Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2006, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 23.08.2006, Blaðsíða 31
^aiissunu^. MIÐVIKUDAGUR 23 ÁGÚST 2006 31 IA gerði jafntefli í Arbænum svo öðru marki við og jafnaði met- in fyrir Fylki og úrslit leiksins urðu 3-3. Skagamenn eru sem fyrr segir ( næstneðsta sæti deildarinnar með 14 stig, jafn mörg og ÍBV sem lagði Grindavík á sunnudagskvöld. Grindavík og Breiðablik eru í 7. og 8. sæti með 17 stig og Fylkir og Víkingur með 20 stig þar fyrir ofan. Þrír leikir eru eftir af deildinni og á ÍA eftir að leika við Keflavík heima, Breiðablik úti og Víking úti. Það er því Ijóst að liðsins biður barátta upp á líf og dauða fyrir sæti sínu á meðal þeirra bestu. -KÓP UMF Stafholtstungna héraðsmeistari ^ ÍSíííÍf „ • ffl \ Frjálsíþróttalið Umf. Stafholtstungna tók sl. mánudag við bikar sem veittur er stigahæsta liðinu á Héraðsmóti UMSB ut- anhúss í sumar. Skagamenn eru enn í næstneðsta sæti Landsbanka- deildarinnar í knattspyrnu eftir að 14. umferðin var leikin á sunnu- dag. Mikið var skorað í leiknum og urðu lokatölur hans 3-3. Skaga- menn réðu lögum og lofum á vell- inum í fyrri háflleik og hefðu vel getað skorað fleiri mörk en þau tvö sem litu dagsins Ijós. Guðjón H. Sveinsson skoraði fyrra markið í hálfleiknum eftir góða sendingu frá Arnari Gunnlaugssyni strax á sjöundu mínútu. Bjarni Guðjóns- son bætti síðan öðru marki við með mögnuðu skoti beint úr auka- spyrnu. Það var allt annað að sjá til Fylk- is eftir hálfleik og liðið jafnaði met- in eftir fimm mínútna leik. Þar var að verki Sævar Þór Gíslason. Fylk- ismenn sóttu meira eftir markið en Heimir Einarsson kom ÍA hins veg- ar í tveggja marka forystu þegar hann skoraði, að því er virtist, með hnakkanum. Skondið mark en það taldi og Skagamenn í vænlegri stöðu. Haukur Ingi Guðnason minnkaði hins vegar muninn innan við mínútu síðar. Skagamenn vildu fá dæmda aukaspyrnu á Hauk, enda virtist hann klifra upp á Igor Pesic til að komast í boltann. Örfá- um mínútum síðar bætti Haukur Dagana 20.-21. júní í sumar var Héraðsmót UMSB í frjálsum íþróttum haldið á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Voru keppendur um 180 talsins sem er með mesta móti. Á síðasta ári var sá siður tekinn upp að nýju að afhenda farandbikar fyrir stigahæsta liðið og varð lið Umf. Stafholtstungna stigahæst nú annað árið í röð með 464 stig. Umf. íslendingur kom næst með 344 stig, Umf. Dagrenning var með 234 stig, Umf. Reykdælir fengu 182 stig, Umf. Skallagrímur 181 stig og Umf. Þrestir 29,5 stig. KÓP HjartaHeill Vesturlandi V Aðalfundur og ganga 2006 HjartaHeill Vesturlandi efnir til skoðunarferðar og göngu laugardaginn 26. ágúst n.k. Gengið verður um Eiríksstaði í Haukadal og fræðst um sögu staðarins undir leiðsögn Sigurðar á Vatni. Mæting við Eiríksstaði í Haukadal kl. 14:00. AÐALFUNDUR HJARTAHEILLA VESTURLANDI (Félags hjartasjúklinga á Vesturlandi.) verður haldinn í félagsheimilinu Árbliki Dalasýslu laugardaginn 26. ágúst n.k. Fundurinn hefst kl. 16:00. Dagskrá. Venjuleg aðalfundarstörf. Gestir fundarins verða. Formaður Hjartaheilla Vilhjálmur B. Vilhjálmsson og Jónas Jóhannsson stjórnarmaður. Einnig mun Ómar Ragnarsson fréttamaður heilsa upp á fundargesti. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti og eiga góðan dag saman. Stjórnin. J Stærðir 25-35 Verð kr: 4.795.- Með hverju keyptu pari fylgja inniskór að eigin vali! m Mjtm m maik xena BORGARNESI S: 437 1240 www.skessuhorn.is csmm - SKAfO'GRlPIR - GIAPAVðRUR /iuðmundur SSl '&Ta.nm ÚRSMIÐUR Suðurgðtu 65 - Akranesi - Sfmi 431 Í458 Ert þú tilbúinn 'ilsi?óiann? Skólaúr Qg; vekjaraklukkur í miklu úrvali V

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.