Morgunblaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. M A Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  102. tölublað  107. árgangur  FYRSTI YFIRMAÐUR KNATTSPYRNU- MÁLA HJÁ KSÍ AÐEINS KARLASLAGARAR FYRSTA AFSÖGN KEISARA Í JAPAN Í TVÆR ALDIR TÓNLEIKAR GRADUALE NOBILI 29 NARUHITO KOM TIL RÍKIS 12ARNAR ÞÓR 24 Vesturíslensk hjón voru svikin af óprúttnum aðila eftir að hafa svarað fasteignaauglýsingu fyrir íbúð á Hringbraut 65 í Reykjavík. Hjónin sem vilja ekki koma fram undir nafni lögðu fram tryggingarfé fyrir leigu- íbúðinni gegnum heimasíðu sem þau töldu að væri á vegum Airbnb. Heimasíðan er afar lík heimasíðu leigurisans Airbnb en við nánari skoðun sést að um falsaða síðu er að ræða. Samskonar svindl átti sér einnig stað fyrir leiguíbúð í Blá- hömrum í Grafarvogi. Einstaklingur undir sama nafni reyndi þar að svíkja fé út úr 29 ára gömlum ís- lenskum karlmanni. Þá tapaði Ada Szuba, pólsk kona, 400.000 kr. á sama svindlara sem gengur undir nafninu Urha Polona. Svindlarinn segist vera einstæð móðir búsett í Berlín. Hún segist hafa eignast íbúð- irnar eftir skilnað. Þá þarf að borga tryggingu áður en hún flýgur til Ís- lands til að sýna íbúðirnar. Grunlaus fórnarlömb telja tryggingarféð í öruggum höndum Airbnb. »4 mhj@mbl.is Leigusvindl á Íslandi  Svikahrappur notar falsaða Airbnb-síðu til að svíkja fé Svik Heimasíðan sem svindlarinn notar er afar lík heimasíðu Airbnb. Baráttudagur verkalýðsins verður haldinn hátíð- legur um land allt í dag, 1. maí. Alþýðusambandi Ís- lands hafa borist tilkynningar um 1. maí hátíðar- höld í meira en 30 sveitarfélögum á landinu. Í Reykjavík hefjast hátíðarhöld klukkan 13 þegar safnast verður saman við Hlemm fyrir kröfugöngu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hátíðarhöld verða um allt land Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við treystum því að ríkið vinni að því að fá skipið heim og Vegagerðin klári þessar viðræður fljótt og vel,“ segir Íris Róberts- dóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, um þær deilur sem uppi eru á milli Vegagerð- arinnar og pólsku skipasmíðastöðvarinnar Crist um loka- uppgjör og af- hendingu nýja Herjólfs. Hún seg- ir að Eyjamenn sé farið að lengja eft- ir skipinu. Ekki fást neinar upplýs- ingar um gang við- ræðnanna. Nýja skipið átti fyrir löngu að vera komið í rekstur. Það er grunn- ristara en gamli Herjólfur og hefði væntanlega getað notað Landeyja- höfn fyrr en sá eldri. Dýpkun hefur gengið verr en undanfarin ár og hefur skipið ekki enn getað notað ferjuhöfnina og orðið að sigla til Þorlákshafnar. Raunar fer að styttast í breytingar því rekstrarfélag Herjólfs boðar að það stefni að því að hefja siglingar þangað á morgun. Það er þó háð dýpi og veðri. Tekjutap vegna afbókana Dráttur á opnun Landeyjahafnar veldur íbúum og fyrirtækjum í Vestmannaeyjum miklum vandræðum. Fyrirtæki í ferða- þjónustu verða fyrir tekjutapi vegna af- bókana. Ferðamenn koma ekki fyrr en siglt er úr Landeyjahöfn. „Hver dagur skiptir okkur máli,“ segir Berglind Sig- marsdóttir, veitingamaður og formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja. Hver dag- ur skiptir öllu máli  Eyjamenn farið að lengja eftir nýja Herjólfi Herjólfur » Rekstrarfélag Herjólfs tók við rekstrinum af Eimskip 30. mars. » Stefnt er að fjölgun ferða þegar siglingar hefjast í Land- eyjahöfn.  Hraðbankar sem bjóða bæði upp á úttektir og innlagnir eru orðnir algengir og hafa almennt reynst vel, bæði hér á landi og erlendis. Viðskiptavinur sem ætlaði að leggja peninga inn á reikning í Ar- ion banka á þann hátt lenti þó illa í því þegar hraðbankinn hélt eftir um 400 þúsund krónum en greindi frá mistökum við innlagningu á reikning. Var viðkomandi tjáð að gera þyrfti upp hraðbankann, sem gæti tekið nokkra daga, til þess að hægt yrði að nálgast peningana. Arion banki vinnur nú að því að breyta verklagi og uppfæra hug- búnað hraðbankanna til þess að geta leyst slík vandamál strax. Þetta sé þó fylgifiskur þessarar tækni og þekkt hjá öllum bönkum sem hana nýta, hvort sem er hér á landi eða erlendis. »6 400 þúsund krónur fastar í hraðbanka Hraðbankar Þeir bjóða nú margir upp á víðtækari þjónustu en áður þekktist.  Nauðsynlegt er að þátttaka launafólks í starfi verkalýðs- félaga verði meiri. Þetta seg- ir Guðbjörg Kristmunds- dóttir, nýr for- maður Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. Aðeins tæp 8% um 5.000 félagsmanna þar tóku þátt í atkvæðagreiðslu um lífskjarasamn- inginn sem var samþykktur af um 80% þeirra sem greiddu atkvæði. „Stéttarfélögin þurfa að beita sér á miklu fleiri sviðum í samfélaginu en verið hefur,“ segir Guðbjörg. »10 Þátttaka verði meiri Guðbjörg Kristmundsdóttir MÆtlar engan enda að taka »2 Á ársfundi VIRK, starfsendurhæf- ingarsjóðs, kom fram að flestir sem leita til sjóðsins glíma við flók- inn og margþættan vanda en 80% eiga við geðræn vandamál að stríða og/eða stoðkerfisvandamál. 31% fólks sem sækir þjónustu hjá sjóðinum gerir það vegna áfalls og 30% vegna kulnunar í starfi. Á fundinum kom jafnframt fram að aldrei hafi fleiri leitað til og út- skrifast frá VIRK. Árangur starf- seminnar er umtalsverður á árinu en 74% þeirra 1.346 einstaklinga sem sóttu þjónustuna í fyrra fóru aftur á vinnumarkaðinn eða í nám. Dýrt er fyrir samfélagið að missa fólk af vinnumarkaði en samkvæmt útreikningum Talna- könnunar er meðalávinningur á einstakling sem fer aftur á vinnu- markað eftir útskrift frá VIRK um 12,7 milljónir króna. Ávinningur starfsemi VIRK árið 2018 er sam- kvæmt útreikningum um 17,2 milljarðar króna. 14.972 einstak- lingar hafa nú fengið þjónustu á vegum VIRK frá 2008. » 14 Áfall og kulnun algengasti vandinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.