Skessuhorn - 08.03.2006, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006
SBliSaiíÍiúBK]
UUóaí
ruslpósti í
janúar
Alls bárust rúmlega 11,5 kíló af
óumbeðnum pappír inn um lúg-
ur landsmanna í janúarmánuði.
Þetta kemur firam í rannsókn 19
einstaklinga af öllum landshom-
um Islands sem vigtuðu fyrir
Sorpu allan þann pappír sem
barst inn á heimili þeirra í janúar.
I rannsókninni er tekið fram að
auglýsingapóstur sé að jafnaði í
lágmarki í janúar, eða aðeins 2
kíló. Mánaðarskammtur af
Fréttablaðinu vegur tæp 7 kíló og
mánuður af Blaðinu vegur tæp 3
kíló. Sams konar rannsókn var
gerð árið 2003 og kom þá í ljós
að 19 kíló af óumbeðnum pappír
hafi borist í póstd allt árið. I þeim
tölum er Fréttablaðið ekki talið
með.
Þessu til samanburðar má geta
þess að mánaðarskammtur af
Morgunblaðinu vegur um 8 kíló.
Loks er ekki hægt að láta hjá líða
að geta þess að mánaðarskammt-
ur af prentútgáfu Skessuhorns
vegur innan við eitt kíló (er
reyndar þyngdar sinnar virði í
gulli) - og er þar að sjálfsögðu
ekki um neinn ruslpóst að ræða
því viðtakendur blaðsins óska eft-
ir því að fá það sent refjalaust og
bíða jafiian spenntir. MM
Til minnis
Vi& minnum á abalfundi UKV
og Ferðamálasamtaka Vestur-
lands í Fossatúni í Borgarfirbi,
fimmtudaginn 9. mars.
Veifrvrhorffyr
Gert er rá& fyrir austlægri átt
og rigningu eða slyddu með
köflum á fimmtudag, föstudag
og laugardag og hita á bilinu 0
til 5 stig. Norðlæg átt, kalt og
hætta á snjókoma á sunnudag
en snýst í suðvestanátt með
vætu og hlýnandi veðri á
mánudag.
Spwnin^ viKúnnar
í síðustu viku spurðum við les-
endur skessuhorn.is: „Finnur
þú fyrir vaxandi verðbólgu?"
Meirihluti þeirra 460 sem svör-
uðu spurningunni fundu fyrir
aukinni verðbólgu, eða 72%.
7% vissu það ekki og 21%
töldu sig lítið eða ekkert finna
fyrir henni.
í næstu viku spyrjum við:
„Ekur þú yfir
leyfilegum
hámarkshraöa?"
Svarabu án undanbragba á
www.skessuhorn.is
Vestlendinjivr
viknnnar
Að þessu sinni er ekki hægt að
gera upp á milli því til greina
kemur fjölmargt ungt og efni-
legt íþróttafólk sem er að
vinna stóra sigra á sviði frjálsra
íþrótta, dans, badmintons eða
karate, svo dæmi séu tekin.
Sjá hér og þar í Skessuhorni í
dag.
Þakplötur skemmast á nýja
íþróttahúsinu á Akranesi
vert landið á mánudagskvöld með
þeim afleiðingum að nokkrar plötur
bognuðu í vindhviðum og eru þar af
leiðandi ónýtar. Er blaðamann bar
að garði á þriðjudagsmorguninn
stóðu verkamenn í ströngu við að
fjarlægja skemmdu plöturnar svo
nýjar gætu komið í staðinn. Sigurjón
Karlsson, verkstjóri hjá SS verktök-
um, segir að svona skaði sé bara
hluti af byggingarbransanum og
skemmdir af völdum veðurs oft ó-
hjákvæmilegar á Islandi. „Þetta er
auðvitað leiðinleg en við munum
ekki hengja haus heldur bara vera já-
kvæðir og halda áfram frá því sem
Vonskuveðrið sem gekk yfir að- þróttahúsinu að Jaðarsbökkum á frá var horfið, þó þetta hafi einhverj-
fararnótt þriðjudags náði að Akranesi sem nú er í byggingu. ar tafir í för með sér,“ segir Sigurjón.
skemma nokkrar þakplötur á nýja í- Hvassir vindar gengu yfir suðvestan- KOO
Verkamenn áfullu við aðfjarlœgja skemmdar þakplötur.
