Skessuhorn - 28.06.2006, Qupperneq 23
3S«SSgiHít«BH
MIÐVIKUDAGUR 28. JUNI 2006
23
Sundfólk af Skaganum
meðal fremstu í landinu
Hrafn Traustason með verðlaun sem besti sund-
maður mótsins í drengjaflokki.
Salóme Jónsdóttir fagnar sigri.
Efnilegur hópur sundfólks frá
Akranesi stóð sig frábærlega vel
á Aldurflokkamóti fslands í sundi
(AMÍ) sem haldið var í Reykja-
nesbæ um síðustu helgi. Mótið
er stærsta mót ársins fyrir flesta
yngri sundmenn en þátttökurétt
á því öðlast aðeins sterkustu
sundmenn landsins í hverjum
flokki. Sundfélag Akraness átti
stóran hóp sem hafði náð lág-
mörkum á mótið og náði félagið
þriðja sæti f stigakeppni félaga, á
eftir heimamönnum í ÍRB og
sundfélaginu Ægi. Ungmennin
voru öll að synda geysilega vel
og margir bættu tíma sína veru-
lega á mótinu enda samkeppnin
mikil og stemningin góð í hópn-
um.
Hrafn Traustason var valinn
sundmaður mótsins í drengja-
flokki og ekki að ástæðulausu
því hann setti glæsilegt fslands-
met í 200 metra fjórsundi í
drengjaflokki og hjó nærri tveim-
ur öðrum fslandsmetum. Hrafn
bætti metið sem Gunnar Stein-
þórsson, UMFA setti á sama
móti árið 1998. Þá setti hann
fjögur Akranesmet og kom heim
með alls átta gullverðlaun og
fjögur silfur. Aðrir sundmenn frá
Akranesi voru einnig að gera það
mjög gott. Salóme Jónsdóttir
vann tvö sund og setti Akra-
nesmet í þeim báðum. Aðrir ald-
ursflokkameistarar úr röðum SA
urðu þeir Jón Þór Hallgrímsson,
Rúnar Freyr Ágústs-
son, Ágúst Júlíusson
og Leifur Guðni Grét-
arsson.
Boðsundssveitir
strákanna náðu
einnig giæstum ár-
angri en sveinarnir
unnu tvö gullverðlaun
og ein silfurverðlaun,
drengjasveitin vann
þrjú gullverðlaun og í
flokki pilta unnu
Skagastrákarnir þrjú
silfurverðlaun. Allar
þessar sveitir settu
að auki eitt Akra-
nesmet.
Þess má einnig
geta að Leifur Guðni
Grétarsson var valinri
í hóp sem keppir fyrir
hönd íslands á Norð-
urlandamóti æskunn-
ar sem fram fer dag-
ana 8. - 9. júií nk. og
þau Sigrún Eva Ár-
mannsdóttir, inga Elín
Cryer, Guðmundur
Brynjar Júlíusson og
Birgir Viktor Hannes-
son syntu sig inn í
unglingahóp Sund-
sambands íslands.
Um næstu helgi er
svo Bikarkeppnin í sundi en þar
eiga Skagamenn lið í fyrstu
deild. Miðað við glæsilegan ár-
angur helgarinnar má gera ráð
fyrir góðum árangri, en á síðasta
ári hafnaði Sundfélag Akraness í
5 sæti.
KÓÓ
Skagamenn
drógust á
móti Randers
Dregið hefur verið í fyrstu umferð
UEFA keppninnar, Evrópukeppni
félagsliða í knattspyrnu. Skaga-
menn nunu mæta liði Randers í
Danmörku í fyrstu umferð. Fyrri
leikurinn mun fara fram ytra þann
13. júlí og sá síðari fer fram hér
heima 27. júlí. Þá var lið Vals
einnig í pottinum og teika þeir
einnig við danskt lið, Bröndby og
fara þeirra leikir fram sömu daga
og leikir ÍA.
SO
Leikir
deildar
Vestulandsliðin þrjú í C riðli
þriðju deildar karla í knattspyrnu
léku öll á íslandsmótinu á dögun-
um. Fimmtudaginn 22. júní hélt
lið Kára á Akranesi til Blönduóss
þar sem þeir léku við heimamenn
í liði Hvatar á Blönduóssvelli. Ekki
gekk allt upp hjá Káramönnum
þennan daginn og sigraði Hvöt
leikinn með tveimur mörkum
gegn einu.
