Morgunblaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 24
KSÍ
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Það er margt spennandi við þetta
starf. Eitt af því er að fá tækifæri til
þess að móta starfið að nokkru
leyti,“ sagði Arnar Þór Viðarsson í
samtali við Morgunblaðið í gær eftir
að formlega var tilkynnt um ráðn-
ingu hans í nýtt starf hjá Knatt-
spyrnusambandi Íslands, KSÍ, yfir-
maður knattspyrnumála. Starfið var
eitt helsta tromp Guðna Bergssonar
þegar hann sóttist fyrst eftir kjöri
sem formaður KSÍ fyrir rúmum
tveimur árum.
Arnar Þór er 41 árs gamall uppal-
inn FH-ingur en lék lengst af sínum
atvinnumannsferli í fótbolta í Nor-
egi, Hollandi og í Belgíu frá 1997 til
2014. Hann á að baki 52 A-landsleiki
og hefur síðustu ár verið við þjálfun
hjá Lokeren í Belgíu þar sem hann
var lengi vel leikmaður.
Ráðning Arnars hafði talsverðan
aðdraganda. Hann segist ekki hafa
leitt hugann að því fyrr en fyrir
nokkrum mánuðum. Hann hafi verið
í starfi hjá Lokeren í Belgíu sem síð-
an varð breyting á. Í aðdraganda
ráðningar Arnars Þórs sem þjálfara
U21 árs landsliðsins, en ekki síst eft-
ir að hann var ráðinn, hafi hann oft
rætt við Guðna og þeir velt upp hug-
myndum hvernig þeir sæju starf
yfirmanns knattspyrnumála fyrir
sér.
„Ég verð í tveimur hlutverkum.
Þar á ofan mun starf yfirmanns
knattspyrnumála skiptast í tvennt.
Annars vegar verður starfið í kring-
um öll yngri landsliðin hjá KSÍ, það
er að segja skipulagning og vinna í
kringum stefnumótun fyrir þau.
Þess vegna verðum við að fara í
vinnu til þess að sjá til þess að sem
flest af okkar efnilegasta knatt-
spyrnufólki af yngri kynslóðinni
verði A-landsliðskonur og -karlar í
framtíðinni.
Hinsvegar sé ég starfið þannig
fyrir mér að ég vinni mikið með að-
ildarfélögum KSÍ. Aðildarfélögin
hafa og eru að búa til landsliðsfólkið
okkar. Ég verð tilbúinn að veita fé-
lögunum alla þá aðstoð sem þau vilja
þiggja af mér. Þess vegna verð ég út
um allt í þessu starfi, á völlunum að
ræða við fólk. Ég er líka tilbúinn að
sætta mig við það ef menn vilja ekki
þiggja aðstoð mína. Við ætlum ekki
að þröngva aðstoð upp á félögin,“
segir Arnar Þór.
„Við viljum og ætlum að fara út í
félögin og bjóða þeim aðstoð við
skipulagningu eða hvað annað sem
þau telja sig vanta. Ég er undir það
búinn að lenda á veggjum og gera
mistök á leiðinni,“ sagði Arnar Þór.
Auðveldast að gera ekki neitt
Knattspyrnuhreyfingin hefur átt
mikilli velgengni að fagna um langt
árabil sem hefur endurspeglast hvað
best í þátttöku A-landsliða karla og
kvenna í lokakeppni stórmóta á síð-
ustu árum. Arnar Þór segir mikil-
vægt að þrátt fyrir að vel gangi þá
verði menn að vera óhræddir að
stíga næsta skref fram á við til að
viðhalda velgengninni. „Það er auð-
veldast að sitja úti í horni og halda
að árangurinn verði til af sjálfu sér
eða að það haldi áfram að ganga vel
af því að það hefur verið raunin
undanfarin ár. Nú er hinsvegar lag
að gera enn betur en gert hefur ver-
ið,“ sagði Arnar Þór.
