Skessuhorn - 18.01.2006, Blaðsíða 19
§KESSUii©I2RI
MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 2006
19
Endurskoða
samþykktir
GRUNDARFJÖRÐUR: Bæj-
arstjóm Grundarfjarðar hefur
samþykkt tillögu Sigríðar Finsen
forseta bæjarstjórnar um að hafin
verði endurskoðun á samþykkt-
um bæjarfélagsins og að þeirri
vinnu verði lokið eigi síðar en í
maí í vor. Var bæjarráði falið að
annast endurskoðtmina. -hj
Enga hunda á
Sólvelli
GRUNDARFJÖRÐUR: Sam-
kvæmt reglum um htmdahald í
Grundarfirði er bannað að fara
með hunda inn á lóð Leikskólans
Sólvalla. Undanfarið hefur
starfsfólk leikskólans orðið vart
við áþreyfanleg ummerki efdr
ferðir hunda á lóðinni. I tilkynn-
ingu frá Gmndarfjarðarbæ era
hundaeigendur beðnir um að
virða þessar reglur og fara ekki
með hunda sína inn á lóðina.
-mm
Óhapp í hálkunni
BORGARFJÖRÐUR: Síðast-
liðinn sunnudag var bifreið ekið
útaf veginum í Stafholtstungum
og hafnaði þar á hvolfi. Ekki
urðu meiðsl á fólki. Bifreiðin er
hinsvegar mikið skemmd og
þurfri kranabíl til að fjarlægja
hana. Nokkuð mikill snjór er
víða um héraðið og færð því
slæm; hálka og snjór. Full ástæða
er því til að hvetja ökumenn til að
aka varlega, hafa ljósabúnað í lagi
og vel hreinsaðan og hjólbarða í
lagi miðað við færð.
-mm
VífilfeU
Fulltrúi Vífilfells hf., ffamleið-
andi Coke á Islandi, afhenti í gær
fulltrúum rekstrarfélaga meistara-
flokks karla, kvenna og yngri
flokka IA styrk að upphæð tæplega
sjöhundrað þúsund krónur. Styrk-
ur þessi er kominn til vegna samn-
ings milli þessara aðila í þá veru að
5 krónur af hverjum seldum lítra af
gosdrykkjunum Coca cola og
Coke light, sem seljast á Akranesi,
renni til rekstrarfélaganna. Um er
að ræða sölu drykkjanna á meðan
keppnistímabilið stendur. Samn-
ingur þessi er nú útranninn en all-
ir aðilar samningsins hafa lýst yfir
áhuga á ffamlengingu hans.
HJ
s
afhendir styrk til IA
Skipulagsvinna vegna
vatnsátöppunarverksmiðju
Á góðviðrisdegi í liðinni
viku fór ffam undirbún-
ingur að skipulagsvinnu á
vegum Snæfellsbæjar
vegna vatnsátöppunar-
verksmiðju sem fyrirhugað
er að reisa í Rifi, og greint
hefur verið frá' hér í blað-
inu. Mikil skipulagsvinna
er framundan enda gert
ráð fyrir stórum húsum
vegna starfseminnar. Jafn-
ffamt fer af stað skipulags-
vinna vegna j stækkunar
hafnarinnar þár sem gert
er ráð fyrir að stór flutn-
ingaskip geti lagst að
bryggju vegna framleiðslu
verksmiðjunnar.
MM/ Afsnb.is.
Annasöm vika
AKRANES: Lögreglan á Akra-
nesi sinnti alls 129 verkefnum
af ýmsum toga í vikunni sem
leið. Bifreið var ekið útaf vegi
og ofan í skurð. Hafnaði hún á
hliðinni og þurfti kranabifreið
til að ná henni upp aftur. Bif-
reiðin var þó lítið skemmd og
ökumaður ómeiddur. Snjór er
yfir öllu og hafa nokkrir
vélsleðamenn freistast til að
nýta sér gott færi innan bæjar-
markanna á Akranesi. Lögregla
hefur haft af þeim tal og gert
grein fyrir að akstur þessara
tækja er óheimill innanbæjar.
Þrátt fyrir að hálka hafi verið
meira og minna alla vikuna á
Akranesi vora til þess að gera fá
umferðaróhöpp. Að sögn Jóns
Ólafssonar, yfirlögregluþjóns
verður að teljast vel sloppið,
sérstaklega í ljósi þess að götur
eru hvorki saltaðar eða sand-
bornar, að óhöpp urðu ekki
fleiri. -mm
Ljós og snjó-
hreinsun skoðuð
SUÐVESTURLAND: Lög-
regluliðin á suðvesturhorninu
stóðu fyrir átaki í vikunni sem
leið. Athyglinni var beint að
ljósabúnaði ökutækja ásamt því
að fýlgjast með því að ökumenn
hreinsuðu snjó og ís af rúðum
bifreiða. Þannig hafði lögreglan á
Akranesi afskipti af 30 ökumönn-
um vegna þessa. 25 umráðamenn
ökutækja sem ekki höfðu sinnt
því að færa ökutæki sín til skoð-
tmar, fengu áminningu frá lög-
reglu og var gert að færa ökutæk-
in á skoðunarstöð hið bráðasta.
-mm
I byggingu eru tvö einbýlishús og tvö parhús (4 íbúðir)
við Stöðulsholt nr 1, 2-4 og 6-8 í Borgarnesi:
Húsin eru boðin til sölu
á byggingarstiginu:
Fullbúin að utan með
gróljafnaðri lóð.
Að innan: Tilbúin undir
málningu og með
milliveggjum, raf-og
hitalögnum.
Afhendingartími á ofangreindu byggingarstigi er
mars 2006. Allar nánari upplýsingar hjá
Lögfræðistofu Inga Tryggvasonar sími 4371700
Söluaðili:
Lögfræðistofa Inga
Tryggvasonar
Framkvæmdaaðili: Hönnun: Byggingaraðili:
M2 Ráðgjöf Nýhönnun Hús og Hönnun ehf.