Skessuhorn


Skessuhorn - 08.03.2006, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 08.03.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 a&usunui.: Dóra selur blómabúðina BORGARNES: Halldóra Karlsdóttir, kaupmaður í Blóma- búð Dóru í Borgarnesi hefur selt verslunina. Kaupendur era hjón- in Svava Víglundsdóttir og Unn- steinn Arason. Blómabúð Dóru varð tvítug sl. haust og er þannig með elstu blómaverslunum landsins. Sagðist Halldóra í stuttu spjalli við blaðamann að hún hafi tekið ákvörðun um að selja verslunina á aftnælisdegi sínum nú í febrúar og hafi hún strax fengið viðbrögð ffá áhuga- sömum aðilum. Sagði hún að eigendaskiptin tækju gildi ffá næstu mánaðamótum og stæði hún vaktina ffam að þeim tíma. „Það er vissulega svolítill sökn- uður í mér núna, þegar þessi ákvörðun liggur fyrir. Það hefur verið gott að reka verslun hér í Borgamesi og íbúar hafa reynst mér afskaplega vel,“ sagði Dóra í samtali við Skessuhorn. -mm Kjaftshögg fyrir að rífa kjaft AKRANES: Um helgina var lögð ff am kæra vegna líkamsárás- ar á Akranesi. Ungur maður, inn- an við tvítugt, hafði ráðist að manni þar sem hann sat í bíl á bílastæði og slegið hann í andht- ið. Félagi þess sem í bflnum sat reyndi að grípa inn í og uppskar kjaftshögg. Nokkuð sá á félögun- um en árásarmaðurinn gaf þá skýringu á árásinni að sá sem hann réðst fyrr að hefði verið að „rífa kjaft.“ -mm Selenlaust hey VESTURLAND: í nýjasta fféttabréfi Búnaðarsamtaka Vest- urlands er m.a. sagt frá því að heyfengur sl. árs er rýr af snefil- efhum. Þar segir orðrétt: ,M'æl- ingar á snefilefnum í íslenskum heysýnum leiða í ljós að í 99% tilfella er magnið of lágt miðað við þarfir nautgripa og sauðfjár. A svæði BV er styrkurinn að jafii- aði 1/10 af því sem hann þarf að vera. Afleiðingar selenskorts geta verið stíuskjögur (hvítvöðva- veiki), fósturlát, kálfadauði, fastar hildir, óffjósemi og léleg mót- staða gegn sjúkdómum. Hægt er að fyrirbyggja selenskort með forðastautum, steineftiagjöf eða saltsteinum sem innihalda selen. Gripir sem fá kjamfóður em ekki í mikilli hættu á skorti.“ -mm Bæjarmálasam- þykkt endur- skoðuð SNÆFELLSBÆR: Pétur S. Jó- hannsson, Kristján Þórðarson og Ásbjöm Ottarsson vom á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar kosnir til þess að fara yfir bæjar- málasamþykkt Snæfellsbæjar og koma með tillögur að breyting- um á næsta fundi bæjarstjórnar. Það vom bæjarfulltrúar J-lista sem lögðu fram tillögu þessa efn- is og var hún samþykkt. -hj Framsóknarmenn í Borgarfirði stilla fram lista Framboðslisti Framsóknarmanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor í nýju sveitarfélagi Kolbeins- staðahrepps, Borgarbyggðar, Hvít- ársíðu og Borgarfjarðarsveitar var kynntur í gærkvöldi. Oddvitasæti listans skipar Sveinbjörn Eyjólfs- son, núverandi oddviti í Borgar- fjarðarsveit. Jenný Lind Egilsdóttir og Finnbogi Leifsson skipa næstu sæti en þau sitja bæði í bæjarstjórn Borgarbyggðar á yfirstandandi kjörtímabili. Sigríður G Bjarna- dóttir kemur ný inn í pólitik í fjórða sæti listans og Bergur Þorgeirsson í Reykholti skipar fimmta sætið, en hann situr eins og Sveinbjörn í sveitarstjórn Borgarfjarðarsveitar. Þau Þorvaldur T Jónsson og Kolfinna Þóra Jóhannesdóttir, sem skipa efsm tvö sæti Framsóknar- manna í Borgarbyggð á yfirstand- andi kjörtímabili draga sig í hlé, en verma þó heiðurssæti listans að þessu sinni. MM 1. Sveinbjöm Eyjólfsson, forstöðu- maður, Hvanneyri. 2. Jenný Lind Egilsdóttir, stiyrtifrað- ingur, Borgamesi. 