Morgunblaðið - 13.05.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.05.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 Sjáum til þess að allar yfirhafnir komi hreinar undan vetri STOFNAÐ 1953 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Snorri Másson Þórunn Kristjánsdóttir „Þetta hús er mjög, mjög, mjög illa farið. Það er bara þannig,“ sagði Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Seljaskóla í Breiðholti í Reykjavík, síðdegis í gær. Þá var fjölmennt lið tiltekarmanna að störfum við að dæla vatni úr þeim hluta skólans þar sem eldur logaði í þaki í fyrrinótt. Magnús sagði að á meðan mest lét hefði vatnið náð honum upp að ökkla inni í kennslustofum. Eldur kom upp í millilofti í einu af nokkrum húsum skólans sem kallað er hús 4. Steypt þak þess húss hrundi ekki heldur hélt og sagði Magnús að um tíma hefði verið tví- sýnt um hvort svo yrði. „Það sem fór niður var reykur og vatn, ekki eldur. Þannig að þakið hefur staðið sig,“ sagði hann. Ef þakið hefði hins vegar hrunið segir Magnús að voðinn hefði verið vís því þá hefðu eldtungurnar náð að breiða úr sér yfir í aðrar byggingar skólans. Í staðinn eyði- lagði eldurinn aðeins bárujárnið sem lá ofan á steypuþakinu. Í húsi 4 eru sex kennslustofur, nokkuð rúmgott miðrými og nokkrar sérkennslustofur. Ljóst var að nærri allir innanhúsmunir þar voru svo gott sem ónýtir. Þar á meðal var ný- legur tölvubúnaður, stólar og borð, bækur, örbylgjuofnar og fleira. Tjónið hleypur að minnsta kosti á tugum milljóna, taldi Magnús við fyrstu sýn en eftir er að meta það til fullnustu. Húsnæðið var allt mjög illa leikið. Ekki var unnt að mynda það vegna rannsóknarhagsmuna. Í stuttu samtali við Morgunblaðið sagði talsmaður tryggingafélagsins VÍS, sem Reykjavíkurborg er tryggð hjá og þar með skólinn, að umfang tjónsins yrði metið í dag, mánudag, en fyrir lægi að það væri verulegt. Sú fullyrðing er í samræmi við eyðilegginguna sem blasti við á vettvangi en bara borð og stólar í eina kennslustofu sagði Magnús að kostuðu skólann 2-2,5 milljónir. Komið út yfir velsæmismörk Eldur kviknaði einnig í hluta skól- ans í mars. „Að fá svona fréttir með tveggja mánaða millibili er sláandi. Við höfum fengið loforð um að þetta verði virkilega skoðað og farið verði ofan í kjölinn á málinu. Eftirlitsaðil- ar borgarinnar og þeir sem taka út svona byggingar,“ sagði Magnús sem kvaðst vel skilja áhyggjur for- eldra yfir að tvisvar hefði brunnið á sama ári í byggingum skólans. Foreldrar barna við skólann hafa gagnrýnt að sökum plássleysis sé kennt á göngunum. Það hefur verið sagt gera flóttaleiðir ógreiðfærar. Ragnheiður Davíðsdóttir, foreldri barns í Seljaskóla og formaður for- eldrafélagsins, sagði í samtali við mbl.is í gær að brýnt væri að gera öryggisúttekt á skólanum. Hún segir að skólastjórnendur hafi ítrekað kallað eftir fjármagni frá yfirvöldum til að sinna viðhaldi en ekkert gerist. „Þetta er komið virkilega á þann stað að það er ekki hægt að sinna viðhaldi. Það þarf að setja umtals- vert fjármagn í viðhald. Þetta er komið svo langt út yfir öll velsæm- ismörk,“ segir hún. Skammt stórra högga á milli Úttekt nauðsynleg Skólastjórinn segir eld tvisvar á ári vekja ugg.  Annar bruninn í ár í Seljaskóla  Vatnsskemmdir í fjölda kennslustofa  Ekki kennt í dag  Tryggingafélag segir tjón verulegt  Öryggismálum ábótavant Morgunblaðið/Ómar Slangan munduð Menn gátu staðið uppi á þaki á meðan eldur logaði í því, enda sterkbyggt. Allt tiltækt slökkvilið og meira til var kallað út í gær. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis- flokksins í borgarstjórn Reykjavík- ur, kallar eftir úttekt á meintu einelti hjá Félagsbústöðum. „Við þurfum að fá málið á borð borgarinnar. Annaðhvort þarf stjórn Félagsbústaða að axla ábyrgð með því að kanna þessi mál til hlítar eða að borgin sem eigandi geri það.“ Tilefnið er umfjöllun í laugardags- blaði Morgunblaðsins en þar lýstu þrír fyrrverandi starfsmenn Félags- bústaða vanlíðan sem þeir rekja til framkomu Auðuns Freys Ingvars- sonar, fyrrverandi framkvæmda- stjóra félagsins. Einn fullyrti að um einelti hefði verið að ræða en hinir tveir telja rétt að fagfólk meti það. Umræddum starfsmönnum var sagt upp störfum hjá Félagsbústöð- um en Auðun Freyr hætti sl. haust. Sendi formlega kvörtun Kolbrún Baldursdóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, segir rétt að mannauðsdeild borgarinnar kanni málið. „Þessir einstaklingar eiga að senda formlega kvörtun og í kjölfar- ið á að rannsaka málið. Þetta er fyrirtæki í eigu borgarinnar.“ Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir að innan borgar- kerfisins hafi verið vitneskja um meint einelti hjá Félagsbústöðum. „Málið var þaggað niður. Sagt var að ekkert einelti væri í gangi hjá fyrirtækinu. Þetta væru aðeins dylgjur hjá starfsmönnum og um að ræða árásir gegn félaginu.“ Dagur B. Eggertsson borgarstjóri baðst undan viðtali. Sagði „eðlilegt að ræða starfsmannamál við fyrir- tækið“. Þá sögðust Sanna Magda- lena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Við- reisnar, ekki hafa upplýsingar til að tjá sig um málið að svo stöddu. Gerð verði úttekt á meintu einelti hjá Félagsbústöðum  Sjálfstæðismenn vilja athugun  Málið sagt þaggað niður Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Alls óku 24 af hverjum 10.000 öku- tækjum á móti rauðu ljósi yfir gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík í tveimur umferðarstraumum milli klukkan 16 og 19 á þriggja daga tímabili í desember í fyrra. Þetta kemur fram í niður- stöðum rann- sóknar, sem verkfræðistofan EFLA vann fyr- ir Vegagerðina um tíðni aksturs gegn rauðu ljósi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að tíðni aksturs gegn rauðu ljósi á gatna- mótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar er á sam- bærilegu bili og niðurstöður er- lendra rannsókna. Þá sýndu þær einnig að algengara er að vinstri beygja sé ekin á móti rauðu ljósi. Há tíðni árekstra á svæðinu Gatnamót Kringlumýrar- og Háaleitisbrautar voru valin í verk- efnið vegna hárrar tíðni árekstra vegna aksturs gegn rauðu ljósi. Notaðar voru upplýsingar úr um- ferðartölvu höfuðborgarsvæðisins frá Reykjavíkurborg. Út frá þeim upplýsingum var hægt að sjá hve- nær dags umferðarljósin breyttust úr gulu yfir í rautt. Sjónræn myndgreining fól í sér að starfs- maður EFLU horfði á mynd- böndin og greindi hvort fremra dekk ökutækja var komið yfir eða var á stöðvunarlínu á því augna- bliki sem rautt ljós byrjaði að loga. Einstök rannsókn hérlendis Rannsóknin er sú fyrsta á Ís- landi sem rannsakar tíðni aksturs gegn rauðu ljósi með myndbands- greiningu. Myndbandsbúnaði var komið fyrir á tveimur stöðum við gatnamótin þriðjudaginn 3. desem- ber til föstudagsins 6. desember. „Samtals óku 11 ökumenn gegn rauðu ljósi (þ.e. yfir stöðvunarlínu eftir að rautt ljós kviknaði) og 58 voru á stöðvunarlínu þegar rautt ljós kviknaði yfir talningartíma- bilið frá 16.00-19.00,“ segir í nið- urstöðum EFLU. Akstur á móti rauðu ljósi mældur  Fyrsta rannsókn sinnar tegundar hér Mælingar Akstur gegn rauðu ljósi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.