Undirbúningur vatnsverksmiðju
í Snæfellsbæ gengur vel
Breyting á deiliskipulagi og að-
alskipulagi þess svæðis sem fyrir-
hugað er að vatnsverksmiðja rísi á
í Rifi stendur nú sem hæst og er
vonast til þess að drög að því
skipulagi verði kynnt fyrir íbúum
Snæfellsbæjar á fundi síðar í þess-
um mánuði eða í byrjun þess
næsta.
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni er það fyrirtækið
íslind sem undirbúið hefur verk-
smiðjuna í samstarfi við innlenda
og erlenda fjárfesta. I upphafleg-
um áætunum var gert ráð fyrir að
byggja um 12.000 fermetra verk-
smiðjuhúsnæði á um 90.000 fer-
metra lóð. Reiknað var með að
fjármögnun verkefnisins yrði lokið
á vormánuðum. Að sögn Kristins
Jónassonar, bæjarstjóra hefur und-
irbúningur verkefnisins gengið
samkvæmt áætlun og tímasetning-
ar staðist við þau skref sem stigin
hafa verið til þessa. Þrátt fyrir það
varar Kristinn við óraunhæfri
bjartsýni. Avallt sé betra að hafa
báðar fætur á jörðinni þegar unnið
sé að undirbúningi nýrra atvinnu-
tækifæra. IIJ
Blaktandí KR fáni
olli titringi á Skaganum
Eins og allir vita er Akranes mesti
knattspyrnubær landsins. Sigursælt
lið IA hefur unnið marga glæsta
sigra. Þegar einn sigrar tapar annar.
Um áratuga skeið var það til dæmist
hlutskipti liðs KR, sem eins og
margir vita er hverfislið í Reykjavík.
Lengi hafa stuðningsmenn þess liðs
horft öfundaraugum úr Vesturbæn-
um upp á Skaga. Það er hluti af
mannlegu eðli að vilja vera í nálægð
þess besta.
Gulir og glaðir Skagamenn ráku
því upp stór augu þegar fáni KR
blakti á tönkum loðnuverksmiðju
HB Granda á Akranesi í blíðunni sl.
fimmtudag. Ymsar samsæriskenn-
ingar fóru á flot um strandhögg KR
á Skaganum. Skýringuna var þó að
finna í glettni nokkurra starfsmanna
verksmiðjunnar af höfuðborgar-
svæðinu sem datt í hug að koma fán-
anum þarna fyrir í skjóli nætur.
Hermt er að símkerfi verksmiðjunn-
ar hafi verið rauðglónadi þegar
Skagamenn leituðu skýringa á
verknaðinum.
Hvað um það. Loksins komust
KR-ingar á toppinn. Og það á Skag-
anum. Að vísu aðeins á tönkum
loðnubræðslunnar. Hvort fáni IA
eigi á næstu dögum eftir að blakta
við hún á höfuðstöðvum Trygginga-
miðstöðvarinnar skal ósagt látið.
HJ
Ibúðarhúsið í Sælingsdal
ónýtt efrir eld
Eldur kom upp í íbúðarhúsinu í Sælingsdal í
Dölum um miðjan dag sl. miðvikudag. Ibúar fóru
að heiman um hádegisbil en vegfarandi sem leið
átti um þjóðveginn varð eldsins vart um klukkan
14. Slökkviliðið í Dalasýslu var kallað á staðinn og
stóð slökkvistarf yfir fram eftir degi. Ibúðarhúsið
er talið ónýtt en það stendur þó uppi. Eldsupptök
eru óljós en þó er talið líklegt að kviknað hafi í út
frá rafrnagni.
