Skessuhorn - 23.08.2006, Blaðsíða 25
25
MIÐVIKUDAGUR 23 ÁGÚST 2006
Fluguveiði á Seleyri
Veiðimaðurinn á þessari mynd er
Norðmaður sem nú um helgina var
við fluguveiðar við annan mann á
Seleyri, sunnan Borgamess. Veiði-
mönnum sem stunda fluguveiðar í
fersku vatni hefur fjölgað með
hverju árinu sem líður enda er um
holla útivist og gott sport að ræða
sem getur hentað öllum fjölskyldu-
meðlimum. Hinsvegar hefur ekki
verið mikið inn slíkar veiðar í söltu
vatni en þó er þeim að fjölga sem
reyna slíkt.
Tveir Norðmenn sem hafa ferð-
ast um landið gagngert til flugu-
veiða undanfarna 9 daga leist vel á
aðstæður á Seleyrinni um helgina
og reyndu fyrir sér í veiði á þessum
fallega degi. Seleyrin hefur notið
vinsælda veiðimanna um árabil og
hafa margir Borgnesingar verið
duglegir að nýta sér þessa veiði-
paradís sumarlangt enda ekki langt
að fara til að krækja sér í nýjan sil-
ung í soðið.
BT
www.skessuhorn.is
ATVINNA
Starfskraftur óskast sem fyrst í
Efnalaugina Lísu við hin ýmsu störf
Vinnutími erfrá 8 tii 17 eðo
eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar í síma 431-2503
og 897-1955
Efnalaugin Lísa
Skagabraut 17
Akranesi
Sími 431-2503
J
Öryggisgæsla í Borgarnesi
Securitas óskar að ráða menn og konur í fullt starf og hlutastörf
öryggisvarða í Borgarnesi. Reynsla af öryggisgæslu, skyndihjálp og
meðferð slökkvitækja er kostur. Krafa er gerð um hreint sakavottorð.
Leitað er að fólki sem býr yfir:
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Ríkri þjónustulund
- Öguðum vinnubrögðum
- Heiðarleika
Umsóknir:
Nánari upplýsingar veitir Jón Birgir Jóhansson í síma 580 7000
Umsækjendur geta einnig fyllt út umsóknir á vef fyrirtækisins
www.securitas.is. Umsóknarfrestur er til 29. ágúst.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
•••
Síðumúla 23 | 108 Reykjavík | 580 7000
A: Tillaga að breyttu aðalskipulagi Borgarbyggðar 1997-2017 við enda Kveldúlfsgötu
(Dílatanga).
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingum á aðalskipulagi Borgarbyggðar 1997-
2017 samkvæmt 2.mgr.21.gr skipulags og byggingarlaga nr.73/1997.
Svæði við enda Kveldúlfsgötu (Dílartanga) er skilgreint sem almennt útivistarsvæði. Breytingar felast í
því að landnotkun breytist úr almennu útvistasvæði í svæði undir íbúðarbyggð að hluta til og opnu svæði
til sérstakrar notkunar.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar mun taka að sér að bæta það tjón er einstakir aðilar kunna að verða fyrir
vegna breytingarinnar.
Breyting á aðalskipulagi verður til sýnis á skrifstofu Borgarbyggðar frá 23.08.2006 til 13.09.2006. Frestur
til að skila inn athugasemdum rennur út 13.09.2006.
B: Tillaga að deiliskipulagi við Kveldúlfsgötu 29, Borgarnesi.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. auglýsist hér með tillaga á
deiliskipulagi við ofangreint skipulag.
Um er að ræða fjölbýlishúsalóð við lóð nr.29 við Kveldúlfsgötu.
Deiliskipulag verður til sýnis á bæjarskrifstofu Borgarbyggðar frá 23.08.2006 til 20.09.2006.
Frestur til athugasemda vegna deiliskipulags rennur út 4.10.2006.
Athugasemdir við skipulögin skulu vera skriflegar og berast á skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 11,
310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillögurnar fyrir tiltekin frest til athugasemda telst samþykkur
þeim.
Borgarnesi 14.08.2006
Forstöðumaður tæknideildar Borgarbyggðar.
• •
ÚTSÁLA
EKKI MISSA AF ÞESSU!
Komdu á alvöru útsölu hjá Bílás,
dagana 24. til 29. ágúst nk.
Allt að 100% lán á aðeins 3,9%* vöxtum og ekkert lántökugjald.
Opið frá kl. 10 til 18. Um helgina verður opið lau. frá kl. 10 til 16 og lokað sun.
*Blrt mefl fyrirvara um verSbreytingar og ásláttarvillur. Ath. aí vaxtagreiðslur taka mið af gengisþróun CHF og JPYI jðfnu 50/50 hlutfalli."
Bílás
BÍLASALA S 431 2622
Þjóðbraut 1, Akranesi