Skessuhorn - 08.03.2006, Blaðsíða 7
„niisaumÁS:
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006
7
Floti Vestlendinga breytist lítið
Á síðasta ári fækkaði fiskiskipum
á Vesturlandi úr 310 í 305. í brúttó-
tonnum talið stækkaði flotinn hins-
vegar úr 21.233 tonnum í 21.333
tonn og afl aðalvéla flotans jókst úr
74.952 kW í 75.648 kW. Þetta
kemur fram í nýjum tölum frá Hag-
stofu Islands. Nokkur breyting varð
hins vegar á fjölda í einstökum
flokkum fiskiskipa. Þannig fækkaði
opnum fiskibátum úr 171 í 159 í
fyrra en vélskipum fjölgaði úr 132 í
140. Þá fækkaði togurum á Vestur-
landi um einn í fyrra. Þeir voru 7
árið 2004 en 6 í fyrra.
Meðalaldur fiskiskipastólsins á
Vesturlandi er nokkuð hár. Hann
hækkaði á milli ára úr 20 árum í 21
ár í fyrra. Hæstur er meðalaldur
togaraflotans, eða 24 ár. HJ
Erfiðara verði að selja Orkuveitxina
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt fyrir sitt leyti tillögu þar sem
gert er ráð fyrir að aukinn meiri-
hluta þurfi til þess að samþykkja
breytingar á samþykktum Orkuveitu
Reykjavíkur, selja félagið eða ein-
staka hluta þess út fyrir eigendahóp.
Það verður hins vegar bæjarstjóm
sem tekur endanlega afstöðu til
málsins.
Það var Sigrún Elsa Smáradóttir
sem lagði tillöguna ffam á fundi
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur
þann 20. febrúar. Stjórnin sam-
þykkti að vísa tillögunni til meðferð-
ar eigenda. I tillögu Sigrúnar Elsu er
lagt til að óskað verði efrir því við
Alþingi að breytt verði lögum um
fyrirtækið í þá átt sem áður sagði. I
greinargerð með tillögunni segir að
með þessum breytingum verði lög
um Orkuveituna sambærileg við lög
um hlutafélög. Einnig segir í grein-
argerðinni að samþykkt tillögunnar
geri ekki ómögulegt að selja fyrir-
tækið eða hluta þess en hún tryggi
að víðtæk sátt yrði um hugsanlega
sölu „þar sem hagsmunir eigenda
væru tryggðir," segir orðrétt í grein-
argerðinni. HJ
Mikil efiiistaka úr Hvalfirði
Á undanförnum ámm hefur að
líkindum um 3,5 milljónir
rúmmetra af jarðefhum verið dælt
upp af botni Hvalfjarðar síðan efn-
istaka þar var leyfð. Þetta kemur
ffam í svari Valgerðar Sverrisdóttur
iðnaðarráðherra á Alþingi við fyrir-
spurn Guðjóns A. Kristjánssonar.
Það var í ágúst 1990 sem iðnaðar-
ráðherra gaf út leyfi til Björgunar
ehf. til efnistöku úr firðinum.
Þá kemur ffam í svarinu að af
hálfu opinberra aðila hefur ekki far-
ið ffam vistffæðilegt eftirlit með
efnistökusvæðinu í Hvalfirði því
leyfi Björgunar frá árinu 1990 var
eingöngu háð því að fyrirtækið
gerði nauðsynlegar ráðstafanir til
að forðast mengun og spillingu á
lífríki láðs og lagar vegna efiiistök-
unnar. Ekld var nánar kveðið á um
með hvaða hætti það skyldi gert.
Þörf fyrir slíkar rannsóknir hafi
margoff verið rædd hjá Haffann-
sóknastofnuninni og Lífffæðistofh-
un Háskóla Islands, enda brýn
nauðsyn talin á því að þær fari ffam,
en fjárskortur hafi hamlað verkinu.
Starfsmenn Haffannsóknastofhun-
arinnar hafa hins vegar farið með
dæluskipum út á efiiistökusvæðin
og séð lifandi skeljar og dýr í því
seti sem dælt var upp. HJ
Loðnuvertíð að líkindum loldð
Loðnuvertíðinni er að öllum lík-
indum að ljúka þar sem ekkert hef-
ur spurst til svokallaðrar vestur-
göngu og því verður ekki bætt við
aflakvótann. Hafrannsóknarskipið
Árni Friðriksson hefur undanfarna
daga leitað vesturgöngu við Vestur-
land og Vestfirði en ekki orðið var.
Samkvæmt upplýsingum ffá Akra-
neshöfh hefur ríflega 12 þúsund
tonnum verið landað á Akranesi
undanfarna daga. Eins og fram hef-
ur komið í fréttum hefur hrogna-
vinnsla staðið yfir hjá HB Granda
og hefur frysting þeirra farið fram
um borð í Engey RE-1 sem legið
hefur í Akraneshöfn. Að sögn Jóns
Helgasonar sölustjóra HB Granda
er hrognafrystingu nú lokið og
heldur Engey úr Akraneshöfh í dag.
