Mosfellingur - 12.09.2019, Page 36

Mosfellingur - 12.09.2019, Page 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Styrmir Jóhannsson fæddist þann 1. ágúst 2019. Hann var 3.678 g og 51 cm. Foreldrar hans eru Vera Ósk Alberts- dóttir og Jóhann Eymundsson. Í eldhúsinu Haustið er mætt Eftir Í túninu heima kom fyrsta haust- lægðin með smá skell og eftir svona Mallorca-veður þá var eins og maður hefði aldrei upplifað rok og rigningu á landinu kalda. Eftir skemmtilega „Túns“ helgi hefur haustið mætt með roki og rigningu að vanda og þrátt fyrir roksölu í sólar- áburði og og flugnaspreyi þetta sum- arið þá mætir veðurblíðan og minnir okkur á hvar á hnettinum við búum. Ég vona að allir sveitungar hafi notið bæjarhátíðarinnar og hún verðu r flottari með hverju árinu. Ég varð nú ekki svo frægur þetta árið að mæta á Pallaballið en ég fékk að sjá Palla og glimmergimpin á bæjartorginu og haf ði sá gamli gaman af. En með haustinu koma líka jákvæðir tímar og það þýðir að handboltinn er byrjaður að rúlla og þegar þessi pistill er skrifaður þá vorum við að klára að vinna KA í fyrsta leik tímabilsins og okkar strákar fara vel af stað. Ekki var nú heldur dónalegt að strákarnir okka r í Inkasso deildinni rassskelltu Gróttu um helgina og sýndu eins og svo oft í sumar að við eigum fullan rétt á að ver a í þessari deild og við viljum ekki niður . Nei takk. En þótt sumarið hafi verið lygilega gott hvað veður varðar þá held ég að allir Mosfellingar geti verið sammála um að það er eitt sem við munum ekk i sakna í vetur. Það er andskotans lús- mýið ... Fari það kvikindi fjandans til, og undirritaður mun ekki sakna þess að klóra sig til blóða eftir svívirðilegar árásir liðinnar nætur. Það var ekki fyr r en eftir læknaheimsókn og pilluát að é g kunni ráð við ófétunum en það er að e f ég tek ofnæmislyf þá þá klæjar mig ek ki svo mikið að ég get nánast átt daginn lausan við klór og óþægindi. En hvað um það, nú á næstu vikum ætla strákarnir okkar í Inkasso að tryggja áframhaldandi veru þar og strákarnir okkar og stelpur ætla heldu r betur að rífa kjaft í handboltanum í vetur. Áfram Afturelding! Tóta og Enes skora á Rut Sigurðard. og Amir Mulamuhic að deila með okkur næstu uppskrift Tóta og Enes deila með okkur einfaldri, fljótlegri og æðislega góðri pastauppskrift sem þau fá sér oft um helgar. Pasta tagliatelle með grænu pestó, bökuðum kirsuberjatómötum, smjörsteiktum sveppum, grænum aspas og hráskinku. Stundum bætum við kjúklinga- lundum við og gerir það meiri lukku hjá strákunum okkar. Innihald: • Ferskt tagliatelle (kaupum í Bónus eða Krónunni, við erum ekki farin að búa til pasta sjálf) • Kirsuberjatómatar • Sveppir • Grænt pestó (pestóið frá Sóma er ljómandi gott) • Grænn aspas • Hráskinka • Parmesan Aðferð: Ofninn hitaður í 180-200°C. Kirsuberjatóm- atar skornir í tvennt og settir í eldfast mót. Olíu og salti stráð yfir. Bakaðir í ofni í um 15 mín., mega vera lengur, verða bara betri svo framarlega sem þeir brenna ekki. Aspas vafinn með hráskinku, settur í eldfast fat og inn í ofn í um 10-15 mín. Sveppir smjörsteiktir á pönnu. Tagliatelle soðið (tekur um 3 mín. að sjóða ferskt pasta). Vatninu hellt af og pestóinu blandað saman við pastað. Pastað sett í fat, tómatar og sveppir saman við og parmesan stráð yfir að vild. Aspasinn borinn fram með og kjúklingurinn ef hann er hafður með. Við veljum alltaf að hafa kjúklingalundir með þessum rétti því þær taka svo stuttan tíma að eldast í ofni og smellpassa því við tímann sem tekur að útbúa þetta. Vonandi verðið þið jafn ánægð og við með þennan rétt. Verði ykkur að góðu. Pasta tagliatelle Högni snær www.kliddi.blog.is hjá TóTu og enes heyrsT hefur... ...að stefnt sé að því að opna nýjan sportbar í næsta mánuði í gamla Arionbankahúsinu sem hefur fengið nafnið Barion. ...að Ólafur Ragnar hafi mætt í götugrill í Reykjahverfinu Í túninu heima. ...að nýja Bónusverslunin í miðbænum sé að verða tilbúin og verði opnuð á laugardaginn. ...að fyrirliði Aftureldingar í fótbolt- anum, Loic Ondo, hafi verið rekinn en hann þótti taka lítinn þátt í fjáröflunum félagsins með liðinu. ...að margir virðist áhugasamir um að taka við veitingarekstri á Blik í golfskálanum. ...að búið sé að opna bæði kjúklinga- stað og sushistað í Krónunni. ...að nýir eigendur séu að taka við Mosó-Grill í Háholtinu. ...að Sorpa, sem er í eigu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sé farin rúm- lega milljarð fram úr fjárhagsáætlun m.a. vegna framkvæmda í Álfsnesi og Gufunesi. ...að fjárréttir fari fram í Hraðastaða- rétt og Kjósarrétt á sunnudaginn. ...að nýtt aðkomutákn sé komið upp við bæjarmörk Mosfellsbæjar og Reykjavíkur. ...að fjölskyldutímarnir að Varmá sem opnir eru öllum á sunnudögum séu farnir aftur af stað kl. 10:30-12:00. ...að Svanni á Pizzabæ hafi unnið Kryddbrauðskeppnina á Blackbox Í túninu heima. ...að KK verði með tónleika í Hlégarði sunnudaginn 29. september. ...að handknattleiksmaðurinn Elvar Ásgeirsson hafi skorað 6 mörk í fyrsta heimaleik Stuttgart í þýsku búndeslígunni. ...að síðustu heimleikirnir í fótbolt- anum séu að bresta á, en strákarnir mæta Víkingi Ó. á laugardaginn og stelpurnar taka á móti FH föstudag- inn 20. september. ...að stelpurnar hefji leik í Olís-deild- inni í Vestmannaeyjum um helgina. ...að Mosfellingurinn Gyða Margrét hafi átt plötu vikunnar, Andartak, á Rás 2 í ágúst. ...að Begga Helga ætli að halda upp á fimmtugsafmælið sitt um helgina. ...að verið sé að fara auglýsa nýju lóðirnar í Súluhöfða til úthlutunar til hæstbjóðenda. ...að engar fótboltaæfingar verði inni í íþróttahúsi í vetur en æfingar munu færast í knatthúsið í næsta mánuði. ...að fullorðinsfimleikarnir séu að byrja aftur hjá Aftureldingu í vetur. ...að kvennaboltinn sé að skipuleggja októberfest í Harðarbóli 5. október. ...að nú sé hægt að fá lánuð kökuform fyrir barnaafmæli í Bókasafninu. ...að Hallur og Bryndís Bessa hafi gift sig í Las Vegas á dögunum. mosfellingur@mosfellingur.is - Heyrst hefur...36

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.