Skessuhorn - 08.03.2006, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006
áSESSUÍIöBM
í Menningarráð
með hlutkesti
DALIR: Sveitarstjórn Dala-
byggðar hefur kjörið Þrúði Krist-
jánsdóttur sem varamann í Menn-
ingarráð Vesturlands. Draga
þurfri milli tveggja tillagna því á
fundinum lagði Guðrún Jóna
Gunnarsdóttir til að Þorgrímur
Guðbjartsson yrði kjörinn vara-
maður í ráðið. I ffamhaldi af því
lagði Sigurður Rúnar Friðjónsson
til að Þrúður yrði kjörin til
starfans. Fór ffarn skrifleg at-
kvæðagreiðsla og hlutu bæði þrjú
atkvæði en einn seðill var auður.
Því var atkvæðagreiðslan endur-
tekdn en hún fór á sama veg. Var
því dregið á milli tillagnanna og
kom nafri Þrúðar upp og er hún
því réttkjörinn varamaður í
Menningarráð Vesturlands. -hj
Starfshópur um
Ljósmyndasafh
AKRANES: Guðni Hannesson
hefur verið skipaður formaður
starfshóps sem hefur það verkefrii
að útbúa starfsreglur og sam-
þykktir fyrir Ljósmyndasafri Akra-
ness. Aðrir í starfshópnum eru
Friðþjófur Helgason og Jón
Gunnlaugsson og einnig starfar
Halldóra Jónsdóttir forstöðumað-
ur bókasafrisins með starfshópn-
um. Það var bæjarráð Akraness
sem skipaði hópinn. Eins og ffam
hefrir komið í fféttum Skessu-
horns gerði Menningarmála- og
safrianefrid tillögu til bæjarráðs
um að umræddur hópur yrði sett-
ur á fót. Taldi nefndin eðlilegt að
unnin verði heildstæð stefna fyrir
safriið, meðal annars formlegar
samþykktir, hvers konar myndum
safriið safriar, hverrúg taka skuh
við safhmunum og hvernig þeir
verði skráðir og varðveittir. -hj
Pæjur og póU-
tískt plott
BORGARNES: Kvennahreyfing
Samfylkingarinnar er nú á funda-
ferð um allt land tmdir yfirskrift-
inni pæjur og pólitískt plott og
mæta jafrian a.m.k. tvær þingkon-
ur á hvern fund. I Hyrnuna í
Borgamesi munu mæta laugar-
daginn 11. mars klukkan 11:00
þær Anna Kristíri Gunnarsdóttir,
Guðrún Ogmundsdóttir og
Katrín Júlíusdóttir. A þessum
fundum verður sérstaklega lögð
áhersla á undirbúning sveitar-
stjómakosningarma en það er m.a.
eitt af markmiðum kvennahreyf-
ingarinnar að styðja, hvetja og
virkja konur til þátttöku í stjóm-
málum. A fundinum geta konur
fengið sér súpu og átt notalega
stund saman, að sögn Bryndísar
Friðgeirsdóttur formanns
Kvennahreyfingar Samfylkingar-
innar. -mm
íbúafundur um
skipulagsmál
BORGARNES: Síðastliðið
mánudagskvöldið var haldinn
íbúafundur á Hótel Borgamesi
þar sem kynntar vom hugmyndir
að deiliskipulagi fyrir miðsvæði
Borgamess. A fundinum kynnti
Richard Briem arkitekt hugmynd-
ir að deiliskipulagi sem arkitekta-
stofan VA-arkitektar hefur unnið
varðandi áðurnefrit svæði. Svæðið
nær yfir Digranesgötu, Brúartorg,
hluta Kjartansgötu, hluta Kveld-
úlfsgötu og ffá Borgarbraut 50 að
Borgarbraut 72.
-mm
Nautastöð á sauðnárræktarbúið á Hesti?
Á yfirstandandi Búnaðarþingi er
meðal annars til umræðu að sam-
eina Nautastöð Bændasamtaka Is-
lands á Hvanneyri og uppeldisstöð
samtakanna sem staðsett er á Þor-
leifsstöðum á Suðurlandi. Ef það
verður niðurstaðan er hugmyndin
að byggja nýja nautastöð á Hesti í
Borgarfirði þar sem Landbúnaðar-
háskóli Islands rekur tilrauna- og
kennslubú í sauðfjárrækt. Þar með
yrðu ær og kýr orðnar ær og kýr
Hestsbúsins, svo rökrétt sem það
kann að virðast, þar að auki í
Anda-kíl!