þriðju
liðanna
Snæfell tók á móti Skallagrími á
Stykkishólmsvelli á mánudag.
Skallagrímur sigraði leikinn með
þremur mörkum gegn einu marki
heimamanna.
Eftir leikina er Kári enn í efsta
sæti C riðils með 15 stig, Skalla-
grímur er í 3. sæti með 12 stig og
Snæfell er enn í 6. og neðsta sæti
riðilsins með 1 stig.
SO
Tap Skagamanna í Eyjum
Ferð Skagaliðsins til Vest-
mannaeyja á fimmtudag var ekki
til fjár. Liðinu tókst ekki að fylgja
eftir góðum leik undanfarið og
leikur liðsins var ekki svipur hjá
sjón. 2-1 tap var því staðreynd og
er ekki hægt að segja annað en
það hafi verið sanngjörn úrslit.
Skaginn byrjaði mun betur í
leiknum og fyrstu mínúturnar gáfu
þau fyrirheit að liðið ætlaði að berj-
ast fram í fingurgómana. Ellert Jón
var frískur og slapp oft upp hægri
kantinn og Bjarni Guðjónsson
stýrði spilinu vel. Eftir því sem leið
á fyrri hálfleikinn fór Skagaliðið að
gefa eftir og Eyjamenn komust
meira inn í leikinn. Skaginn hafði
þó átt tvö góð færi og hefði Hjört-
ur vel getað komið liðinu yfir á 18.
mínútu. Eftir það var eins og allur
vindur væri úr liðinu og Eyjamenn
börðust mun meira. Það var því
ekki nema sanngjarnt þegar þeir
komust yfir á 32. mínútu. Markið
kveikti ekki neistann í Skaga-
mönnum og ÍBV var mun betri að-
ilinn það sem eftir lifði fyrri hálf-
leiks. Tíu mínútum síðar átti Atli
Jóhannsson góða syrpu upp
vinstri kantinn, lék illa á varnar-
mann ÍA og skoraði með fallegu
skoti, 2-0 fyrir Eyjamenn.
Ólafur Þórðarson gerði eina
breytingu í háfleik, Hafþór Ægir
kom inn á fyrir Pálma Haralds.
Aukinn hraði kom í leik liðsins fyrir
vikið en það skilaði hins vegar ekki
miklu. Fljótlega voru gerðar tvær
aðrar breytingar, Þórður Guðjóns
kom inn á fyrir Hjört og Andri Júl.
fyrir Arnar Gunnlaugsson. Þrátt
fyrir að þetta frískaði aðeins upp á
leik liðsins varð lítið um opin færi
og einkenndist hann af baráttu á
miðjunni og löngum sendingum.
Litlu munaði að ÍBV kæmist 3-0
yfir þegar Bjarki og Heimir lentu í
samstuði og Eyjamenn áttu skot á
opið markið en rétt framhjá.
Skömmu síðar var ÍA nálægt því
að skora og á 88. mínútu var ein-
um Eyjamanni vikið af velli með
sitt annað gula spjald. Bjarni tók
aukaspyrnuna, sendi glæsilega
sendingu inn í teig og Árni Thors
skallaði boltann í netið. Tveimur
mínútum síðar hafði sagan næst-
um endurtekið sig, nú frá hægri og
í þetta sinn var það Ellert sem
skallaði en beint á markvörðinn.
Þórður átti skot framhjá í blálokin
en Eyjamenn stóðust pressuna og
fóru með sigur af hólmi.
Það var slæmt að sjá hve leikur
Skagaliðsins var andlaus og það
vantaði baráttu fyrr en rétt í lokin.
Leikur liðsins einkenndist af löng-
um sendingum upp kantana og
stungusendingum inn fyrir vörn
Eyjamanna. Þetta var allt of and-
laust og tókst varnarmönnum ÍBV
hæglega að stöðva Skagamenn.
Það var helst Hafþór sem nýtti
hraða sinn en út úr því kom allt of
lítið. Fyrir leik var lagt upp með að
spila sig í gegn og skjóta á markið
en ekkert varð úr því. Þegar Skag-
inn spilar vel gerir hann það með
glæsibrag og getur tekist á við öll
lið. Inn á milli detta menn svo nið-
ur í háflkák, kýlingar fram völlinn
og misheppnaðar sendingar.
