Skessuhorn - 06.04.2005, Qupperneq 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRIL 2005
Skagamenn
farnir til Spánar
Þórður Þórðarson er að verða teikfær á ný eftir uppskurð.
Sigur á
Grindvík-
ingum
Skagamenn unnu góðan sigur á
Grindvíkingum 2-0 á sunnudag í
sjöttu umferð deildarbikarkeppn-
innar í knattspyrnu. Grindvíkingar
gerðu eiginlega sjálfir út um leikinn
snemma í fyrri hálfleik því þá var
markverði Grindvíkinga vísað af
leikvelli eftir að hafa brotið á Guð-
jóni Sveinssyni inni í vítateig.
Grindvíkingar léku því manni færri
lungann úr leiknum. Kári Steinn
Reynisson skoraði fyrra mark ÍA úr
vítaspyrnunni sem Skagamenn
fengu fyrir brot markmannsins en
síðara mark ÍA skoraði Sigurður
Ragnar Eyjólfsson. GE
Hætti við
Fram
Kristinn Darri Röðulsson 18 ára
knattspyrnumaður úr ÍA hefur hætt
við að ganga til liðs við Fram en
hann hafði gert samning við félag-
ið. Kristinn Darri verður áfram í
röðum ÍA og hefur skrifað undir
tveggja ára samning við Skaga-
menn. Hann var einn besti leik-
maður íslands- og bikarmeistara 2.
flokks ÍA sl. sumar og var í lands-
liðshópi U-19 ára landsliðs ÍA á
síðasta ári. GE
Jafnt hjá
konunum
Kvennalið ÍA í knattspyrnu ték
fyrsta leik sinn í deildarbikarnum á
sunnudag. Skagastúlkur stóðu sig
vel í leiknum og gerði jafntefli við
Keflavíkurkonur á þeirra heimavelli
í Reykjaneshöllinni. Úrslit leiksins
urðu 1 - 1. GE
Lið meistaraflokks karla í knatt-
spyrnu hjá ÍA lagði land undir fót
á mánudag og hélt til Spánar þar
sem Skagamenn dvelja í vikutíma
við æfingar og keppni. Meðal
annars mætir ÍA varaliði stórliðs-
ins Espanyol. Hjálmur Dór
Hjálmsson fór ekki með liðinu til
Spánar vegna meiðsla en hins-
vegar er Þórður Þórðarson mark-
Skagamenn töpuðu stórt gegn
Valsmönnum í fimmtu umferð
deildarbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í síðustu viku, 4-1.
Skagamenn léku ágætlega í fyrri
hálfleik en það kom ekki í veg fyr-
ir að fyrrum félagi þeirra Garðar B
Gunnlaugsson gerði fyrsta mark
Valsmanna á 20. mínútu. Það var
vörður orðinn það brattur eftir
uppskurð í vetur að hann hélt
utan með félögum sínum. Ekkert
varð af því að leikmenn frá enska
liðinu Reading færu með ÍA til
Spánar eins og til stóð en engu
að síður er reiknað með að
Skagamenn fái liðsauka þaðan
fyrir komandi keppnistímabil.
GE
hinsvegar fyrrverandi Valsari, Ell-
ert Jón Björnsson sem jafnaði
leikinn fyrir ÍA nokkrum mínútum
síðar. Valsmenn komust aftur yfir
undir lok hálfleiksins en í síðari
hálfleik réðu þeir lögum og lofum,
bættu við tveimur mörkum, og
unnu sanngjarnan sigur.
GE
Tap gegn Val
Góður árangur Dalakrakka
á glímumótum
Grunnskólamótið í glímu og
Meistaramót GLÍ 16 ára og yngri
var haldið að Laugum í Sælings-
dal fyrir skemmstu. Dalamenn
áttu þar fjölmarga verðuga full-
trúa en Glímufélag Dalamanna
hefur staðið fyrir öflugu barna- og
unglingastarfi undanfarin ár sem
skilað hefur mörgum efnilegum
glímumönnum og enn frekar
glímukonum.
Hér skal tíundaður helsti árang-
ur glímufólks úr Dölunum á mót-
unum tveimur.
í flokki stelpna í 9. bekk varð
Sandra Grettisdóttir í öðru sæti,
Helga Haraldsdóttir náði sama
árangri í flokki 7. bekkinga. Þær
Þórunn Anna Magnúsdóttir og
Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir röð-
uðu sér í 3. og 4. sæti í 6. bekkj-
arkeppninni og Gunnlaug B Þor-
grímsdóttir varð 3. af fimmtu
bekkingum.
Tveir af strákunum náðu góð-
um árangri, þeir Arnar Freyr Þor-
björnsson sem varð í fjórða sæti í
flokki 7. bekkinga og Sigurður
Bjarni Gilbertsson sem nældi sér í
silfurverðlaun í flokki 6. bekkinga.
Meistaramót Glímusambands-
ins, 16 ára og yngri, var haldið að
Laugum sömu helgina. Þar stóðu
Dalamenn einnig fyrir sínu og
meðal annars varð Sigurdís Sóley
Lýðsdóttir í fjórða sæti í flokki
stelpna 15-16 ára. Guðbjört Lóa
Þorgrímsdóttir gerði sér síðan lít-
ið fyrir og vann silfurverðlaun í
flokki 11 -12 ára en Þórunn Anna
Magnúsdóttir varð í fjórða sæti.
