Skessuhorn - 28.06.2006, Page 10
10
MIÐVHÍUDAGUR 28. JUNI 2006
gggssgiHgsm
KomiS í brattasta hluta kiiarinnar. GuSlaug Guðmundsdóttir sem verður 75 ára í sumar lét engan bilbug á sér finna og fer hér fremst.
Bárður Eyþðrsson eiginmaður Oldu Pálsdóttur bar með sér póstkassann sem staðsettur verður við Klakkst/öm í sumar.
Fjölskyldur á Klakk á Jónsmessunótt
í gegnum tíðina hefur sá siður
haldist að gengið er á fjallið Klakk í
Eyrarsveit við Grundarfjörð á Jóns-
messunótt. Sú þjóðsaga er til að þar
fljóti óskasteinar á Klakkstjörn um
miðnæturbil. Undanfarin ár hefur
göngufólk mætt til kvöldmessu að
Setbergi áður en gangan hefur haf-
ist. Svo var einnig sl. föstudags-
kvöld. Sr. Elinborg Sturludóttir
sóknarprestur þjónaði fyrir altari,
Jón Asgeir Sigurvinsson predikaði
og Jóhanna Guðmundsdóttir lék
undir messusöng. Effir messu snar-
aði prestur sér í göngufatnað og
hélt með göngufólki fram að Suð-
ur-Bár þar sem gangan hófst kl.
22.15. Hallur Pálsson bóndi á
Naustum var leiðsögumaður í
göngunni á Klakk.
Þátttakendur voru 41 í göngunni,
sá yngsti 8 ára en sá elsti 75 ára og
voru allir komnir að tjöminni tím-
anlega fyrir miðnættið . Athygli
vakti góð þátttaka úr nágrannabæn-
um Stykkishólmi en göngumenn
komu víða að. Gott veður var í
göngunni; stillt og hlýtt. Ung-
mennafélag íslands hefur í átakinu
„Fjölskyldan á fjallið „ valið fjallið
Klakk og Eyrarfjall, sem er í næsta
nágrenni við hann, sem göngufjöll í
umdæmi HSH. Uppi á þessum
fjöllum víðsvegar um landið hefur
verið komið fyrir póstkössum með
gestabókum sem göngufólk skal
rita nöfn sín í. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Öldu Pálsdóttur fram-
kvæmdastjóra HSH verður dregið
úr nöfnum þeirra sem heimsækja
fjölskyldufjöllin og er effir ýmsum
útivistarvinningum að slægjast.
Markmiðið er að hvetja fjölskyld-
una til hollrar hreyfingar og að
kynnast náttúru landsins.
GK
Oskasteinamir létu ekki sjá sig íþetta skiptið.
Gengið á BrekkufjaU
Á vegum UMSB var gönguferð ar frá Skeljabrekku. Veðrið var gott Snæfellsnes, Skarðsheiði og Borg-
vikunnar á Brekkuijall þann 22. fyrir göngufólkið en alls mættu 42 arfjörð.
júní undir leiðsögn Péturs Jónsson- og nutu bæði göngu og útsýnis yfir Ljósm. ES
Hópurinn á leið ájökulinn. Ljósm. Hólmjríður Sveinsdóttir.
Jónsmessuganga
á Eiríksjökul
Eva ásamt syni stnum Lámsi Páli Pálssyni.
Líklegt verður að
teljast að Eiríksjökull sé
eini jökullinn, a.m.k.
hér á landi, sem er í
einkaeign. Rétt eins og
sumir eiga heitan pott í
bakgarðinum hjá sér, þá
eiga Kalmanstungu-
bændur jökulinn góða
og hefur dómur m.a.s.
gengið því til staðfest-
ingar. Því átti það vel
við að Stefán Kalmans-
son frá Kalmanstungu
væri leiðsögumaður á
jökulinn þegar þangað fór 19
manna hópur á Jónsmessunni.
Flestir voru þetta starfsmenn Við-
skiptaháskólans á Bifröst ásamt
vinum og vandamönnum. Vel viðr-
aði á göngufólk; sólskin og blíða
nema þegar á toppinn var komið,
þá kólnaði hressilega og frostþoka
færðist yfir hópinn.
Meðal göngufólks var Eva Sum-
arliðadóttir sem fagnaði fimmtugs-
afmæli sínu daginn áður með
göngu á Brekkufjall þann 22. júní
og kórónaði það svo með því að
ganga á Eiríksjökul á Jónsmess-
unni. Ætti hún því að vera útgeng-
in!
MM
Ljósmaðumar Helga Höskuldsdóttir og Elín Sigurbjömsdóttir komnar á toppinn.
Vel lukkuð
Jónsmessuganga
Alls voru um 70 þátttakendur í
Jónsmessugöngunni á Akrafjall sem
farin var föstudaginn 23. júní sl.