3. Finnbogi Leifsson, bóndi, Hítardal. 4. Sigríður Guðbjörg Bjamadóttir, skrifstofumaður, Borgamesi. 5. Bergur Þorgeirsson, forstöðumað- ur, Reykholti. 6. Valdimar Sigurjónsson, háskóla- nemi, Glitstóðum. 7. María Hrönn Kristjánsdóttir. leið- beinandi, Borgamesi. 8. Guðbjórg Sigurðardóttir, sjúkra- liði, Borgamesi. 9. Sigrún Olafsdóttir, tamningamað- ur, Hallkelsstaðarhlíð. 10. Kolbeinn Magnússon, húsasmíða- meistari, Stóra Asi. 11. Sveinbjörg Stefánsdóttir, banka- starfsmaður Borgamesi. 12. Olafur Sigvaldason, bóndi og oddviti, Asbrún. 13. Sigmar Gunnarsson, pípulagn- ingameistari, Rauðanesi. Sveinbjörn Eyjólfsson, skipar Jyrsta sæti á lista Framsóknarmanna. 14. Dagný Sigurðardóttir, skrifstofu- maður, Skeljabrekku. 15. Ema Einarsdóttir, húsmóðir, Borgamesi 16. Ólafur Guðmundsson, bóndi og oddviti, Sámstöðum 17. Kolfinna Jóhannesdóttir, rekstr- arfræðingur, Norðtungu. 18. Þorvaldur T. Jónsson, rekstrar- stjóri. Hjarðarholti. Fyrsta skóflustunga að nýju húsi Björgunarfélagins Fyrsta skóflustungan að nýju húsi Björgunarfélags Akraness var tekin í gærmorgun. Það vora Guðmund- ur Páll Jónsson bæjarstjóri, Þór- hildur Kristjánsdóttir og Asmundur Jónsson nýliðar og fulltrúar fram- tíðarinnar í Björgunarfélaginu sem tóku fyrstu skóflustunguna. Húsið sem standa mun við Kalmansvelli 2 og 4a verður 750 fermetrar að stærð og reist af ISH ehf. Hlutur Björgunarfélagins í húsinu er 340 fermetrar og verður nýttur undir bflakost sveitarinnar. Að sögn Ingólfs Hafsteinssonar, framkvæmdastjóra ISH ehf. verður hinn hluti hússins seldur undir aðra starfsemi og era viðræður þegar í gangi um hluta þess húsnæðis. Asgeir Kristinsson, formaður Björgunarfélags Akraness segir hugmyndir hafa verið uppi um Guðmundur Páll bæjarstjóri, Þórhildur ogAsmundur taka í sameiningu fyrstu skóflustunguna að byggingu hússins. Með þeim á myndinni er Ingólfur Hafsteinsson fi-amkvœmdastjóri ISH ehf. sem byggir húsið. nokkurn tíma að bæta við húsnæði að því að Björgunarfélagið fái hús- hins sívaxandi félags og tókust næðið afhent fullbúið þann 1. sept- samningar um samstarf sveitarinnar ember í haust. og ISH um bygginguna. Stefnt er HJ Stórt fiskvimslufyrirtæld á Vesturlandi íhugar lokun Fyrir skömmu gengu forsvars- menn fyrirtækis á Vesturlandi á fund þingmanna og tilkynntu þeim að því yrði lokað fljótlega ef gengi krónunnar breyttist ekki. Þetta kemur fram í pistli sem Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður ritar sl. föstudag á heimasíðu sinni. I pistl- inum segir Kristinn að efdr að til- kynnt var um samkomulag milli Iðnaðarráðuneytisins og Alcoa, þar sem stefnt er að nýju álveri við Húsavík, sé komið að uppbyggingu í Norðvesturkjördæmi. I greininni rifjar Kristinn upp að haustið 2003 hafi formaður Fram- sóknarflokksins sagt að röðin væri komin að Norðvesturkjördæmi, „enda atvinnu- og byggðaþróun á stóram svæðum í kjördæminu á þann veg að stórátak þarf til þess að snúa vörn í sókn, rétt eins og er verið að gera í Norðausturkjör- dæminu" segir í grein Kristins. Þá rifjar hann einnig upp að skipuð hafi verið fjölmenn nefnd innan flokksins um málefni kjördæmisins og hún hafi skilað til formannsins fjölmörgum góðum tillögum haust- ið 2004 en ekkert af þeim hafi gengið eftir. Þá segir meðal annars í greininni: „Fyrir hálfu ári fóru helstu fyrir- tækin á Bíldudal á hnén og lokuðu. Rækuvinnslan á Blönduósi er lokuð og á Hvammstanga var rækju- vinnslan fyrir skömmu að segja upp öllum sínum starfsmönnum. For- svarsmenn fyrirtækis á Vesturlandi gengu á fund þingmanna fyrir skömmu og tilkynntu þeim að því yrði lokað fljótlega ef gengið breyttist ekki.