Morgunblaðið - 01.05.2019, Side 26

Morgunblaðið - 01.05.2019, Side 26
Á ÁSVÖLLUM Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Haukar voru einfaldlega klókari en leikmenn ÍBV í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik á Ásvöllum í gær. Leiknum lauk með fjögurra marka sigri, 35:31. Haukar voru með yfir- höndina nánast allan leikinn. Haukarnir voru sterkari aðilinn í upphafi leiks og náðu tveggja marka forskoti eftir fimm mínútna leik. Eyja- menn gáfust ekki upp og komust yfir, 10:9, þegar 15 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Haukarnir voru hins vegar sterkari undir lok fyrri hálfleiks og voru tveimur mörkum yfir í hálf- leik, 18:16. Hafnfirðingar byrjuðu seinni hálf- leikinn betur og var munurinn á lið- unum fimm mörk eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik. ÍBV tókst að minnka forskot Hauka niður í þrjú mörk þegar rúmlega sautján mínútur voru til leiksloka en lengra komust Eyjamenn ekki og Hafnfirðingar unnu þægilegan sigur. Eyjamenn spiluðu flottan hand- bolta í gær og voru síst lakari aðilinn. Leikmenn liðsins fóru hins vegar illa með hvert dauðafærið á fætur öðru í fyrri hálfleik og mistókst þannig að ná þriggja til fjögurra marka forskoti á Haukana. Björn Viðar Björnsson var öflugur í marki ÍBV í gær og varði 16 skot. Eyjamenn nýttu vörslur hans af- ar illa og misstu hvert frákastið á fæt- ur öðru til Hafnfirðinga sem refsuðu oftar en ekki með marki. Hafnfirðingar voru öflugir í gær en þeir voru líka heppnir. Þeir voru bar- áttuglaðir og hirtu flesta lausa bolta í leiknum en að sama skapi datt boltinn oft á tíðum fyrir þá í sóknarleiknum og þeir nýttu sér það vel. Adam Hauk- ur Baumruk og Daníel Þór Ingason voru aðsópsmiklir og skoruðu 17 mörk. Eyjamenn voru skíthræddir við þá. Þegar Eyjamenn komu út á móti í varnarleiknum sínum fundu Haukar svör á línunni þar sem Heimir Óli Heimisson var með á nótunum. Þá varði Grétar Ari Guðjónsson 14 skot í marki Hauka og mörg þeirra voru á afar mikilvægum augnablikum. Eyjamenn verða að vera klókari í sínum leik ef þeir ætla sér að verja Ís- landsmeistaratitil sinn. Þeir þurfa að elta lausu boltana og sýna meiri þroska og yfirvegun í færum sínum. Hafnfirðingar geta vel við unað og breidd liðsins kom vel í ljós í gær þeg- ar leikurinn var í járnum. Ef stór- skyttur liðsins halda uppteknum hætti í öðrum leiknum í Vestmanna- eyjum á morgun verður afar erfitt fyrir Eyjamenn að stoppa Hafnfirð- inga. Haukarnir voru klókari þegar upp var staðið  Stórskytturnar voru áberandi  Meiri grimmd og ákveðni skorti hjá ÍBV Morgunblaðið/Hari Drjúgur Adam Haukur Baumruk skýtur að marki ÍBV en Róbert Sigurðarson og Kristján Örn Kristjánsson eru til varnar. Adam skoraði 10 mörk en var rekinn af velli þegar fimm mínútur voru til leiksloka og gæti farið í bann. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 Við gyllinæð og annarri ertingu og óþægindum í endaþarmi Krem Þríþætt verkun - verndar, gefur raka og græðir Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum Inniheldur ekki stera Hreinsifroða Froðan hreinsar, róar og frískar óþægindasvæðið Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum Fyrir hámarksárangur er mælt með notkun á Procto-ezeTM Hreinsi áður en Procto-ezeTM Krem er notað. Fæst í næsta apóteki. HANDBOLTI Olís-deild karla Undanúrslit, fyrsti leikur: Haukar – ÍBV ....................................... 35:31  Staðan er 1:0 fyrir Hauka. Selfoss – Valur ............................. (frl.) 36:34  Staðan er 1:0 fyrir Selfoss. Umspil kvenna Fjórði úrslitaleikur: Fylkir – HK........................................... 23:26  HK vann einvígið 3:1. Danmörk Úrslitakeppnin, 1. riðill: Tvis Holstebro – Aalborg ................... 