Skessuhorn - 18.01.2006, Side 15
SBiSSlíliiöBKI
MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 2006
15
*
Mikið um
umferðaróhöpp
Nokkuð hefur verið um umferð-
aróhöpp í hálkunni og ófærðinni í
Borgarfirðinum frá því fyrir helgi.
Fösmdaginn 13. janúar rann fólks-
bíll útaf veginum er honum var
beygt í áttina að Hvanneyri af
Borgarfjarðarbraut. Hafnaði bíll-
inn á vegskilti. Ekki urðu slys á
fólki en bíllinn skemmdist nokkuð.
A sunnudag fór fólksbíll útaf og
valt skammt neðan við Munaðar-
nes. Okumaðurinn var fluttur á
Heilsugæslustöðina í Borgarnesi.
Bfllinn var mikið skemmdur og
kranabfl þurfti til að flytja hann af
vettvangi. Á mánudag urðu þrjú
umferðaróhöpp. Fyrst varð hörð
aftanákeyrsla á Vesturlandsvegi við
afleggjarann að Grundartanga
snemma morguns þegar bfll á suð-
urleið hægði á sér til að beygja nið-
ur að Grundartanga. Ekki urðu slys
á fólki en dráttarbifreið þurfti til að
fjarlægja aðra bifreiðina sem
skemmdist mikið. Þá rann bfll útaf
veginum í Norðurárdal neðan við
Bifröst, en hélt áffam för sinni eft-
ir að hafa verið hjálpað aftur upp á
veginn. Loks varð ökumaður fyrir
tjóni er hann kom í veg fyrir árekst-
ur með því að aka útaf veginum í
Galtarholtsflóanum. Var hann að
mæta flutningabfl þegar hann sá
skyndilega hvar bifreið var í fram-
úrakstri við hliðina á flutningabfln-
um. Til að koma í veg fyrir árekst-
urinn þá beygði hann hart í stjór og
bjargaði málunum. Á liðnum dög-
um hefur lögreglan í Borgarnesi
þurft að aðstoða allnokkra öku-
menn sem hafa ýmist fest bfla sína
eða þeir orðið rafmagnslausir. MM
Skólalúðrasveit Seltjam-
amess í Stykkishólmi
Skólalúðrasveit Seltjarnarness
mim heimsækja Stykkishólm og
halda þar tónleika fyrir Snæfell-
inga nk. laugardag klukkan 14 í
Stykkishólmskirkju. Hljómsveitin
hefur unnið til verðlauna bæði á
innlendum og erlendum vettvangi.
I henni eru unglingar á aldrinum
15-20 ára og hafa flestir æft með
sveitinni frá 8 ára aldri. Stjórnandi
sveitarinnar er Kári Húnfjörð Ein-
arsson og verður að hans sögn
fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.
Einleikarar á tónleikunum eru
báðir afkomendur stofnenda
Lúðrasveitar Stykkishólms, þeirra
Víkings Jóhannssonar og Árna
Helgasonar. Þá munu skólalúðra-
sveitir Seltjarnarness og Stykkis-
hólms leika saman nokkur lög.
MM
Framandi íugl
Framandi fugl sást á vappi á
sunnanverðu Snæfellsnesi nú rétt
eftir áramót. I þrjá daga voru ábú-
endur á Olkeldu í Staðarsveit varir
við þennan fugl, sem var svartur og
hvítur með lítinn beinan gogg og
höfuðstél. Við nánari athugun í
fuglabók kom í ljós að fuglinn
reynist vera Vepja, sem er algengur
fugl á meginlandi Evrópu og á
Bretlandseyjum. Fuglar af þessari
tegund koma stöku sinnum hingað
til lands á veturna einkum til að
flýja vetrarhörkur, en hafa aldrei
verpt hér á landi. Eftir þriggja daga
dvöl hvarf fuglinn og er talið víst að
hann hafi ekki lifað hret íslenska
vetrarins af. BG
Síðbúin þrettánda-
brenna á Seleyri
Fjölmenni var við Þrettánda-
brennuna sl. þriðjudag á Seleyri
handan Borgamess, en ffesta þurfti
brennunni vegna veðurs þann 6.
jan. Þar flutti Páll S. Brynjarsson,
bæjarstjóri ávarp, Steinunn Páls-
dóttir spilaði á harmonikku og
Björgunarsveitin Brák sá um stór-
fenglega flugeldasýningu. Borgar-
byggð ásamt Njarðtaki, Olís,
Sparisjóði Mýrasýslu og björgunar-
sveitinni stóðu fyrir brennunni og
flugeldasýningunni á Seleyri.
