Mosfellingur - 12.09.2019, Blaðsíða 33

Mosfellingur - 12.09.2019, Blaðsíða 33
Vonandi hafa allir notið sum- arsins og bæjarhátíðarinnar í faðmi fjölskyldu og/eða vina og náð að hlaða sig orku og jákvæðni fyrir veturinn. Mantran um það að „lifa og njóta“ hefur farið hátt á und- anförnum misserum og snýst hún ekki hvað síst um mik- ilvægi sáttar og þakklætis. Í stað þess að einblína á það sem við höfum ekki eigum við endilega að horfa til þess sem við höfum og vera þakklát fyrir það. Það er nefnilega svo ótrúlega margt sem við getum verið þakklát fyrir í lífinu eins og t.d. fyrir fólkið okkar, þak yfir höfuðið, sólskinið, hreina loftið (sem stundum er á mismunandi mikilli hreyfingu), mat á borð- um, fallegt landslag og svo mætti lengi telja. Hvað er þakklæti í raun? Í bók sinni Gæfuspor – gildin í lífinu segir Gunnar Hersveinn þakk- læti vera bæði innri upplifun og ytri tjáningu. Innra þakklætið lúti að því sem við erum, höfum, eigum og því sem kemur ekki fyrir okkur. Galdurinn felist í því að kunna að bera kennsl á það sem virðist sjálfsagt og læra að meta það mikils eins og t.d. lífið, heilsuna, frelsið, æskuna, ellina, fjölskylduna, vinina o.s.frv. Ytra þakk- læti lúti hins vegar að því sem aðrir láta okkur í té eins og t.d. sam- veru, viðurkenningu, virðingu, leiðsögn, góð orð, kærleik og samúð svo fátt eitt sé nefnt. Þakklæti bætir heilsuna Fjöldamargar rannsóknir sýna fram á að þakklæti bætir heilsu okkar. Sálfræðingurinn Robert A. Emmons hefur síðustu ár rannsakað áhrif þakklætis á fólk, sam- skipti, hamingju og heilsu. Niðurstöður hans sýna m.a. að það einfalda atriði að þakka markvisst og meðvitað einu sinni í viku leiðir til betri heilsu, meiri gleði og hamingju, betri svefns og samskipta, meiri ákafa og bjartsýni, meiri styrks og ákveðni, meiri ástund- unar líkamsræktar, meiri lífsánægju og er þá einungis talinn upp hluti þeirra góðu áhrifa sem þakklæti hefur á líf okkar og heilsu. Temjum okkur að þakka fyrir góðu hlutina í lífi okkar, hvort sem þeir eru stórir eða smáir, og virkjum fólkið í kringum okkar með í þessari vegferð til þakklætis, hamingju og heilbrigðis. Kærar þakkir fyrir lesturinn! Ólöf Kristín Sívertsen, lýðheilsufræðingur og verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér almennt utanumhald um starf klasans, kynningar- og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir klasann, umsjón með umsóknum um styrki, bókhald og fleira. Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á slóðinni www.heils vin.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Pálss n, stjórnarformaður Heilsuvinjar gegnum netfa gið jo @ans.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars næstkomandi. Heilsuvin í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í allt að 50% starf Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér almennt utanumhald um starf klasans, kynningar- og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir klasann, umsjón með umsóknum um styrki, bókhald og fleira. Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars næstkomandi. Heilsuvin í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í allt að 50% starf Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér almennt utanumhald um starf klasans, kynningar- og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir klasann, umsjón með umsóknum um styrki, bókhald og fleira. Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars næstkomandi. Heilsuvin í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í allt að 50% starf heilsuvin í mosfellsbæ Þakklæti bætir, hressir og kætir H e i l s u v i n í M o s f e l l s b æ e r h l u t a f é l a g í e i g u f y r i r t æ k j a o g e i n s t a k l i n g a í h e i l s u þ j ó n u s t u í M o s f e l l s b æ . S t a r f f r a m k v æ m d a s t j ó r a f e l u r í s é r a l m e n n t u t a n u m h a l d u m s t a r f k l a s a n s , k y n n i n g a r - o g m a r k a ð s s t a r f , ö f l u n n ý r r a h l u t h a f a f y r i r k l a s a n n , u m s j ó n m e ð u m s ó k n u m u m s t y r k i , b ó k h a l d o g f l e i r a . N á n a r i u p p l ý s i n g a r u m H e i l s u v i n e r a ð f i n n a á s l ó ð i n n i w w w . h e i l s u v i n . c o m . N á n a r i u p p l ý s i n g a r u m s t a r f i ð v e i t i r J ó n P á l s s o n , s t j ó r n a r f o r m a ð u r H e i l s u v i n j a r g e g n u m n e t f a n g i ð j o n @ a n s . i s . U m s ó k n i r s k u l u s e n d a r á n e t f a n g i ð h e i l s u v i n @ h e i l s u v i n . c o m f y r i r 3 . m a r s n æ s t k o m a n d i . H e i l s u v i n í M o s f e l l s b æ ó s k a r e f t i r a ð r á ð a f r a m - k v æ m d a s t j ó r a í a l l t a ð 5 0 % s t a r f heilsu hornið Ungmenn ráð VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja Auglýsum eftir ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára til að starfa með okkur í Ungmennaráði Mosfellsbæjar. Ungmennaráð er umræðu- og samstarfsvettvangur ungmenna á aldrinum 13 til 25 ára í sveitarfélaginu og er ráðgefandi um málefni er tengjast ungu fólki í umboði bæjarstjórnar. Frá stofnun ráðsins hafa verið í því níu ungmenni. Sex úr grunnskólum Mosfellsbæjar og þrír úr Framhaldsskóla Mosfellsbæjar. Á 695. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar var samþykkt að óska eftir fleiri ungmennum úr Mosfellsbæ í ráðið. Þar sem nemendur í FMOS hafa fasta þrjá fulltrúa í ráðinu auglýsum við núna eftir áhugasömu ungu fólki á aldrinum 16 til 25 ára sem ekki er í FMOS til að starfa með okkur í ungmennaráði veturinn 2019 – 2020. Við erum að leita að fólki sem býr í Mosfellsbæ, er í öðrum framhaldsskóla, á atvinnumarkaðnum eða án atvinnu. Áhugasamir hafið samband við Eddu Davíðsdóttur tómstundafulltrúa í gegnum netfangið edda@ mos.is eða í síma 5256700, fyrir 26. september. Hlökkum til að heyra í ykkur Núna er komið á þriðja ár sem Mosfellsbær hefur boðið starfs- mönnum sínum upp á fjölbreytta íþróttatíma. Ég er búin að fá að þróast með í þessu verkefni sem kennari og verð að segja að þetta er eitt skemmti- legasta framtak sem ég hef unnið að. Ég hef séð um tíma í sundi og sal þar sem við vinnum með ólíka þætti en samt líka að vissu leyti. Stoðkerfisvandamál eru einn algengasti kvillinn á vinnustöðum, í Evrópu hafa þau áhrif á milljónir launþega og kosta atvinnurekendur milljarða evra. Það hjálpar til við að bæta líf launþega að taka á stoðkerfisvandamálum en einnig er það skynsamlegt fyrir fyrirtæki. Vatnsleikfimi er frábær líkamsrækt þar sem unnið er með mótstöðu vatnsins sem veitir mjúkt álag á vöðva og liðamót, við þjálfum einnig upp styrk og þol og notum fá áhöld, það hentar fólki sem er með stoðkerfisvandamál að þjálfa sig í sundi en það það hefur áhrif á bak, háls, axlir, efri og í einhverjum tilvika neðri útlimi. Í tabata tímunum sem eru kenndir í sal erum við einmitt líka að þjálfa þol og styrk, þar er sveigj- anleikinn mikill þegar kemur að æfingum. Tímarnir hafa farið ágætlega af stað síðustu ár en vatnsleikfimin hefur verið vinsælust á meðal starfsmanna Mosfellsbæjar. Það væri frábært að sjá fleiri ný andlit næstu vikurnar og aldrei að vita nema við förum af stað með mætingaverðlaun á milli vinnustaða. Starfsmenn í Mosfellsbæ – Hlakka til að sjá ykkur! Þorbjörg Sólbjartsdóttir Íþrótta- og grunnskólakennari í Mosfellsbæ Unnið með stoðkerfisvandamál í vatnsleikfimi og tabata tímum Aðsendar greinar - 33 Þegar ég var strákur fór mamma með mig til heyrnarlæknis. Lík- lega var þetta háls- nef og eyrnalæknir en hans hlutverk var að kanna hvort heyrnin væri í lagi. Mömmu fannst ég nefnilega ekki heyra nógu vel. Niðurstaða læknisins var að það var lítið að heyrninni. Ég veit ekki til þess að mamma hafi gert neitt meira með heyrnina en ekki er ólíklegt að hún hafi talið mig vera með „valheyrn.“ Hún hafi talið mig einfaldlega heyra það sem ég vildi heyra. Málið var ekki alveg svo einfalt. Málið var að ég heyrði ekki í henni þegar hún kallaði á mig. Sama var upp á teningn- um þegar vinir mínir voru með mér. Við heyrðum ekki þegar mamma mín kall- aði á mig. Fleiri foreldrar hafa upplifað það sama. Í svona tilfellum er mögu- lega ekkert að barninu. Vandinn liggur mögulega í því hvernig fyrirmælunum er komið til barnsins. Andlega fjarverandi Skoðaðu hvar þú ert þegar þú gefur fyrirmæli og hvar barnið er þegar það á að heyra fyrirmælin. Ef þú ert í eldhús- inu og barnið í herberginu sínu, niður- sokkið í leik sínum, heyrir það einfald- lega ekki þótt þú hrópir á það. Þú ert of langt í burtu og barnið er með hugann við leik sinn og er í raun „andlega fjarverandi“. Það er lykilatriði í samskiptum foreldra og barns að skilaboð og fyrirmæli skili sér óhindrað. Það getur þýtt að foreldrið þurfi stundum að fara til barnsins til að ná athygli þess og jafnvel ná augnsambandi við barnið sitt svo öruggt sé að barnið hafi náð skila- boðunum. Það að for- eldrið stígi inn í heim barnsins hefur þar að auki þann ótvíræða kost að foreldrið sér hvað barnið er að gera og getur meira að segja sest niður í örskamma stund og rætt við barnið, spurt hvað það sé að gera, gefið barninu tækifæri til að tjá sig og örvað þannig málstöðvarnar. Þessi litla stund sem foreldrið gefur barninu sínu og þarf ekki að vera meira en 30 til 60 sekúndur fær barnið auk þess til að finna að það er mikilvægt. Það hugsar eða finnur ómeðvitað: „Pabbi eða mamma settist niður hjá mér og sýndi því áhuga sem ég var að gera.“ Einföld og skýr skilaboð Flestum börnum (og fullorðnum reyndar líka) finnst gott að fá fyrirvara svo þau séu ekki fyrirvaralaust tekin úr verkefninu sínu án þess að fá að klára. Gott er að láta barnið vita að eftir svo og svo margar mínútur þurfi það að stoppa eða þegar ákveðinn hlutur hef- ur gerst eigi það að stoppa. Það getur til dæmis átt við ef barnið er að horfa á sjónvarpsefni að það stoppi þegar þættinum lýkur. Til að vera viss um að fyrirmæli eða upplýsingar þínar komist örugglega til barnsins er góð aðferð að fara til barns- ins, snerta það létt til að ná örugglega athygli þess og segja skýrt: „Það er kominn matur. Komdu núna að borða.“ Ef foreldrinu finnst barnið ekki líklegt til að koma strax er tilvalið að standa hjá barninu þar til það leggur af stað með þér. Barnið þitt heyrir í þér þegar þú gefur einföld og skýr skilaboð. ________________________ Fjalar Freyr Einarsson, aga- og uppeldisráðgjafi www.agastjornun.is Heyrir barnið þitt hvað þú segir? UPPELDI

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.