Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2005, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 06.04.2005, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRIL 2005 g&TBSgglHHÍflEiKl Löngufjörur eru okkar aðalsmerki segir Sigurður Jóhannsson ferðabóndi og hestamaður á Kálfalæk Sigiirður Jóhannsson í hesthúsinu aS Kálfalæk. Ferðir á hestum um ísland hafa aukist mikið á undangengnum árum. Samkvæmt könnun Ferða- málaráðs fara um 20% allra ferða- manna sem til landsins koma á hest- bak. Þessi grein ferðaþjónustunnar er vaxandi sem landkynning og ekki síður mikilvæg sem tekjuaflandi bú- grein. A Kálfalæk í fyrrum Hraunhreppi búa hjónin Sigurður Jóhannsson og Ólöf Guðbrandsdóttir með 100 hross og 250 kindur. Sigurður er fæddur og uppalinn á Kálfalæk en afi hans bjó þar og síðan foreldrar hans þar til Sigurður tók við búi. Þeirra aðalstarf er þjónusta við ferðamenn, flesta erlenda, sem koma til landsins að kynnast íslenskri náttúru. Síðan 1990 hafa Sigurður og Ólöf verið verktakar hjá Ishestum sem sjá alfar- ið um markaðssetningu ferðanna. Þau hafa farið í fjölda hestaferða á sumrin með ferðamenn um hina rómuðu náttúruperlu Lönguíjörur á Snæfellsnesi. A hverju ári fara þau í það minnsta átta til tíu ferðir sem taka fjóra til sex daga auk fjölda styttri ferða. Hjónin á Kálfalæk voru sótt heim fyrir skömmu og þau spurð út í hvernig þessar ferðir væru og hvort þetta væri fúllt starf fyrir fjölskylduna. Mæta einungis með föt og tannbursta „Ferðirnar um Löngufjörur á Snæfellsnesi eru okkar aðalsmerki og langvinsælastar í því sem við bjóðum upp á. I þeim eru fléttað saman reið upp til fjalla og inn til dala þar sem ekkert samband næst við umheiminn, fólkið er eitt með sjálfu sér og sínum hrossum og í miklu návígi við náttúruna. Við bjóðum einnig uppá fjögurra daga strandferðir einungis á Löngufjörur en í þeim er fylgst með sjávarföllum og fjörureið á blautum sandi svo kílómetrum skiptir þar sem reiðfær- ið er eins og best verður á kosið.“ segir Sigurður. Auðvelt er að ímynda sér að þessi ferðalög heilli bæði er- lenda og innlenda ferðamenn þar sem tekist er á við náttúruna á hest- baki. „Núna bjóðum við einnig fólki að velja um lengri sérferðir, allt upp í 16 daga þar sem riðið er í Dalina, Húnavamssýslu, Grímsmngu- og Arnavamsheiði, Borgarfjörð og loks aftur heim á Kálfalæk," heldur harm áffam. Hann segir að allt sé útvegað fyrir ferðalangana og þurfi þeir að- eins að mæta með ferðafötin, tann- burstann og sundfötin. „Allt annað, þ.e. hesta, reiðtygi og regnföt, mat og annan búnað, sköffum við. Far- þegarnir eru sóttdr á flugvöllinn, keyrðir að Kálfalæk og þeim skilað aftur í lok ferðar.“ Undirbúningurinn er tímafrekur Undirbúningurinn að hestaferð- unum er mikill. Einungis jáming á hundrað hestum að vori tekur 6 manns tvo daga. „Þetta þarf að gera áður en farið er í fyrstu ferð að vori og aftur að minnsta kosti einu sinni yfir sumarið auk þess að jáma þarf jafhharðan og dettur undan hross- unum.“ Sigurður segir að allt sé skipulagt ár fram í tímann og yfir- leitt tilbúið 1. ágúst. „A haustin er pantað á gististöðunum bæði fyrir menn og hesta. Vetrarvinnan fer í að ala upp hrossin, hirða þau og gera þau tilbúin í ferðimar.“ Einnig þarf að huga vel að hnökkum og reiðtygj- um og em viðgerðir á þeim alfarið í höndum Jóhanns föður Sigurðar. Auk þess býr hann til beisli og tauma fyrir útgerðina. En ffágangur eins og að bera á allt leður tekur mikinn tíma á haustin áður en reiðtygin em sett í vetrargeymslu. Allir hcstfærir Allir heimilismenn á Kálfalæk taka þátt í þessu starfi. „Núna erum við með 15 hesta á jámum í tamningu og þjálfún og er það fúllt starf með öðrum búverkum. Það er ómögulegt að sjá fyrir hvað það tekur langan tíma að gera hvem hest reiðfæran. Fjögurra vetra tamningartryppi era tekin og þeim riðið um það bil 1 - 2 kilómetra á dag. Þau em tamin að lágmarki í tvo mánuði en ef hestur reynist hæfileikalítill er betra að slátra honum fljótlega fremur en að eyða í hann tíma við tamningar," segir Sigurður. Hann bætir við: „Til Olöfhúsfreyja sinnir allri matseld íferðum og er í mörg hom að líta hjá henni við skipulagningu., innkaup og matseld, því ekki er hlaupið út í búð þó eitthvað vanti. að gera hest að bamahesti eða not- hæfan fyrir óvana þarf allt upp í tveggja ára tamningu til að yfirstíga það sem getur komið uppá og forð- ast óhöpp. Knapar em að sjálfsögðu misjafúlega hestfærir en breiddin í knöpum er eins mikil og ferðamenn- irnir em margir. Þannig þurfúm við í raun að hafa tiltækar allar gerðir af hestum.