Morgunblaðið - 01.05.2019, Side 27
Á SELFOSSI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Selfyssingar eru komnir í 1:0-
forystu í viðureign sinni við Val í
undanúrslitum Íslandsmóts karla í
handbolta eftir 36:34-sigur í fram-
lengdum og afar skemmtilegum leik
í gærkvöldi. Um var að ræða einn
hraðasta og skemmtilegasta hand-
boltaleik hér á landi í langan tíma.
Liðin skiptust á áhlaupum en að
lokum voru það Selfyssingar sem
áttu það síðasta og mikilvægasta.
Haukur Þrastarson hefur verið einn
besti handboltamaður landsins síð-
sutu ár, en hann átti einn sinn allra
besta leik á ferlinum. Haukur skor-
aði 14 mörk og lagði einnig upp ófá
fyrir liðsfélaga sína. Haukur var
helsta ástæða þess að Selfyssingar
knúðu fram framlengingu þegar
staðan var erfið, skömmu fyrir lok
venjulegs leiktíma.
Fráleit ákvörðun Valsmanna
Guðni Ingvarsson spilaði mjög vel
í fjarveru Atla Ævars Ingólfssonar
sem var í banni. Sölvi Ólafsson stóð
sig heilt yfir vel í markinu og Pawel
Kiepulski varði mikilvæga bolta
undir lokin. Hjá Val skoraði Anton
Rúnarsson ellefu mörk og nýtti öll
fimm vítin sín og Róbert Aron Hos-
tert skoraði sex. Valsmenn söknuðu
hins vegar Agnars Smára Jónssonar
og Magnúsar Óla Magnússonar og
reyndi því meira á Anton og Róbert,
sem virkuðu þreyttir undir lokin.
Ekki bætti úr skák að Orri Freyr
Gíslason fékk þrjár brottvísanir og
þar með rautt spjald strax í fyrri
hálfleik.
Þjálfarateymi Vals fær fall-
einkunn fyrir lokasókn Valsmanna í
leiknum. Valur fékk sjö sekúndur til
að jafna í 35:35 og tryggja sér víta-
keppni. Tíminn var stöðvaður og
fengu Valsmenn tækifæri til að
skipuleggja eldsnögga sókn. Það var
ákveðið að Benedikt Gunnar Ósk-
arsson myndi byrja sóknina, en
hann er kornungur og óreyndur. Í
framlengingu í undanúrslitum var
það fráleit ákvörðun og kastaði
stressaður Benedikt boltanum beint
til Selfyssinga sem fögnuðu.
Annars var leikurinn fyrst og
fremst góð auglýsing fyrir íslenskan
handbolta og það viðurkenndu meira
að segja Valsmenn eftir leik. Haldi
þetta einvígi áfram á þessari braut,
ætti enginn að láta það framhjá sér
fara. Það eru svo sannarlega undan-
úrslit í gangi og því mikið undir og
það sást. Leikmenn slógust, rifust
og létu finna vel fyrir sér og skildu
svo sáttir eftir leik. Meira svona,
takk!
Selfoss í forystu eftir
meiriháttar skemmtun
Selfoss vann Val í framlengingu og komst í 1:0 Haukur fór á kostum
Morgunblaðið/Hari
Óstöðvandi Haukur Þrastarson, t.h., var Valsmönnum erfiður í leiknum í gær. Hann skoraði 14 mörk í 17 skotum.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019
emmessis.is
Jón Guðmundsson er hættur sem
þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfu-
knattleik eftir að hafa stýrt liðinu í eitt
ár. Hann staðfesti þetta við karfan.is í
gær. Keflavík hafnaði í öðru sæti Dom-
inos-deildarinnar og tapaði 3:0 fyrir
Val í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeist-
aratitilinn.
Valgeir Lunddal Friðriksson, 17 ára
knattspyrnumaður úr Fjölni, hefur
þegið boð enska félagsins Stoke City
um að vera þar til reynslu í eina viku.
Valgeir lék 11 leiki með Fjölni í úrvals-
deildinni í fyrra og hefur spilað með
yngri landsliðum Íslands.
