Morgunblaðið - 13.05.2019, Blaðsíða 29
Þór og tekur fram að sér hafi á síð-
ustu árum liðið mjög vel í Helsinki þar
sem vel fari um hann.
Spurður hvernig það hafi komið til
að hann sótti upprunalega um stöðu
erlendis segir Ari Þór það í raun ekki
hafa komið til af góðu. „Ég ákvað að
leita út fyrir landsteina eftir fremur
leiðinlegt tímabil með Sinfóníunni. Ár-
ið 2011 sótti ég um stöðu konsert-
meistara og þá fór í gang mjög sér-
stakt ráðningarferli sem tók hálft
annað ár. Við vorum tvö sem fengum
prufuvikur, en samtímis var staðan
auglýst erlendis og haldið prufuspil í
London. Þegar loks var ráðið í stöð-
una leituðum við bæði, sem fengið
höfðum prufuvikur, til umboðsmanns
Alþingis sem komst, hálfu öðru ári
seinna, að þeirri niðurstöðu að máls-
meðferðin við ráðningu í starfið hefði
ekki verið í samræmi við reglur
hljómsveitarinnar. Í raun var allt
ráðningarferlið ólöglegt. Mér þótti
gott að fá þessa afdráttarlausu niður-
stöðu umboðsmanns Alþingis. Þetta
var afar erfiður tími og mér sárnaði
þetta mjög. Ég sá því ekki fyrir mér
að ég gæti starfað áfram innan hljóm-
sveitarinnar og ákvað að leita fyrir
mér erlendis, sem endaði með ráðn-
ingunni í Helsinki,“ segir Ari Þór og
tekur fram að mótlætið hér heima hafi
opnað augu hans fyrir tækifærum er-
lendis sem hafi reynst honum til góðs
þegar upp var staðið.
Nýjar dyr opnuðust
„Lífið heldur áfram og maður tekst
á við næstu áskorun. Ég hef fengið
fleiri tækifæri úti, verið gestakonsert-
meistari í Stokkhólmi í sex vikur og
einnig gestakonsertmeistari í Tou-
louse í Frakklandi í þrjár vikur. Þetta
hefði aldrei gerst ef ég hefði starfað
áfram á Íslandi. Þannig hafa opnast
fyrir mér dyr sem ég hefði aldrei
bankað á ella. Það er bæði spennandi
og mikil viðurkenning að fá að spila
með frábærum hljómsveitum úti í
heimi sem maður hafði fram að því að-
eins dáðst að á Youtube. Það hefur
líka verið frábært að fá tækifæri til að
kynnast annarri menningu og fólki í
ólíkum löndum,“ segir Ari Þór og tek-
ur fram að í ljósi forsögunnar þyki sér
sérlega vænt um að fá tækifæri til að
leika einleik með SÍ og vonar að fleiri
tækifæri gefist til þess í framtíðinni.
Spurður hvar hann sjái sjálfan sig
eftir tíu ár segist Ari Þór sannfærður
um að hann muni enn búa og starfa
erlendis. „Ég er ekki að fara að flytja
heim neitt á næstunni. Mér líður vel
úti, sem skýrist kannski af því að ég
ólst að hluta til upp erlendis,“ segir
Ari Þór og rifjar upp að hann hafi búið
í Bandaríkjunum frá því hann var
fimm til tíu ára meðan foreldrar hans
voru þar í námi. „Mamma er frá
Mexíkó þannig að ég á stóra fjöl-
skyldu þar. Ég hef því alltaf haft sterk
tengsl við útlönd frá því ég man eftir
mér. Það er aldrei að vita nema ég
flytji heim seinna, en það verður ekki í
bráð.“
Morgunblaðið/Hari
góðu spilaformi“
Áskorun „Lífið heldur áfram
og maður tekst á við næstu
áskorun,“ segir Ari Þór.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
Útgefandinn Guðrún Vilmundardóttir, Gauti Kristmannsson þýðandi og
gagnrýnandi og Hrefna Haraldsdóttir hjá Miðstöð íslenskra bókmennta.
r Hallgríms Helgasonar í Tveimur hröfnum
»Hallgrímur Helgason
opnaði myndlistarsýn-
ingu sína KLOF & PRÍ$
í Tveimur hröfnum list-
húsi á föstudaginn. Hall-
grímur er horfinn frá
raunsæi fyrri málverka
yfir í meiri fantasíustíl en
umfjöllunarefnið að
þessu sinni er staða og
barátta kynjanna.
Gaman Jón Kalman Stefánsson, Ágústa Skúladóttir, Guðrún
Vilmundardóttir, Sigríður Hagalín Björnsdóttir og málarinn.
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Gagnrýnandi Opera Now, Neil Jon-
es, skrifar afar lofsamlega um upp-
færslu Íslensku óperunnar á La
Traviata eftir Verdi og gefur upp-
færslunni fjórar stjörnur af fimm
mögulegum. Rýnir hrósar sér-
staklega aðalsöngvurunum, Herdísi
Önnu Jónasóttur, sem hafi sungið
óaðfinnanlega og túlkað Víólettu
með lifandi hætti, og Elmari Gil-
bertssyni er einnig hrósað fyrir
söng og sviðsframkomu.
Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir
„Hnökralaus“ Elmar Gilbertsson og
Herdís Anna Jónasdóttir í hlutverkum sín-
um – hún er sögð „hnökralaus Violetta“.
Rýnir Opera Now
hrósar La Traviata
Sýning Leikflokks Húnaþings
vestra á Hárinu, í leikstjórn Sig-
urðar Líndal Þórissonar, hefur ver-
ið valin af Þjóðleikhúsinu athyglis-
verðasta áhugaleiksýning leik-
ársins 2018-2019. Sýningin þótti
unnin af miklum metnaði og hvergi
var slegið af kröfum við uppfærsl-
una. Önnur sýning sama leikflokks,
Snædrottningin, kom einnig sterk-
lega til greina við val á sýningu árs-
ins.
Val Þjóðleikhússins á athyglis-
verðustu áhugaleiksýningu leikárs-
ins fór fram í tuttugasta og sjötta
sinn. Að þessu sinni sóttu fimmtán
leikfélög um að koma til greina við
valið með sautján sýningar.
Í umsögn dómnefndar kemur
fram að sýningin sé unnin af mikl-
um metnaði og hvergi slegið af
kröfum, og þar segir m.a.: „Stór
leikhópurinn er skipaður hæfi-
leikafólki sem nýtur sín í botn… Af-
slappaður leikurinn skilar frásögn-
inni á einlægan og einfaldan máta
þannig að húmor og boðskapur
verksins komast vel til skila.“
Venju samkvæmt býður Þjóðleik-
húsið leikhópnum að koma og setja
verkið upp á Stóra sviði leikhússins
og verður verkið sýnt þann 14. júní.
Hárið „Afslappaður leikurinn skilar frásögninni á einlægan og einfaldan máta…“
Hárið athyglisverðasta áhugasýningin