Skessuhorn


Skessuhorn - 28.06.2006, Qupperneq 16

Skessuhorn - 28.06.2006, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 28. JUNI2006 l^ettfúntt^i Aðaljundur Orkuveitu Reykjavíkur Eins og flestum er kunnugt var gengið til samstarfs við Orkuveitu Reykjavíkur með því að leggja inn í það félag Akranesveitu. Það kemur æ bemr í ljós að um mjög skynsamlega að- gerð var að ræða. Orkuveitan hefur eflt mjög starfsemi sína hér á Akra- nesi og framkvæmt að mínu álitd langt umfram það sem Akranes- kaupstaður hefði getað bæði í vatnsveitu og ýmsum lagnamálum. Fráveitan er nú í umsjón og eigu OR og horfum við bjartsýn til þess að á næstu tveimur árum verði þau mál komin í gott lag, en þau hafa ekki verið nægjanlega góð hjá okk- Miklar eignir Á aðalfundi OR 21.06 sl. kom fram að staða félagsins hefur aldrei verið sterkari og eru gífurlegar eignir í félaginu eða um 88 millj- arðar króna og hafa stöðugt verið að aukast þar og hlutur Akranes- kaupstaðar er 5.528% og okkar eignir þar af leiðandi æ verðmætari. Margt athyglisvert kom fram á aðalfundinum þar sem undirritaður sat sem handhafi umboðs íyrir Akraneskaupstað ásamt kjörnum fulltrúa í stjóm OR, Gunnari Sig- urðssyni forseta bæjarstjórnar Akraness. Vilhjálmur Vilhjálmsson, borgar- stjóri í Reykjavík, þakkaði Alfreð Þorsteinssyni mjög góð störf sem stjórnarformaður OR og lýsti því jafnframt yfir að ekki kæmi til greina að selja hlut borgarinnar í þessu öfluga fyrirtæki þó svo vilji væri fýrir því að selja hlut Reykja- víkurborgar í Landsvirkjun. Páll Brynjarsson, sveitarstjóri Borgar- byggðar, tók einnig til máls ásamt Gunnari Sigurðssyni og þökkuðu þeir fráfarandi stjórnarformanni góð störf. Samþykkt var að greiða í arð 1462 milljónir króna sem skiptist í hlutfalli við eignaraðild þannig að það er mikill akkur Akurnesinga að eiga í og að OR sé vel rekið fyrir- tæki. Ný frétt! I lok fúndarins þakkaði Alfreð Þorsteinsson hlý orð í sinn garð og sagði m.a. að gaman væri að geta þess að Gunnar Sigurðsson væri upphafsmaður að viðræðum við sig um að Akranesveita væri lögð ffam af hálfu Akurnesinga til sameining- ar við Orkuveitu Reykjavíkur. Alfreð staðfærði þar að lútandi stund og stað þegar þetta gerðist. Því rita ég þessi orð að mér kom frásögn af þessu atriði á óvart og vil hér með óska Gunnari Sigurðssyni alls hins besta fyrir hugmyndina og fráfarandi bæjarstjórn og bæjar- stjóra Gísla Gíslasyni fyrir að koma þessu í ffamkvæmd. Eg er sann- færður um og vil gjarnan koma því á framfæri að um bestu aðgerð er að ræða fyrir Akraneskaupstað á síðari áratugum. Gísli S. Einarsson, bœjarstjóri. Mikil samstaða í All senses hópnum eftir árs samstarf Nú er ár liðið ffá því að sam- starfsverkefni ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi, „All senses awoken" hófst en markmið hópsins er að kynna og markaðssetja Vesturland innanlands sem utan. Að sögn Þór- dísar Artursdóttur, verkefnastjóra hefúr starfsemin gengið mjög vel og öflugur hópur ferðaþjönustuað- ila unnið hörðum höndum að því að efla atvinnugreinina á Vestur- landi. „Það hefur myndast mikil samstaða í hópnum og mikið ávinnst á þessu ári með vinnu að sameiginlegri