Skessuhorn


Skessuhorn - 18.01.2006, Side 14

Skessuhorn - 18.01.2006, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2006 • • • Spuming vikunnar Aðþessu sinni voru nemend- ur í Fjölbrautaskólanum á Akranesi spurðir hvort þeir séu búnir að ákveða áfram- haldandi nám og hvort þeir íetli sér að búa á Vesturlandi að því loknu. Fríða Asgeirsdóttir 17 árajrá Akranesi Nám: Náttúrufræíibraut Hef ekki hugmynd um hvað ég vil læra. Fer líklegast í Háskólann í Reykjavík en kem örugglega aftur hingað eftir námii. Gunnar Smári Jóríbjömsson 18 árafrá Borgamesi Nám: Náttúrufræðíhraut Eg ætla í ISnskólann í Reyk/avtk og læra málarann. Þegarþað sveins- prófer komið ætla ég t læknmn. Veit ekki hvar e'g vil húa að námi loknu, það er opinn kostur. Það mun Iíklegast fara eftir vinnu. Magnús Haraldsson 18 ára úr Melasveit Nám: Húsasmíðabraut Ég veit ekki alveg hvai ég ætla mér að læra annað, en ætli ég muni ekki búa hér á Vesturlandi ífram- tíSinni, í sveitinni eða á Akranesi. Gyða Kristjánsdóttir 16 ára úr Snæfellsbæ Nám: Náttúrufræðibraut Er ekki ákveðin, en áframhaldandi nám verður eitthvað sem mig lang- ar að læra og gefiur líka góða atvinnumöguleika. Veit ekki hvar ég vil búa í framtíðinni enþað þatfekki endilega að vera á Vestur- landi, bara þar sem mun hmta best. Aðalheiður Kristjánsdóttir 16 árafrá Hvanneyri Nám: Félagsfræðabraut Veit ekki hvað ég ætla að lærafrek- ar, en það verður eitthvað sem mig langar að læra. Jú, ég kem svo aft- ur á Vestulandið, það er alveg ör- ~í^etitiétiti^~. Um hreppana sunnan Skarðsheiðar Nú í vor gengur í gildi sameining hreppanna fjögurra sunnan Skarðs- heiðar. Hreppamir fjórir sem sam- einast em Hvalfjarðarstrandar- hreppur, Innri Akraneshreppur, Leirár- og Melahreppur og Skil- mannahreppur. Nöfn þessara sveit- arfélaga era með hefðbundnu sniði að því síðasttalda undanskildu. Oft- ast er kennt við höfuðból eða land- fræðileg svæði og kennileiti. Um uppruna nafhs Skilmannahrepps er hins vegar fátt vitað. Fráskildir eða aðskildir? Margir íbúar á þessu svæði, sem og nokkrir sagnfr æðingar sem ég hef rætt við, telja nafnið tilkomið vegna þess að hreppurinn hafi verið skihnn frá - eða skihð sig ffá - nærhggjandi hreppi. Að hreppar hafi verði skildir í stmdur er ekki óþekkt og er nærtæk- ast að taka þegar Akraneshreppi var árið 1885 skipt í Innri og Ytri Akra- neshreppi (síðar Akraneskaupstað- ur). Reyndar era flest ef ekki öll skrásett dæmi um skiptingu hreppa með þeim hætti að þéttbýlisstaður skihir sig ffá sveitahreppi á 19. og 20. öld. Sjálfum þykir mér áðurnefnd skýring um uppruna nafhsins frekar ólíkleg. Það bæri vott um litla hug- myndaauðgi ef hreppur hefði verið nefndur eftír þeim einum atburði sem væri aðskilnaður hans ffá öðr- um hreppi. Að sama skapi hefði nafiiið varla haldist ef utanaðkom- andi áttu ffumkvæðið að því í óþökk heimamanna. Eða hversu líklegt þykir þér, les- andi góður, að hið nýja sameinaða sveitarfélag muni hljóta nafn á borð við Lagsmannahreppur eða Sam- herjasveit? Skiiningur fræðimanna Þá kenningu að Sldlmannahrepp- ur sé klofningshreppur má finna í bókjóns Böðvarssonar, „Akranes ffá landnámi til 1885“. Þar segir hann: „Þannig er mjög sennilegt að sunn- an Skarðsheiðar sé Skilmannahrepp- ur yngri en hinir þrír sem þar eru nú.