“ Erum einnig farin að fá Japani Það er fólk af ýmsu þjóðemi sem sækir hestaferðir Kálfalækjarfólks- ins. ,A síðasta ári komu í fyrsta skipti til okkar Japanir en annars hafa Þjóðverjar verið í miklum meirihluta ferðamannanna en Norðurlandabú- ar em vaxandi hópur,“ segir Sigurð- ur. Reynslan hefur kennt honum hvemig meta beri kunnáttu og fæmi hvers knapa og velja undir hann hest áður en haldið er í ferðimar. „Það er vissara fyrir hvem og einn að segja okkur rétt til um fæmi sína áður en farið er af stað. Einstaklingurinn ber alltaf sjálfur ábyrgð á sér á ferða- lagi,“ segir Sigurður. „En aðstoðar- menn fylgja í allar ferðir, ekki færri en fjórir og sumir þeirra hafa komið ár efidr ár, koma í eina ferð og ílengj- ast,“ bætir hann við. Fleiri vinna við ferðimar Auk aðstoðarmanna koma fleiri við sögu í ferðunum. Bílstjórar sem fengnir em af svæðinu til að aka fólki milli staða ef á þarf að halda og ekki mál gleyma fæðinu ofan í allan mannskapinn. Olöf kona Sigurðar sér alfarið um matseldina í ferðun- um, skipuleggur innkaup, bakar og undirbýr eldamennskuna eins og hægt er áður en lagt er af stað. I mörg horn er að líta í sKkum ferðum með fjölda fólks og ánægjan af að fá venjulegan íslenskan heimifismat við heimkomu á áningarstað er ætíð mikil. „Eg þarf oft að elda fyrir 25 manns við ýmsar aðstæður þar sem ekki er hægt að hlaupa út í búð og kaupa ef eitthvað vantar," segir Olöf. En eftir því sem ffegnir herma hafa margir ferðalanganna fengið ó- mælda matarást á henni og á hún því sinn stóra hlut í vinsældum ferð- Óskum eftir starfsfólki Þorgeir og Helgi hf. / Smellinn á Akranesi óskar eftir að ráða lagerstjóra, smiði og byggingaverkamenn til framtíðarstarfa Lagerstjóri Markmið starfsins: Sjá um skipulag lagers, pantanir og móttöku aðfanga. Lagerstjóri mun einnig hafa yfirumsjón með þrifum í verksmiðjusölum. Menntun, reynsla og hæfiii sem starfið kallar á: • Reynsla af byggingarvinnu. • Reynsla af lestri smíðateikninga. • Reynsla af tölvupósti og Excel. • Æskilegt að viðkomandi sé iðnmenntaður. • Ahugi á byggingariðnaði og tengdum sviðum. • Góðir samskiptahæfileikar gagnvart samstarfsfólki og birgjum. Vinnutími: Vinnutími er frá 7:30 á morgnanna til 17:00 á daginn, mánudag til föstudags. A vinnustað er mötuneyti þar sem starfsmenn hafa aðgang að heitum mat í hádegi. Starfsmenn geta fengið far til og frá vinnu sé þess óskað. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknum skal skila á skrifstofu fyrirtækisms að Höfðaseli 4. Upplýsingar veitir Stemgrímur M. Jónsson framleiðslustjóri í síma 433 6003. Smiðir Markmið starfsins: Vinna við framleiðslu forsteyptra eininga. Menntun, reynsla og hæfhi sem starfið kallar á: • Húsasmiður með sveinspróf og starfsreynslu. • Áhugi á byggingariðnaði og tengdum sviðum. • Góðir samskiptahæfileikar gagnvart samstarfsfólki og viðskiptavinum. Vinnutími: Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnir eru 6 dagar og síðan 3 dagar í fríi. Vinnutími er frá 7:30 á morgnanna til 17:00 á daginn. A vinnustað er mötuneyti þar sem starfsmenn hafa aðgang að heitum mat í hádegi. Starfsmenn geta fengið far til og frá vinnu sé þess óskað. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknum skal skila á skrifstofu fyrirtækisins að Höfðaseli 4. Upplýsingar veitir Alfreð Þór Alfreðsson verkstjóri í síma 840 6607. J Byggingaverkamenn | Markmið starfsins: Vinna við framleiðslu forsteyptra eininga. 5 Menntun, reynsla og hæfiii sem starfið kallar á: • Reynsla af byggingavinnu. • Áhugi á byggingariðnaði og tengdum sviðum. • Réttindi á Brúkrana æskileg en ekki skilyrði. • Góðir samskiptahæfileikar gagnvart samstarfsfólki og viðskiptavinum. Vinnutími: Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnir eru 6 dagar og síðan 3 dagar í fríi. Vinnutími er frá 7:30 á morgnanna til 17:00 á daginn. Á vinnustað er mötuneyti þar sem starfsmenn hafa aðgang að heitum mat í hádegi. Starfsmenn geta fengið far til og frá vinnu sé þess óskað. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsókmim skal skila á skrifstofu fyrirtækisins að Höfðaseli 4. Upplýsingar veitir Alfreð Þór Alfreðsson verkstjóri í síma 840 6607. Fyrirtœkið Þorgeir og Helgi hf. var stofnað árið 1963.Árið 2000 hófst framleiðsla forsteyptra húseininga undir nafninu Smellinn og er það í dag aðalstarfsemi fyrirtœkisins. Starfsmenn nú eru um 45 talsins. Sjá núnard www.smellinn.is. FORSTEYPT EININGAHUS Úr einni ferðinni. anna. ES

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.