28:27  Vignir Svavarsson skoraði 1 mark fyrir Tvis Holstebro.  Ómar Ingi Magnússon skoraði 2 mörk fyrir Aalborg og Janus Daði Smárason 1. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins.  Staðan eftir 3 umferðir af 6: Aalborg 6, Skjern 4, Holstebro 3, SönderjyskE 2. Austurríki 8-liða úrslit, annar leikur: Bregenz – West Wien.......................... 21:25  Viggó Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir West Wien og Guðmundur Hólmar Helga- son 6 en Ólafur Bjarki Ragnarsson ekkert.  Staðan er 2:0 fyrir West Wien. Schwaz – Alpla Hard .......................... 18:25  Ísak Rafnsson skoraði 5 mörk fyrir Schwaz.  Staðan er 1:1. Þýskaland Jena – Alba Berlín ............................... 77:81  Martin Hermannsson lék ekki með Alba vegna meiðsla. Lið hans er í þriðja sæti með 46 stig úr 30 leikjum. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, undanúrslit: Toronto – Philadelphia ........................ 89:94  Staðan er 1:1. Vesturdeild, undanúrslit: Denver – Portland............................ 121:113  Staðan er 1:0 fyrir Denver. KÖRFUBOLTI Schenker-höllin, undanúrslit karla, fyrsti leikur, þriðjudag 30. apríl 2019. Gangur leiksins: 4:3, 6:5, 8:9, 11:12, 14:13, 18:16, 22:19, 25:21, 27:23, 29:26, 33:28, 35:31. Mörk Hauka: Adam Haukur Baum- ruk 10, Daníel Þór Ingason 7, Brynj- ólfur Snær Brynjólfsson 6, Heimir Óli Heimsson 4, Atli Már Báruson 4, Orri Freyr Þorkelsson 2, Ásgeir Örn Hall- grímsson 1, Tjörvi Þorgeirsson 1. Varin skot: Grétar Ari Guðjónss. 14. Utan vallar: 10 mínútur. Mörk ÍBV: Hákon Daði Styrmisson Haukar – ÍBV 35:31 9/1, Kristján Örn Kristjánsson 7, Sig- urbergur Sveinsson 4, Fannar Þór Friðgeirsson 3, Gabríel Martinez 2, Kári Kristján Kristjánsson 2, Dagur Arnarsson 1, Daníel Örn Griffin 1, Ró- bert Sigurðarson 1, Elliði Snær Við- arsson 1. Varin skot: Björn Viðar Björnsson 16, Haukur Jónsson 3/1. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Ramunas Mikalonis og Þorleifur Árni Björnsson. Áhorfendur: 879.  Staðan er 1:0 fyrir Hauka. HK heldur sæti sínu í Olísdeild kvenna í handknattleik en Kópa- vogsliðið hafði betur gegn Fylki 26:23 í fjórða leik liðanna í umspili um sæti í deildinni í Fylkishöllinni í gærkvöld. HK, sem endaði í 7. sæti í Olís- deildinni í vetur, vann einvígið 3:1 á móti Fylki eftir að hafa tapað fyrsta leiknum á sínum heimavelli. Fylkir endaði í 5. sæti 1. deildar í vetur en sló ÍR út í undanúrslitum umspils- ins og HK bar þá sigurorð af FH. Hrafnhildur Irma Jónsdóttir var markahæst í liði Fylkis með 8 mörk og þær Wiktoria Pierkerska og El- ín Rósa Magnúsdóttir skoruðu 4 mörk hvor. Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir og Elna Ólöf Guðjónsdóttir voru markahæstar í liði HK með 5 mörk hvor og þær Elva Arinbjarnar og Sigríður Hauksdóttir skoruðu 4 mörk hvor. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fagnað HK-konur stigu stríðsdans á gólfi Fylkishallarinnar í gærkvöld þegar ljóst varð að þær myndu leika áfram í deild þeirra bestu næsta vetur. HK leikur áfram í úrvalsdeildinni Benedikt Guðmundsson, landsliðs- þjálfari kvenna í körfuknattleik, hefur fengið þau Halldór Karl Þórsson og Pálínu Maríu Gunn- laugsdóttur til að vera sér til að- stoðar með landsliðið næstu tvö ár. Halldór Karl þjálfaði Fjölni í vet- ur sem leið. Pálína er þrautreynd fyrrverandi landsliðskona. Benedikt fær tvö með sér

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.