Morgunblaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 32
Með Punktum og peningum
getur þú nýtt Vildarpunkta
Icelandair upp í hvaða flug sem
er. Líttu inn á vefinn okkar og
lækkaðu verðið á ferðinni þinni.
airicelandconnect.is
Settu punktinn
yfir ferðalagið
Porcelain souls nefnist sýning sem
opnuð hefur verið í Norræna hús-
inu. Byggist hún á bók eftir græn-
lenska listamanninn Inuuteq
Storch. Á sýningunni deilir lista-
maðurinn myndum og bréfa-
samskiptum vina sinna og fjöl-
skyldu frá árunum 1960-1980. Með
því vill hann gefa fólki innsýn í það
hvernig vinir hans og fjölskylda
upplifðu það að búa á Grænlandi á
þessum árum, samband þeirra við
náttúruna og hvert annað.
Innsýn í líf Grænlend-
inga í máli og myndum
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 121. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Selfoss vann Val í framlengdum há-
spennuleik liðanna í fyrstu umferð
undanúrslita Íslandsmóts karla í
handknattleik á Selfossi í gær-
kvöld, 36:34, í leik þar sem Haukur
Þrastarson skoraði 14 mörk fyrir
Selfoss-liðið. Haukar lögðu ríkjandi
Íslandsmeistara ÍBV, 35:31, á Ás-
völlum. Vinna þarf þrjá leiki til þess
að komast í úrslit. »26, 27
Selfoss og Haukar
hrepptu vinning
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Valur lét ekki nægja að vinna Ís-
landsmótið heldur varð einnig
deildar- og bikarmeistari. Ekki er
því neinn vafi á því að liðið var það
sterkasta á Íslandi í vetur,“ segir
m.a. í fréttaskýringu um magnaðan
árangur kvennaliðs Vals í hand-
knattleik á nýliðnu keppnistímabili.
Valsliðið var sannfær-
andi í allan vetur og
tapaði aðeins þremur
leikjum af tuttugu
og einum í deilda-
keppninni. »25
Ekki neinn vafi að Val-
ur var sterkasta liðið
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Betur fór en á horfðist eftir að 10.
bekkur á Þórshöfn tapaði ferðasjóði
sínum í gjaldþroti WOW air en
skólaferðalagið hafði verið stað-
greitt til flugfélagsins rétt fyrir
gjaldþrot þess.
„Við vorum mjög pirruð og sár
þegar það leit út fyrir að við kæm-
umst ekki í ferðina sem við vorum
búin að eyða svona löngum tíma í að
safna fyrir. Svo kom frétt um málið í
Morgunblaðinu og við fengum rosa-
lega góð viðbrögð – algjörlega óvænt
en auðvitað frábær,“ sögðu krakk-
arnir í 10. bekk. Í kjölfar fréttarinn-
ar höfðu ótrúlega margir samband
við Grunnskólann á Þórshöfn og
vildu hjálpa þessum krökkum sem
misstu fimm ára söfnunarfé sem
ætlað var í skólaferðalag þeirra til
Tenerife.
„Viðbrögð almennings við þessum
fréttaflutningi voru stórkostleg og
hafði fólk samband að fyrra bragði
og vildi hjálpa til svo nemendur
kæmust í útskriftarferð,“ sagði Ás-
dís Hrönn Viðarsdóttir skólastjóri.
„Bæði ég og annað starfsfólk skól-
ans vorum hreinlega með tárin í
augunum yfir gjafmildi og vænt-
umþykju fólks.“
Hugmynd að opnun styrktar-
reiknings hafi í raun komið frá al-
menningi. „Eftir opnun hans létu
viðbrögðin ekki á sér standa, stórar
og smáar upphæðir bárust og velvilji
fólks var ótrúlegur,“ sagði Ásdís og
á einni viku náðist að safna fyrir
nýrri ferð með þessari góðu hjálp frá
fólki og fyrirtækjum víða um landið.
Gefendur voru af ýmsu tagi, bæði
fólk með tengsl til Þórshafnar og
einnig bláókunnugt fólk og fyrirtæki
sem vildu rétta hjálparhönd. Nefndu
flestir að bestu þakkirnar væru stað-
festing á að ungmennin hefðu komist
í sitt útskriftarferðalag, sem þau
sannarlega gerðu.
„Kærar þakkir til ykkar allra“
„Þetta er frábært, við erum búin
að fara í dýra- og skemmtigarða,
vatnsrennibraut og Kínabúðir þar
sem úrvalið er stjarnfræðilegt! Við
viljum þakka öllum sem styrktu okk-
ur og einnig Heimsferðum sem
sýndu skjót viðbrögð og gerðu ferð-
ina okkar að veruleika, kærar þakkir
til ykkar allra, við förum öll glöð og
vel „tönuð“ inn í síðasta mánuðinn í
grunnskólanum,“ sögðu alsælir ung-
lingar á Tenerife.
Á þessum síðustu metrum grunn-
skólagöngu á Þórshöfn hafa krakk-
arnir upplifað að veröldin er fallvölt
og viðskiptaheimurinn viðsjáll en
það sem upp úr stendur er að góð-
vild og hjálpsemi finnst einnig víða.
Tenerife Alsælir unglingar í 10. bekk í Grunnskólanum á Þórshöfn í útskriftarferðinni sem varð að veruleika.
Ljúka grunnskólanum
himinsæl og sólbrún
Skólaferðalag 10. bekkjar á Þórshöfn varð að veruleika