Mosfellingur - 12.09.2019, Qupperneq 6
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
Föstudagur 13. september
Heilunarguðsþjónusta kl. 20
í Lágafellskirkju. Sr. Arndís Linn
og Vigdís Steinþórsdóttir
ásamt græðurum.
sunnudagur 15. september
Lágafellskirkja kl. 11:00.
Sr. Arndís Linn.
sunnudagur 22. september
Lágafellskirkja kl. 11:00.
Sr. Kristín Pálsdóttir.
sunnudagur 29. september
MOSFELLSKIRKJA kl. 11:00.
Sr. Arndís Linn.
Reiðleið um Esju
hlíðar opnuð á ný
Fimmtudaginn 29. ágúst var
reiðleiðin með Esjuhlíðum opnuð á
ný. Þjóðleið þessi hefur verið lokuð
í hartnær 50 ár. Reiðleiðin liggur úr
Kollafirði með Esjuhlíðum og kem-
ur inn á reiðleiðina um Eyrafjallsveg
neðan Tindstaða um 20 km leið.
Það hefur verið mikill vilji til þess
meðal hestamanna að fá þessa
gömlu leið opnaða aftur fyrir
hestaumferð. Það hefur verið reynt
af og til frá aldamótum án árangurs
fyrr en nú. Hitann og þungann
af því að semja við landeigendur
(sem eru fleiri en tuttugu) báru þeir
Óðinn Elísson formaður hesta-
mannafélagsins Adams, Sigurbjörn
Magnússon lögmaður og Grétar
Þórisson Kirkjulandi og tókst þeim
að koma því saman á undanförnum
þremur árum. Reiðleiðin er höfð
sem náttúrulegust, rétt helstu
hindrunum rutt úr vegi og girðingar
settar upp þar sem þurfti. Styrkur
frá reiðvegasjóði LH 2,5 m. kr. ásamt
styrk frá Vegagerðinni dugði til þess
að klára verkið og einnig lögðu
hestamenn í Kjós til vinnu og tæki.
- Fréttir úr Mosfellsbæ6
sÓkn Í sÓkn
– liFandi saMFÉlag
Vertu með í sókninni!
Á sérstakri hátíðardagskrá bæjarhátíðar-
innar Í túninu heima var tónlistarkonan
Guðrún Ýr Eyförð, betur þekkt sem GDRN,
útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar
árið 2019.
Menningar- og nýsköpunarnefnd Mos-
fellsbæjar sér um val bæjarlistamanns ár
hvert og veitti Björk Ingadóttir formaður
nefndarinnar Guðrúnu verðlaunagrip eftir
listakonuna Ingu Elínu ásamt viðurkenn-
ingarfé sem fylgir nafnbótinni.
Með sinn eigin feril í þrjú ár
„Þetta er mikill heiður og kom mér
virkilega á óvart,“ segir Guðrún Ýr. „Ég
er ekki búin að vera með minn eigin feril
sem GDRN nema í þrjú ár en ég hef verið
að læra tónlist í um tuttugu ár og ég stæði
ekki hérna í dag ef ekki væri fyrir allt frá-
bæra tónlistarfólkið og tónlistarkennarana
sem eru búnir að miðla af sinni reynslu til
mín. Mig langar því að tileinka þeim þessi
verðlaun, af því ég væri ekki hér í dag ef það
væri ekki fyrir þau.
Það væri gaman að geta nýtt nafnbótina
til að hjálpa ungu fólki í Mosfellsbæ sem vill
fara í listnám. Þar myndi ég glöð vilja veita
einhverjum innblástur og halda áfram að
gefa af minni þekkingu sem mér var gefin
frá öðru tónlistarfólki.“
Hóf fiðlunám í listaskóla Mosfellsbæjar
Guðrún Ýr er uppalin í Mosfellsbæ og
hefur verið í tónlist frá unga aldri. Hún hóf
fiðlunám í Tónlistarskóla Mosfellsbæjar
fimm ára, flutti sig síðar í Suzuki skólann og
stundaði námið í ellefu ár. Eftir fiðlunámið
færði hún sig í djasssöng og djasspíanó í
FÍH meðfram námi í menntaskóla.
Hún gaf fyrst út tónlist árið 2017 og sló í
gegn með laginu Lætur mig sumarið 2018.
Á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrr á
þessu ári hlaut Guðrún fern verðlaun. Plata
Guðrúnar Hvað ef var valin poppplata árs-
ins, lagið Lætur mig sem hún syngur með
Flóna var valið popplag ársins. Að auki var
Guðrún Ýr valin söngkona ársins í flokki
popp-, rokk-, raf- og hiphopptónlistar og
hlaut verðlaun fyrir tónlistarmyndband
ársins við lagið Lætur mig.
