Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2005, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 06.04.2005, Blaðsíða 24
Nýtt og öflugt verkfæri til íbúðakaupa íbúðalán.is www.ibudaian.is PÓSTURINN allur pakkinn Grundarfj örður: Sundur og saman aftur? Enn eitt aflametið GRUNDARFJÖRÐUR: Sjó- menn í Grundarfirði slógu enn eitt löndunarmetið í marsmán- uði en hann var sá stærsti fram til þessa. Heildarafli landaður í Grundarfjarðarhöfn í mars var 2.634.171 kg samanborið við 1.946.096 kg í mars 2004. -www.grundarfiordur. is S Sturlaugur í LI AKRANES: Sturlaugur Stur- laugsson, fv. forstjóri HB Granda hefur verið ráðinn nýr útibússtjóri Landsbanka Islands á Akranesi og tekur hann við starfinu af Birgi Jónssyni, sem hættir síðar í vor. Af þessu tál- efni verður nánar rætt við Stur- laug síðar í Skessuhorni. -mm Bjarki í kjötsölu BORGARNES: Björn Bjarki Þorsteinsson, verslunarstjóri í Samkaupum Urvali í Borgar- nesi hefur ákveðið að söðla um og hefur tekið að sér starf sölu- og markaðsstjóra í Borgames kjötvömm þar sem hann byrjar síðar í þessum mánuði. „Eg geri ráð fyrir að hætta í Samkaupum um leið og ráðið hefur verið í starf verslunarstjóra og hella mér þá í nýja starfið. Eg kveð þennan vinnustað með söknuði enda vel reldð fyrirtæki og gott samstarfsfólk en hlakka jafn- framt dl að takast á við spenn- andi verkefni við sölu- og mark- aðsstörf í Borgarnes kjötvömm,“ segir Bjarki, en hann hefur verið verslunarstjóri í KB og síðar hjá Samkaupum síðan haustíð 1998 en þar áður var hann verslunar- stjóri á Hólmavík. -mm Ágreiningur um hvort byggja skuh nýjan leikskóla í Grundarfirði eða byggja við þann gamla varð til þess að það slitnaði upp úr meiri- hlutasamstarfi Framsóknarmanna og Sjálfstæðismanna fyrir hálfum mánuði. Þessir flokkar hafa verið í meirihluta í bæjarstjórn Grundar- fjarðar í ellefu ár en þeir eiga á þessu kjörtímabili fimm af sjö bæj- arfulltrúum. Sjálfstæðismenn þrjá og Framsóknarmenn tvo. Vinstri hreyfingin Grænt ffamboð hefur síðan einn bæjarfulltrúa og Oháðir einn. Ársreikningur Akraneskaupstað- ar og stofnana hans fyrir árið 2004 verður lagður fyrir bæjarstjóm Akraness næstkomandi þriðjudag til fyrri umræðu. Að sögn Gísla Gíslasonar, bæjarstjóra var afkoma kaupstaðarins mjög góð á sl. ári og reyndar betri en elstu menn muna. „I fyrsta skiptí í sögu sveitarfélags- ins voru engin langtímalán tekin vegna ffamkvæmda á árinu og lang- tímaskuldir A-hluta sveitarsjóðs, aðrar en lífeyrisskuldbindingar, lækkuðu um tæpar 119 milljónir króna og skammtímaskuldir lækk- uðu um 27,4 mkr. Lífeyrisskuld- bindingar hækka um 160,5 mkr og eignfærðar ffamkvæmdir sveitarfé- lagsins vora 101,9 mkr,“ sagði Gísli í samtali við Skessuhom. Heildartekjur A-hluta sveitar- Samkvæmt heimildum Skessu- homs hefur verið lítilsháttar á- greiningur um einstök mál en fyrst og fremst vora það leikskólamálin sem braut á. Báðir flokkar era þó sammála um að stækkun leikskól- ans sé nauðsyn en Sjálfstæðismenn vilja byggja við leikskólann á nú- verandi stað og vísa til þess að samið hafi verið um það í upphafi kjörtímabils. Framsóknarmenn vilja hinsvegar byggja nýjan og stærri leikskóla og telja að svæðið þar sem leikskólinn stendur í dag verði effirsótt undir verslun og sjóðs reyndust hafa verið 1.907.379 þ.kr. og vora 139,3 milljónum yfir áætlun. Rekstrarafkoma var í heild- ina jákvæð um 86 milljónir og í árs- lok var handbært fé 175,5 m.kr. og hækkaði um 49,1 m.kr. þjónustu í ffamtíðinni. Viðræður um myndun