Reyndar hafa flestöll lið í deildinni
sýnt sveiflukenndan leik, en staða
Skagans býður ekki upp á annað
en sigur. Næg geta býr í liðinu til
þess og nú verður bara að virkja
hana.
KÓP
Firmakeppni
Geisla á Hellissandi
Á þjóðhátíðardag-
inn var haldin hin ár-
lega firmakeppni
hesteigendafélagsins
Geisla á Hellissandi
haldin í ágætu veðri.
Keppt var í polla-
flokki, barna- og
unglingaflokki, A- og
B flokki gæðinga,
tölti, brokki, skeiði,
stökki og para-
keppni. Gaman var
að fylgjast með hversu áhuginn
virðist vera að glæðast hjá ungu
kynslóðinni og þarna voru á ferð-
inni framtíðarknapar. Auk félags-
manna í Geisla mættu góðir
gestir frá Grundarfirði og er
óhætt að sega að þeir hafi kom-
ið séð og sigrað. Geislamenn
vilja þakka þeim fyrir komuna og
vonumst til að sjá þá á mótum í
framtíðinni. Fyrirtækjum sem
styrktu félagið er einnig þakkað-
ur stuðningurinn.
Guðbjörg Jónsdóttir
Jafntefli f Olafsvík
enganvegin
sanngjörn úrslit
Hart barist í teignum.
Blíðskapar veður var í Ólafsvík-
inni þegar Víkingur Ó og Þór Akur-
eyri áttust við í fyrstu deildinni.
Færri áhorfendur voru en venju-
lega þar sem 500 manns hafa ver-
ið að mæta á völlinn að jafnaði, en
nú voru aðeins rúmlega 200
mættir.
Leikurinn var rólegur framan af
þar sem liðin skiptust á um að
halda boltanum á milli sín. Fyrsta
færi leiksins fengu Víkingar en þá
skallaði Ellert Hreinsson í slá eftir
frábæra aukaspyrnu Kevins
Fotheringhams. Strax á eftir náðu
svo Þórsarar góðri skyndisókn þar
sem handboltakempan Heiðmar
Felixson geystist upp kantinn og
náði ágætisskoti sem Einar Hjör-
leifsson varði þó örugglega.
Nokkrum mínútum seinna eða á
32. mín. skaut Ellert aft-
ur í slá eftir mikinn barn-
ing í teignum. Ellert átti
þó ekki eftir að segja
sitt síðasta. Fyrri hálfleik
lauk svo eftir frekar
slappan hálfleik þó með
tveimur sláarskotum
Ellerts.
Ellert byrjaði seinni
hálfleikinn svo með lát-
um og komst einn inn
fyrir eftir stungu Helga
Reynis Guðmundsson-
ar en Gunnar Líndal
Sigurðsson varði í horn.
Það var svo á 67. mínútu sem
Fotheringham gaf glæsilega
stungusendingu inn á Ellert en
enn og aftur varði Gunnar vel í
markinu. Á áttugustu mínútu
komst Ellert svo einn inn fyrir en
aftur varði Gunnar sem ásamt Ell-
erti var maður leiksins. Þegar var
komið framyfir venjulegan leiktíma
skallaði svo varnarmaður Þórs að
marki liðs síns en Gunnar varði
frábærlega og þar með lauk sjöttu
umferðinni. Víkingar voru miklu
betri allan leikinn og hefðu hæg-
lega getað unnið leikinn 5-0 hefði
heppnin verið með ólafsvíska Blik-
anum Ellerti Hreinssyni, sem sá
um að fá færin og klúðra þeim.
Frábær frammistaða markvarðar
Þórs, Gunnars Líndals bjargaði þó
stiginu fyrir sitt lið. ÁJ
r
i
Akraneskaupstaður
Ær brekkubæjarskóli
(«1
Laus störf við
Brekkubæjarskóla frá og með
1. september 2006
Við Brekkubæjarskóla eru eftirtalin
störf laus til umsóknar:
Skólaliði 50% starf
Skólaliði á dagvist 60% starf
©
] Upplýsingar gefur aðstoðarskólastjóri Arnbjörg
Stefánsdóttir, netfang arnbjorg@brak.is,
3 gsm. 863 4379. Sími skólans er 433 1300.
Umsóknarfrestur er til 7. júlí
L___________________II______________________J