MM/ Ijósm. II
Jökullinn mesta upplifunin
Bandaríska tímaritið New
Yorker hefur valið þá tíu staði í
heiminum sem ferðamenn eru
sagðir verða að skoða. I efsta
sæti á þessum lista er Snæfells-
jökull. I umfjöllun blaðsins
segir að þar sé hægt að láta sér
líða vel uppi á jökli - og renna
sér síðan á skíðum niður. Aðrir
staðir á lista tímaritsins era
Yap í Míkrónesíu, Bray í
Berkshire þar sem blaðið segir
að hægt sé að fá sniglahafra-
graut og beikonís. Tókýó þar
sem hægt er að eyða öllum
gjaldeyrinum án þess að fá
samviskubit, Boca Paila á
Yucatanskaga, Glasgow í
Skotlandi þar sem hægt sé að
dansa á staðnum King Tut
Wah Wah Hut, þar sem Oasis
urðu frægir, Macao þar sem
spilavítin eru nefnd, fjallið
Kilimanjaro og Gobieyði-
mörkin.
MM/ Ljósm. Mats Wibe Lund
Akraneskaupsta5ur
1
Auglýsing um bílastæði
fyrir vörubíla og vinnuvélar
í lögreglusamþykkt fyrir Akraneskaupstað segir í 18. grein að óheimilt sé að leggja
vörubifreiðum sem eru meira en 3,5 tonn að leyfðri heildarþyngd og hópferða-
bifreiðum sem eru meira en 5 tonn að leyfðri heildarþyngd, á götum, einkalóðum
í íbúðahúsahverfum eða á almennum bílastæðum bæjarins. Bann þetta gildir einnig
um hvers konar vinnuvélar og dráttarvélar án tillits til þtmga þeirra.
Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að heimilt skuli vera að geyma bíla og tæki sem
umrædd grein tekur til, á lóð nr. 5 við Kalmansvelli og er eigendum þeirra hér með
vísað á þann geymslustað.
Fkki verður heimilað að geyma á lóðiimi óökufær farartæki og geta eigendm*
átt von á að tækin verði fjarlægð á þeirra kostnað verði tilmælum
um brottflutning ekki sinnt.
Akranesi 17.jan. 2006
ÞorvaldurVfestmann sviðsstj. tœkni- og umhverfissviðs
A
4
Þorrablót A/iflTri" *
Ungmennafélög, kvenfélög, starfsmannafélög, fyrirtæki,
kórar, saumaklúbbar, aðrir klúbbar og einstaklingar.
Pantið þorramatinn tímaniega
Við bjóðum gott verð fyrir hópa! Sími: 437 2345
(j!M- újjmibbijj'Miidnr
motel@emax.is
Við gerum árshátíðina ógleymanlega.
Fordrykkur, þriggja rétta
hátíðarkvöldverður.
Dans og gleði.
Verð aðeins kr 4.400,
osvikið umhverh, þar sem
kneyfað er úr homum
og etið úr trogum.
Svo er sungið
og dansað ffam á nótt.
Það gerist van þjóðlegra.
Mjög fjölbreytt þorrahlaðborð,
Verð aðeins kr 4.400,-
Þegar ykkur hentar bjóðum, við fyrirtaks aðstöðu fyrir smáa jafnt
sem stóra hópa (allt að 500 manns) í Fjörunni og Fjörugarðinum.
Við erum sérlega sveigjanleg og tilbúin í hvað sem er.
www.fjorukrain.is
"S 565-1213
HOTEl RESTSIIRSNTS
Gisting í tveggja manna herbergi, þorrahlaðborð og morgunmatur kr. 7.000 á mann.
í eins manns herbergi, þorrahlaðborð og morgunmatur hr. 8.500 á mann,
Gerum tilboð fyrir hópa - af öllum stærðum og gerðum.
V