GE
iLVUÞ,
imasi
með isl. tali
Sunnudaginn
10. april
kl. 16:00
Sunnudaginó
10. apríl ki. 20:00
Mánudaginn
11. apríl kl. 20:00
□skarsverð-
launamyndin
Ray
Fimmtudaginn
14. apríl
kl. 20:00
LOKASYNIIXIG
á þessari
skemmtilegu mynd
Fimmtudaginn
7. apríl kl. 20:00
Víkingar byrja vel
Knattspyrnulið Víkings úr
Ólafsvík sem leikur í 1. deild á
komandi keppnistímabili hefur
leikið tvo leiki í neðri deild Deild-
arbirkarkeppninnar í knattspyrnu
og unnið þá báða.
Þann 13. mars mættu Ólsarar
Njarðvíkingum í Reykjaneshöllinni
og unnu 2-1 með mörkum þeirra
Arons Baldurssonar og Tryggva
Hafsteinssonar. Viku síðar tóku
Víkingar á móti Árborg á sama
stað og sigruðu örugglega, 4-0.
Það voru þeir Hermann Geir
Þórsson, Kári Viðarsson og Alex-
ander Linta sem skoruðu sitt
markið hvor en það fjórða var
sjálfsmark. GE
Danmerkurferð, Meistaramót ísland og
landsliðsferð badmintonfólks af Akranesi:
Skagamenn eru
fyrnasterkir í hniti
Kátir krakkar í Danmörku með verðlaun eftir vel heppnað mót.
30 krakkar á aldrinum 13 til 19
ára frá Badmintonfélagi Akra-
ness fóru til Kaupmannahafnar
dagana 20. til 27. mars sl auk
tveggja fararstjóra og eins þjálf-
ara. Tilgangur ferðarinnar var
fyrst og fremst að fara á alþjóð-
legt badmintonmót þ.e. ISCA
badmintonfestivalið. Einnig var
lögð mikil áhersla á að krakkarn-
ir gætu notið ferðarinnar og þess
að vera saman og skemmt sér
um leið.
Ferðin tókst í alla staði mjög
vel. Krakkarnir stóðu sig mjög
vel á mótinu, spiluðu öll marga
leiki og kynntust badminton-
krökkum frá öðrum löndum. Far-
ið var í verslunarferðir, bæði á
Strikið og í Fisketorvet, stóra
verslunarmiðstöð og svo var frá-
bær dagur í Bakken skemmti-
garðinum þar sem krakkarnir
fóru í ótal rússibanaferðir, í
draugahús o.fl. Allir enduðu svo
daginn með því að fá sér risa-
stóran ís.
ISCA badmintonfestivalið
hófst á fimmtudeginum 24. mars
með liðakeppninni og henni lauk
svo um miðjan dag á föstudeg-
inum en þar sigraði í U 15 - B
flokki, lið Eiríks Bergmanns
Henn og Viktors Ýmis Elíassonar
eftir úrslitaleik við lið Ragnars
Harðarsonar, Ármanns Arnar
Bjarnarsonar og Oddnýjar
Hjálmarsdóttur. Síðan hófst ein-
staklingskeppni og þar kepptu U
-15 krakkarnir og elstu stelpurn-
ar í B flokki en U - 17 í A og B
flokki. Krakkarnir stóðu sig frá-
bærlega og eins og á flestum
mótum hér á landi voru ÍA krakk-
arnir sigursæl.
í U - 15 B flokki vann Karitas
Eva Jónsdóttir gull í einliðaleik
og gull í tvíliðaleik ásamt Líf Lár-
usdóttir. Harpa Jónsdóttir og
Aníta Sif Elídóttir unnu silfur í tví-
liðaleik. Ragnar Harðarson og
Kristján Huldar Aðalsteinsson
unnu gull í tvíliðaleik og Ólafur
Helgi Halldórsson og Oddný
Hjálmarsdóttir unnu silfur í
tvenndarleik.
í U - 17 A flokki vann Hanna
María Guðbjartsdóttir gull í ein-
liðaleik og hún og Róbert Þór
Henn unnu silfur í tvenndarleik.
Una Harðardóttir og Hulda Ein-
arsdóttir unnu silfur í tvíliðaleik í
A flokki. í B flokki vann Marianne
Sigurðardóttir gull í einliðaleik og
Lilja Jónsdóttir silfur og Lilja og
Ragnheiður Friðriksdóttir unnu
gull í tvíliðaleik.
í B flokki fullorðinna vann
Birgitta Rán Ásgeirsdóttir gull í
einliðaleik og írena Jónsdóttir
silfur. Birgitta og (rena unnu svo
gull í tvíliðaleik.
Krakkarnir voru flottir í Kawa-
saki bolunum sem þau fengu að
gjöf fyrir ferðina og voru sjálfum
sér, félagi og landi til sóma hvar
sem þau komu. Á páskadags-
morgun fengu allir lítið páskaegg
eftir góðan morgunmat og síðan
var haldið af stað heim. Komið
varáAkranes klukkan 17:00, all-
ir þreyttir en sælir eftir mjög vel
heppnaða ferð.
MM
SM PÍANÓSTILLINGAR
AKRANESI
Stefán Magnússon, meö Diploma
frá American School
of Piano Tuning
sími: 4312477 netfang: kkogsm@hn.is