Morgunblaðið - 13.05.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.05.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 Mörgum þótti skrítið hve sam-tök um viðskipti voru á skjön við fólkið í landinu í Ice- save-málum en fylgdu Steingrími og Jóhönnu sem höfðu horn í síðu atvinnulífs eins og 100 skatta- hækkanir þeirra sýndu. Og nú virðast slík sam- tök aftur upp á kant við al- menning. Hvers vegna?    Gunnar Rögn-valdsson bendir á orð leiðtoga í at- vinnulífi í Finn- landi: „Björn Wahlroos, stjórnarformaður Nor- dea-bankans og Sampo Group- samsteypunnar, segir að það hafi verið stór mistök að Finnland skyldi hafa tekið upp myntina evru. En Finnar hafa verið læstir fastir inni í evru frá og með 1999.    Finnland hefur næstum enganhagvöxt haft frá og með árinu 2007.“ En síðan þá eru liðin 12 ár. „Á þessu tímabili hefur sænska hagkerfið hins vegar vax- ið um meira en 20 prósent,“ segir Wahlroos.    Það hefur kostað Finnland of-boðslegt fé að sitja uppi með þýska mynt á finnskum vinnu- markaði,“ segir hann. „Þegar þú ert með vonlausa verkalýðshreyf- ingu á vonlausum vinnumarkaði eins og í Finnlandi, þá verður þú að hafa þína eigin mynt.“    Fjárfestar vilja ekki festa fésitt í svona landi, sagði Wahlroos. Sem sagt: evran hefur kostað Finnland heilt heilbrigðiskerfi plús allt skólakerfið, á aðeins 12 árum, eða sem svarar til eins fimmta af stærð hagkerfisins.“ Gunnar Rögnvaldsson Skrítið daður STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Starfsmenn vitadeildar Vegagerðar- innar hafa unnið að því undanfarna daga að koma fyrir nýjum ljósabún- aði í nýjasta vita Íslands. Vitinn stendur við Sæbraut í Reykjavík, skammt frá Höfða. Vitinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Faxaflóa- hafna og tekur við hlutverki vitans á toppi Sjómannaskólans sem leitt hafði sæfarendur rétta leið inn í Reykjavíkurhöfn. Bygging á Höfða- torgi skyggir á þann vita. Rafvirkjar vitadeildarinnar, þeir Guðmundur Jón Björgvinsson og Ástþór Ingi Ólafsson, verða að störf- um í vitanum næstu daga en vonir standa til að hann verði tekinn í notkun um og eftir miðjan mánuð- inn. Vitinn er nú þegar orðinn mikið aðdráttarafl ferðamanna sem rölta meðfram sjónum líkt og Sólfarið hef- ur verið. „Hér er nú þegar margt fólk að taka sjálfur með vitanum,“ er haft eftir Guðmundi á vef Vegagerð- arinnar. Töluverð vinna er fólgin í því að setja upp ljós í slíkan vita og hafa starfsmenn vitadeildarinnar mikla sérfræðiþekkingu í því. Stilla þarf ljósið nákvæmlega svo skipin geti varist hættulegum svæðum. Þegar rafvirkjarnir hafa lokið störfum og stillt ljósið með upplýs- ingum frá verkfræðistofunni Hnit, mun siglingasvið Landhelgisgæsl- unnar taka næsta skref og taka ljós- in út og staðfesta að þau lýsi rétta leið. Þá verður hægt að gefa út lög- leg sjókort og vitinn tekinn í notkun. sisi@mbl.is Taka „sjálfur“ við nýja vitann Morgunblaðið/Ómar Nýr viti Verið er að koma ljósabún- aði fyrir í vitanum við Sæbraut. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Vonast er til þess að kríustofninn á Íslandi verði öflugri í ár heldur en undanfarið. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur segir að afkoma krí- unnar á sunnan- og vestanverðu landinu hafi versnað vegna ætis- skorts frá árinu 2005. Krían sé nú á válista Náttúrufræðistofnunar yfir fugla í nokkurri hættu. Ætisskortur kríunnar var í sam- ræmi við vandamál fjölmargra ann- arra sjófugla sem byggja afkomu sína á sandsíli. Stofn sandsíla beið hnekki á þessum tíma og hefur ekki rétt úr sér síðan. Jóhann segir að kríustofninn hafi hins vegar rétt úr kútnum árið 2015 og kríuvarp á Sel- tjarnarnesi var í meðallagi það ár. Varpið var einnig gott árið 2016 en því hrakaði nokkuð árið 2017. Kríu- varpið var með svipuðu móti við Reykjavíkurtjörn en þar mistókst varpið í fyrrasumar. Varp sjófugla hefur síðustu ár gengið betur á norðanverðu Íslandi, norðan línu sem dregin er frá Arnar- firði til Stöðvarfjarðar. Þar er meira um sandsíli og fjölbreyttari fæða fyrir sjófuglana. Krían er langförulust allra fugla og á sér varpstaði allt í kringum norðurheimskautið. Vetrarstöðvar kríunnar eru í Suður-Atlantshafi við Suður-Afríku og í Suður-Íshafinu við Suðurskautslandið. Kríurnar nýta sér staðvinda til þess að auð- velda sér þetta langa farflug og fylgja ætisríkum hafsvæðum á leið- inni. Jóhann Óli segir að reiknað hafi verið út að gamlar kríur fljúgi um það bil þrefalda vegalengdina til tunglsins yfir ævina. Flughraði fuglanna sé um 45 til 60 km á klst. í um sex til sjö tíma á hverjum degi. Alls séu þetta um 300 km á dag. Erfitt varp vegna skorts á sandsílum  Hægur bati ís- lenska kríustofnsins frá árinu 2015 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fuglar Kríur á Seltjarnarnesi árið 2018. Varpinu þar hrakaði ári áður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.