Að sögn Haraldar Benediktsson-
ar formanns Bændasamtaka Is-
lands er ástæðan sú að bæði
Nautastöðin á Hvanneyri og upp-
eldisstöðin á Þorleifsstöðum era í
gömlu húsnæði sem þarfnast end-
urnýjunar. Aðspurður segir Har-
aldur að ekki sé eining um þessar
fyrirætlanir og hafi hugmyndin
mætt nokkurri andstöðu Sunn-
lendinga. Haraldur kveðst hafa
skilning á þeirra sjónarmiðum en
hinsvegar verði í þessu máli að
hugsa útfyrir landshlutagirðingar.
GE
Nokkrir hluthafanna í Rauðamel ehf. slaka hér á milli verka. Frá vinstri: Sigurður í
Hraunholtum, Gestur á Kaldárhakka, Andrés á Ystu-G'áríum, Albert á Heggstöðum og
Björgvin á Ystu-Görðum.
Sumarhúsabyggð
á Syðri Rauðamel
a nefu
Síðustu daga hefrir verið unnið á
fullum krafti við að leggja raf-
magns,- hita- og kaldavatnslagnir
að sumarbústaðalóðum á Syðri -
Rauðamel í Kolbeinsstaðahreppi.
Síðastliðið vor seldi Kolbeins-
staðahreppur jörðina Syðri -
Rauðamel einkahlutafélaginu
Rauðamel ehf. en eigendur eru
hópur íbúa í Kolbeinsstaðahreppi.
Félagið heldur áfram með þær
framkvæmdir sem hreppurinn var
byrjaður á með skipulagningu á
sumarbústaðalóðum. Nú er auk
þess verið að skipulegga nýtt svæði
fyrir sumarbústaði á jörðinni.
Áætlað er að sumarbústaðareig-
endur fái svo heitt vam og raf-
magn í haust.
ÞSK
Frítt í sund í Snæfellsbæ
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar sam-
þykkti í gær að frítt verði í sund-
laug Snæfellsbæjar í Olafsvík í til-
raunaskyni ffam til 31. maí 2006.
Það vom bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins sem lögðu upphaflega
fram tillögu um að ffítt yrði í sund
frá 1. september til maíloka ár
hvert.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri
segir tekjur bæjarins af aðgangseyri
séu mjög litlar yfir veturinn og því
hafi meirihlutinn viljað freista þess
að auka áhuga fólks á sundi meðal
annars í ljósi þess að fátt sé almenn-
ingi hollara en sund. Hann segir að
minnihluti bæjarstjórnar hafi ekki
viljað stíga jafn stórt skref að þessu
sinni og meirihlutinn og því hafi
niðurstaðan orðið sú að hafa þetta í
tilraunaskyni til loka maí á þessu
ári.
I bókun með tillögunni segir að
tekjur bæjarins af aðgangseyri á
tímabilinu janúar til maí á síðasta
ári hafi aðeins verið 184.800 krón-
ur. Þá segir að nauðsynlegt sé að
hvetja fólk til þess að stunda sund
þar sem það sé holl og góð hreyfing
sem geri öllum gott. Með því að
bjóða ókeypis aðgang sé stuðlað að
betri nýtingu þessa mannvirkis og
auknu heilbrigði fólks á öllum
aldri. HJ
Jarðhitaleit undir-
búin í Snæfellsbæ
Bæjaryfirvöld í Snæfellsbæ und-
irbúa nú átak í heitavatnsleit í bæj-
arfélaginu og bíða nú ákvörðunar
Orkusjóðs um hugsanlega styrk-
veitingu til verkefnisins. Kristinn
Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar
segir í samtali við Skessuhorn að á
undanförnum árum hafi margar
svokallaðar hitastigulsholur verið
boraðar vegna jarðhitaleitar. Hol-
urnar veita upplýsingar í um 800
metra radíus og á næstunni er ætl-
unin að þétta þetta net borhola í
þéttbýli í sveitarfélaginu. Kristinn
segir ekki miklar líkur á að árangur
náist en nauðsynlegt sé hins vegar
að klára þetta verkefrii þannig að
sem mestar upplýsingar liggi fyrir
áður en ákvörðun um næstu skref
verður tekin.
