Fréttablaðið - 10.09.2019, Síða 18

Fréttablaðið - 10.09.2019, Síða 18
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Sætar, fylltar kartöflur með girnilegum baunum, fetaosti, grillaðri papriku og gómsætum kryddjurtum gleðja bæði munn og maga. NORDIC PHOTOS/GETTY Þegar skammdegið nálgast kallar hugurinn oft á mat sem huggar og umvefur sálina. Oftar en ekki eru þeir réttir orku- miklir, þungir og stundum hitaein- ingaríkir en það er ekkert mál og alls ekki síðra að elda kósímat sem er hollur, bragðgóður og með beina tengingu í náttúru og uppskeru heimsins. Hér gefast tveir heilnæmir og ljúffengir réttir sem kæta bæði munn og maga þeirra sem njóta. Þeir kalla á smávegis nostur yfir eldamennskunni en hvað er það á milli vina þegar ekkert er að gera annað en að hafa það huggulegt saman í haustvindum og kerta- ljósum? Það er svo upplagt að taka saman skrafl eða tafl eftir matinn, eða þá Ólsen, Ólsen og slönguspil við krakkana. Fylltar sætar kartöflur Sætar kartöflur eru einstaklega hollar og góðar. Þær eru trefja- miklar og innihalda nauðsynleg vítamín og steinefni, eins og A-vítamín, B6-vítamín og magn- esíum. 4 sætar kartöflur af miðlungs- stærð 1 dós svartar baunir eða nýrna- baunir ¼ bolli maísbaunir ¼ bolli fetaostur ¼ bolli grilluð rauð paprika 3 msk. góð ólífuolía 3 msk. steinselja eða kóríander, smátt saxað Salt og pipar Aðferð: Stingið nokkur göt á sætu kartöfl- urnar með litlum hnífi og bakið í ofni við 180°C þar til orðnar mjúkar. Blandið saman svörtum baunum, fetaosti, grillaðri papr- iku, ólífuolíu, steinselju, salti og pipar. Skerið því næst kartöflurnar í tvennt og skrapið kartöflukjötið úr hverjum helming. Setjið í pott og hrærið smjöri og púðursykri saman við. Fyllið þá kartöfluhýðin með svolitlu af kartöflumúsinni ásamt gómsætri baunablöndunni og bakið í ofni við 180°C í 10 mínútur. Toppið með sýrðum rjóma, til dæmis með graslauk eða habanero. Bökuð epli með kanilosti og möndlum Þessi ljúfi og holli eftirréttur fyllir heimilið af unaðslegri angan og kórónar notalegan málsverð á haustkvöldi. 3 epli, skorin í tvennt og kjarn- hreinsuð ½ bolli saxaðar möndlur 1 og ½ bolli vatn 1 og ½ msk. smjör, skorið í 6 þunna bita (kaldir) Kanill 250 g mascarpone-ostur 1 og ½ msk. hlynsíróp ½ tsk. kanill ½ tsk. vanilludropar ¼ tsk. múskat Aðferð: Hitið ofn í 180°C. Raðið eplahelm- ingunum í eldfast mót með sárið upp, setjið smjör í kjarnaholuna og stráið svolitlum kanil og söx- uðum möndlum yfir eplin. Hellið vatninu í mótið og breiðið yfir með álpappír. Bakið í 30 mínútur. Á meðan á bakstrinum stendur er góður tími að setja mascar- pone-ost, hlynsíróp, kanilduft, vanilludropa og múskat í skál og hræra varlega saman. Takið eplin úr ofninum og berið fram volg með 1 til 2 matskeiðum af mascarpone- ostablöndunni. Heilnæmt og huggulegt haustnasl Hvað er heimilislegra en ilmur af bökuðum eplum með kanil og möndlum? Haustkvöldin eru töfrandi og rómantískur tími. Kvöldmyrkrið kallar á inniveru, nánd, huggulega birtu og nota- legan mat sem veitir vellíðan og hamingju með tilveruna. VERTU BETRI REEBOKFITNESS.ISstqf LAMBHAGI HOLTAGARÐAR URÐARHVARF FAXAFEN TJARNAVELLIR ÁSVALLALAUG KÓPAVOGSLAUG SALALAUG FYRIR ALLA | ENGIN BINDING BYRJAÐU STRAX Í DAG! NÝ NÁMS KEIÐ AÐ HEFJA ST! 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 0 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B B -9 9 E 4 2 3 B B -9 8 A 8 2 3 B B -9 7 6 C 2 3 B B -9 6 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 3 2 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.