Fréttablaðið - 10.09.2019, Qupperneq 14
Kollagen er fæðubótarefnið sem allir eru að tala um og það fæðubótarefni sem gæti
mögulega hjálpað okkur og hægt
á öldrun líkamans,“ segir Elísabet
Reynisdóttir næringarfræðingur
um byggingarprótínið kollagen
sem nú er á allra vörum.
„Það hefur áhrif á hreysti okkar
og þar með útlit ef við töpum kolla-
genbirgðum líkamans og fáum
ekki nægilegt kollagen úr fæðunni.
Það er talið að við byrjum að tapa
kollageni um 1,5 prósent eftir 25
ára aldur. Það sem við merkjum
einna helst er að húð og hár verður
líf lausara og neglurnar brothætt-
ari,“ útskýrir Elísabet.
Nýjar rannsóknir sýna að svo
virðist vera að hægt sé að vinna
gegn beinþynningu ásamt því að
koma í veg fyrir ýmsa kvilla og
verki með inntöku kollagens sem
fæðubót.
„Kollagen er meðal annars talið
gagnast einstaklingum með ristil-
og þarmavandamál. Greint var frá
því að ákveðnar amínósýrur sem
eru í kollageni hafi jákvæð áhrif
á taugaboðefni líkamans og geti
þar með haft góð áhrif á svefninn,“
upplýsir Elísabet.
Hún segir fjölmörg bætiefni vera
manninum nauðsynleg.
„C-vítamín er til dæmis lífsnauð-
synlegt og fyrr á öldum olli C-víta-
mínskortur alvarlegum hörgul-
sjúkdómi. Við fáum C-vítamín úr
grænmeti og ávöxtum, og sömu-
leiðis er C-vítamín nauðsynlegt til
að mynda kollagen sem er eitt allra
mikilvægasta byggingarprótín
líkamans,“ segir Elísabet.
Kollagen 1
Kollagen er talið skaðlaust fæðu-
bótarefni sem eykur heilbrigði og
bætir útlit.
„Hafa ber í huga að til eru mis-
munandi tegundir af kollageni.
Hver og ein hefur mismunandi
hlutverk og er númeruð frá einum
upp í 28. Í fæðubótarefnum er
kollagen frá einum upp í fimm
talin mikilvægast, og kollagen sem
unnið er úr sjávarafurðum, svo sem
fiskroði, er af tegund 1 sem fyrir-
finnst í 90 prósentum alls kollagens
í líkamanum,“ útskýrir Elísabet.
Kollagen 1 er einkar mikilvægt
fyrir heilbrigði tanna, beina, hárs,
sina og liðbanda.
„Kollagenskortur sést f ljótt á
húðinni en hann hefur einnig áhrif
á bandvefi og beinvef líkamans.
Skortur á kollageni getur því
haft áhrif á beinþéttni en inn-
taka kollagens minnkað áhættu
á beinþynningu. Bein okkar eru
að mestu byggð úr kollageni og
því gefur kollagen í fæðubótarefni
aukna beinþéttni því það myndar
nokkurs konar net í vefjum líkam-
ans en oftast er talað um kollagen
sem límið,“ segir Elísabet.
Gott við beinþynningu
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
Healthline.com, þar sem skrifað
er um heilsufarsmál út frá mark-
tækum rannsóknum, er þeim sem
greinst hafa með beinþynningu
mikilvægt að taka inn kalk og
bæta við fimm grömmum af kolla-
geni sem fæðubót.
„Kollagen hefur einnig góð áhrif
á vöðvastyrkleika og byggir upp
vöðva eftir æfingar. Mataræði
og lífsstíll er stór áhrifavaldur á
heilsufar fólks og þess má geta að
C-vítamín hjálpar til við fram-
leiðslu kollagens í líkamanum. Þá
er kollagen sem fæðubótarefnið
vatnsleysanlegt og talið frásogast
betur en kollagen sem við brjótum
niður í fæðunni,“ upplýsir Elísabet.
Hún segir umdeilanlegt hvort
bæta eigi við fæðubótarefnum við
daglegt mataræði.
Kollagen-lína Feel Iceland er hrein náttúruafurð og laus við aukefni.
Elísabet segir kollagen hafa einkar góð áhrif á vöðvastyrkleika og beinþéttni. MYNDIR/KRISTBORG BÓEL STEINDÓRSDÓTTIR
Framhald af forsíðu ➛
Hér má sjá Kristborgu Bóel Steindórsdóttur og Elísabetu á leið til veiða.
Til eru mismun-
andi tegundir af
kollageni. Hver og ein
hefur mismunandi
hlutverk og er númeruð
frá 1 upp í 28. Kollagen 1
er einkar mikilvægt fyrir
heilbrigði tanna, beina,
hárs, sina og liðbanda.
Kollagen finnst í
vefjum dýra. Það
finnst í kjúklingaskinni,
svínaskinni, kjöti og
fisk, en einnig í beinsoði
og fæðu sem inniheldur
gelatín.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550
5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
„Sem næringarfræðingur ráð-
legg ég fólki að borða góðan og
hollan mat, en mér finnst líka
þess virði að prófa gott kollagen,
sem er hreint og án aukefna, ef við
þjáumst af liðverkjum, húðin er
farin að slappast, hár og neglur er
orðið líf laust og aukin hætta er á
hjarta- og æðasjúkdómum.“
Hvar finnum við kollagen?
„Kollagen er í vefjum dýra. Það
finnst í kjúklingaskinni, svína-
skinni, kjöti og fiski, en einnig í
beinsoði og fæðu sem inniheldur
gelatín,“ upplýsir Elísabet.
Hún vekur athygli á að flestar
rannsóknir á kollageni innihaldi
kollagen sem bætiefni en ekki
kollagenríka fæðu.
„Þegar við borðum kollagenríka
fæðu brjótum við niður amínó-
sýrur með meltingarensímum.
Kollagen sem fæðubótarefni hefur
verið brotið niður fyrir okkur, með
auknum líkum á að upptaka kolla-
gens verði meiri en úr fæðunni,“
útskýrir Elísabet.
„Best er að taka inn kollagen sem
fæðubót samhliða því að borða
góða fæðu, nóg af grænmeti og
ávöxtum, og hugsa vel um sig með
því að hreyfa sig í minnst hálftíma
á dag.“
Brjósk og liðir
Kollagen viðheldur heilbrigði
brjósks og liða.
„Það hefur góð áhrif á slitgigt og
liðverki og einstaklingar sem tekið
hafa kollagen hafa upplifað minni
liðverki og verki, almennt,“ segir
Elísabet.
Sem dæmi var íþróttafólki gefið
daglega 10 grömm kollgens í 24
vikur og fann það marktækan
mun á liðverkjum í samanburði
við samanburðarhóp sem ekki
fékk kollagen.
„Kollagen styrkir brjósk með því
að örva vefina í kring til að fram-
leiða kollagen. Þar með geta bólgur
minnkað og verkirnir sömuleiðis.“
Sjá nánar á feeliceland.com og á
Facebook.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
0
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
B
-A
8
B
4
2
3
B
B
-A
7
7
8
2
3
B
B
-A
6
3
C
2
3
B
B
-A
5
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
9
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K