Skessuhorn


Skessuhorn - 08.03.2006, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 08.03.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 ^niissunu^. Stéttaskipting, tónlistarmyndbönd, hvít húð og pálmatré Eva ásamt Avitit, Miss Indlandi. Skagamærin og fyrirsætan Eva Eiríksdóttir er reynslunni ríkari eft- ir að hafa búið og starfað sem fyrir- sæta í borginni Bombay á Indlandi í rúma fjóra mánuði síðastliðinn vet- ur. Eva er aðeins 18 ára gömul en hún er komin heim og hefur hafið nám að nýju þaðan sem frá var horfið í Fjölbrautaskóla Vestur- lands. Hún sagði Skessuhorni frá ævintýralegri dvöl sinni. „Eg þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um þegar Bjarney hjá Eskimo models hringdi í mig og spurði mig hvort ég hefði áhuga á að fara til Indlands og starfa þar í einhvern tíma,“ segir Eva aðspurð um tilkomu ferðarinnar, en Eskimo hafði þá nýlega opnað umboðsskrif- stofu fyrir fyrirsætur þar í landi. Eva dvaldist á Indlandi í rúma fjóra mánuði og fékk næg verkefm. „Mér gekk bara alveg ágætlega. Eg var mest í því að gera sjónvarpsauglýs- ingar sem er mjög sérstök vinna í Asíu og allt öðruvísi en hérna heima. Það var engu að síður bæði skemmtilegt og reynsluríkt. Svo sat ég líka fyrir á myndum fyrir ýmis vörumerki. Það er kallað „prints" og myndirnar birtast t.d. í tímarit- um.“ Dansaði í tónlistar- myndbandi Eva hlær þegar hún er spurð að því hvort hún hafi lent í einhverjum óvenjulegum verkefhum. ,Já, þar er úr nægu að velja! Eg gerði til dæm- is eitt tónlistarmyndband. Þetta var svokallað Punjabi myndband en punjabi er fjölmenn trú á Indlandi og tónlistinni má líkja saman við rapp í Bandaríkjunum. Eg var sem- sagt einhvers konar „gogo dansari“ og hristi rassinn framan í aðal- söngvarann sem var hrikalega sorg- legur maður á fimmtugsaldri með ljósar strípur og plokkaðar auga- brúnir. Dansararnir sem voru í þessu með mér voru allir strangtrú- aðir og höfðu nánast aldrei séð hvíta stelpu. Þeim fannst ótrúlegt að ég gæti farið aftur í skólann hér heima eftir áramótin en þarna á Indlandi er nánast ómögulegt að taka sér frí frá námi. Eins fannst þeim með ólíkindum að foreldrum mínum skyldi hafa dottið í hug að leyfa mér að þvælast um svona einni án þess að hafa siðgæðisvörð," segir Eva og hlær við endurminninguna. Vilja hvíta húð, blá augu og dökkt hár Indland er afar fátækt ríki en Eva segir að erlendar fyrirsætur hafi þrátt fyrir það góða tekjumögu- leika. „Indverjar hafa mjög ákveðn- ar hugmyndir um fegurð; hvít húð, blá augu og dökkt hár,“ segir Eva sem var fengin til þess að lita ljóst hár sitt dökkt áður en hún hélt af stað. „Islensk fyrirsæta á þess vegna frekar auðvelt með að fá vinnu. Þeir borga jafnvel allt að helm- ingi meira fyrir hvíta húð. A Indlandi er mikil stétta- skipting og fordómar gagnvart þeim sem eru með dökka húð hafa vafa- laust eitthvað með þetta að gera. Margar ind- verskar fyrirsætur sem ég kynntist úti hvíttuðu reglulega á sér húðina á sama hátt og við notum brúnkukrem - frekar öf- ugsnúið. En ég græddi svo miklu meira en peninga í þessari ferð. Það er stór- kostlegt tækifæri að fá að ferðast til Asíu, sjá heiminn og standa á eigin fótum - sérstaklega fyrir einstakling á mínum aldri. Þetta var alveg ótrú- leg reynsla,“ segir Eva sem varð 18 ára í febrúar síðastliðnum. Skemmtilegar frístundir Eva bjó í íbúð ásamt tveimur öðr- um íslenskum fyrirsætum, þeim Tinnu Bergsdóttur og Heiðu Rún