Skessuhorn - 08.03.2006, Blaðsíða 19
gSBSSgiHftBlS
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006
19
Framkvæmdastjóri Nótastöðvarmnar
ber bæjarráð þimgum sökum
-bæjarstjóri vísar ummælum hans á bug
Magnús Sólmundsson, fram-
kvæmdastjóri Nótastöðvarinnar á
Akranesi ber bæjarráð Akraness
þungum sökum í bréfi sem hann
sendi ráðinu vegna lóðarumsóknar
sem verið hefur til umíjöllunar £
bæjarkerfinu. Þrátt fyrir þessar
þungu ásakanir í garð kjörinna full-
trúa vill framkvæmdastjórinn ekki
ræða málið við fjölmiðla. Bæjar-
stjóri vísar ásökunum Magnúsar á
bug.
Forsaga málsins er sú að í janúar
óskaði Nótastöðin eftir stækkun
lóðarinnar að Faxabraut 7 - 7a um
15 metra í átt að hafnarhúsi. Málið
var tekið fyrir á fundi bæjarráðs
þann 26. janúar og þar óskaði ráðið
eftir frekari gögnum um lóðamörk
frá sviðsstjóra tækni- og umhverfis-
sviðs. Bæjarstjóri lagði þessi viðbót-
argögn fyrir fund bæjarráðs 23.
febrúar og í framhaldi af því bókaði
ráðið að á grundvelli nýsamþykkts
aðalskipulags geti bæjarráð ekki
orðið við erindinu.
A fundi bæjarráðs í síðustu viku
var svo lagt ffam bréf ffá Magnúsi
Sólmundssyni, framkvæmdastjóra
Nótastöðvarinnar og er ljóst að
honum er ekki skemmt yfir af-
greiðslu bæjarráðs. I bréfinu segist
hann hafa beðið um þau „viðbótar-
gögn“ sem lögð voru fyrir bæjarráð.
I ljós hafi komið að þar var um að
ræða eina afstöðumynd þar sem sést
hvaða afleiðingar stækkun lóðar-
innar hefði á lóðirnar að Faxabraut
3 og 5. Magnús mótmælir af-
greiðslu bæjarráðs því það vanti
rökstuðning fyrir henni. Hann telur
að í aðalskipulagi eigi að fjalla um
nýtingu svæða í stórum dráttum en
ekki um einstök lóðamörk. Svæði
það sem Nótastöðin sótti um sé
skilgreint fyrir hafnsækna starfsemi
„og það er nýlunda, ef starfsemi
Nótastöðvarinnar fellur ekki undir
þá skilgreiningu,“ segir í bréfinu.
Þá telur Magnús augljóst að ráð-
ið hafi verið að vinna með
deiliskipulag af svæðinu án þess að
gefa hagsmunaaðilum tækifæri til
að koma að málinu. Þá segir orðrétt
Sjö stofnmælingar á
loðnu á liðinni vertíð
Skip Hafrannsóknarstofnunar
gerðu sjö mælingar á stofnstærð
loðnunnar á vertíð þeirri sem nú
virðist lokið. Þetta kemur fram í
svari Einars Kristins Guðfinnsson-
ar sjávarútvegsráðherra á Alþingi
við fyrirspurn Magnúsar Þórs Haf-
steinssonar. I svari ráðherra kemur
fram að fram til 20. janúar hafi ver-
ið farnar þrjár yfirferðir yfir
göngusvæði loðnunnar en lítið hafi
sést til loðnu. Þann 26. janúar hafi
fjórða yfirferðin hafist sem gaf þá
mælingu sem fyrir liggur og var
grundvöllur ráðgjafar um heildar-
veiði úr stofninum á vertíðinni. I
febrúar hafi verið gerðar þrjár mæl-
ingar fyrir Suðurlandi, allar á hluta
veiðistofiisins þegar göngur bárust
inn á grunnið í þéttum torfum.
