Mosfellingur - 12.09.2019, Side 34

Mosfellingur - 12.09.2019, Side 34
Stekkjarflötin Við „týndum“ yngsta syni okkar í gær. Eða þannig. Hann stökk út úr húsi um miðjan dag, hafði verið að leika inni með vini sínum. Kallaði til okkar að þeir væru farnir út að hjóla. Allt í góðu lagi með það. En svo fór okkur að lengja eftir þeim vinunum. Þeir höfðu ekkert gefið upp um hvert leið lægi eða hvað þeir ætluðu að vera lengi. Skipulagður var leitarflokkur, við keyrðum um hverfið, löbbuð- um um nágrennið og heyrðum í foreldrum vina. Það skilaði litlu. Ég hjólaði síðan nokkrar leiðir sem ég hef hjólað með þeim týnda. Ég fann hann að lokum, skælbrosandi og glaðan, hoppandi á ærslabelgnum á Stekkjarflötinni. Þarna var frábær stemning, seinni partinn á sunnu- degi. Fullt af krökkum að leika sér í bland við fjölskyldur með minni börn. Allir í góðum fíling. Það var ótrúlega gaman að upplifa þetta, þessa góðu orku. Og mig langar að hrósa bæjaryfirvöldum fyrir að koma á fót lýðræðisverkefn- inu „Okkar Mosó“ en ærslabelgurinn vinsæli er einmitt tilkominn á Stekkjarflöt vegna þess að við, íbúar bæjarins, kusum hann þangað. Það er frábært að við fáum að taka þátt í að skapa umhverfi okkar í beinum kosningum og enn betra að það sem verður ofan á í kosn- ingunum sé notað svona mikið. Ég held að skíða- og brettaleiksvæðið í Ullarnesbrekku sem fékk líka góða kosningu verði tilbúið í vetur, hlakka sjálfur mikið til að prófa það. En aftur að týnt og fundið sögunni, við feðgar tókum rólegt og gott spjall um mikilvægi upplýsingagjafar og hjóluðum svo saman heim. Hann hafði gjörsam- lega týnt tímanum, það hafði verið svo gaman hjá þeim vinum að hjóla, stússast og svo hoppa á belgnum. Og er það ekki akkúrat það sem við erum alltaf að kalla eftir, að börnin okkar séu glöð úti að leika sér með vinum sínum. HeilSumolar Gaua - Heilsa og mannréttindi34 Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Þann 6. október 1982 var Rauði krossinn í Mosfellsbæ stofnaður í Hlégarði og fagnar því 37 ára af- mæli sínu um þessar mundir. 119 árum áður hafði Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) verið stofn- að og 56 árum eftir það, árið 1919 var Alþjóðasamband landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmán- ans stofnað. Burðarás hreyfingarinnar eru hugsjónirnar 7; mannúð, óhlutdrægni, hlutleysi, sjálfstæði, sjálfboðin þjónusta, eining og alheimshreyfing. Hvað þýða þessar hugsjónir eiginlega? Þær þýða það að við leitumst við að létta þjáningar fólks og koma í veg fyrir þær. Við verndum líf og heilsu einstaklinga og tryggjum að allir njóti þeirrar virðingar sem þeim ber. Við gerum ekki mun á milli fólks eftir þjóðerni þess, uppruna, trúarbrögðum, kyni, stétt eða stjórnmálaskoðunum. Við tökum ekki þátt í deilum vegna stjórn- mála, uppruna, trúarbragða eða hugmyndafræði. Við gætum þess ávallt að vera sjálfstæð svo grund- vallarhugsjónir séu okkar leiðarljós í öllum okkar gjörðum. Við virkj- um almenning til þess að dreifa þessum boðskap með okkur í formi sjálfboðinnar þjónustu. Við erum opin og reynum eftir fremsta megni að tryggja aðgengi allra að hreyfingunni. Við berum ábyrgð á því að koma til hjálpar þar sem okkar er þörf. Á Íslandi leggjum við upp úr því að bæta og efla íslenskt samfélag og bregðast við á neyðarstundu. Sé litið til grundvallarhug- sjóna hreyfingarinnar er eitt allra stærsta hlutverk okkar að standa vörð um mann- réttindi og virðingu samborgara okkar. Í því felst að nálgast nágranna okkar á jafn- ingjagrundvelli, tala gegn hatursorðræðu og fræða um fjölmenningu. Mosfellingar, Kjalnesingar og Kjósarbúar, við hvetjum ykkur til að sameinast okkur í grundvallarhugsjónum hreyfingarinnar og bjóða nýja íbúa velkomna og taka þeim sem fyrir eru með opnum örmum. Langi þig til að gerast sjálfboðaliði getur þú sótt um á heimasíðu Rauða krossins, www.raudikrossinn.is. Hafir þú ekki tíma má alltaf gerast Mannvinur. Margrét Lúthersdóttir Deildarstýra Rauða krossins í Mosfellsbæ Stöndum vörð um mannréttindi

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.