Magnaður mosfellskur listamaður
GDRN vinnur nú að nýrri plötu sem
kemur út á næstu vikum. „Annars hefur
verið meira en nóg að gera í sumar. Fram-
undan er vinna í Þjóðleikhúsinu þar sem ég
verð hluti af tónlistinni í vetur og svo styttist
auðvitað í jólaösina,“ segir Guðrún Ýr sem
verður ein af jólagestum Björgvins.
Í rökstuðningi menningar- og nýsköpun-
arnefndar segir: „Guðrún Ýr er fyrirmynd
og innblástur fyrir konur í tónlist, upp-
rennandi stjarna og magnaður mosfellskur
listamaður.“
GDRN útnefnd bæjarlistamaður 2019 • Ein skærasta stjarna landsins í popptónlist
„fyrirmynd og innblástur
fyrir konur í tónlist“
Bæjarlistamenn
mosfellsBæjar
1995 Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
1996 Leikfélag Mosfellssveitar
1997 Inga Elín Kristinsdóttir
1998 Sigrún Hjálmtýsdóttir
1999 Sigurður Þórólfsson
2000 Karlakórinn Stefnir
2001 Sigur Rós
2002 Anna Guðný Guðmundsdóttir
2003 Steinunn Marteinsdóttir
2004 Guðrún Tómasd. og Frank Ponzi
2005 Símon H. Ívarsson
2006 Jóhann Hjálmarsson
2007 Ólöf Oddgeirsdóttir
2008 Guðný Halldórsdóttir
2009 Sigurður Ingvi Snorrason
2010 Jón Kalman Stefánsson
2011 Bergsteinn Björgúlfsson
2012 Páll Helgason
2013 Ólafur Gunnarsson
2014 Kaleo
2015 Leikfélag Mosfellssveitar
2016 Greta Salóme Stefánsdóttir
2017 Davíð Þór Jónsson
2018 Steinþór Hróar Steinþórsson
2019 GDRN
Guðrún Ýr tekur við viðurkenningunni úr
höndum Bjarkar Ingadóttur formanns
menningar- og nýsköpunarnefndar og
Sólveigar Franklínsdóttur varaformanns.
Framkvæmdir við gatnagerð í Súluhöfða hafa staðið yfir í sumar.
Mikil eftirspurn hefur verið eftir lóðunum en þær eru nú klárar
til úthlutunar. Lóðirnar 19 eru allar skipulagðar fyrir nokkuð stór
einbýlishús. Lóðirnar eru með góðu útsýni og neðstar í hverfinu.
Eingöngu einstaklingum verður heimilað að sækja um lóðir og
getur hver umsækjandi einungis fengið einni lóð úthlutað. Lág-
marksverð fyrir lóðirnar er á bilinu 13,5-18 milljónir. Úthlutun
lóða samkvæmt úthlutunarskilmálum fer fram á grundvelli hæsta
tilboðs í hverja lóð fyrir sig og eru öll tilboð skuldbindandi.
Stefnt er að því að auglýsa 15 fyrstu lóðirnar á næstu vikum.
Á JAFNRÉ TTISDAG
MOSFEL LSBÆJAR.
fimmtudaginn 19. september 2019, kl. 14:30-17:30.
2019
DAGSKR Á
14:30-14:45
Ávarp
nefndar Mosfellsbæjar
14:45-15:15
Jafnréttisstofu
15:15-15:45
Háskóli Reykjavíkur
15:45-16:05
Kaffihlé
16:05-16:25
Fótbolti & fyrirmyndir
16:25-16:50
Fimleikasamband Íslands
16:50-17:15
CrossFit er feminísk
Völku og stofnandi fyrstu
17:15-17:30
Mosfellsbæjar 2019
Haraldur Sverrisson,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar
17:30
Dagskrárlok
Allir íbúar Mosfellsbæjar
jafnréttismál eru velkomnir!
sunnudagaskÓli
alla sunnudaga
kl. 13 í Lágafellskirkju
2. október hefst kyrrðarbæn í
lágafellskirkju og 12 spora starf
vinir í bata í safnaðarheimili
Ný íbúðagata við Súluhöfða 32-57
nýjum lóðum úhlutað
til hæstbjóðenda
lóðirnar eru á útsýnis-
stað við leirvoginn
Bónus opnar á nýjum
stað á laugardaginn
Bónus opnar nýja og glæsilega
verslun í Bjarkarholti 7-9 laugardag-
inn 14. september. Fjöldi opnunar-
tilboða verður í boði en verslunin
opnar kl. 10:00. Bónus hefur rekið
verslun í Kjarnanum í Mosfellsbæ
frá árinu 2000. „Nýja verslunin er
talsvert stærri en í Kjarnanum en
hér í Bjarkarholtinu erum við í um
1.600 fm. Búðin er bjartari og opnari
og við hlökkum til að flytja okkur
um set. Vöruvalið verður svipað en
það mun fara betur um allt, enda
vítt til veggja, segir Guðlaugur Gauti
rekstrarstjóri Bónuss. Í versluninni
verða átta sjálfsafgreiðslukassar auk
þriggja hefbundinna kassa.