Alls hafa síðustu daga verið fryst
milli 8-900 tonn af loðnuhrognum
og því hafa rúm 11 þúsund tonn
farið til bræðslu. HJ
Stórfelld aukning í hraðakstursbrotum
Lögreglan á Akranesi hefur að
undanförnu haff óvenju mikið að
segja af ökumönnum vegna
hraðaksturs. Til dæmis voru í lið-
inni vilcu alls 22 ökumenn kærðir
fyrir of hraðan akstur af lögreglunni
á Akranesi. Okumaður á þrítugs-
aldri var stöðvaður eftir að ökuhraði
hans hafði verið mældur 140
km/klst það sem hámarkshraði er
90. Okumaður tjáði sig lítið um
brotið en sagði sjálfur réttilega að
þessi hraði væri óafsakanlegur.
I mánuðunum janúar og febrúar
hefur verið óvenju mikið um hraða-
akstursbrot. Alls voru á tímabilinu
kærðir 122 ökumenn á starfssvæði
lögreglunnar á Akranesi. Á sama
tíma árið 2005 voru 51 kærðir og
árið 2004 voru þeir 49. Ber þetta
saman við fréttir frá öðrum lög-
regluliðum í landinu og nægir að
nefna frétt ffá lögreglunni á Selfossi
í þessu sambandi, þar sem ffam kom
að á þessu sama tímabili voru 341
ökumenn kærðir á fyrstu tveimur
mánuðum ársins 2006 samanborið
við 103 árið 2005 og 147 árið 2004.
Lögreglumenn hafa verið að mæla
óvenju mikinn hraða að undanförnu
og er þess skemmst að minnast að
lögreglan á Akranesi mældi hraða
ökutækis 170 km/klst í febrúar.
„Ekki er gott að segja með neinni
vissu hvað veldur en líklegt er að
gott tíðarfar og árvekni lögreglu-
manna eigi drjúgan þátt í þessari
aukningu auk þess að nýr búnaður
til hraðamælinga gerir vinnuna rnirn
skilvirkari,“ sagði Jón S Olason, yf-
irlögregluþjónn á Akranesi í samtali
við Skessuhorn. MM
SKATTFRAMTÖL
j VIÐSKIPTAWÓNUSTA'WA
! AKRANESSinf 'Wk
Stillholti 23 - Akranesi
Sími 431 3099
VESTURLANDS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi
Sími 433 7550
Árshátíð
Brekkubæjarskóla
Sýnmgar
Miðasala hefst
hálftíma fyrir sýningu
Miðav. kr. 500 fyrir fullorðna
kr. 200 fyrir börn
Dúndrandi fjör
á öllum sýningum
Brekkubæjarskóla:
Þriðjudag 14. mars
kl. 17:30 og 20:00
Miðvikudag 15. mars
kl. 17:30 og 20:00
ATH! Foreldrar sem
eiga börn á fleiri en
einni sýningu borga
aðeins fyrir einn miða
BREKKUBÆJARSKÓLI
Starf í Brekkubæjarskóla
Laust er starf skólaliða í Brekkubæjarskóla.
Um er að ræða 50% starf og er vinnutími
frá 12:00- 16:00.
1 Upplýsingar veita aðstoðarskólastjóri og
ritarar í síma 433 1300.
Umsóknarfrestur er til 16. mars.
MODSL
STILLHOLT116*18 • AKRANESI
SÍMI 431 3333 ■ model.ak®*lmnot.l9
BOBaARBYQQO
Auqlýsinq
Tillaga aö breytingum á
deiliskipulagi Gamla
miöbæjarins í Borgarnesi
Bæjarstjórn Borgarbyggbar auglýsir hér með tillögu
að breytingum á deiliskipulagi í Gamla miðbænum
í Borgarnesi skv.1 ,mgr.26.gr.skipulags- og
byggingarlaga nr.73/1997.
Breytingar felast m.a í eftirfarandi:
Götuheiti og húsnúmer sett inn á uppdrátt, ný lóð nr.2
við Skúlagötu afmörkuðfyrirfyrrum mjólkursamlagshús,
breytingar á bflastæðum og aðkomuleiðum, á lóðinni
Brákarbraut 8 er gert ráð fyrir húsi með 8.íbúðum með
heimild fyrir atvinnurekstur á jarðhæð og fækkar þá
íðbúðum sem því nemur, aðkomu að bílskúr við lóð
nr.17 við Egilsgötu breytt jafnframt því sem heimilaður
er bílskúrvið lóð nr. 15 við Egilsgötu, skipulag nýbygginga
sunnan Skúlagötu og vestan Brákarbrautar breytist m.t.t
I lóða, byggingarreita og götustæðis.
I Breytingartillagan mun liggja frammi á Bæjarskrifstofu
I Borgarbyggðar frá 8.03.2006 til 5.04.2006
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna fyrir
19.04.2006 og skulu þærvera skriflegar.
Borgarnesi 3.03.2006
Bœjarverkfrœbingur Borgarbyggöar.