“ Kristinn H. segist í samtali við Skessuhorn ekki geta gefið upp um hvaða fyrirtæki er átt en segir það vera öflugt fiskvinnslufyrirtæki. Forráðamenn þess hefðu gengið á fund þingmanna kjördæmisins og gert þeim ljóst hvernig gengisþró- un króntmnar væri að leika fisk- vinnsluna og nú væri svo komið að þeir gætu ekki staðið lengur undir taprekstri. HJ Þungir bensín- fætur BORGARFJÖRÐUR: Lög- reglan í Borgarnesi tók 51 öku- mann fyrir of hraðan akstur í sínu umdæmi í Hðinni viku. Að sögn lögreglunnar era bæði fleiri sem aka hraðar með hækkandi sól og einnig hækkar hraðinn hjá þeim sem eru teknir. Tveir öku- menn vora teknir fyrir meinta ölvun við akstur í sl. viku. Þá stöðvaði lögreglan í Borgamesi alls um 40 jeppa sem voru að koma ofan af Langjökli um sl. helgi. Jepparnir vora af nær öll- um stærðum og gerðum en öku- menn og fararskjótar reyndust í stakasta lagi. Margt var um manninn á Langjökli um helgina enda veður og færi á jöklinum með allra besta móti. -mm Uppstilling hjá Framsókn AKRANES: Fulltrúaráð Fram- sóknarflokksins á Akranesi ákvað fyrir nokkra að fela uppstilling- amefnd að leggja ffam tillögu að ffamboðshsta flokksins fyrir bæj- arstjómarkosningarnar í vor. Að sögn Valdimars Þorvaldssonar formanns nefndarinnar hefur nefndin unnið að málinu undan- famar vikur. Hann segir starfið ganga vel en vill engu spá um hvenær nefhdin ljúki störfum. „Við mtmum taka okkur þann tíma sem þarf til uppstillingar og mimum eins og ávallt vanda okk- ar störf,“ segir ValdHnar. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig um það hverjir ffambjóðenda við síðustu kosningar gefa kost á sér áfram. Tíminn verði að leiða það í ljós. Framsóknarflokkurinn hlaut tvo menn kjörna í síðustu kosning- um og munaði einungis örfáum atkvæðum á þriðja manni Fram- sóknar og íjórða manni Sjálf- stæðislistans. Framsóknarflokk- urinn er í meirihluta bæjarstjóm- ar með AkranesHstanum. -hj S Onýttum eldisk- vóta úthlutað GRUNDARFJÖRÐUR: Sjáv- arútvegsráðuneytið hefur úthlut- að að nýju 156 tonnum af ónýtt- um eldiskvóta ffá fyrirtækjum sem hætt era rekstri eða sem ekki hafa uppfyllt sett skilyrði. Er þetta gert í samræmi við reglur sem í gildi eru en sem kunnugt er hefur um 500 tonna aflaheimild- um verið úthlutað árlega af óslægðum þorski sem nýta skal til áffameldis. Eitt þeirra fyrirtækja er nú fá úthlutað viðbótarkvóta er Guðmundur Runólfsson hf í Grandarfirði en það fær að þessu sinni 17,1 tonna kvóta. -hj Skápar undir verðlaun BORGARFJ ÖRÐUR: Ung- mennafélag Stafholtstungna færði Varmalandsskóla nýlega að gjöf þrjá skápa til þess að varð- veita verðlaunagripi sem nem- endur skólans hafa unnið til. Skápunum hefur verið komið fyrir í setustofu skólans. -mm WWW.SKESSUHORN.IS Bjamarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla mibvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þribjudögum. Auglýsendum er bent á a& panta auglýsingapláss tímanlega. Skilarrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaði& er gefi& út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánuði en krónur 900 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. SKRIFSTOFUR BIAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-1 6 ALLA VIRKA DACA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 21 32 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Cylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.