Skessuhorn - 23.08.2006, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 34. tbl. 9. árg. 23. ágúst 2006 - Kr. 400 í lausasölu
Skólablað
Skessu-
homs
Skessuhorn þessa vikuna er að
hluta helgað upphafi skólaárs-
ins. I þessari viku setjast hund-
ruðir nemenda grunn,- fram-
halds- og háskóla á Vesturlandi á
skólabekk efidr sumarfrí. Einnig
hefja tónlistarskólarnir og Sí-
menntunarmiðstöðin á Vestur-
landi vetrarstarf sitt á næstu
dögum. Rætt er við skólastjórn-
endur skóla á öllum skólastigum
frá og með grunnskólaaldri og
sagt frá helstu nýjungum,
áherslubreytingum, mönntm í
kennarastöður og ýmislegt
fleira.
MM
Danskir dagar fóru fram um liðna helgi og tókust að sögn mótshaldarar ágætlega þrdttjýrir að gestafjöldi hafi verið hófstilltari en m 'órg
undanfarin ár. Sagt erfrá Dönskum dögam í máli og myndum á bls. 30 í blaðinu t dag. A myndinni er Hugrún Birgisdóttir en hún
hjólatíi um og seldi heimagerSan brjóstsykur, sultu og sykurhiíðaðar möndlur, klœdd í þjóðarliti Dana, líkt og margir aðrir gestir, í rautt
og hvítt. Ljósm. RB.
Tvöföldun Vesturlandsvegar
orðið brýnt hagsmunamál
í liðinni viku urðu nokkur mjög
alvarleg umferðarslys á þjóðvegum
landsins þar sem fólk lét lífið og aðr-
ir slösuðust alvarlega. Ekki er ofsög-
um sagt að vikan hafi verið svört í
umferðarlegu tilliti. Hraðakstur,
vanræksla á bílbeltanotkun og þreyta
við akstur, sem eru með algengustu
orsökum alvarlegra umferðarslysa,
virðast hvert með sínum hætti hafa
átt þátt í þremur banaslysum sem
urðu á þjóðvegum landsins sl. mið-
vikudag. Banaslys sl. laugardags-
kvöld máttd þó rekja til hrossa sem
fældust flugelda menningamætur og
hlupu í veg fyrir bíl.
I Morgunblaðinu sl. föstudag var
rætt við Agúst Mogensen, formann
Rannsóknarnefndar umferðarslysa
sem segir fýrrgreinda þrjá áhættu-
þættd, þ.e. hraða, vanrækslu á bíl-
beltanotkun og þreytu hafa komið í
ljós við fýrstu skoðun á slysunum sl.
ATLANTSOLIA
Dísel »Faxabraut 9.
miðvikudag. Telur Agúst brýnt að
gera vegbætur á Vesturlandsvegi líkt
og gert hefur verið á Reykjanesbraut
og í Svínahrauni. I ffétt blaðsins er
haft eftir Agústi: „Umferð á Vestur-
landsveginum er ekki aðgreind úr
gagnstæðum áttum en þar er um að
ræða 1+1 veg. Nú höfum við séð að á
þeim hluta Reykjanesbrautarinnar
sem var tvöfaldaður hefur ekki orðið
banaslys eða harður áreksmr frá því
vegbætumar vora gerðar. Sama á við
um Suðurlandsveginn þar sem kom-
inn er 2+1 vegur með vír sem aðskil-
ur umferð úr gagnstæðum áttum.
Þessvegna veltir maður því fýrir sér
hvort Vesturlandsvegurinn sé ekki
næstur á dagskrá. Þetta er auðvitað
mikill umferðarvegur og þar hafa í
gegnum tíðina orðið harðir árekstrar
og ffamanákeyrslur. Eg held því að
það sé alveg kominn tími til að huga
að því að aðgreina umferð úr gagn-
stæðum áttum,“ sagði Agúst.
