að stúta nautinu. Um kvöldmatarleytið fer hann svo inn á nálægan veit- ingastað og biður þjóninn um rétt dagsins og vín hússins. Hann hafði ekki beðið lengi þegar þjónninn kemur með veitingarnar. Þegar hann þakkar þjóninum fýrir ffá- bæran mat, spyr hann þjóninn að því hvað þessi indæli réttur heiti. „Hann heitir ojabjakk,“ svarar þjónninn um hæl. Hvaða hráefni er notað í svonna góðan mat, spyr ítal- inn aftur. Það eru eistu nauts- ins sem féll í hringnum í dag. ítalinn sætti sig við þetta og þakkaði fýrir sig og kvaddi. Daginn eftir kemur Italinn aftur og pantar sama rétt og kvöldið áður. Þegar hann hef- ur lokið við matinn, spyr hann þjóninn af hverju skammturinn hafi verið svona lítill, því hann hafi verið svo vel útilátinn deginum áður. „Það er út af því að nautið tapar ekki alltaf,“ svaraði þjónninn um hæl.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.