MM/ Ljósm. GE
Kerra og jeppi fuku
Jeppi með tóma kerru fauk á
hliðina á veginum undir Hafnar-
fjalli fyrir hádegi á mánudag. Kerr-
an sem var tóm fauk og tók bílinn
með sér vindhviðu. Að sögn Theo-
dórs Þórðarsonar, yfirlögreglu-
þjóns í Borgarnesi verður það að
teljast töluverð bjartsýni að fara
fyrir Hafharfjall með tóma kerru í
eftirdragi, sér í miklu roki þegar
vindhviður fara yfir 30 metra á
sekúndu. Mennirnir tveir sem í
jeppanum voru sluppu báðir án
meiðsla en bílinn og kerruna þurfti
að fjarlægja með kranabíl. Umferð
tepptist í stutta stund á meðan ver-
ið var að fjarlægja jeppa og kerru af
veginum. Var þetta eina umferðar-
óhappið á svæði lögreglunnar í
Borgarnesi í liðinni viku og er það
frekar sjaldgæft að þau séu svona
fá. MM/ Ljósm: ÓG
Ferðaþjónustu-
aðilar fómar-
lömb fjársvikara
BORGARFJÖRÐUR: Er-
lendir svindlarar hafa undanfar-
ið gert ítrekaðar tilraunir til að
svíkja fé út úr íslenskum ferða-
þjónustubændum með inni-
stæðulausum ávísunum. Upp-
hæðirnar nema mörg hundruð
þúsundum íslenskra króna.
Svikin fara þannig fram að
pöntuð er þjónusta hjá þessum
aðilum, ávísun send sem fyrir-
framgreiðsla en beiðni um
þjónustuna síðan afturkölluð
vegna forfalla. Viðkomandi
þjónustuaðilar eru beðnir um
að endurgreiða fyrirfram-
greiðsluna eftir að þeir hafa
skipt ávísunum falsaranna í
banka. Þar sem um erlendar á-
vísanir er að ræða kemur alla
jafnan ekki strax í ljós að um
innistæðulausar ávísanir er að
ræða. Það var starfsfólk Spari-
sjóðs Mýrasýslu sem uppgötv-
aði svindl sem beint var gegn
Ferðaþjónustunni á Indriða-
stöðum í Skorradal, en fleiri
innlendir þjónustuaðilar hafa
orðið fyrir barðinu á svikurun-
um. -mm
Vélsleðaslys á
jökli
LANGJÖKULL: í hádeginu
sl. laugardag barst Neyðarlín-
unni tilkynning um að vélsleði
hafi farið fram af hengju á
Geitlandsjökli, sem er syðsti
hluti Langjökuls. Björgunar-
sveitarmenn af Suðurlandi voru
við æfingar á svæðinu og tók
það þá einungis um 10 mínút-
um að komast á slysstað. Hlúðu
þeir að hinum slasaða öku-
manni og kölluðu jafnframt út
þyrlu Varnarliðsins sem kom á
staðinn um tveimur tímum síð-
ar og flutti manninn á Land-
spítalann við Fossvog. Maður-
inn er alvarlega slasaður en þó
ekki í lífshættu. -mm
Frjálslyndir
stefna á framboð
AKRANES: Frjálslyndi flokk-
urinn hélt kynningarfund á
Akranesi í síðustu viku og voru
þar mættir þingmenn flokksins.
Að sögn Magnúsar Þórs Haf-
steinssonar, alþingismanns báru
framboðsmál á Akranesi við
sveitarstjórnarkosningarnar í
vor á góma á fundinum. „Þetta
var mjög góður fundur og hann
jók byr í segl okkar sem undir-
búum framboð flokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar,"
segir Magnús. Hann segir und-
irbúning framboðs í fullum
gangi en ekkert sé ákveðið
hvenær framboðslisti flokksins
verður tilbúinn. -hj
Vélstjómamám
ÍFSN
GRUNDARFJÖRÐUR: Síðla
í febrúar hófst nám á vélstjórn-
arbraut 1. stigs við Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga. Um 20 nem-
endur eru skráðir í námið og
koma þeir víðsvegar að af Snæ-
fellsnesi. Fyrstu fögin sem
kennd verða eru málmsuða og
smíðar og koma kennarar frá
Fjöltækniskóla Islands til með
að kenna þessa áfanga.
-mm