Eins og margir mtma höfðu áður
en vinna hófst við tvöföldun Reykja-
nesbrautar með tveimur aðskildum
akreinum tdl hvorrar áttar, orðið fjöl-
mörg alvarleg slys á Reykjanesbraut-
inni og mörg banaslys. Aðstæður þar
vora á margan hátt sambærilegar
þeim sem nú eru t.d. á Vesturlands-
vegi um Kjalarnes og þjóðveginum
við Hafiiarfjall, þ.e. nokkuð beinn en
þröngur vegur, mikill hraði ökutækja
á vegi sem einungis samanstendur af
einni akrein tdl hvorrar áttar og ekk-
ert sem skilur á milli þeirra. Alvar-
legustu slysin við þessar aðstæður
verða því við ffamúrakstur, hraðakst-
ur, skort á bílbeltanotkun og þreytu
ökumanna þegar lidu má muna þeg-
ar bílar mætast. I Skessuhomi í dag
er einnig sagt ffá nýju gæðamati á
vegum sem FIB hefur haft forgöngu
um. Þar kemur í ljós að á góðum
vegum leynast hættulegir kaflar sem
komnir eru til vegna spamaðar í
hönnun. Gera má því skóna hvort
slíkur spamaður sé í raun einhver
sparnaður fýrir þjóðarbúið þegar
upp er staðið, m.t.t. afleiðinga alvar-
legra umferðarslysa?
Arin áður en stjómvöld tóku loks
ákvörðun um tvöföldun Reykjanes-
brautar höfðu öflugir hagsmunahóp-
ar fólks af Reykjanesi barist fýrir því
að vegabætur yrðu gerðar þannig að
slysum fækkaði. Forystu í hópnum
hafði Steinþór Jónsson, hótelstjóri í
Keflavík sem sýndi mikla þrautseigju
sem skilaði sér að lokum í því að
brátt sér fýrir endann á löngu tíma-
bærri tvöföldun brautarinnar.
Tæplega verður því trúað að þeir
sem nota þurfa Vesturlandsveg vilji
búa við annmarka hans öllu lengur.
Því skorar Skessuhorn hér með á þá
aðila sem vilja beita sér fýrir auknu
umferðaröryggi á og til Vesturlands
að stofnaður verði hagsmunagæslu-
hópur íbúa í þessum landshluta líkt
og Reyknesingar gerðu undir forystu
Steinþórs Jónssonar. Hópur þessi
hefði það markmið að bæta umferð-
armenningu almennings, knýja
stjómvöld tdl aðgerða í vegabótum
og verða málsvari þeirra sem vilja
ferðast tiltölulega ömggt milli staða
án þess að verða sjálfkrafa þátttak-
endur í svokallaðri rússneskri rúl-
lettu. Slys síðasdiðinnar viku segja í
raun allt sem segja þarf um nauðsyn
þessa. MM
Fáheyrður
ofsaakstur
Okumaður bifhjóls var sl.
fimmtudag handtekinn eftir að
lögregla stöðvaði akstur hans á
Kjalarnesi fýrr um daginn.
Hann ók á rúmlega 200 km
hraða og var í haldi lögreglunn-
ar þar til málið var að fullu upp-
lýst. í júní var sami maður
stöðvaður á mótorhjóli á 139 km
hraða, eða rétt undir sviptingar-
mörkum.
A fimmmdagsmorgun bámst
lögreglunni í Borgarnesi til-
kyuningar um ofsaakstur bif-
hjóls á Snæfellsnesvegi. Lög-
reglumenn héldu þegar til að
kanna málið og mættu bifhjól-
inu þegar það áttí nokkum veg
eftir í Borgames. Þá var hjólið
mælt á yfir 200 km hraða. Þegar
var hafin eftirför en ökumaður
sinnti engum stöðvunarmerkj-
um lögreglu. Var hjólinu ekið
sem leið lá í gegnum Borgarnes
og fýrir Hvalfjörð þar til lög-
reglan í Reykjavík stöðvaði akst-
urinn eins og áður sagði á Kjal-
arnesi. Okumaðurinn var þegar
handtekinn og færður til yfir-
heyrslu hjá lögreglunni í Borg-
arnesi.
Theodór Þórðarson yfirlög-
regluþjónn í Borgamesi segir
lögreglu hafa veitt bifhjólinu
eftirför eftír því sem tök vora á
þegar um slíkan ofsaakstur er að
ræða. Hann segir málið sérlega
alvarlegt og bendir í því sam-
bandi á að um ofsaakstur hafi
verið að ræða um byggðina í
Borgarnesi. Maðurinn var látínn
laus síðdegis sama dag eftír yfir-
heyrslur hjá lögreglu. Akæra
verður gefin út á hendur hon-
um. „Sammerkt hjá því fólki
sem hafði samband við okkur út
af ökulagi mannsins var að það
hafi orðið skelfmgu lostið yfir
akstrinum því slíkur var hrað-
inn. Einn lýstí því yfir að; þetta
væri ekkert annað en tundur-
skeyti á hjólum sem myndi
spltmdra öllu því sem það lentí á
eða yrði fýrir,“ sagði Theodór í
samtali við Skessuhorn.
HJ
IIII! IIIIII