Að mati Arnars Þórs er mikið
starf óunnið hér á landi í afreks-
þjálfun yngra knattspyrnufólks.
Grasrótarstarfið sé gott á meðal fé-
laganna. „Afreksþjálfun meðal yngri
iðkenda er nánast ekki til en ég veit
að félögin vilja stíga skref í þá átt.
Það sem ég á við þegar ég segi að
grasrótin sé sterk þá á ég við sam-
fellu í skólastarfinu og æfingum
yngstu flokkanna. Allir sem vilja æfa
fótbolta geta það. Hinsvegar þurfum
við að horfa betur til þeirra sem
skara framúr í fótbolta eins og ann-
ars staðar í lífinu. Þess vegna verð-
um við að tryggja að þeim sem eru
betri í fótbolta verði sinnt aðeins
betur en nú er gert,“ sagði Arnar
Þór.
Mikið hefur verið rætt og ritað um
að Arnar Þór verði í þessu nýja
starfi yfirmaður landsliðsþjálfara
karla og kvenna. Arnar Þór undir-
strikar að svo verði alls ekki. „Það
væri út í hött ef svo væri. Ég verð til
aðstoðar og ráðgjafar fyrir A-
landsliðsþjálfarana ef þeir óska eftir
því. Landsliðsþjálfarar A-liðanna
verða að fá að sinna sínu starfi eins
og þeir vilja. Það gengur ekki að fyr-
ir ofan þá sé einhver maður að fjar-
stýra þeim.
Starf mitt verður að hluta til fólgið
í að móta yngri landsliðin upp að 21
árs aldri. Mitt starf snýst meðal ann-
ars og fremst um að búa til sem
flestar landsliðsstelpur og -stráka
fyrir framtíðina til að koma í hend-
urnar á A-landsliðsþjálfurunum,“
sagði Arnar Þór Viðarsson, nýráðinn
yfirmaður knattspyrnumála hjá
KSÍ.
Snýst um framtíðina
Yfirmaður knattspyrnumála KSÍ
ekki yfirfrakki A-landsliðsþjálfara
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Yfirmaður Arnar Þór Viðarsson segir að stór hluti af starfinu verði að
hjálpa til við að finna og undirbúa landsliðsfólk framtíðarinnar.
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019
Mjólkurbikar karla
Bikarkeppni KSÍ, 32ja liða úrslit:
Keflavík – Kórdrengir ............................ 1:0
Tómas Óskarsson 18.
Grindavík – Afturelding......................... 4:1
Aron Jóhannsson 17., 86., Josip Zeba 67.,
Patrick N’Koyi 85. – Alexander Aron Da-
vorsson 33.
Ægir – Þróttur R ..................................... 0:4
Aron Þórður Albertsson 57., Daði Bergs-
son 60., Hreinn Ingi Örnólfsson 65., Gústav
Kári Óskarsson 80.
Fram – Njarðvík ............................. (frl.) 1:3
Helgi Guðjónsson 90.(víti) – Stefán Birgir
Jóhannesson 8., 101., Andri Gíslason 115.
Rautt spjald: Marcus Vinicius Mendes
(Fram) 90.
ÍR – Fjölnir ............................................... 1:3
Ágúst Freyr Hallsson 67. – Guðmundur
Karl Guðmundsson 17., 88., Jóhann Árni
Gunnarsson 63.
Meistaradeild karla
Undanúrslit, fyrri leikur:
Tottenham – Ajax.................................... 0:1
Donny van de Beek 15.
England
B-deild:
Millwall – Bristol City.............................. 1:2
Staða efstu liða:
Norwich 45 26 13 6 91:56 91
Sheffield Utd 45 26 10 9 76:39 88
Leeds 45 25 8 12 71:47 83
WBA 45 23 11 11 86:59 80
Aston Villa 45 20 16 9 81:59 76
Derby 44 19 13 12 65:52 70
Middlesbro 45 19 13 13 47:40 70
Bristol City 45 19 12 14 58:52 69
Sheffield Wed. 45 16 16 13 59:60 64
Norwich og Sheffield United hafa tryggt
sér sæti í úrvalsdeildinni.