markaðssetningu,“ segir Þórdís. Hópurinn, sem er opinn, hefur auglýst effir fleiri samstarfsaðilum en hægt er að ganga inn í verkefnið tvisvar á ári, í desember og júní. Til að slást í för þurfta þeir ferðaþjón- ustuaðilar að uppfylla ákveðin skil- yrði svo sem að hafa tilskilin leyfi fyrir starfsemi sinni, leggja af mörkum ákveðinn fjölda vinnutíma og greiða ársgjald svo eitthvað sé nefnt. „Það er ekki ólíklegt að ein- hverjir nýir aðilar sjái hag sinn í því að ganga í samstarfið núna og við viljum auðvitað fá sem flesta með okkur í samstarfið, því með meira fjármagni og fleiri höndum er hægt að vinna enn bemr að settum mark- miðum,“ segir Þórdís bjartsýn á ffamtíðina. I september ætlar hóp- urinn að standa að sameiginlegri kynningu á Vestnorden ferðakaup- stefnunni sem ffarn fer í Reykjavík að þessu sinni en sú sýning er liður í erlendri kynningu á ferðaþjón- usm Vesmrlands. KÓÓ Hættutími framundan í umferðinni Umferðarráð kom saman til fundar nýlega og samþykkti svohlóðandi álykmn vegna þeirrar miklu umferðar sem nú fer um þjóðvegi landsins: „Umferðarráð minnir á að nú fer í hönd mikill álagstími á vegum landsins. Reynsl- an sýnir að flest alvarlegusm um- ferðarslysin verða á þjóðvegum utan þéttbýhs að sumarlagi. Mánuðina júní, júlí og ágúst árin 1995 til 2005 létust 82 í 71 umferðarslysi hér á landi, þar af 14 erlendir ferðamenn. Sjö af hverjum tíu sem bíða bana í umferðarslysum hér á landi látast á vegum utan þéttbýlis. Brýnt er að breyting verði hér á. Umferðarráð lýsir sérstakri ánægju með þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í til þess að auka efrirht lög- reglu. Reynslan sýnir að þegar sam- an fer öflugt efrirlit og markviss áróður og ffæðsla næst árangur. Umferðarráð fagnar mjög nýjum öruggari vegum, s.s. tvöfaldri Reykjanesbraut. Einnig nýjum veg- arkafla í Svínahrauni með miðju- vegriði, þótt nokkuð vanti upp á hönnun hans hvað umferðaröryggi T^ctitútin^ú varðar. Framkvæmdir sem þessar skila umtalsverðri arðsemi og bind- ur Umferðarráð miklar vonir við að markvisst verði haldið áffam á þeirri braut að auka öryggi vega og gera umhverfi þeirra sem hættuminnst. Hvatt er til þess að vegmerldngar, m.a. við framkvæmdir, verði bættar ffá því sem nú er. Umferðarráð bendir hins vegar á að fyrst og ffemst þarf hver einasti vegfarandi að vera meðvitaður um þá miklu ábyrgð sem fylgir þátttöku í umferðinni. Ökumaður sem fer varlega og effir settum reglum er ekki eimmgis að minnka áhættu sína og farþega sinna heldur allra ann- arra í umferðinni. Bflbelti og örygg- isbúnað fyrir böm í bílum á undan- tekningarlaust að nota. Þar á orðið „stundum11 ekki við, heldur ekki um að virða hraðatakmörk, að aka mið- að við aðstæður og að vera allsgáður við stýrið. Umferðarráð beinir þeirri ein- dregnu áskorun til allra landsmanna að þeir skeri upp herör gegn slysum í tunferðinni. Enginn má þar skorast undan“. MM Verið velkomnir Komið þið sæl öll. Maður gat ekki annað en brosað út í annað, þegar í ljós kom að ung- dómsklúbbur IA hafði dregist á móti Randers FC í Evrópukeppn- inni í fótbolta. Við eram búin að vera hér í Randers í bráðum sex ár og þetta verður því mjög spennandi fyrir okkur að fá Skagamenn í heimsókn. Það verður sérstakt fyrir soninn, Stefán Atla Ólason. Hann er að verða sextán ára og hefur spilað fótbolta fyrir báða klúbbana, IA og Randers FC. Hann spilar venjulega fyrir einn af móðurklúbbum RFC, DB boldklub en hefur verið viðloð- andi svokallaða „talentudvikling“ (hæfileikamótun) í Randers og þess vegna spilað leiki fyrir RFC. Hann er fæddur og uppalinn Skagamaður til tíu ára og að sjálfsögðu í boltan- um. Skagamenn, verið velkominn til Randers þann 13. júlí. Bestu kveðjur, Óli Pa'll Engilbertsson „Það rignir bara og rignir héma við Norð- urá, áin er rosalega vatnsmikil þessa dag- ana,“ sagði veiðimaður sem var á Munaðar- nessvæðinu í Norðurá fyrir skömmu, en veiðimaðurinn sagðist aldrei hafa séð svona mikið vatn í ánni. Hann var þarna fyrir ári síðan á sama tíma og þá var sáralítið vatn í Eyþór Hauksson meSjýrsta laxinn úr Vtöbjóð í Grímsá. Ljósm-.Jón Þór Júlíusson. Norðurá í samanburði við nú. „Við fundum varla veiðistaðina, vatnið var svo mikið,“ sagði veiðimaðurinn sem ekki fékk bein. Norðurá er komin með 242 laxa, smálaxinn er mættur í miklum mæli og veiðimenn fóru ekki varhluta af honum. Vatnið er svo mikið að það hefur áhrif á veiðina eins og í Grímsá þar sem áin var vatns- mikil fyrst en um leið og vatnið sjatnaði aðeins fundu veiði- mennirnir fisk- inn. „Það veidd- ust 16 laxar í fýrsta hollinu í Grímsá og fisk- urinn er komin víða um ána,“ sagði Eyþór Hauksson sem var við veiðar í ánni í byrjun tímabilsins. Það eru komnir laxar úr Jötnabrúar- hyl, Oddstaðafljóti og Efstahyl í Grímsá, svo einhverjir staðir séu nefndir til sögunnar. En þetta hefur góð áhrif einsog á veiðiá á borð við Álftá á Mýrum en hún opnaði með 5 löxum og 6 sjóbirtingum, sem er frábært start. Sjóbirtingurinn var mættur snemma í Álftá og hann sást einnig neðarlega í Laxá í Leirársveit fyrir skömmu. Straumfjarðaráin er byrjuð að gefa laxa en fyrsti laxinn sem veidd- ist í henni á þessum sumri var 13 pund, næstu laxar voru nokkrir smálaxar. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur framlengt samninga sína við landeigendur í Andakílsá og Gljúfurá um þrjú ár, en félagið var með báðar þessar laxveiðiár á leigu. Frá þessu var gengið fyrir fáum dögum. Laxar hafa nú veiðst í báð- um ánum, fáir í hvorri, en þær opn- uðu báðar fýrir nokkrum dögum. „Það eru komnir 16 laxar á land í Hítará og laxinn er að sýna sig hérna fyrir ffarnan veiðihúsið, í Kverkinni meðal annars,“ sagði Þorsteinn Ólafs sem var við veiðar í Hítará á Mýr- um. „11 laxar hafa veiðst á flugu og 5 laxar á maðkinn, stærstu laxamir eru tveir 10 punda,“ sagði Þorsteinn ennfremur. Þetta er ágæt byrjun í ánni og vatnið er mikið og nýir laxar að koma á hverju flóði, eitthvað sem veiðimenn vilja. Smálaxinn hefur verið að hellast inní Noróurá í Borgarfirði síð- ustu daga en áin hefur verið að gefa vel á þriðja hundrað laxa tilþessa. Baulan í hjarta Borgarfjarðar BQrrwŒJjsfr v v.i'i'VgjK' m - ti Veiðihom Skesmhoms er í boði: Vfrnet ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR www.limtrevirnet.is VEIÐIKORTIÐ ÉM 2 0 0 6

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.