nýs meirihluta hafa staðið yfir frá því upp úr samstarfi Framsóknar- manna og Sjálfstæðismanna slitn- aði. Þreifingar þar að lútandi hafa þó engan árangur borið og jafnvel er útlit fyrir að meirihlutaflokk- arnir taki saman á ný þrátt fyrir það sem á undan er gengið. Fund- ur var ákveðinn á þriðjudag en af honum gat ekki orðið vegna veð- urs en búist er við að málin skýrist nú í vikunni. Eiginfjárstaða sveitarfélagsins er afar sterk og heildar eignir hðlega 5 milljarðar króna. Ibúum á Akranesi fjölgaði á árinu 2004 úr 5.582 í 5.655 eða um 73 íbúa sem er 1,3% aukning milli ára. MM FSN fær gjöf GRUNDARFJÖRÐUR: í hð- inni viku fóra félagar Rótarý- klúbbs Ólafsvíkur í heimsókn í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þeir skoðuðu skólann og af- hentu síðan Pétri aðstoðar- skólameistara gjöf til nemenda- félagsins sem hann svo afhenti nemendum daginn eftir þar sem heimsóknin var að kvöldi tíl. Gjöfin var forláta stafræn Sony myndavél. Hún mun koma að góðum notum við hin ýmsu tækifæri hjá nemendum. -mm. Áhrif ný- skógræktar á landslag BORGARFJÖRÐUR: Dag- ana 18. til 22. júní í sumar gangast Rannsóknastöð skóg- ræktar, Náttúrufræðistofnun Islands og Landbúnaðarháskóli Islands fyrir alþjóðlegri ráð- stefnu um áhrif nýskógræktar á líffræðilegan fjölbreytileika, landslag og byggðaþróun. Ráð- stefnan verður haldin í Reyk- holti í Borgarfirði og er hún styrkt af Norrænu ráðherra- nefndinni. Ráðstefnan er ætluð öllum sem áhuga hafa á við- fangsefninu sem er áhrif ný- skógræktar á lífffæðilegan fjöl- breytíleika, landslag og byggð- arþróun. Þar verða flutt yfirlits- erindi um hvert svið af valin- kunnum alþjóðlegum fræði- mönnum auk styttri erinda og sýningu veggspjalda frá öðrarn þátttakendum. -mm GE Mjög góð afkoma Akranes- kaupstaðar árið 2004 Málþing um vernd og nýtingu Arnarvatnsheiðar 9. aprtl 2005 Félagsheimili Ásbyrgi (Laugarbakka, Miðfirði) Kl. 13.00 Málþingið sett. Kl. 13.10 Deiliskipulag kynnt. Kl. 13.25 Árni Bragason, forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar, fjallar um friðlýsingaflokka, takmarkanir og möguleikar, og náttúruverndaráætlun. Hversvegna á aðfriðlýsa Arnarvatnsheiði og Tvídægru og hvaði möguleika gæti það skapað Kl. 14.00 Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra, fjallar um möguleika á fuglaskoðun á Norðurlandi vestra og lýsir hugmyndum hvernig má byggja upp a&töðu til fiiglaskoðunar. Hann mun einnig fjalla um hvað er veriðaðgera í rannsóknum á fuglum á vegum Náttúrustofii Norðurlands vestra (m.a. Himbrima, Helsingja og fleiri tegundum). Kl. 14.30 Sigrún Valbergsdóttir, leikstjóri og gönguleiðsögumaður Eilífðin er heil eilífð Arnavatnsheiði - ónumiðland og fjársjóður fyrir útivistarfólk. Kl. 14.50 Kaffihlé Kl. 15.20 Hafsteinn Helgason, verkfræðingur Línuhönnun hf. verkfræðstofa, Reykjavík. Hálendisvegir - valkostir og umhverfisáhrif Kl. 15.45 Arinbjorn Jóhannsson, ferðaskipuleggjandi á Brekkulæk Reynsla af skipulagi göngu- og hestaferði um Arnarvatnsheið Kl. 16 Bjarni Jónsson, Norðurlandsdeild Veiðmálastofnunnar Islands Möguleikar silungsvei&r og útivistar; verndun Arnarvatnsheiðar og fjölbreytt tækifæri. Kl. 16.25 Helgi Hjörvar, aiþingismaður Verndun Arnarvatnshei&r - þingsályktunartillaga. 1 Kl. 16.45 Spurningar og almennar umræður. * Kl. 17.15 e& upp úr því | Málþingslok Skrdning fer fram í síma 455-2515 eða 898-5154 eða meðtölvubréfi: gudrun@anv.is Gjald er kr. 1.000, kaffi innifalið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.