Sigurðardóttur. Þær létu sér ekki leiðast þegar þær áttu frí. „Við fór- um mikið út að versla eða stálumst í sundlaugina á einhverju lúxushót- elanna. Skemmtanalífið í Bombay er líka mjög öflugt og við fórum mikið á veitingastaði eða út á lífið. Við eignuðumst marga vini þarna af allskonar þjóðernum; indverska, evrópska, bandaríska og ástralska þannig að það var alltaf nóg að gera. Gott fólk og fallegt land „Indland er gullfallegt land en því miður fór ég ekki jafhmikið út úr borginni eins og ég hefði viljað," segir Eva. „Þeir staðir sem ég náði að heimsækja voru ótrúlega fallegir; hvítar strendur, pálmatré, risastórir fjallgarðar og skógar. Auk þess eru Indverjar yndislegt fólk, gestrisið og hjálpsamt. Þú getur gengið upp að hvaða manneskju sem er, byrjað að spjalla og það er alveg bókað mál að hún mun bjóða þér heim í mat innan 10 mínútna.“ Eva segir ekki loku fyrir það skotið að hún fari aftur til Indlands. „Eg hafði meira að segja hugsað mér að fara aftur strax eftir áramót en svo ákvað ég að vera aðeins með fjölskyldu og vinum. Mér liggur ekkert á,“ segir Eva og brosir. Eskimo mynd afEvu Eiríksdóttur. Dagana 1. til 3. mars stóð Fjöl- brautaskóli Vesturlands á Akranesi fyrir opnum dögum þar sem nem- endum bauðst ýmis konar afþreying og upplifun. Meðal þess sem hægt var að gera var t.d. gítar,- golf- og dansnámskeið, sumir hekluðu eða gripu í skák, aðrir fóru í skoðunar- ferðir eða í heimsókn á Alþingi. Nemendur á sjúkraliðabraut buðu Opnir daga hjá FVA gestum og gangandi upp á blóð- þrýstingsmælingu sem og mælingar á blóðsykri og kólesteróli gegn vægu gjaldi. Þá notuðu nemendur í tréiðnaðardeild skólans tækifærið og reistu sumarhús en undirbún- ingurinn og smíðin hefur staðið yfir síðan um miðjan janúar. Húsið, sem stendur fyrir utan verknámshús deildarinnar við Vesturgötu, er komið vel á veg en gert er ráð fyrir að húsið verði fokhelt fyrir sumar- ið. Opnir dagar eru alltaf haldnir í sömu viku og árshátíð Nemendafé- lagsins en hún var haldin í sal skól- ans 2. mars. Um 230 gestir mættu í þriggja rétta máltíð ffá veitingahús- inu Galito en seinna um kvöldið þegar ballið hófst voru gestir orðn- ir um 400. Vestlendingurinn frægi, Gísli Einarsson var í hlutverki veislustjóra, eins og oft áður, en skemmitaðriði voru mörg og góð. Steinn Armann Magnússon var með uppistand og Rakel Pálsdóttir nemandi við skólann söng af stakri snilld fyrir veislugesti. Leynigestir kvöldsins voru svo Björn Jörundur Friðbjörnsson og Eyjólfur Krist- jánsson sem að sjálfsögðu tóku nokkur vel þekkt lög við mikinn fögnuð viðstaddra. Þá var hinn eini sanni Páll Oskar Hjálmtýsson feng- inn til að þeyta skífur og syngja til að halda fjörinu í hámarki á ballinu sem stóð fram eftir nóttu. KÓÓ Ljósm: KÓ, Gunnar og Jóhanna Gíslaböm. Mikil aisókn var í Freestyle námskeiö undir leiðsögn Stellu Hilmarsdóttur en þvt miður var þar enga drengi að sjá. Nemendur í húsasmíði að reisa sumarhústað á opnum dögum. Þessar stúlkur lærðu undirstöðuatriðin í hekli sem þ<er notuðu síðan til aðfi-amleiða ýmislegt, t.d. húfur, sjöl og teppi. Myndarlegir strákar úr FVA. Dalíla, Ester og Viðar meðjóni Arna í skoðunarferð um Þingvelli. Gyða Kristjánsdóttir og Guðmundur Guðmundsson voru í sínufínasta pússi. Hörður Helgason, skólameistari notaði tœkifœrið og lét mæla í sér hlóðþrýstinginn. Una, Svava og Stefán skemmtu sér konunglega eins og sjá má.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.