Fréttablaðið - 10.09.2019, Page 10

Fréttablaðið - 10.09.2019, Page 10
1 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð og sá sem er í byggingu í Breiðholti eru mikilvægir vellir, fyrir æfingar og smærri mót, en hæfa ekki fyrir alþjóðlega keppni. Núverandi staða er því ótæk fyrir frjálsar. „Það hefur gengið vel að undan- förnu og unga kynslóðin okkar er öf lug og hefur verið að ná góðum árangri í alþjóðlegum saman- burði. Að sjálfsögðu viljum við geta boðið þeim að mæta jafningjum hér á landi við boðlegar aðstæður. En við erum auðvitað líka þakklát fyrir fyrri uppbyggingu. Margt af þessu unga fólki hefur náð árangri í skjóli frjálsíþróttahallanna tveggja í Reykjavík og Hafnarfirði. Það er ómetanleg aðstaða sem hefur breytt öllu fyrir frjálsar.” Heimavellirnir gamlir Laugardalurinn er heimavöllur landsliða Íslands en öll landsliðin eiga það sameiginlegt að spila nán- ast við óboðlegar aðstæður. Fræg er barátta KSÍ fyrir nýjum velli, KKÍ og HSÍ spila í Laugardalshöll á undanþágum enda höllin nánast orðin fornminjar. Aðspurður hvort frjálsar íþróttir geti nýtt nýjan Laugardalsvöll undir sína starf- semi segir Freyr að best væri að fá sérstakan völl fyrir frjálsar íþróttir. „Okkar krafa er að hafa átta brauta völl í Laugardal. Ég á von á því að það sé betra fyrir báða aðila að vera með sitthvorn völlinn. Það er ekk- ert samband sem getur byggt völl og við verðum að leyfa pólitíkinni að ákveða næstu skref, en það getur augljóslega ekki beðið lengur.“ Hann bendir á að aðgengi að frjálsíþróttavelli sé mjög gott. „Það sem frjálsíþróttavöllur býður upp á, ef hann verður byggður ein- göngu fyrir frjálsar, er miklu meira aðgengi. Fjöldinn fær þá að æfa á vellinum, allt frá yngri börnum upp í afreksmenn. Völlurinn verður sannarlega opinn og þannig hluti af Laugardalnum, en ekki læstur, utan nokkurra leikja eða viðburða á ári.“ Þá gagnrýnir Freyr ríkisvaldið. SPORT FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið mætir Albaníu ytra í sjöttu umferð H-riðils í undankeppni Evrópu- mótsins 2020 í dag. Ísland á í harðri baráttu við ríkjandi heimsmeistara Frakklands og Tyrklands um eitt af efstu tveimur sætunum sem veita þátttökurétt á EM næsta sumar og mega strákarnir okkar því ekki við því að misstíga sig. Þetta verður í sjöunda skiptið sem þjóðirnar mæt- ast, fjórum sinnum hefur Ísland unnið en Albanir hafa unnið tvo. Leikurinn fer fram í Elbasan, þriðju stærstu borg Albaníu, 45 mínútum frá höfuðborginni Tirana þar sem Ísland dvelur í aðdraganda leiksins. Ísland hefur unnið síðustu þrjár viðureignir liðanna með núverandi gullkynslóð íslenska landsliðsins. Gera má ráð fyrir að átta leikmenn sem byrjuðu leikinn í 2-1 sigri Íslands árið 2012 byrji leikinn í kvöld en í þeim leik skoruðu Gylfi Þór Sigurðsson og Birkir Bjarnason mörk Íslands. Stutt er síðan liðin mættust á Laugardalsvelli í sumar þar sem Jóhann Berg Guðmundsson skor- aði eina mark leiksins í 1-0 sigri Íslands en í síðustu fimm leikjum liðanna hefur eitt mark skilið liðin að. Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, sagðist á blaðamannafundi íslenska liðsins eiga von á erfiðum leik í kvöld. „Við erum bara að horfa á þennan leik og við eigum von á erfiðum leik gegn særðu liði Albaníu eftir skell- inn sem þeir fengu í Frakklandi. Yfirleitt munar litlu á þessum liðum þegar þau mætast, mikið um bar- áttu og einvígi inn á vellinum. Við megum ekki missa einbeitinguna í leiknum því Albanir mæta klárir til leiks,“ sagði Aron Einar og tók Erik Hamrén, þjálfari landsliðsins í sama streng og fyrirliðinn. „Við ætlum okkur á EM og þetta er mjög mikilvægur leikur í þeirri vegferð. Við berum mikla virðingu fyrir liði Albana en vitum þurfum að ná góðum úrslitum hérna gegn liði sem hefur verið sterkt undan- farin ár og voru óheppnir að fá ekkert úr leiknum gegn Tyrklandi á heimavelli. Þeir munu selja sig dýrt á heimavelli fyrir framan þjóð sína til að taka stigin þrjú.“ - kpt. Strákarnir okkar mega ekki misstíga sig í Elbasan Ragnar Sigurðsson leikur í dag sinn 90. leik fyrir Ísland. NORDICPHOTOS/GETTY Ragnar Sigurðsson verður í dag sá þriðji sem nær 90 leikjum fyrir karla- landsliðið á eftir Rúnari Kristinssyni og Birki Má Sævarssyni. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR  Frjálsíþrótta- samband Íslands, FRÍ, sendi borgar- ráði Reykjavíkur bréf um Laugar- dalsvöll í byrjun mánaðarins. Benti sambandið á þær aðstæður sem frjálsíþróttafólk býr nú við og ítrekar vilja FRÍ um að hefja umsóknarferli um viðurkenningu þjóðarleikvanga í íþróttum. Þá fylgdi greinargerð mann- virkjanefndar FR Í um ástand Laugardalsvallar. Telur FRÍ einsýnt að Reykjavíkurborg hefji nú þegar undirbúning að viðhaldsfram- kvæmdum á vellinum. Þá minnist FRÍ sérstaklega á að ekki fer saman það tónleikahald sem verið hefur með mjög löngu og miklu inngripi í starfsemi frjálsíþróttafélaganna í Reykjavík og óæskilegu álagi á keppnisbrautir vallarins. Freyr Ólafsson, formaður FRÍ, segir að frjálsar íþróttir séu í raun heimilislausar enda sé búið að lýsa því yfir að það eigi að fjarlægja hlaupabrautirnar á Laugardals- velli. „Ef það verður gert þá erum við á köldum klaka, eins og greinar- gerð okkar sýnir, völlurinn er ekki keppnishæfur. Við getum ekki leng- ur tekið við mótum og höfum þegar þurft að vísa frá okkur mótum svo sem Norðurlandamótum. Við erum strand og bíðum svara.“ Freyr segir að þjóðarleikvangur í frjálsum eigi heima í Laugardaln- um. Búið sé að þjarma að aðstöð- unni víða, meðal annars með því að skipta yfir í gervigras í Kópavogin- um. Frjálsíþróttavellir í Hafnarfirði Laugardalsvöllurinn er úr sér genginn Nánast öll sérsamböndin í Laugardal þurfa ný mannvirki enda langt síðan hamar og naglar hafa verið teknir upp í Laugardal. Aðstæður fyrir frjálsíþróttafólk eru óboðlegar að mati formanns FRÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Mannvirki sem hýsa ís- lensku landsliðin eru öll úr sér gengin. KSÍ er að berjast fyrir nýjum velli enda að spila á hand- ónýtum og gömlum velli. HSÍ og KKÍ eru á undanþágum frá sínum alþjóðasamböndum vegna úreltrar Laugar- dalshallar og FRÍ sendi borgarráði bréf um aðstöðuna í fyrir rjálsar íþróttir. Þar er margt í ólagi og hefur sam- bandið þurft að vísa frá sér mótum. Segir það verði að stíga stærri skref með sérsamböndunum. „Þetta er hnútur sem ég vona að verði leystur sem fyrst. Aðrir stallbræður mínir eru mér sammála þegar kemur að landsliðum og landskeppnum, þá hefur ríkisvaldið verið stikkfrí. Ég held því fram fullum fetum að ríkið græði einna mest á íþróttum með heilbrigðari þjóð. En við skulum vona að með þessari reglugerð um þjóðarleikvang að ríkið sé að koma aðeins meira inn. Vissulega hefur afrekssjóður verið stækkaður af myndarskap, en nú þarf sama myndarskap til að höggva á hnútinn vegna aðstæðna sérsambandanna.“ benediktboas@frettabladid.is ✿ Ástand Laugardalsvallar n Frjálsíþróttavöllurinn er ekki keppnishæfur í núverandi ástandi. n Víða sér á yfirborði sem er rifið á nokkrum stöðum, væntan- lega vegna snúnings bíldekkja í tengslum við ýmsa viðburði á vellinum. n Á hlutasvæðum eru verulegar dældir í yfirborði. n Merkingar á vellinum eru daufar og búið er að breyta merkingu skiptisvæða með yfirmálningu. n Hlaupabrautayfirborðið sjálft er margbætt og ónýtt. n Stökkgryfjur eru ólöglegar. n Lendingarsvæði stangarstökks þarf að endurnýja svo öryggi stökkvara sé tryggt. Nýlega hafa orðið slys í lendingu vegna skorts á rými og frágangi við lendingarsvæði. n Koma þarf upp kastbúri fyrir sleggju- og kringlukast. n Lagfæra þarf núverandi kast- hringi sem eru farnir að láta á sjá. Hreinsa þarf steypuyfirborð platta, yfirfara gjarðir og endur- leggja yfirborðsefni. n Byggingarnefnd FRÍ tók saman áætlaðan heildarkostnað við lágmarks endurbætur og nemur hann um 82 milljónum króna. em getur byggt völl og við verðum að leyfa pólitíkinni að ákveða næstu skref, en það getur augljóslega ekki beðið lengur Freyr Ólafsson, formaður FRÍ 1 0 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B B -9 9 E 4 2 3 B B -9 8 A 8 2 3 B B -9 7 6 C 2 3 B B -9 6 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 3 2 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.