Skessuhorn - 06.04.2005, Blaðsíða 23
^iunu^
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2005
23
Staðan í einvíginu er jöfn
eftir fyrstu tvo leikina
Slök byrjun
í fyrri leiknum
Það er ekki hægt að segja að
Snæfellingar hafi byrjað úrslita-
einvígið um fslandsmeistaratitilinn
jafn vel og síðasta vor þegar þeir
unnu Keflvíkinga í fyrsta leiknum.
Þá voru Snæfellingar á heimavelli
en núna hafði dæmið snúist við
og Keflvíkingar mættu grimmir til
leiks og ætluðu greinilega að taka
einvígið með trompi. Snæfellingar
voru skammt undan í fyrsta leik-
hluta og að honum loknum skildu
aðeins tvö stig. í hálfleik höfðu
heimamenn sex stiga forystu og
það breyttist reyndar lítið þar til í
síðasta leikhlutanum þegar Kefl-
víkingar sýndu hvers þeir eru
megnugir og unnu öruggan sigur
90 - 75.
Snæfellingar voru fjarri sínu
besta og svo dæmi sé tekið
aði enginn leikmaður meira
stig sem er býsna óvenju-
legt á þeim bænum.
Varnarleikurinn, sem hef-
ur verið aðalsmerki
Hólmara, var heldur ekki
upp á svo mjög marga
fiska að þessu sinni og
Ijóst að það þarf að gera
mun betur til að landa
sigri í Keflavík en hjá því
skor- verður ekki komist á leiðinni að
en 15 íslandsmeistaratitlinum.
Tölurnar - Snæfell
Nr Nafn Mín HF STOSTIG
4 Hlynur E Bæringsson 31 23 4 10
5 Ingvaldur M Hafstein 22 6 1 12
8 Pálmi F Sigurgeirsso 34 4 8 9
9 Gunnlaugur Smárason 2 1 0 0
10 Michael Ames 27 4 0 15
11 Sigurður Á Þorvaldss 37 7 1 13
13 Helgi R Guðmundsson 20 2 2 6
14 Calvin Clemmons 27 11 2 10
Heimamenn
jöfnuðu met-
in í Hólmin-
um
Eftir slæmt tap í fyrsta leik úr-
slitaeinvígisins gegn Keflvíking-
um náðu Snæfellingar að jafna
metin á heimavelli sínum í Hólm-
inum á mánudagskvöldið. Það
var þó fjarri því að vera létt verk
og löðurmannlegt enda
ekki við því að búast
þegar Keflavíkurstór-
veldið er annars vegar.
Snæfellingar voru
skrefinu á undan í fyrri
hálfleik og voru lengst af
einni körfu framar en
andstæðingarnir en síð-
an snerist taflið við í síð-
ari hálfleik og Keflvíkingar virtust
vera að ná undirtökunum í lok
þriðja leikhluta. f hálfleik var
staðan 44 - 42 fyrir heimamenn
en í lok þriðja leikhluta höfðu
Keflvíkingar yfir 68-71. Keflvík-
ingar komust hinsvegar aldrei í
meira en sjö stiga forystu og
Snæfellingar sýndu fádæma
góða baráttu á lokasprettinum
en á síðustu tveimur mínútum
leiksins náðu þeir að snúa dæm-
inu sér í vil og lönduðu góðum
sigri 97 - 93.
Það voru bandarísku leik-
Tölurnar - Snæfell
Nr Nafn Mín HF STOSTIG
4 Hlynur E Bæringsson 34 8 18
5 Ingvaldur M Hafstein 29 3 1 9
8 Pálmi F Sigurgeirsson 27 5 3 11
9 Gunnlaugur Smárason 2 0 0 0
10 Michael Ames 32 0 8 22
11 Sigurður Á Þorvaldss 25 5 1 15
13 Helgi R Guðmundsson 21 2 0 2
14 Calvin Clemmons 30 10 1 20
r ^
Sðlin 16. apríl
Taktu daginn frð!
Hlynur Baringsson í kröppun dansi í leik við Skallagrím fyrr á tímabilinu.
mennimir Calvin Clemmons og
Mike Ames sem voru bestu
menn Snæfellinga í þetta skiptið
þrátt fyrir að aðrir hafi átt góða
spretti. Sigurður Þorvaldsson
sást að vísu óvenju lítið í leiknum
enda klipptu Keflvíkingar hann út
eftir bestu getu. Hann kom hins-
vegar inn á krítískum augnablik-
um og hreif þá aðra með sér.
Hlynur barðist hinsvegar eins og
Ijón allan tímann en var mistæk-
ur í skotum sínum. Það breytir
ekki því að sá baráttuandi sem
drengurinn býr yfir verðskuldar
einn og sér íslandsmeistaratitil.
Þriðji leikurinn í viðuregin
Snæfells og Keflavík verður í
Keflavík á fimmtudagskvöld og
þrátt fyrir að Keflvíkingar séu
ekki þekktir fyrir að gefa mikið
eftir á sínum heimavelli þá er
Ijóst að allt getur gerst þegar all-
ir leikmenn Snæfells eru í topp-
formi.
GE
Til sölu
fasteignir
á Akranesi
Vesturgata 153
Einbýlishús, kjallari hæð og ris. 198
m2. 4-5 svefhherbergi og mögul- á
tveimur í viðbót í kjallara. Stór,
tvískipt stofa. Þakjám, endum. hluti
glugga, rafmagnsheimtaug.
Stuttur afhendingartími.
Vesturgata 145
Einbýlishús, kjallari, hæð og ris, 164
m2 3 svefhherbergi í risi og 1 í
kjallara. Töluvert endum. eign. s.s.
eldhúsinnrétting (örbylgjuofh, ísskápur
og uppþvottavél fýlgja), gólfefni,
ofhalagnir, raflagnir og tafla,
skolplögn, neysluvamslagnir og gler
og gluggar að hluta. Húsinu fylgir
geymsluskúr ca. 10 m2.
Vallarbraut 1
Tveggja herbergja íbúð á annarri hæð.
59 m2 auk sér geymslu í kjallara.
Falleg íbúð í góðu ástandi, ss. ný
eldhúsinnrétting. Þxjár hliðar hússins
em klæddar með sléttu steni, þakjám
endum. 2004. Viðhaldslétt eign.
Garðabraut 45
Fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð
114 m2 (sér geymsla í kjallar innifalin
í m2) Sér inngangur í íbúðina af
svölum. Nýjar innréttingar á
baðherbergi.
Einigrund 8
Þriggja herbergja íbúð á annarri hæð
90 m2 auk sér geymslu í kjallara,
parket og dúkur á gólfum.
Sameiginlegt þvottaherbergi, þvottavél
og þurrkari.
Fasteignamiðlun Vesturlands ehf.
Kirkjubraut 40, 300 Akranes
Sími 431 4144 Bréfsími 431 4244
GSM 896 2497
Soffi'a S. Magnúsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali