Mosfellingur - 12.09.2019, Qupperneq 34
Stekkjarflötin
Við „týndum“ yngsta syni okkar í gær. Eða þannig. Hann stökk út
úr húsi um miðjan dag, hafði verið
að leika inni með vini sínum. Kallaði
til okkar að þeir væru farnir út að
hjóla. Allt í góðu lagi með það. En
svo fór okkur að lengja eftir þeim
vinunum. Þeir höfðu ekkert gefið
upp um hvert leið lægi eða hvað þeir
ætluðu að vera lengi.
Skipulagður var leitarflokkur, við keyrðum um hverfið, löbbuð-
um um nágrennið og heyrðum í
foreldrum vina. Það skilaði litlu. Ég
hjólaði síðan nokkrar leiðir sem ég
hef hjólað með þeim týnda. Ég fann
hann að lokum, skælbrosandi og
glaðan, hoppandi á ærslabelgnum
á Stekkjarflötinni. Þarna var frábær
stemning, seinni partinn á sunnu-
degi. Fullt af krökkum að leika sér
í bland við fjölskyldur með minni
börn. Allir í góðum fíling.
Það var ótrúlega gaman að upplifa þetta, þessa góðu orku. Og mig
langar að hrósa bæjaryfirvöldum
fyrir að koma á fót lýðræðisverkefn-
inu „Okkar Mosó“ en ærslabelgurinn
vinsæli er einmitt tilkominn á
Stekkjarflöt vegna þess að við, íbúar
bæjarins, kusum hann þangað.
Það er frábært að við fáum að taka þátt í að skapa umhverfi okkar
í beinum kosningum og enn betra
að það sem verður ofan á í kosn-
ingunum sé notað svona mikið. Ég
held að skíða- og brettaleiksvæðið í
Ullarnesbrekku sem fékk líka góða
kosningu verði tilbúið í vetur, hlakka
sjálfur mikið til að prófa það.
En aftur að týnt og fundið sögunni, við feðgar tókum
rólegt og gott spjall um mikilvægi
upplýsingagjafar og hjóluðum svo
saman heim. Hann hafði gjörsam-
lega týnt tímanum, það
hafði verið svo gaman
hjá þeim vinum
að hjóla, stússast
og svo hoppa á
belgnum. Og er
það ekki akkúrat
það sem við erum
alltaf að kalla eftir,
að börnin okkar séu
glöð úti að leika
sér með vinum
sínum.
HeilSumolar Gaua
- Heilsa og mannréttindi34
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Þann 6. október 1982 var Rauði
krossinn í Mosfellsbæ stofnaður í
Hlégarði og fagnar því 37 ára af-
mæli sínu um þessar mundir.
119 árum áður hafði Alþjóðaráð
Rauða krossins (ICRC) verið stofn-
að og 56 árum eftir það, árið 1919
var Alþjóðasamband landsfélaga
Rauða krossins og Rauða hálfmán-
ans stofnað. Burðarás hreyfingarinnar eru
hugsjónirnar 7; mannúð, óhlutdrægni,
hlutleysi, sjálfstæði, sjálfboðin þjónusta,
eining og alheimshreyfing.
Hvað þýða þessar hugsjónir eiginlega?
Þær þýða það að við leitumst við að létta
þjáningar fólks og koma í veg fyrir þær.
Við verndum líf og heilsu einstaklinga og
tryggjum að allir njóti þeirrar virðingar
sem þeim ber. Við gerum ekki mun á milli
fólks eftir þjóðerni þess, uppruna,
trúarbrögðum, kyni, stétt eða
stjórnmálaskoðunum. Við tökum
ekki þátt í deilum vegna stjórn-
mála, uppruna, trúarbragða eða
hugmyndafræði. Við gætum þess
ávallt að vera sjálfstæð svo grund-
vallarhugsjónir séu okkar leiðarljós
í öllum okkar gjörðum. Við virkj-
um almenning til þess að dreifa þessum
boðskap með okkur í formi sjálfboðinnar
þjónustu. Við erum opin og reynum eftir
fremsta megni að tryggja aðgengi allra að
hreyfingunni. Við berum ábyrgð á því að
koma til hjálpar þar sem okkar er þörf.
Á Íslandi leggjum við upp úr því að bæta
og efla íslenskt samfélag og bregðast við á
neyðarstundu. Sé litið til grundvallarhug-
sjóna hreyfingarinnar er eitt allra stærsta
hlutverk okkar að standa vörð um mann-
réttindi og virðingu samborgara okkar. Í
því felst að nálgast nágranna okkar á jafn-
ingjagrundvelli, tala gegn hatursorðræðu
og fræða um fjölmenningu.
Mosfellingar, Kjalnesingar og Kjósarbúar,
við hvetjum ykkur til að sameinast okkur í
grundvallarhugsjónum hreyfingarinnar
og bjóða nýja íbúa velkomna og taka þeim
sem fyrir eru með opnum örmum.
Langi þig til að gerast sjálfboðaliði getur
þú sótt um á heimasíðu Rauða krossins,
www.raudikrossinn.is. Hafir þú ekki tíma
má alltaf gerast Mannvinur.
Margrét Lúthersdóttir
Deildarstýra Rauða krossins í Mosfellsbæ
Stöndum vörð um mannréttindi