Á Lýsuhóli er hins vegar til stað-
ar 54°C heitt vam sem nú er nýtt til
upphitunar skólans á staðnum og
einbýlishúss. Fyrir dymm stendur
að kanna möguleika á þessu svæði
frekar og ganga úr skugga um
hvort með borunum megi finna þar
meira vatn eða meiri hita. Takist
það gætu skapast líkur á því að
leggja hitaveitu í sveitina í kring.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir hlaupa á milljónum króna
og óvíst um árangur. Því hefur
sveitarfélagið óskað eftir styrk frá
Orkusjóði til verksins og vonast
Kristinn til þess að ákvörðun sjóðs-
ins liggi fyrir fljótlega. Verði það
svar jákvætt munu framkvæmdir
geta hafist mjög fljótlega.
HJ
S amstarfssam n ingnr
Björgunarfélags og
bæjar á Akranesi
Björgunarfélag Akraness og
Akraneskaupstaður hafa gert með
sér samstarfssamning til fimm ára
sem tryggir Björgunarfélaginu á
annan tug milljóna króna í tekjur á
samningstímanum og Akranes-
kaupstaður tryggir með samningn-
um að bæjarfélagið njóti þjónustu
björgunarfélags í fremstu röð.
I samningnum, sem gildir ffá 1.
janúar 2006 til 31. desember 2010,
fær Björgunarfélagið frá bænum
eina milljón króna í ffamlag árlega
til reksturs félagsins og eina milljón
króna árlega vegna sérstaks átaks í
húsnæðis- og tækjamálum. Þá
greiðir bærinn árlega 100 þúsund
krónur til þess að mæta kostnaði
við námskeið og ffæðslu félags-
manna. Þessar fjárhæðir taka hækk-
unum í samræmi við breytingar á
vísitölu neysluverðs. Einnig greiðir
bærinn árlega ffamlag sem nemur
álögðum fasteignasköttum á fast-
eignir í eigu félagsins. Þá mrm bær-
inn á samningstímanum greiða
styrk til félagsins sem nemur gama-
gerðargjöldum af allt að 400 fer-
metra viðbótarbyggingu sem félag-
ið hyggst reisa.
Björgunarfélagið tilnefnir tvo
menn til setu í almannavarnar-
nefrid Akraness að loknum sveitar-
stjórnarkosningum. Þá er félagið
reiðubúið til að aðstoða kaupstað-
inn við ýmis verk eftir því sem ósk-
að verður effir svo sem við gæslu
vegna kosninga, á 17. júní, á sjó-
mannadaginn og önnur tækifæri.
Skal hverju sinni semja um umfang
aðstoðarinnar og endurgjald fyrir
hana.
Eins og áður sagði er samningur-
inn til fimm ára. Hann ffamlengist
síðan um tvö ár í senn verði honum
ekki sagt upp með þriggja mánaða
fyrirvara miðað við áramót.
HJ
IÞROTTABANMLAG
AKRANESS
'*SAMBAND
;;vnds
Ragnheiður, Helgi og Kristín, eiginkona Þórólfs með heiðursmerkin. Með þeim á mynd-
inni er Benedikt Sigurðsson, fráfarandi formaður SSI.
Þrír Skagamenn
heiðraðir
á sundþingi SSÍ
Sundþing Sundsambands íslands
var haldið á Akranesi á dögunum
og þótti það vel heppnað. Á þing-
inu var meðal annars rætt um fjár-
skort Sundsambandsins og þátt-
töku erlendra ríkisborgara á sund-
mótum hérlendis, ásamt því að ný
stjórn var kosin, en þess má geta að
Júlíus V. Guðnason ritari Sundsam-
bands Akraness var kosinn í stjórn
SSI til tveggja ára. Hörður Odd-
fríðarson mun þá taka við af Bene-
dikt Sigurðssyni sem formaður
sambandsins. Skagamenn vom
áberandi á þinginu því þrír þeirra
fengu afhentar viðurkenningar SSI
fyrir ffamlag sitt til sundíþróttar-
innar. Það vom Helgi Hannesson
og Þórólfur Ævar Sigurðsson sem
báðir hlutu gullmerki Sundsam-
bandsins fyrir þátttöku þeirra í
uppbyggingu íþróttarinnar á Akra-
nesi. Þá fékk Ragnheiður Gísla-
dóttir silfurmerki SSI fyrir stuðn-
ing sinn við sundið um árabil.
KÓÓ