“ Þessu til stuðnings bendir hann á að stundum vora þriggja hreppa þing haldin á fomum vorþingsstöð- um og að heimild um slíka samkomu „á Leiðvelli við Grunnafjörð" megi finna í Harðar sögu og aðra miklu yngri ffá lögmannstíð Arna Odds- sonar. Röksemdin er sem sagt sú að fyrst þriggja hreppa þing var haldið þar sem núna era fjórir hreppar megi draga þá ályktun að „þar hafi hreppi verið tvískipt þótt ekki hafi varðveist heimildir þar að lútandi.“ (JB bls. 135, 139) I Harðar sögu má lesa um það þegar bændur „lögðu fund á Leið- velh við Laxá hjá Grunnafirði“ að ráða atför að Hólmverjum (IS bls. 272). Hvergi er í sögunni minnst á „þriggja hreppa þing“ eða annars sem gæti vísað til þess. Lýður Bjömsson segir í riti sínu, „Saga sveitarstjómar á Islandi" ffá því að í skjölum um hyllingar Islend- inga ffá 1649 sé þess getið „að eið- arnir hafi verið teknir á fjögurra hreppa þingi við Laxá í Leirársveit.“ Þama er Lýður væntanlega að vitna í sömu heimild og Jón hér að ofan enda er þetta í lögmannstíð Arna Oddssonar en hann varð lögmaður 1630 og dó í Leirárlaug árið 1665. Lýður telur að þetta fjögurra hreppa þing hafi náð yfir hreppana fjóra sunnan Skarðsheiðar. Jafnframt seg- ir hann að á „Leiðvelli í nágrenni Laxár virðast leiðarþing hafa verið haldin á fyrri öldum, e.t.v. fyrir hreppana sunnan Skarðsheiðar líkt og á Sandatorfu fyrir þá 4 hreppa, sem næstir heiðinni voru fyrir norð- an.“ (LB bls. 101) Annars finnur Lýður alls 87 eigin- leg þinghöld nefnd í Fombréfasafni. Sunnan Skarðsheiðar eru þau árið 1525 að Leirá og árið 1550 að Kjal- ardal. Þinghald virðist helst rata á prent þegar stóratburðir verða og eflaust hafa þingstaðir verið fleiri. Lýður telur sjö af þessum 87 hafa verið þriggja hreppa þingstaðir, eng- inn nær Skarðsheiðinni en Kópa- vogur. (LB bls. 117) Mikilvægi hreppsins í stjómsýslu landsins var slíkt að maður skyldi ætla að skipting eða samruni hreppa væri að finna í heimildum - en þögn er ekki það sama og samþykki í þessu máli. Fom skil og ný Hreppar eru h'tið sem ekki nefnd- ir í eldri heimildum fyrr en kemur að Jarðabók þeirra Ama Magnús- sonar og Páls Vídalíns árið 1703. Þar er Skilmannahreppur þannig nefiidur og því öruggt að hann hef- ur borið það nafú þá og sjálfcagt í einhverjar kynslóðir á undan. En hversu gamalt gæti nafnið ver- ið? Uppruni hreppaskiptingar á Is- landi er umdeildur og hafa ffæði- merm fjallað talsvert um hann. Lýð- ur Bjömsson telur að landinu hafi verið skipt í hreppa með Úlfljótslög- um við upphaf þjóðveldisaldar á ár- unum 930 - 960 (LB bls. 120). Fyrir þessu má færa ýmis rök en einna sterkust þykir mér sú staðreynd að þegar tíundarlög eru sett um 1097 er hreppunum falið það verkefiú að innheimta og skipta tíund. Þetta er einsdæmi í hinum kristna heimi enda tíundin ætluð kirkjtmni eins og reyndin var í öllum öðrum löndum Evrópu. Þetta bendir eindregið til þess að hreppafyrirkomulagið hafi þá verið svo vel fest í sessi að kirkjan hafi ekld viljað hrófla við því (LB bls. 12); A þjóðveldisöld var landinu skipt í vorþinghá og Lýður semr ffam þá kenningu að landinu hafi verið skipt í 13 þing með 12 hreppum í 12 þeirra og átta hreppum í einu. Hreppaskipting hafi þá hér verið með sama hætti og nú er, fjórir hreppar sunnan Skarðsheiðar (LB bls. 120). Talan fjórir virðist hafa verið al- geng þegar kom að fyrirkomulagi hreppa og má til dæmis nefna að einu hrepparnir sem nefndir eru í Landnámu eru einmitt fjórir hrepp- ar í uppsveitum Amessýslu. A það hefúr verið bent að í sænsku finnst orðið ráppar í merkingunni ársfjórð- ungur og jafúvel fjórði hluti. Einnig að norska orðið repp hafi verið not- að í merkingunni héraðsfjórðungur í Guðbrandsdal á 19. öld. Islenska orðið hreppur er samstofúa þessum orðum sem og reyndar mánaðar- heitið Harpa. (LB bls. 16) Sú skýring hefur verið nefúd að orðið hreppur sé þannig til komið að það nái yfir það svæði sem hægt er „að hreppa" í einu lagi og hafi upp- haflega verið notað sérstaklega yfir víkinganýlendur. Onnur tilgáta er sú að hreppur hafi upphaflega haft að öllu sömu merkingu og orðið sveit þannig að sveit manna hefði mátt kalla hrepp manna. Hreppur hafi þá verið það svæði þar sem hægt var með góðu móti að kalla saman sveit manna til vamar á einum stað. (LB bls. 13). Þessar tilgátur geta reyndar vel staðist allar að mestu leyti, þar sem orðin draga merkingu hvert af öðru eftir kringumstæðum hverju sinni. Ekkert af þessu kemur okkur hins vegar nær því að skilja hvaðan nafn- ið Skilmannahreppur er til komið. Hitt virðist þó mega ráða að fjórir hreppar hafi verið hér sunnan Skarðsheiðar ffá öndverðu, hvað svo sem þeir hafa heitið gegnum tíðina. Skilur að skiptum Landshættir hafa breyst hér frá fyrstu öldum byggðar, einkum lega strandar. Sjávarrof er mildð og sam- fellt á Innesinu en einkum í Mela- sveit og ef reynt er að áætla það land sem gæti hafa horfið á undanfömum 1000 árum þá hlýtur það að vera umtalsvert. Land hefur hér sigið talsvert á þessum tíma svo gæti numið nokkram metrum. Loks hafa hér orðið hamfcraflóð á öldum áður sem eflaust hafe hoggið stórt í Mela- kambinn. Melasveitin hefur því verið tals- vert stærri þegar hin upprunalegu hreppamörk eru sett og mun meiri byggð þar. I Harðar sögu segir ffá því þegar Sigmtmdur þræðir byggð- ir með meyna Þorbjörgu með við- komu í öllum helstu byggðum, þar á meðal „út um Andakíl ok Melahverfi ok allt it ytra um Nes öll“. (ÍS bls. 218). Með tímanum hafe landkostir rýmað á Melunum og má hugsa sér að nafit Leirár- og Melasveitar hafi breyst gegnum tíðina eftir því sem Leirá óx fiskur um hrygg sem höf- uðbóli sveitarinnar en Melunum hnignaði. Arið 1703 heitir sveitin Mela- og Leirársveit og vel má hugsa sér að upphaflega hafi hún einfeldlega heitið Melasveit. Þess ber að geta að engar heimild- ir eru til um það að Leirár- og Mela- sveit hafi sameinast úr tveimur sveit- um. Til að halda fjórum hreppum sunnan Skarðsheiðar mætti hugsast að tveir hafi verið sameinaðir og einn nýr búinn til. Miklu einfaldara er að færa til hreppamörk heldur en að stokka hreppaskipunina upp með þeim hætti. Líklegast er þó að hreppar og hreppamörk hafi haldist h'tið sem ekkert breytt lengst af. Landhættir og atvinnuhættir hafa einnig breyst í aldanna rás og gæti það hafa haft áhrif á mannfjölda í hverjum hreppi en samkvæmt Grá- gás skyldu vera 20 þingferarkaups- bændur í hverjum hreppi. Hreppa- mörk hafe þá jafúvel verið færð til en engar heimildir eru um það og ljóst er að tun 1700 er mannfjöldi mjög mismikill í hreppum landsins. Þá er Skilmannahreppur með 132 íbúa á móti 250 í Strandahreppi (Hval- fjarðastrandarhreppi), 312 í Mela- og Leirársveit og 390 í Akranes- hreppi. Þessi misskipting var ekkert einsdæmi á landsvísu. Skil at menn eða hvat Nafnið Skilmannáhreppur gæti hafa breyst í gegnum tíðina og hefur verið stungið upp á það hafi upphaf- lega verið Skilamannahreppur. Fjall- skil eru meginhlutverk allra hreppa og hvers vegna ætti þessi hreppur af um 160 á landinu að vera nefndur eftir þeirri iðju? I Ef litið er til kenningar um upp- runalegt hlutverk hreppanna sem einhvers konar hernaðareiningu má geta sér til að hér hafi sest að sveit manna sem hafi borið nafúið með sér erlendis ffá. Ymsar heimildir eru til um kelt- neska og kristna landnámsmenn bæði á Kjalamesi og Akranesi og þar um kring og má ennþá finna það í bæjar- og staðamöfnum, t.d. Bek- ansstaðir, Katanes og Kalmansá. Gæti hugsast að orðið Skilmenn sé afbökun á írsku nafrú? Hermann Pálsson nefúir ekkert slíkt í bók sinni „Keltar á Islandi" og fer hann þó vandlega yfir manna- og staðar- nöfii af keltneskum uppruna á Is- landi. Sjálfum hefur mér dottið í hug að um afbökun geti verið að ræða, til dæmis gæti hér hafa heitið Skilman- arhreppur en breyst í almennum ffamburði. Forsenda afbökunar er einna helst sú að menn skilji ekki uppruna orðsins sem gerir þessa til- gátu ffekar vafasama auk þess sem ekki er gott að finna neina mön í landslagi hreppsins. Loks er skilmön hálfgerð tátólógía. Onnur skýring sem mér hefur dottið í hug, og tengist naffúnu Akranes á skemmtilegan hátt, er að í Skilmannahreppi hafi upphaflega búið sikihnenn í merkingunni kom- skurðarmenn. I engilsaxnesku og fomensku heitir sigð sicol og breyt- ist seinna í sickle í nútímamáli, dreg- ið úr latínu secula. Þar sem fyrstu íbúamir fluttust hingað af Bret- landseyjum gætu þeir sem best hafa tekið orðið með sér hingað. Hugsast gæti að sikilmenn hafi verið flinkir komskurðarmenn og jafiivel stund- að þá iðju í öðrum sveitum. Einnig gæti hugsast að sigð eða sigðlaga hnífur hafi verið kjörvopn eða ein- kennisvopn sikilmanna á sama hátt og uppreisnarmenn meðal Gyðinga voru kallaðir sicarii hjá Jósefusi sagnaritara vegna sigðlaga hm'fa sem þeir bára undir klæðum. Sikilmenn verða þá Skilmenn með tímanum enda hefur uppruni orðsins huhst íslenskumælandi íbú- um með tímanum. Reyndar gæti verið að önnur sveit hafi verið nefnd af Keltum þó það sé löngu gleymt. I keltnesku merkið orðið máel krúnruakaður eða snoð- inn og finnst í fyrrihluta nafna á borð við Melkorka. Gæti hugsast að Bekan hafi litið yfir Grunnafjörð og séð þar eins og snoðinnn haus rísa úr hafi og nefút hann eftir sinni tungu? Skilmenn skulum vér vera Mikill missir þykir mér af því ef þetta stórmerkilega heiti Skil- marmahreppur skuli nú brátt heyra sögunni til. Hvalfjarðarströnd, Innes, Leirá og Melar verða áfram til en Skilmenn hverfa brátt úr hug- um fólks og tungutaki. Til að vama því legg ég því hér með til að hið nýja sveitarfélag okk- ar verði einfaldlega nefnt Skil- mannahreppur þó ekki væri til ann- ars en að bjarga frá glötun þessu ein- stæða nafúi. Brynjólfur Þorvarðarson. Heimildir: HP: Heimir Pálsson, Keltar á Is- landi, Háskólaútgáfan 1996. IS: Islendinga sögrn; 12. bindi, Prentverk Odds Bjömssonar 1953 JB: Jón Böðvarsson, Akranesfrá landnánti til 1885, Prentverk Akra- ness 1992 LB: Lýður Bjömsson, Saga sveitar- stjómar á Islandi, fytra bindi, Al- menna Bókafélagið 1972.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.