Leeds, WBA og Aston Villa fara í umspil
um eitt sæti en fjórða liðið verður Derby,
Middlesbrough eða Bristol City.
Rotherham, Bolton og Ipswich eru fallin
en Luton og Barnsley eru komin upp í B-
deildina í staðinn. Portsmouth, Sunderland
og Charlton fara í umspil um eitt sæti
ásamt Doncaster eða Peterborough.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 32 liða úrslit:
Ásvellir: KÁ – Víkingur R ........................ 14
Húsavíkurv.: Völsungur – Mídas ............. 14
Kórinn: HK – Fjarðabyggð ...................... 14
Fífan: Augnablik – ÍA ............................... 14
Würth-völlur: Fylkir – Grótta.................. 14
Alvogen-völlur: KR – Dalvík/Reynir ....... 15
Sindravellir: Sindri – KA.......................... 16
Boginn: Magni – Breiðablik ..................... 16
Hásteinsvöllur. ÍBV – Stjarnan ............... 16
Origo-völlur: Valur – FH ..................... 16.30
HANDKNATTLEIKUR
Umspil karla, annar úrslitaleikur:
Digranes: HK – Víkingur (0:1)................. 16
Í DAG!
Hollensku meistararnir Ajax eiga
góða möguleika á að komast í úr-
slitaleik Meistaradeildar Evrópu í
fyrsta skipti í 23 ár eftir útisigur á
Tottenham, 1:0, í fyrri viðureign
liðanna í London í gærkvöld.
Donny van de Beek skoraði sig-
urmarkið strax á 15. mínútu og
Ajax hélt fengnum hlut af nokkru
öryggi eftir það. Liðið átti stang-
arskot í seinni hálfleiknum og var
þar hársbreidd frá því að bæta við
forskotið. Þar með var þriðji útisig-
urinn í röð í útsláttarkeppninni að
veruleika en Hollendingarnir unnu
bæði Real Madrid og Juventus á úti-
völlum í 16- og 8-liða úrslitum.
Ajax varð Evrópumeistari 1971,
1972, 1973 og 1995 og tapaði úr-
slitaleiknum 1996 fyrir Juventus.
Ajax tapaði líka sínum fyrsta úr-
slitaleik árið 1969, gegn AC Milan.
Seinni leikur liðanna fer fram í
Amsterdam á miðvikudaginn í
næstu viku.
Í kvöld mætast Barcelona og
Liverpool í fyrri leiknum í hinu
undanúrslitaeinvíginu en viðureign
þeirra fer fram á Camp Nou í
Barcelona. vs@mbl.is
Biðin langa á enda?
AFP
Skoraði Donny van de Beek hjá Ajax í baráttu við Danny Rose.
Helena Sverrisdóttir, landsliðskona
í körfuknattleik, tilkynnti í gær að
hún hefði skrifað undir nýjan samn-
ing við Val og yrði því með liðinu
næstu tvö keppnistímabil en samn-
ingurinn gildir til vorsins 2021.
Helena kom til Vals í nóvember
2018, þegar hún hætti í atvinnu-
mennsku í Ungverjalandi, og Hlíð-
arendaliðið var nær ósigrandi með
hana innanborðs, vann alla þrjá titl-
ana sem í boði voru og varð Íslands-
meistari í fyrsta skipti. Hún var val-
in besti leikmaður úrslita-
keppninnar í mótslok.
Helena samdi
við Val til 2021
Morgunblaðið/Hari
Framlengdi Helena Sverrisdóttir
verður áfram á Hlíðarenda.
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Veldu öryggi
SACHS – demparar
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA