Skessuhorn


Skessuhorn - 18.01.2006, Side 7

Skessuhorn - 18.01.2006, Side 7
Sktail'l)lM©EF3 MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 2006 7 Olís hyggst efla starf- seminaí Borgamesi Olíuverslun Islands hefur nú keypt allt húsið að Brúartorgi 6-8 í Borgarnesi þar sem m.a. afgreiðsla Olís og dekkjaverkstæði hefur ver- ið undanfarin ár. Eignarhlutann, sem nú hýsir dekkjaverkstæði, sel- ur Sparisjóður Mýrasýslu til Olís. Að sögn Gunnars Sigurðssonar, ffamkvæmdastjóra Olís á Vestur- landi er fýrirhugað að Olís stækki verslun sína og auki m.a. veitinga- aðstöðu. „Þá verður áffarn rekið dekkjaverkstæði og sennilega einnig smurstöð í austurenda húss- ins. Við höfum hug á að efla enn ffekar þjónusm okkar í Borgarnesi. A síðasta ári jókst sala hjá okkur verulega við að sérstök aðkeyrsla var gerð ffá þjóðveginum fýrir þá sem eru að koma að sunnan og viljum við gjarnan efla okkur enn frekar með aukinni þjónustu," sagði Gunnar í samtali við Skessu- horn. MM Hart deilt umfast- eignagjöld Miklar umræður urðu á bæjar- stjómarfundi í Grundarfirði í síð- ustu viku þar sem ræddar vom til- lögur að breytingum að álagning- arstofni fasteignagjalda. Bæjarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins vildu lækka álagningu en tillaga þeirra var felld. Munu því fasteignagjöld í Gmndarfirði hækka nokkuð á þessu ári vegna hækkandi fast- eignamats. Forsaga málsins er sú að um ára- mótin hækkaði fasteignamat íbúð- arhúsnæðis í Grundarfirði um 15% og atvinnuhúsnæðis um 10%. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fýrir skömmu var hins vegar ekki gerð tillaga um lækkun álagningar- stofns og því útlit fýrir að álögur á fasteignaeigendur hækki nokkuð á árinu. Þessu vildu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks ekki una og á fundi bæjarstjórnar lögðu þeir fram tillögu um lækkun. Hún var felld. Bæjarstjórn samþykkti hins vegar tillögu um að gera saman- burð á tekjustofnum Grundar- fjarðar og annarra sambærilegra sveitarfélaga. Verði sá samanburð- ur Grundarfirði óhagstæður verði leitað leiða til að leiðrétta þann mun. Nánar má lesa um málið í frétt á skessuhom.is. HJ Aædun um minna sorp Fulltrúar fjögurra sorpsamlaga afhentu nýlega umhverfisráðherra „sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2005 -2020“. Sorpsamlögin sem hlut eiga að máli em SORPA bs. Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf., Sorpstöð Suður- lands bs og Sorpurðun Vesturlands hf. Starfssvæði þessara samlaga nær frá Gilsfjarðarbotni í vestri að Markarfljóti í austri. Þau þjóna alls 43 sveitarfélögum með um 240 þúsund íbúum, eða um 80% lands- manna. Hverju sveitarfélagi er skylt að semja áætlun um með- höndlun úrgangs á grundvelli laga nr. 55/2003 sem taka mið að mark- miðum Landsáætlunar Umhverfis- stofnunar um breytta og bætta meðhöndlun úrgangs. Stærsti þátt- ur Landsáætlunarinnar er markmið um umtalsverða minnkun á urðun lífræns úrgangs í áföngum fram til ársins 2020. Sú áætlun sem nú hgg- ur fýrir felur í sér ítarlegar upplýs- ingar um núverandi stöðu úrgangs- mála á svæðinu öllu, þ.e. upplýsing- ar um magn og flokkun úrgangs sem til féll á árinu 2002, upplýsing- ar um fyrirkomulag söfnunar, flokkunar, endurheimtu og förgun- ar úrgangs og upplýsingar um kostnað sveitarfélganna vegna