Samkvæmt mælingu var stofn-
stærð loðnu 614 þúsund tonn þar
sem reiknað er með 21,3 g meðal-
þyngd og mest hafi verið um
þriggja ára hrygningarloðnu. I svari
ráðherra kemur fram að mælingin
sé talin eins áreiðanleg og loðnu-
mælingar geta verið á þessum árs-
tíma. Veður var viðunandi og loðn-
an var dreifð og lítið um mjög þétt-
ar lóðningar.
HJ
Hjartastuðtæld í
Gnmnskóla Borgamess
Rauða kross deildin í Borgarfirði
færði Grunnskólanum í Borgarnesi
í síðustu viku að gjöf hjartastuðtæki
af fullkomnusm gerð. Starfsmenn
fengu svo fræðslu um notkun tæk-
isins. Tæki sem þetta er mikilvægt
öryggistæki og fyrir svo stóran
vinnustað eins og skólinn eykur
tækið öryggiskennd starfsmanna,
segir á heimasíðu skólans. Þar er
Borgarfjarðardeild Rauða krossins
færðar alúðarþakkir fyrir smðning-
inn.
MM
í bréfinu: „Þessi málsmeðferð vekur
upp grunsemdir um að bæjarráð
hafi þegar tekið ákvörðun um að
ráðstafa svæðinu til annarra aðila og
að verið sé að vinna deiliskipulag
utan starfsemi þeirra. Þessa máls-
meðferð tel ég ekki löglega“.
Magnús gefur einnig í skyn í
bréfi sínu að ekki sé sóst eftir starf-
semi fyrirtækja hans. Um það segir
svo: „Eg get ekki skilið afstöðu bæj-
arráðs öðruvísi en svo að þetta séu
skýr skilaboð um að ekki sé sóst eft-
ir starfsemi á vegum Nótastöðvar-
innar og Verslunarþjónusmnnar í
bæjarfélaginu, enda hef ég ítrekað
bent á að félögunum er nauðsynlegt
að fá meira athafnarými fyrir bygg-
ingarnar.“
Bréf Magnúsar var lagt fyrir bæj-
arráð en ekki afgreitt að öðru leyti.
I samtali við Skessuhorn vildi
Magnús ekkert um málið segja því
það ætti ekki erindi við almenning.
Aðpurður hvort þungar ásakanir
hans á hendur kjörnum fulltrúum í
sveitarstjórn þörfnuðust ekki út-
skýringar við sagði hann svo ekki
vera. Mál þetta væri milli fyrirtæk-
isins og bæjarráðs. Var hann ófáan-
legur til þess að útskýra frekar við
hvað hann á þegar hann segir í bréf-
inu að grunsemdir væru um að þeg-
ar hafi verið tekin ákvörðun um að
úthluta svæðinu til annarra aðila.
Guðmundur Páll Jónsson bæjar-
stjóri segir afgreiðslu bæjarráðs á
erindi Nótastöðvarinnar með eðli-
legum hætti. Fyrirtækið hafi óskað
eftir stækkun lóðar sinnar en á það
hafi ekki verið hægt að fallast með-
al annars vegna þess að það hefði
minnkað aðrar lóðir við hliðina og
um leið skert möguleika á upp-
byggingu á því svæði. Guðmundur
Páll vísar ásökunum framkvæmda-
stjóra Nótastöðvarinnar á bug og
segir leitt að framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins hafi kosið að beina mál-
inu í þennan farveg.
Faxaflóahafnir óskuðu fyrir
nokkru eftir viðræðum við bæjaryf-
irvöld um lóðamörk og nýtingu
lóðar við Faxabraut og var bæjar-
stjóra falið að taka upp viðræður
um málið. Guðmundur Páll segir
þær viðræður standa yfir en engin
niðurstaða liggi fyrir.
Ef marka má heimasíðu Verslun-
arþjónustunnar ehf. á Nótastöðin
hf. og rekur fasteignirnar að Faxa-
braut 7 og 7a. I húsinu að Faxa-
braut 7a hefur Verslunarþjónustan
verið til húsa með starfsemi sína en
í Faxabraut 7 hefur Hampiðjan rek-
ið veiðarfæragerð og veiðarfæra-
þjónustu. Fram hefur komið í fjöl-
miðlum að starfsemi Hampiðjunn-
ar verði hætt innan tíðar. HJ