Gönguveður var mjög gott; logn,
léttskýjað en lítilsháttar þoka var á
toppi Háahnjúks. Flestur komust
þó á toppinn og gæddu sér þar á
Svala og Prins Pólói sem Ásgeir og
félagar í Björgunarfélaginu höfðu
meðferðis. Að göngu lokinni var
síðan skemmtileg stemning í Jað-
arsbakkalaug. Þar léku Oddný og
Rut á harmonikkur á sundlaugar-
bakkanum ásamt því að Hörður Jó
grillaði pylsur ofaní sundlaugar-
gesti á spánýju gasgrilli sem hann
fjárfesti í fyrr um daginn.
Skemmtilegur endir á skemmtilegu
kvöldi.
JÞÞ
Um skólahald í Hvaljjarðarsveit
I Skessu-
horni þann
14. þ.m. var
sagt frá
skýrslu um
skólahald í
Hvalfjarðar-
sveit. Þar kom ffarn að hagkvæmast
væri fyrir hið nýja sveitarfélag að
semja um rekstur skóla við Akra-
neskaupstað. Á Akranesi var kostn-
aður á nemanda 608 þús. kr. árið
2004 en rúm milljón í Heiðarskóla.
Jafnframt kom það ffarn að viðmæl-
endur blaðsins hefðu ekki talið þá
leið koma til greina. En þeir sem
við var rætt voru íbúar, stjórnendur
skólans og sveitarstjórnarfulltrúar.
Ástæðan fyrir því að samstarf um
skólahald var ekki talið koma til
greina var sögð sú að slíkt myndi
hreinlega ógna sjálfstæði og tilvist
hins nýja sveitarfélags.
Er ekki rétt að menn staldri við
og íhugi hvort skynsamlegt sé að
hafna hagkvæmustu leiðunum til að
tryggja börnum og unglingum góða
skóla til að sækja?
Það er umhugsunarefni hvers
vegna merm telja slíkt samstarf um
skólahald ógna tilvist sveitarfélags-
ins. I þessu máli birtist sá vandi sem
núgildandi skipan sveitarfélaga
skapar. Vandi sem Alþingi ætti að
leysa en hefur vikið sér undan. Á
Norðurlöndum t.d. hefur skipan
sveitarfélaga verið ákveðin með
lögum. Hér á landi ætti að fara
sömu leið og ákvarða mörk og
stærð sveitarfélaga með tilliti til at-
vinnu- og þjónustusvæða. En ve-
sældarleg tök stjórnvalda á þessum
málum leggur alveg sérstaka skyldu
á herðar íbúa og stjórnenda sveitar-
félaga. Þá skyldu að leita hagstæð-
ustu og bestu lausna fyrir íbúana
innan atvinnu- og þjónustusvæða
og yfir mörk sveitarfélaga ef þörf
krefúr. Eg tel þau viðbrögð sem
ffam komu í blaðinu við skýrslu um
skólahald í Hvalfjarðarsveit sönnun
fyrir því að þó íbúar þessa sveitarfé-
lags vilji ekki sameinast Akranesi
geri þeir sér grein fyrir því að það
væri af mörgum ástæðum hag-
kvæmasta lausnin. Samstarf um
veigamesta hlutverk sveitarfélagsins
myndi leiða þetta í ljós og hafa í för
með sér afstöðubreytingu til sam-
einingar. Mér verður á að spyrja
hvort það væri ekki bara í góðu lagi
að láta reyna á þetta? Hugsi menn
til ffamtíðar og hafi allt svæðið
sunnan Skarðsheiðar í huga er ég
sannfærður um að ekkert gæti
styrkt búsetu, uppbyggingu og
þjónustu við íbúana meira en sam-
eining í eitt sveitarfélag. Skólamál-
in eru hluti þeirra mála sem best
verða leyst í sameiningu. Auðvitað
ætti þetta svæði að vera ein skipu-
lags- og stjórnsýsluheild. Með nú-
verandi sveitarfélagainörkum er
hættunni á skipulagsslysum boðið
heim. Uppbygging í Krosslandi
sem ekki gerir ráð fyrir aðgangi að
skóla innan göngufæris nemenda
yrði skipulagsslys. Það verður dýr
lausn fyrir Hvalfjarðarsveit og verri
kostur fyrir þau böm sem þar munu
búa. Eg hvet íbúa Hvalfjarðarsveit-
ar til að óska eftir viðræðum við Ak-
urnesinga um skólahald og ég hvet
Akurnesinga til að taka þeim mála-
leitunum vel. Hvort sem okkur lík-
ar það betur eða verr þá beram við
sameiginlega ábyrgð á uppbygg-
ingu og þjónustu við íbúana á þessu
svæði öllu. Sameining væri hag-
kvæmust en samstarf er næst besti
kosturinn.
Jóhann Arsœlsson, alþingismaður.