með- höndlunar úrgangs. Þá er í áætlun- inni sett fram spá um líklega þróun fram til ársins 2020, og sú spá bor- in saman við þau markmið sem sett eru um minnkun á urðun lífræns úrgangs á tímablilinu. Þá er í áætl- uninni sett fram aðgerðaáætlun um næstu skref, sem felur í sér að sam- lögin undirbúi sameiginlega þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að mæta fýrirliggjandi kröfum um breytta og bætta meðhöndlun úr- gangs. Sú vinna felst m.a. í grein- ingu og mati á hagkvæmustu kost- um til förgunar á lífrænum úrgangi í stað urðunar, breyttu fýrirkomu- lagi á rekstri urðunarstaða og leið- um til að auka endurheimtu á úr- gangi til endurvinnslu og endurnýt- ingar. Niðurstaða þessarar vinnu verður síðan grundvöllur ákvarð- anatöku um þær leiðir sem farnar verða til að mæta þeim kröfur sem gerðar eru um breytta og bætta meðhöndlun úrgangs. Reiknað er með að það taki 2 - 3 ár að ljúka þessu verki, og ákvarðanir sem af því leiða verði hluti af endurskoð- aðri svæðisáætlun sem liggja þarf fýrir á árinu 2008. MM — Við viljum ráða rafvirkja til að starfa við fjölbreytt og spennandi verkefni hjá Norðuráli. Framundan eru mikil tímamót en um þessar mundir er unnið að stækkun álversins á Grundartanga sem felur í sér meira en tvöföldun á framleiðslugetu þess. Hvers væntum við af þér? Við leitum að rafvirkjum með sveinspróf. Reynsla af vinnu við rafbúnað í iðnaðarumhverfi er æskileg, ásamt þekkingu á iðntölvum og reynslu af stýringum. Samskiptahæfni, jákvæðni, geta til að vinna sjálfstætt og vilji til að takast á við krefjandi verkefni eru nauð- synlegir eiginleikar. Hvað veitum við þér? Við bjóðum þér að ganga til liðs við öflugan hóp samstarfsfólks hjá framsæknu fyrirtæki í miklum vexti. Aðbúnaður er góður og mötuneyti er á staðnum. Verkefni rafvirkja eru fjölbreytt og felast m.a. í viðhaldi, bilanaleit, endurnýjun og endurbótum á rafbúnaði Norðuráls. Sérstök áhersla er lögð á starfsþjálfun og símenntun. Atvinnuöryggi er mikið, tekjur traustar og laun þín eru að hluta árangurs-tengd. Ennfremur greiðir fyrirtækið þér aukið framlag í lífeyrissjóð. Jafnrétti Áhersla er lögð á jafna möguleika karla og kvenna til að starfa hjá Norðuráli. Hvenær þurfum við að fá umsókn þína? Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 23. janúar n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið umsokn@nordural.is eða póstlagt umsóknina, merkta: Atvinna. Trúnaður Við förum með umsókn þína og allar persónulegar upplýsingar sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Rakel Heiðmarsdóttir, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Norðuráls, í síma 430 1060. hR Norðurál á Grundartanga er einn stærsti vinnustaðurinn á Vesturlandi og fyrirtækið skipar öflugan sess i samféiaginu. Norðurái leggur ríka áhersiu á öryggismái og er ströngum öryggisreglum fylgt á öllum sviðum starfseminnnar. Um þessar mundir er unnið að stækkun Norðuráts sem felur í sér að framleiðslugeta álversins verður aukin úr 90.000 tonna ársframleiðslu í 220.000 tonn á þessu ári. Áætiað er að gangsetning hins nýja hluta áiversins hefjist um miðjan febrúar2006. Grundartanga 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 nordural@nordural.is • www.nordural.is CenturyALUMiNUM

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.