KR hefur fengið til sín áströlsku
knattspyrnukonuna Grace Maher en
hún er tvítugur miðjumaður sem kem-
ur frá Canberra United í heimalandi
sínu. Maher hefur leikið með U20 ára
landsliði Ástralíu og verið viðloðandi
A-landsliðið.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, getur væntanlega stillt upp
sínu sterkasta liði gegn Barcelona á
Camp Nou í kvöld þegar
liðin mætast þar í
undanúrslitum
Meist-
aradeild-
arinnar.
Bras-
ilíumenn-
irnir Firm-
ino, sem
glímdi við
tognun, og Fab-
inho, sem fékk höf-
uðhögg á dögunum,
æfðu báðir í gær og út-
lit er fyrir að þeir verði
leikfærir.
Eitt
ogannað
Hleðsluhöllin, undanúrslit karla,
fyrsti leikur, þriðjudag 30. apríl 2019.
Gangur leiksins: 1:2, 5:6, 8:9, 11:12,
14:14, 17:17, 17:19, 19:20, 20:24,
24:27, 28:28, 30:30, 33:32, 36:34.
Mörk Selfoss: Haukur Þrastarson
14, Elvar Örn Jónsson 5/2, Nökkvi
Elliðason 5/1, Guðni Ingvarsson 5,
Árni Steinn Steinþórsson 5, Hergeir
Grímsson 1, Guðjón B. Ómarsson 1.
Varin skot: Sölvi Ólafsson 11, Pawel
Kiepulski 5.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Vals: Anton Rúnarsson 11/5,
Selfoss – Valur 36:34
Róbert Aron Hostert 6, Sveinn Aron
Sveinsson 4, Ýmir Örn Gíslason 4,
Vignir Stefánsson 3, Ásgeir Snær
Vignisson 2, Daníel Freyr Andrésson
1, Þorgils Jón Svölu Baldursson 1, Al-
exander Örn Júlíusson 1, Orri Freyr
Gíslason 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson
11, Einar Baldvin Baldvinsson 2.
Utan vallar: 14 mínútur.
Dómarar: Bjarki Bóasson og Gunnar
Óli Gústafsson.
Áhorfendur: 600.
Staðan er 1:0 fyrir Selfoss.
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
74. íþróttaþing ÍSÍ verður haldið
um næstu helgi. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins stendur til
að leggja á þeim vettvangi fram til-
lögu sem snýr að nýjum þjóðar-
leikvangi fyrir innanhúss-
íþróttagreinar. Mikil samstaða
virðist ríkja um tillöguna sjálfa í
það minnsta því tólf sérsambönd
leggja hana fram.
Þau eru: Blaksamband Íslands,
Dansíþróttasamband Íslands, Fim-
leikasamband Íslands, Handknatt-
leikssamband Íslands, Íþrótta-
samband fatlaðra, Júdósamband
Íslands, Keilusamband Íslands,
Körfuknattleikssamband Íslands,
Landssamband hestamannafélaga,
Siglingasamband Íslands, Skauta-
samband Íslands og Sundsamband
Íslands.
Í tillögunni er fyrst og fremst
skorað á ÍSÍ, regnhlífarsamtök
íþróttahreyfingarinnar, að hefja
tafarlaust viðræður við ríkisvaldið
sem og borgaryfirvöld um varan-
lega lausn á aðstöðuleysi afreks-
íþróttafólks og landsliða Íslands.
Farið er fram á að skipaður verði
vinnuhópur fyrir 20. maí 2019, um
nýjan þjóðarleikvang sem nýst geti
sem flestum íþróttagreinum.
Í drögum að ályktuninni er full-
yrt að skortur á aðstöðu sé farinn
að hamla framþróun í afreksstarfi
sérsambandanna.
Minnst tólf sam-
bönd með tillögu
um þjóðarleikvang
Morgunblaðið/Ófeigur
Gömul Laugardalshöllin er á undan-
þágu sem alþjóðlegt keppnishús.